Morgunblaðið - 19.11.1986, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1986
37
Skjárinn
Til íhugnnar
eftír Guðnýju Rögn-
valdsdóttur
Notkun myndbanda á heimilum
hefur verið talsverð að undanförnu.
Ný sjónvarpsstöð hefur bæst við
þá sem fyrir var. Og nú er ljóst að
innan tíðar verður unnt að ná tug-
um erlendra sjónvarpsrása hérlend-
is. Þetta er vissulega spennandi
þróun og tilhlökkunarefni. Úrval
myndefnis eykst til muna. Við auk-
um þekkingu okkar og skilingn á
högum annarra. Heimurinn minnk-
ar enn. Með því gætu aukist líkur
á friðsamlegum samskiptum og við
hugsanlega orðið betri manneskjur
eftir en áður. Ýmsum hefur þó orð-
ið tíðrætt um aðra hlið málsins.
Meðan á þessari öru þróun stendur
verður mannskepnan áfram sögu
gerðar í meginatriðum. Þá er sama
hvort hún býr á íslandi eða í Ástr-
alíu. Margir eðlisþættir okkar eru
og verða þeir sömu. Kroppa- og
klámdýrkun verður áfram ríkur
þáttur mannlífsins. Ofbeldishneigð
heldur áfram að vera til staðar þó
mismunandi djúpt sé á henni.
Mannskepnan verður sem endranær
í eðli sínu veik fyrir sýndarmennsku
og sjónarspili, áhrifagjörn og leiði-
töm.
Það er varðandi þennan þátt sem
mig langar að leggja orð í belg.
Það eru margir sammála um að
sjónvarpið geti mótað neikvæðar
hugsanir og athafnir. Sumir hafa
nefnt sem hugsanlegar afleiðingar
þessarar öru fjölmiðlaþróunar and-
legt og líkamlegt slen, slævða
siðgæðisvitund, hvers konar öfgar,
pólitískar sem aðrar, aukið laus-
iæti, aukið klám, aukna fíkniefna-
neyslu, fleiri afbrotamenn. Það er
oft auðveldara að sjá galla en fínna
á þeim úrbætur. Þannig er erfitt
að koma auga á eitthvert það for-
vamarstarf sem að gagni mætti
koma. En það er aðallega sú spurn-
ing sem hér er varpað fram. Getum
við með ræðu og riti, fræðslu og
aðhaldi eða framkvæmdum fækkað
mögulegum slysum? í hraða og fírr-
ingu nútímans hættir okkur til
kæruleysis. Og mig grunar að rík
tilhneiging okkar til að bíða og sjá
hvað setur verði síðar meir túlkað
sem glámskyggni.
Hvers konar myndefni?
Er nokkur ástæða til að ætla
annað en að við tökum allt það
nýja myndefni, sem á eftir að ber-
ast inn á stofugólf, með svipuðu
áhlaupi og aðrar nýjungar? Við vit-
um að myndbönd hafa víða verið
tekin fram yfir flest annað í
frítímum. Og það er skemmst að
minnast viðtakanna á skemmtiat-
riðum þeim og sportvörum sem
ástarguðinn og hefðarfrúin frá
París hafa séð okkur fyrir að und-
anförnu. Skv. frásögn sjónvaipsins
eru vinsældir miklar.
Það hafa vaknað hjá mér spurn-
ingar um val og eftirlit og um gerð
og gæði þessa nýja myndefnis.
Væntanlega eiga fleiri en þeir sem
vilja betri heim eftir að koma auga
á þá möguleika er gervihnettir gefa.
Má nefna áróðurssérfræðinga, t.d.
öfgahópa og hryðjuverkamanna,
eiginhagsmunapotara og aðra, er
ekki finna til ábyrgðar gagnvart
náunganum, svo sem framleiðendur
klám- og ofbeldismynda. Er nema
raunsætt að gera ráð fyrir a.m.k.
töluverðu efni að óvandaðri gerð?
Örfá atriði um
áhrifamátt sjónvarps
Ljóst er að sjónvarpið er mikill
auglýsinga- og áróðursmiðill. I
Bandaríkjunum hefur verið mikið
úrval sjónvarpsefnis lengi. Þekkt
hlustendakannanafyritæki þar
heldur því fram að fjölskyldumeð-
limir í Bandaríkjanna hafi horft á
sjónvarp að meðaltali í 7 klst. og
10 mín. á dag árið ’85. Þar í landi
hefur einnig verið sýnt fram á bein
tengsl milli fæmi stjómmálamanna
við að beita sjónvarpinu sér í hag
og velgengni þeirra. Ætli Reagan
forseti sé ekki augljósasta dæmið
núna. Ennfremur hefur verið sýnt
fram á bein tengsl milli sjónvarps-
gláps og ofbeldishneigðar og
afbrota. Það rifjast líka upp fýrir
mér að í morgunleikfimi Jónínu
Ben. í sumar kom fram að rann-
sóknir bentu til að börn væm orðin
helstu kyrrsetumenn í Banda-
ríkjanna vegna sjónvarpsins.
Hversu mörgum lyklabörnum hér-
lendis skyldi detta í hug eitthvað
Guðný Rögnvaldsdóttir
0
„An aðhalds gæti farið
svo að ómótuðum óvit-
unum þætti meira koma
til morðingja mafíunn-
ar, sem eru sterkari
aðilinn, er aðrir mega
sín iítils sem einskis
gegu, og- líti frekar nið-
ur á fórnarlömb
þeirra.“
annað en að ýta á takkann, þegar
þau koma heim í tómt húsið á dag-
inn?
Forvarnarstarf?
Þar sem mikið úrval og valfrelsi
er til staðar er nauðsynlegt að vera
vel undir það búinn. Fræðsla þarf
því enn frekar en nú er að hafa það
markmið að kenna bömum að velja
og hafna. Við verðum að miða að
því að börnin verði sem best and-
lega sjálfstæðir einstaklingar með
góða kjölfestu. Því meira sem tog-
ast er á um ómótuð, óhörðnuð
ungmennin, þeim mun meiri hætta
Selfoss:
Fimmtíu nemend-
ur í sirkusskóla
Selfossi.
TRÚÐURINN Ruben lieimsótti skólanemendur á Selfossi sl þriðjudag
við góðar undirtektir. 50 nemendur tóku þátt í tveggja tíma sirkus-
skóla og sýningu sem fylgdi i kjölfarið.
Á sýninguna sem var haldin í
íþ’róttahúsinu mættu allar bekkjar-
deildir grunnskólans og einnig
nemendir frá nágrannaskólum, í
Villingaholti og frá Þingborg. Það
var greinilegt að færri komust að í
sirkusskólann en vildu enda slíkir
gestir sem Ruben ekki í heimsókn á
hverjum degi.
Ruben hinn sænski náði mjög vel
til krakkana og skapaði sannkallaða
sirkusstemmningu í íþróttahúsinu.
Andlit bamanna ljómuðu og full-
orðnir kunnu einnig vel að meta
uppátækin. Krakkarnir fengu ekki
einungis hlutverk í sirkusnum sem
trúðar'heldur einnig sem ljósameist-
arar, leikmunaverðir, kvikmynda-
tökumenn og hljóðmeistarar. I lokin
tilkynnti Ruben sjálfur, reyndar í
venjulegum klæðnaði og á sinni sér-
hönnuðu íslensku, að þetta væri
sirkusinn Gullfoss sem drykki mikla
mjólk og boðaði gull.
Ruben sænski hefur ferðast víða
um landið og haldið sirkusskóla og
sýningar ásamt því að leggja sig
eftir að sjá sem mest af náttúru
landsins. Eftir nemendasýninguna
og sýningu að kvöldi þriðjudagsins
lýsti hann ánægju með dvölina á
Selfossi og viðtökur. Auk sýning-
anna hélt hann fræðslufund með
leikfélagsfólki og kennurum á Sel-
fossi.
Sig Jóns.
er á að þau verði eins og lauf í
vindi. Það verður að kenna börnum
að draga sínar eigin ályktanir að
vel athuguðu máli. Nú duga engir
stórusannleikar eða boð og bönn.
Þau verða að hafa staðfestu og
bolmagn til að getá vegið og metið
sjálf. Þeim verður að vera ljóst að
sum gildi eru mikilvægari og dýr-
mætari en önnur. Þau verða að
læra að vinna bug á eiginleika okk-
ar og áráttu til einfaldana og
alhæfinga eða sleggjudóma, sem
allt eru afleiðingar vanþekkingar
og oft áhrif áróðurs eða auglýs-
inga. Og þau veða að læra að sjá
í gegnum fagurgala og stóryrði,
„hreinskilni" og „sannleika“ áróð-
ursmanna.
Leiðir að þessum markmiðum
geta verið margar, en liggja þó um
sem víðtækasta fræðslu. Áð kynna
sem flestar hliðar mannlífsins frá
sem flestum sjónarhólum. Það er
ekki sama hver segir frá, hvemig
eða til hvers.
Reyndar tel ég mikilvægast að
við hægjum á, jafnvel stöldrum við
stundum, og gefum okkur tíma með
börnunum. Þá gleymum við síður
að gefa þeim gaum. Og aðeins
þannig getum við haft áhrif á við-
horf þeirra. Hér hefur verið rætt
um hugsanleg áhrif af myndaflóði.
Er ekki nauðsynlegur undirbúning-
ur að velja vel gerðar myndir til
að horfa á saman sem eins konar
sýnikennslu. Eitt er að sitja óvirk
tímunum saman fyrir framan skjá-
inn, annað að velja góðar myndir
til ánægju, fróðleiks og þroska. Þær
má svo nota til skoðanaskipta og
umræðna. Hér þarf að vísu að
gæta að þroskastigi bamanna við
val á myndum.
Að mínu mati var ítalska fram-
haldsmyndin Kolkrabbinn með því
besta, sem sjónvarpað var sl. vetur.
Ef við tökum dæmi úr henni, þá
er þar eiturlyfjaneytandi í vonlausri
aðstöðu. Svona til upprifjunar, þá
hafði meðlimur mafíunnar platað
eitrinu inn á dóttur viðhalds síns,
sem hann skaut svo í kviðinn að
dótturinni viðstaddri og verslaði
síðan við barnið, hún sagði ekki frá
og seldi honum líkama sinn fyrir
eiturlyfin sem hún var orðin háð.
Þá niðurbrotnu stúlku er hafði glat-
að allri stjálfstjóm og sjálfsvirðingu
má nota til að auka skilning á skað-
semi eiturlyfja og á innræti og
hugsunarhætti eiturlyfjasala og
annarra glæpamanna. Útskýringar
og umræður eru nauðsynlegar til
að skilja þá mannlegu þætti og ólíku
viðhorf, sem koma fram í mynd sem
þessari. Án aðhalds gæti farið svo
að ómótuðum óvitunum þætti meira
koma til morðingja mafíunnar, sem
eru sterkari aðilinn, er aðrir mega
sín lítils sem einskis gegn, og líti
frekar niður á fómarlömb þeirra.
Aö lokum
Hvað sem svona vangaveltum
líður, þá tel ég nauðsynlegt að
umræðum verði haldið uppi. Fróð-
legt væri að fá athugun á úrvali,
svo og notkun og eftirspum mynd-
banda. Hér er ekki eingöngu átt
við tölfræðilegar upplýsingar, held-
ur notkun skv. flokkun, gerð og
gæðum, og álitsgerð þar að lút-
andi. Fróðlegt væri að fá upplýsing-
ar þeirra sem þekkja til gervihnatta.
Þá hef ég í huga spurningar eins
og hvaða sjónvarpsstöðva náum við
til í framtíðinni og hvers konar efni
er þar á boðstólum. Fróðlegt væri
að fá athugun og mat á fjölda og
gerð auglýsinga, svo og sálfræðinni
sem að baki auglýsingum og áróðri
liggja. Fróðlegt væri að fá álit allra
þeirra er telja sér málið skylt. Er
t.d. ekki bara sjálfsagt að hvetja
forráðamenn sjónvarpsstöðva til að
færa morðgátur og ofbeldismyndir
aftur fyrir a.m.k. kl. 10 á kvöldin?
Litlar hermikrákur læra það sem
fyrir þeim er haft.
Höfundur er húsmóðir í Garðabæ.
Morgunblaðið/Sig Jóns.
Á sirkussýningunni komu nemendur fram sem trúðar og gegndu
ýmsum hlutverkum.
OLYMPÍUHAPPDRÆTTIÐ
Enn er möguleiki að kaupa miða í Olympíuhappdrættinu þar sem
drætti hefur verið frestað til 5. desember.
4 vélsleðar að verðmæti kr. 250.000 hver.
2 vélsleðar að verðmæti kr. 400.000 hver.
6 ferðavinningar að
verðmæti kr. 53.300 hver.
8 Volvo bifreiðar að verðmæti kr. 414.000 hver.
2 Volvo bifreiðar að verðmæti kr. 584.000 hver.
Heildarverðmæti vinninga er kr. 6.608.000,-