Morgunblaðið - 19.11.1986, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1986
41
Stjömu-
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Kæri stjömuspekúlant. Ég
er einn þeirra sem löngum hef
gefið lítt út á vangaveltur um
stjömur og fundist það vera
meira til gamans en gagns.
Hvað um það, núna langar
mig að fræðast um mín merki
og meta síðan hvort mér
finnst það vera fyndið eða
gagnlegt. Ég er fæddur
23.10. 1964 rétt uppúr kl. 8
í Rvík. Með fyrirfram þakk-
læti.“
Svar:
Að mati undirritaðs er
stjömuspeki bæði til gagns
og gamans. Það er hins vegar
undir hveijum og einum kom-
ið hvort verður mikilvægara.
Hins vegar verður að segjast
eins og er að ef þú vilt meta
stjömuspeki þarf meira til en
hér er ritað, því plássið er lítið
og oft vill bamið fljóta með
baðvatninu þegar reynt er að
meta hvað á að segja og hvað
ekki.
Merkin
Þú hefur Sól og Rísandi merki
í Vog, Tungl t Nauti, Merkúr
í Sporðdreka, Venus í Meyju
og Mars í Ljóni á Miðhimni.
Vogarskálar
Það er ánægjulegt að í bréfi
þínu skuli birtast þörf Vogar-
innar til að vega og meta
áður en endanleg ákvörðun
er tekin. Við getum sagt að
það sé vísbending um að þú
gerir þér far um að vera rétt-
látur. Að öðru leyti er per-
sónulýsing útfrá korti þínu á
þessa leið: Þú ert félagslynd-
ur, opinn og hress í framkomu
og átt auðvelt með að um-
gangast fólk. Þú ert kraftmik-
ill, hreinskilinn og vilt vera
áberandi í umhverfi þínu.
íþróttir
Mars í Ljóni á Miðhimni tákn-
ar að þú ert metnaðargjam
og baráttuglaður. Þú gætir
t.d. náð langt í sjálfstæðum
atvinnurekstri og viðskiptum.
Ég tel líklegt að þú viljir eiga
flotta og áberandi bíla og al-
mennt láta bera á þér í
þjóðfélaginu og umhverfinu.
Þú þarft að hreyfa þig og því
er íþróttaiðkun æskileg.
Stórtœkur
Þú átt til að vera stórtækur
og þarft að varast að ganga
of langt eða að ætla þér of
mikið á of skömmum tíma
(Mars í spennu við Júpíter).
Hugsun þín er dul og kryfj-
andi. Þú hefur gaman af því
að rannsaka og bijóta mál til
mergjar (Merkúr í Sporð-
dreka).
Tilfinningamál
Tilfinningar þtnar eru jarð-
bundnar og íhaldssamar og
getur tvennt háð þér á því
sviði. í fyrsta lagi gefur Ven-
us í Meyju til kynna að þér
hættir til að gagnrýna aðra.
Þú getur því orðið hrifinn af
ágætri konu en misst áhug-
ann vegna einhvers smávægi-
legs galla. Ef þú gætir ekki
að þessu er hætt við að þú
verðir seint hamingjusamur í
ástum. í öðru lagi hefur þú
tilhneigingu til að einangra
þig tilfinningalega; verða
stífur og eiga erfitt með að
hleypa öðrum að þér. Ástæðu
þess getur m.a. verið að finna
í uppeldi.
Framkvœmda-
maður
Ef kort þitt er dregið saman
má segja að þú sért félags-
lyndur og jarðbundinn
framkvæmdamaður. Þú ert
kappsfullur, hefur ágæta
skipulagshæfileika og vilt
glæsileika ! lífsstíl þinn. Það
sem helst háir þér og æskilegt
er að þú vinnir með eru tilfinn-
ingar þínar. Þú þarft að opna
þig, læra að treysta öðrum
og láta af stífni og kröfuhörku
í garð annarra.
X-9
!!8
SK/psryó/ZA
C19*5 Klng FNturn Syndic«*. Inc. World rlght» rcMrvvd.
GRETTIR
UM LBIO Oö H/UC4RL/NN UAlGr’
AST BR'AO SiNA, F/MNUe )
HAMN /tPE-ITTHVAP ERAE^y
C Ó,J'A.
/ VATN
I hákarlar
TOMMI OG JENNI
UOSKA
k/EL kompu 'yi
HEIM TIL MÍNÍ'1
éGSASÐI
TiL Ml'M !
FERDINAND
SMAFOLK
KNOWINé HOWTO WRITE
15 VERS' IMPORTANT
IF VOU CANT WRITE, HOW
AREVOU 601N6 TOTELL
50MEB0PY THE BAP NEW5?
Ég elska að skrifa.
Það er mjög mikilvægt að
kunna að skrifa.
Hvernig á maður að segja
fólki slæmar fréttir ef
maður kann ekki að
skrifa?
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Suður verður sagnhafi í þrem-"
ur gröndum eftir strögl austurs
á tveimur laufum. Eigi að síður
velur vestur að spila út spaða-
drottningu:
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ K42
VK743
♦ 863
♦ 853
Suður
♦ 65
VÁ8
♦ ÁK10975
♦ ÁD4
Vestur Norður Austur Suður
1 Ttgull
Pass 1 hjarta 2 lauf 3 grönd
Pass Pass Pass
Eftir innákomu austurs verð-
ur að teljast líklegra að hann
eigi spaðaásinn, svo fyrsta
skrefið er að gefa spaðann.
Vestur spilar næst gosanum,
aftur lítið úr blindum, en nú fer
austur upp með ásinn og spilar
þriðja spaðann. Taktu við.
Nú liggur ljóst fyrir að spað-
inn skiptist 5—3, svo ekki má
vestur komast inn í spilið. Ef
hann á drottninguna þriðju í tígli
er enginn leið að vinna sögnina,
en það er hægt að ráða við gos-
ann þriðja í vestur með vandaðri
spilamennsku. Það er nefnilega
í lagi að gefa einn slag á tígul,
svo fremi sem austur fær hann.
Norður
♦ K42
♦ K743
♦ 863
♦ 853
Vestur
♦ DG1097
♦ G962
♦ G42
♦ 2
Austur
♦ Á83
♦ D105
♦ D
♦ KG10976
Suður
♦ 65
♦ Á8
♦ ÁK10975
♦ ÁD4
Tígli er spilað úr borðinu, og
þegar drottningin kemur frá
austri fær hún að eiga slaginn.
Einfold öryggisspilamennska.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Lokin ! skák Sovétmannanna
Karpovs og Beljavskys í Tilburg
urðu þannig. Beljavsky hafði svart
og átti leik.
iAB ■
.*■£!
wm,' Wm.
IfHf í|l|í A fllS
/Wm’, w/m/Wmí
m .: i
35. - Rxd4! 36. Khl - Rb5! og
Karpov gafst upp, því endataflið
eftir 37. Hxe2 — d4+! 38. Kgl —
dxc3 er auðvitað vonlaust. 36. —
Df3+? 37. Dxf3 - Rxf3, 38. He7!
var hins vegar miklu lakara. Þá
hefði Karpov átt vissa jafnteflis-
möguleika. Þetta var eina tapskák
Karpovs á mótinu og í raun úr-
slitaskák mótsins.