Morgunblaðið - 19.11.1986, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1986
45
Minning:
Baldvina M. Jóhanns
dóttir, Siglufirði
Fædd 12. september 1908
Dáin 23. október 1986
Baldvina frænka mín er dáin. Erf-
itt var að trúa því að morgni 23.
október. Kvöldið áður höfðum við átt
svo langt og gott samtal. Eitt sam-
talið af svo mörgum.
Baldvina var fædd í Siglufirði 12.
september 1908. Foreldrar hennar
voru Marsibil Herdís Baldvinsdóttir,
Jóhannssonar, útvegsbónda á Siglu-
nesi og Jóhanns Jóhannssonar frá
Engidal.
Þau hjón eignuðust sjö böm: Jó-
hann, Baldvinu, Kristrúnu, Mörtu,
Höllu, Odd Guðmund (lést í æsku)
og Gunndóru.
Jóhann, Marta og Gunndóra em
á lífi, búsett á Siglufirði.
Móðir þeirra, Marsibil Herdís, átti
við mikil veikindi að stríða og lést
ung 1923, aðeins 39 ára gömul. Var
bamahópnum komið í fóstur og Bald-
vinu komið fyrir hjá þeim merkis-
hjónum Þormóði Eyjólfssyni og
Guðrúnu Bjömsdóttur frá Komsá.
Baldvina var þá 11 ára. Var hún
þeim hjónum ætíð þakklát fyrir hve
vel þau reyndust henni.
Baldvina eignaðist son, Þór Her-
bertsson, og bjuggu þau saman að
Norðurgötu 4.
Baldvina giftist Friðvini Jóakims-
syni, sem átti ættir að rekja í Fljótin.
Bjuggu þau allan sinn dag á Siglu-
firði. Friðvin átti við mikla vanheilsu
að stríða og var rúmliggjandi síðustu
árin. Annaðist þá Baldvina hann af
einstakri alúð og umhyggju. T.d.
man ég að oft vakti hún langt fram
á nætur við saumaskap til að sjá
þeim farborða. Friðvin andaðist í
ágúst 1969.
Baldvina var greind kona og fróð
og kunni skil á mörgu og hún var
með afbrigðum minnug.
Hún tók þátt í ýmsum félagsstörf-
um, var virkur félagi í Systrafélagi
Sigluíjarðarkirkju, Félagi eldri borg-
ara og ekki síst Sjálfstæðisfélaganna
á Siglufirði. Fór áhugi hennar ekki
dvínandi nema síður væri, og alltaf
var hún tilbúin til starfa.
Baldvina hafði mikla ánægju af
að spila á spil og þótti henni góð
skemmtun að taka í spil með kunn-
ingjunum.
Gestrisin var hún og höfðingi heim
að sækja. Gekk ætíð heil og ötul að
hveiju verki, jafnt innanhúss sem
utan og má segja að sjaldan félli
henni verk úr hendi.
Dætur mínar kölluðu hana ömmu
og mér var hún sem besta móðir.
Til hennar gat ég leitað með mín
vandamál. Elsku frænka mín. Ég
man eftir mér sem lítilli stelpu heima
hjá henni og Friðvini og hvemig þau
léku við mig. Sú saga endurtók sig
með mínar dætur og svo dótturböm.
Allt þetta viljum við þakka og eins
hvemig hún var foreldrum mínum í
þeirra veikindastríði.
Nú, þegar frænka mín er öll, em
mér þakkir efstar í huga og óskir
um góða heimkomu á landi lifenda.
Þór, frænda mínum, og aðstand-
endum öllum sendi ég mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Brynja Stefánsdóttir.
•
Baldvina Marsibil Jóhannsdóttir
lést þann 23. október sl. á Siglufirði.
Baldvina var fædd 12. september
1908 á Siglufirði, dóttir hjónanna
Marsibilar Herdísar Baldvinsdóttur
og Jóhanns Jóhannssonar. Böm
þeirra hjóna vom sjö og em þrjú
þeirra enn á lífí, búsett á Siglufírði.
Móðir Baldvinu lést árið 1923 frá
bamahópnum sem þurfti þá að koma
í fóstur. Baldvina ólst upp hjá þekkt-
um merkishjónum, Guðrúnu Bjöms-
dóttur og Þormóði Eyjólfssyni,
búsettum á Siglufirði. Minntist Bald-
vina þessara fósturforeldra með
virðingu og hlýhug.
Það var á haustdögum fyrir tæp-
um 55 ámm að ég fór í mína fyrstu
kaupstaðarferð til Siglufjarðar, þá á
tíunda ári.
Á Siglufirði áttu heima margir af
mínum nánustu ættingjum þar á
meðal amma og afi og föðursystk-
ini. Það var í þessari ferð sem ég
sá hana Baldvinu í fyrsta sinn, en
þá var hún nýlega gift Friðvini Jóa-
kimssyni, móðurbróður mínum.
Þessi kaupstaðarferð er mér fersk
í minni og yfir henni hvílir ævintýra-
Ijómi bamsins sem ólst upp við
fábreytileika sveitalífsins.
Fyrsta stómndrið birtist þegar ég
var staddur í Sigluijarðarskarði og
við blasti ljósum prýdd byggðin í
kvöldrökkrinu, líkt og allar stjömur
himinsins hefðu safnast saman á
þennan eina stað. Þetta var í fyrsta
skipti sem ég sá rafljós.
Það var fleira framandi sem fyrir
augu og eym bar þegar niður í
byggðina kom. Baldvina og Friðvin
bjuggu í lítilli íbúð á fyrstu hæð í
stóm húsi.
Fyrir mig sveitasnáðann var þetta
litla heimili ævintýraheimur út af
fyrir sig. Þar var allt fágað og fínt
og margt að sjá sem ég hafði aldrei
áður augum litið. Mér em ekki síður
minnisstæðar móttökumar sem þessi
unga, broshýra kona veitti mér er
hún tók mig í faðm sér og bauð mig
velkominn.
En þetta var aðeins upphafið að
okkar samskiptum sem hafa haldist,
með nokkmm hléum þó eftir að ég
fluttist til Reykjavíkur.
Ég minnist þess hvað hún tók
miklu ástfóstri við Guðnýju dóttur'
mína eftir að hún hafði dvalist að
sumri til hjá henni á Siglufirði þegar
hún var smástelpa.
Ég minnist einnig heimsókna
hennar á okkar heimili því henni
fylgdi ætíð ferskur andblær og gleði.
Þessir skapgerðareiginleikar hafa
komið sér vel í hennar lífi sem ekki
var alltaf dans á rósum. Friðvin átti
við langvarandi veikindi að stríða og
lengst af rúmliggjandi á sínu heim-
ili. Þá kom það í hlut hennar að vera
fyrirvinna heimilis og jafhframt að
veita sjúkum eiginmanni aðhlynn-
ingu og hjúkmn.
Þetta hlutverk rækti hún svo vel
að undmn sætti og án þess að kvarta
yfir sínu hlutskipti, ljósu hliðamar á
lífinu var það sem hún beindi hugan-
um að.
Þau Friðvin og Baldvina áttu eng-
in böm saman en Baldvina átti son
áður en hún giftist, Þór Herbertsson,
og bjuggu þau mæðginin saman á
Siglufirði eftir að Friðvin dó í ágúst
1969.
Þótt Baldvina væri lítil vexti staf-
aði frá henni virðuleika. Hún var
hvik í hreyfingum og létt á fæti,
beinvaxin og kvenleg í útliti og fasi,
þessum eðliseinkennum hélt hún til
dauðadags. Hún var smekkleg og
myndvirk um það vitnuðu öll hennar
verk og þá ekki síst heimilið.
Henni var lagið að framkalla feg-
urðina án íburðar, það var hennar
lífsstíll.
Hún var félagslynd og lét að sér
kveða á þeim vettvangi eftir því sem
aðstæður leyfðu. Hún las mikið og
hafði næman smekk fyrir bundnu
máli.
Ég og fjölskylda mín minnumst
hennar Baldvinu með söknuði. Við
vomm farin að hlakka til að fá hana
í heimsókn næsta sumar. En það er
lögmál lífsins að leiðir skiljast án
fyrirvara.
Ég og fjölskylda mín sendum nán-
ustu ættingjum og vinum Baldvinu
samúðarkveðjur.
Hjálmar Jónsson
Bróðir okkar. Í ÖLVER KRISTJÁNSSON, Heimahvammi, Blesugróf,
verður jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 19. nóvem-
ber kl. 15.00 Systklni hins látna.
t
Útför eiginmanns míns,
ÁGÚSTAR ÞORVALDSSONAR
á Brúnastöðum,
verður gerð frá Hraungerðiskirkju föstudaginn 21. nóvember kl.
14.00.
Ingveldur Ástgeirsdóttir.
t
Innilegustu þakkir viljum við færa öllum þeim sem sýndu okkur
vinsemd og hlýhug við fráfall og útför
GUÐRÚNAR ÍVARSDÓTTUR,
Gerðavegi 18,
Garði.
Sérstakar þakkir færum við konum úr björgunarsveitinni Ægi fyr-
ir ómetanlega hjálp.
Halldór Þorvarðarson
og synir.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarð-
arför
GUÐJÓNS BJARNASONAR,
frá Uxahrygg.
Sérstaklega þökkum við læknum og hjúkrunarfólki á Borgarspítal-
anum frábæra umönnun.
Fyrir hönd vandamanna
Kristfn Sveinsdóttir.
Við færum öllum þeim bestu þakkir sem heiöruðu minningu
móður okkar,
RAGNHILDAR SIGBJÖRNSDÓTTUR,
með kveðjum og gjöfum og nærveru við útför hennar þann 7.
nóvember.
Birna Kjartansdóttir, Arni Kjartansson,
Anna Kjartansdóttir, Sigbjörn Kjartansson
og fjölskyldur.
ýja hillukerfíð okkar
heitir Einn, tveir, þrír.
Hönnunin er í grund-
vallaratriðum mjög
einföld en gefur samt
ótæmandi möguleika í
útliti og notagildi.
Kannski vantar þig
heilan vegg af hirslum
Ef íborð-
hrn veirf rír^ii
bóndaherbergið. Þú mælir plássið og
raðar svo einingunum saman eins og
best hentar. Þú hefur hliðarnar,
botninn og bakið í svörtu eða Ijósgráu,
skúffur og hurðir úr beyki eða svartar
og sökkulinn hefurðu eða hefur ekki,
eftir aðstæðum. Svoviltubreyta. Pá
gerir þú það bara einn, tveir og þrír.
Svart, hvítt, beyki eða litir; ein, tvær
eða þrjár hæðir; hillur, hurðir eða
skúffur; margar eða fáar eininga/.
Úrvals hönnun og framleiðsla. Ódýrt.
Þetta er Einn, tveir, þrír.
Lítið inn á Laugavegi 13 eða fáið
sendan myndabækling.
HÖNNUNt • GÆÐI • ÞJÓNUSTA
KRISUÁN SIGGEIRSSON
Verksmiðjan Hesthálsi 2-4, slmi 91-672110
Verslun Laugavegi 13. slmi 25870
Umboð: Örkin hans Nóa. Akureyri
Verslunin Bjarg, Akranesi
Valhúsgögn