Morgunblaðið - 31.12.1986, Blaðsíða 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1986
Áramótabrennur
MORGUNBLAÐIÐ birtir í dag,
venju samkvæmt, upplýsingar
um hvar helstu áramótabrenn-
ur eru haldnar.
Reykjavík
í Reykjavík eru áramótabrennur
níu talsins:
1. Við Ægissíðu 50.
2. Sunnan við Fylkisvöllinn.
3. Á Ártúnsholti.
4. Upp af Leirubakka.
5. Við Skildinganes.
6. Við Holtaveg.
7. í Grafarholtshverfi við Fjallkonu-
veg.
8. Ægisíða : Faxaskjól.
9. Á svæði ÍR í Suður-Mjódd.
Ein brenna verður þann þriðja
janúar á svæði Fáks á Víðivöllum.
Tvær brennur verða á þrettánd-
ann:
1. Á opnu svæði á horni Framnes-
vegar og Hringbrautar.
2. Á auðu svæði austan Öldusels-
skóla.
Kópavogur
Ein brenna verður að þessu sinni
í Kópavoginum; vestast á Kársnesi.
Hafnarfjörður
Þrjár stórar brennur verða í Hafn-
arfirðinum að þessu sinni:
1. í Hvaleyrarholti.
2. Við Þúfubarð.
3. Við Hrafnistu.
Garðabær
Þijár brennur verða í Garðabæ
að þessu sinni:
1. Sunnan á Arnarnesi.
2. Á Hraunsholti.
3. Norðan við Aratún.
Mosfellssveit
í Mosfellssveit verða að þessu
sinni tvær brennur:
1. í Teigahverfi.
2. Á Melunum í Reykjahverfi.
Selijarnarnes
Á Seltjamarnesi verður ein ára-
mótabrenna og er hún á Valhúsa-
hæð.
Bessastaða-
hreppur
I Bessastaðhreppi verður ein
brenna og verður hún á Bökkum við
Landakot.
Akureyri
Á Akureyri verða tvær meiri hátt-
ar brennur:
1. Á Bárufellsklöppum.
2. Sunnan Bakkhlíðar og austan
Hlíðarbakka.
A Valhúsahæð
v/Framnesv,-
Hringbraut (6. jan)
v/Faxaskjól
v/Ægissíðu
v/Holtaveg
*
v/Fjallkonuveg
I Skildinganesi
Ártúnsholt
#
ARAMOTA-
BRENNUR
1986
Á Fylkisvelli
#
, Á Arnarnesi
Á i.R. svæði!
v/ölduselsskóla ts. jan.)
v/Leirubakka
Á Víðivöllum
(3. jan.) 1
Fararheill 1987
Efnt til stórátaks í um- #
ferðarmálum á næsta ári
Bifreiðatryggingafélögin ætla að verja 1%
iðgjalda bifreiðatrygginga til átaksins
Bifreiðatryggingarfélögin hafa
ákveðið að efna til sameiginlegs
átaks í umferðaraiálum á næsta
ári undir heitinu „Fararheill
1987“. Þau ætla að veija einu
prósenti af iðgjöldum bifreiða-
trygginga til átaksins og er
ætlunin að vekja athygii almenn-
ings á því slæma ástandi sem
ríkir í umferðinni hér á landi.
Sérstakur starfsmaður hefur
verið ráðinn í þessu skyni, Sig-
urður Helgason, en hann starfaði
áður hjá Svæðisútvarpi
Reykjavíkur.
Stefnt er að víðtæku samstarfí
við þá sem vinna að umferðarmál-
um s.s. Umferðarráð, lögregluna,
skólayfirvöld, kennara, ökukennara
og fjölmiðla.
í hveijum mánuði verður tekið
fyrir nýtt áhersluatriði og mánuður-
inn síðan gerður upp í mánaðarlok
og borin saman við sama mánuð á
árinu 1986.
Sérstaklega verður lögð áharsla
á að ná til nýrra ökumanna, aldurs-
hópsins 17-20 ára, en það er sá
hópur sem veldur flestum slysum í
umferðinni.
Að meðaltali látast 25 manns í
umferðinni á ári hveiju. 1985 slös-
uðust 912 manns í umferðarslysum
hér á landi. Þar af létust 24 og 375
hlutu alvarleg meiðsli. 60% fómar-
lambanna er undir 25 ára að aldri,
eða um 500 manns ár hvert.
10.-12.000 árekstrar verða hér á
landi árlega en það jafngildir þvi
að áttundi hver bíll verður valdur
að árekstri ár hvert.
Umferðaróhöpp kosta trygging-
arfélögin að minnsta kosti tvo
milljarða króna árlega og vonast
þau til að geta lækkað þá tölu veru-
lega með þessu átaki og benda í
því sambandi á að þegar mikill áróð-
ur hefur verið hafður í frammi í
umferðarmálum hefur slysum
fækkað stórlega, s.s. þegar vinstri
umferð var tekinn upp árið 1968
og á umferðaröryggisárinu 1983.
Þeir flármunir sem mundu sparast
við fækkun slysa yrði síðan varið
til lækkunar iðgjalda.