Morgunblaðið - 31.12.1986, Qupperneq 18
18 B
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1986
Snæfellsnes:
Sími og rafmagn
fóru úr sambandi
Borg, Miklaholtshreppi.
HÉR voru hvít jól og á jóladag
gekk á með dimmum suðvestan
éljum. Símasambandslaust var
hér á jóladagskvöld og kom
ekki samband aftur fyrr en
eftir hádegi á annan í jólum.
Þá varð einnig bilun á raf-
magni. Þrír bæir í Eyjahreppi
urðu rafmagnslausir á jóladag.
Tókst að laga þá bUun fljót-
lega.
Skotvopn-
um stolið
UM helgina var haglabyssu og
riffli stolið úr einstaklingsher-
bergi í húsi við Ránargötu.
Brotist var inn í herbergið þar
sem skotvopnin voru og auk þeirra
var stolið símtæki. Málið er óupp-
lýst en Rannsóknarlögregla ríkisins
vinnur að rannsókn þess.
Á meðan símasambandsiaust
var veiktist gamall maður
lífhættulega í Kolbeinsstaða-
hreppi. Læknishjálp náðist þó
með talstöðvarsambandi. Sá sjúki
var fluttur á sjúkrahúsið á Akra-
nesi.
Sóknarprestur okkar, séra
Hreinn Hákonarson, messaði
klukkan tvö á Fáskrúðarbakka
og klukkan fjögur á Rauðamel.
Góð kirkjusókn var á báðum
kirkjunum.
Rangt heimilisfang
í FRÉTT Morgunblaðsins á
sunnudag, þar sem sagt var frá
nöfnum þeirra er létust þegar
m/s Suðurland fórst, var rangt
farið með heimilisfang eins
mannanna.
Sagt var að Sigurður L. Þorgeirs-
son 2. stýrimaður hefði verið til
heimilis að Grenilundi 33. Hið rétta
er að Sigurður bjó að Grenilundi 3
á Akureyri.
Sigrún Steinsdóttir og Haukur Harðarson,
Slysavarnafélags íslands.
börn þeirra og tengdabörn ásamt fulltrúum
Minningargjöf til SVFÍ
HINN 4. desember sl. afhentu
hjónin Sigrún Steinsdóttir og
Haukur Harðarson, börn þeirra
og nánustu ættingjar Slysavarna-
félagi íslands kr. 500.000,- að
gjöf til minningar um son þeirra
og bróður, Hafþór Má. Hafþór
Már hefði orðið tvítugur þennan
dag, en hvarf af heimili sínu 20.
janúar 1985 en fannst siðan í
Sundahöfn 30. mars 1986. Var
gjöfin afhent sem þakklætisvott-
Harðir árekstrar
á Reykjanesbraut
I
Bíll á hliðinni og annar dreginn af slysstað.
Morgunblaðið/Kr.Ben.
TVEIR harðir árekstrar urðu á
Reykjanesbraut á sunnudag. Eft-
ir annan áreksturinn voru tveir
farþegar annars bílsins fluttir á
slysadeild, annar alvarlega slas-
aður.
Um klukkan 9.20 á sunnudags-
morgun lentu tveir bílar saman við
Kúagerði. Bíll á suðurleið snerist á
veginum vegna hálku og lenti fram-
an á bíl sem kom á móti. Tveir
farþegar úr öðrum bílnum voru
fluttir á slysadeild, annar alvarlega
slasaður að sögn lögreglunnar í
Keflavík. Báðir bílamir vom óöku-
færir eftir áreksturinn og vom þeir
dregnir í burtu með kranabíl.
Annar harður árekstur varð á
Strandaheiði, um 2 km vestan við
Kúagerði, upp úr klukkan 16 á
sunnudag. Varð áreksturinn með
svipuðum hætti og hinn, en þó ekki
eins harður. Önnur bifreiðin kastað-
ist út af veginum. Hinn reyndist
óökufær og þurfti að draga hann í
burtu með kranabíl. Ekki urðu slys
á fólki.
ur til allra þeirra er tóku þátt í
leit að honum.
I gjafabréfinu stendur að gjöfinni
skuli varið óskiptri til kaupa á köf-
unarsímakerfum, ljósabúnaði fyrir
kafara og nætursjónauka, en þessi
búnaður á það sameiginlegt að auð-
velda og flýta fyrir leitar- og
björgunarstörfum og auka öryggi
þeirra, sem fást við þau. Jafnframt
er gjöfínni ætlað að árétta mikil-
vægi þess að sinnt sé öryggisþætt-
inum við frágang hafnarmann-
virkja.
Slysavamafélag íslands metur
mikils þessa höfðinglegu gjöf, sem
auðveldar björgunarsveitum erfið
leitarstörf og eykur öryggi við þau.
Mun umræddur búnaður verða í
vörslu félagsins og tiltækur til notk-
unar þegar þörf krefur.
(Fréttatilkynning'.)
Nýr aöalræðis-
maður Italíu
HINN 15. desember sl. var Ragn-
ari Borg veitt viðurkenning utanrík-
isráðherra, Matthíasar Á.
Mathiesen, sem kjörræðismaður
Italíu með aðalræðisstig.
Ragnar Borg hefir verið vara-
ræðismaður Ítalíu frá því í maí
Fjörtíu hljóðvarps og sjón-
varpsleyfi veitt á einu ári
FJÖRTÍU umsóknir um leyfi til hljóðvarps- eða sjónvarpssendinga hafa
verið samþykktar hér á landi á þessu ári, en útvarpsréttarnefnd, sem
veitir leyfin, tók til starfa 1. janúar s.l. Að sögn Kjartans Gunnarssonar,
formanns nefndarinnar, voru 29 þessara umsókna vegna tækifæris- og
skólasendinga en 11 til frambúðar. Hann telur, að eðlisbreyting hafi orðið
á tjáningarfrelsi í landinu með þessum nýju stöðvum. Á næsta ári hyggst
útvarpsréttarnefnd kanna hvort ákvæðum útvarpslaga um afmörkun
auglýsinga frá öðru efni sé fylgt.
Þeir aðilar, sem segja má að fengið
hafi leyfi til frambúðar (þótt formlega
sé um tímabundin leyfi að ræða), og
hafa tekið til starfa eru Islenska sjón-
varpsfélagið, sem rekur sjónvarpsstöð
á Reykjavíkursvæðinu, Islenska út-
varpssfélagið, sem rekur hljóðvarps-
stöðina Bylgjuna á Reykjavíkursvæð-
inu og nú nýlega á Akureyri, Fijáls
kristileg fjölmiðlun, sem rekur hljóð-
varpsstöð á Reykjavíkursvæðinu, og
Eyfirska sjónvarpsfélagið, sem rekur
sjónvarpsstöð á Akureyri í náinni sam-
vinnu við íslenska sjónvarpsfélagið.
Þá er búið að gefa út leyfi fyrir hljóð-
varpsstöð í Vestmannaeyjum, hljóð-
varpsstöð og sjónvarpsstöð á Ólafsvík,
hljóðvarpsstöð í Hafnarfirði, hljóð-
varpsstöð Sambands ungra jafnaðar-
manna í Reykjavík og hljóðvarpsstöð
á Hellisandi. Á einu ári hafa því kom-
ið til sögu 6 nýjar hljóðvarps- eða
sjónvarpsstöðvar á suðvesturhomi
landsins, þar sem gróskan í þessum
efnum er mest. Tækifærisleyfin, sem
eru 15 að tölu, hafa verið veitt í sam-
bandi við framboðsfundi stjómmála-
flokka, prestkosningar, afmælishátíðir
sveitarfélaga o.fl. og skólaleyfln, sem
eru 14 að tölu, hafa verið veitt fram-
haldsskólunum til tímabundinna
sendinga.
Að sögn Kjartans Gunnarssonar
hafa allar samþykktir útvarpsréttar-
nefndar verið gerðar samhljóða og
taldi hann það sérstakt fagnaðarefni.
I nefndinni eiga sæti, auk Kjartans,
Ingvar Gíslason, sem er varaformað-
ur, Bessí Jóhannsdóttir, Sigurbjöm
Magnússon, Helgi Pétursson, Helgi
Guðmundsson og Ámi Gunnarsson.
Starfsmaður nefndarinnar er Þórunn
Hafstein.
Kjartan Gunnarsson sagði, að út-
varpsréttamefnd hefði markað þá
stefnu að heimila útvarpsstöðvum að
reka endurvarpsstöðvar, eins og t.d.
Bylgjunni í Reykjavík hefur verið leyft
á Akureyri. Nefndin teldi m.ö.o. ekk-
ert því til fyrirstöðu, að leyfishafar
gætu útvarpað á mörgum stöðum á
landinu sama efninu og þar með tengt
saman dagskrái’ sínar og látið þær
jafnvel ná um land allt. í útvarpslögum
Kjartan Gunnarsson, formaður
útvarpsr éttarnef ndar,
er að vísu talað um einkaútvarpsrekst-
ur á „afmörkuðum svæðum“ en þar
er einnig heimilað að reka endurvarps-
stöðvar.
„Það sem við munum helst þurfa
að taka á á næsta ári, fyrir utan af-
greiðslu umsókna um útvarpsleyfi,
geri ég ráð fyrir, að verði mál varð-
andi auglýsingar," sagði Kjartan. „í
útvarpslögunum er ákvæði um að aug-
lýsingar skuli afmarkaðar frá öðru
dagskrárefni og við munum athuga
það í byijun næsta árs hvemig að því
hefur verið staðið hjá þeim sem reka
útvarp. Hins vegar er þess að geta,
að engar formlegar kærur hafa komið
til nefndarinnar. Það hefur enginn
talið misgert við sig í dagskrám þess-
ara stöðva."
„Þetta ár sem nú er að líða hefur
verið mjög viðburðarríkt í útvarpsmál-
um á íslandi," sagði Kjartan Gunnars-
son. „Það hefur orðið eðlisbreyting á
fjölmiðlun og raunar á tjáningarfrels-
inu, því breytingin, sem orðið hefur
með því að hverfa frá einokun ríkisins
á þessum farvegi, er svo gífurlega
mikil. Menn segja svo sem eitt og
annað um dagskrár þessara nýju fjöl-
miðla, en skoðanir voru sannarlega
líka skiptar um dagskrár ríkisfjölmiðl-
anna áður en einokuninni var aflétt.
Þar sýndist sitt hveijum. En sú heild-
armynd, sem mér finnst ég fá af því
að hlusta á og fylgjast með þessu, er
ósköp lík því sem ég átti von á. Og
menn ættu að hafa í huga, að þessar
nýju stöðvar hafa starfað í mjög skam-
man tíma. Bylgjan hefurt.d. ekki verið
rekin nema í nokkrar vikur. Við skyld-
um líka hafa það í huga, að það eru
mjög skiptar skoðanir um efni blaða
og bóka, en samt dettur engum nú á
dögum í hug að leggja til að útgáfa
þeirra verði eingöngu í höndum ríkis-
ins,“ sagði Kjartan Gunnarsson.
Ragnar Borg
1981, en tekur nú við sem aðalræð-
ismaður að Thor R. Thors fyrrum
aðalræðismanni látnum.
Heydala-
prestakall:
Prestskosning
á sunnudag
EFNT verður til prestskosningar í
hinum tveimur sóknum Heydala-
prestakalls, Stöðvarfjarðarsókn og
Heydalasókn, sunnudaginn 4. jan.
1987. Þar hefur ekki farið fram
prestskosning í tæp 40 ár, eða síðan
sr. Kristinn Hóseasson var kjörinn
þar sóknarprestur, en hann hefur
þjónað þar æ síðan, verið prófastur
síðustu árin en hefur nú fengið
lausn frá embætti vegna aldurs.
Umsækjandi um prestakallið er
einn: Gunnlaugur Stefánsson cand.
theol. Gunnlaugur er Hafnfirðing-
ur, 34 ára að aldri. Hann lauk
guðfræðiprófí frá Hásóla Islands
vorið 1982 og gerðist sama ár
starfsmaður Hjálparstofnunar
kirkjunnar og hefur unnið þar síðan.
Kona hans er Sjöfn Jóhannesdóttir
sem lýkur guðfræðiprófi í vor. Eiga
þau einn son, Stefán Má.