Morgunblaðið - 31.12.1986, Blaðsíða 31
rjr
MORGUNBLAÐIÍ), MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 1986
B r 31
1
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691100 KL. 17-18
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
U.n, II
MRÐUR !±IRS1NS
Börn
eru líka
mann-
eskjur
Ert þú búinn að gleyma því þeg-
ar þú varst 10 ára og varst sendur
út í búð að kaupa t.d. rúgbrauð.
Ekki er ég búin að gleyma því. Ég
man þegar ég stóð við búðarborðið
lengi, lengi og hugsaði um órétt-
lætið sem mér var sýnt með biðinni,
bara af því að ég var ekki há í loft-
inu og þorði ekki að hafa mig í
frammi. Loksins tók Palli eftir mér.
Jú, ég átti að kaupa rúgbrauð. Þeg-
ar ég kom með brauðið heim til
mömmu sagði hún: „Sjáðu bam,
þú hefur fengið brenndan enda.
Farðu með brauðið aftur og fáðu
annað“. Þetta var mér næstum of-
raun en ég lét mig hafa það.
Þetta atvik hefur oft komið upp
í huga minn þegar dóttir mín hefiir
verið að rökræða við mig og lýsa
tilfinningum sínum varðandi fram-
komu hinna fullorðnu. Hún segir
að hún og hennar jafnaldrar séu
þess fullkomlega meðvitandi að þau
séu manneskjur en hún efist oft um
að sumir fullorðnir geri sér grein
fyrir því.
Hún heldur því fram að ef bam
situr í hópi fullorðinna, t.d. við sjón-
varpið og þig vanti gleraugun, þá
er ætlast til að bamið fari og sæki
þau þó að það langi líka til að fylgj-
ast með.
Annað dæmi; fullorðnir em að
tala saman og bamið reynir að taka
þátt í umræðunni, þá er það undir
hælinn lagt hvort það fær tækifæri
til að tjá sig og verða virkt í umræð-
unni. Aftur á móti ef fullorðinn
tekur til máls þá er sjálfsagt að
allir hlusti, líka bamið.
Ef við spjöllum við bamið okkar,
veitum því athygli og komum fram
við það eins og það sé líka mann-
eskja, þá emm við að leggja góðan
gmnn að uppeldi þess einstaklings,
því lengi býr að fyrstu gerð.
Flest okkar eiga eftir að verða
gömul. Þá er gott að hafa innrætt
baminu þann skilning og umburð-
arlindi sem það þráir og vonast eftir
í dag.
Kristín Hjaltadóttir
HEILRÆÐI
SVFÍ hvetur jafnt unga sem aldna til að sýna fyllstu varúð í meðferð
flugelda, stjörnuljósa og blysa. Sérstaklega em foreldrar hvattir til
að hafa vakandi auga með bömum og unglingum og vara þau við
hættum þeim, sem fylgja ógætilegri meðferð þessara hluta.
Höldum gleðileg áramót með slysalausum dögum.
Innilegt þakklœti sendi ég frœndum og vinum
sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og
kyeðjum á 85 ára afmælinu 22. desember.
Óska ykkur öllum allrar guðs blessunar.
Friðfinnur Finnsson,
frá Oddgeirshólum.
fFélagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar
Fósturheimili óskast í Reykjavík eða
nágrenni fyrir tvo 13 ára drengi.
Upplýsingar veitir Áslaug Ólafs-
dóttir félagsráðgjafi í síma 685911
milli kl. 9 og 16 alla virka daga.
Þjóðhátíðar-
sjóður
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum
á árinu 1987.
Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins nr. 361 30. september
1977 er tilgangur sjóðsins „að veita styrki til stofnana og
annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og
vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi
kynslóð hefur tekið í arf.
a) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til
Friðlýsingarsjóðs til náttúruverndar á vegum Náttúruvernd-
arráðs.
b) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til
varðveislu fornminja, gamalla bygginga og annarra menn-
ingarverðmæta á vegum Þjóðminjasafns.
Að öðru leyti úthlutar stórn sjóðsins ráðstöfunarfé hverju sinni
í samræmi við megintilgang hans, og komi þar einnig til álita
viðbótarstyrkir til þarfa, sem getið er í liðum a) og b).
Við það skal miða, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlag
til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að
lækka önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi
annarra við þau.“
Stefnt er að úthlutun á fyrri hluta komandi árs.
Umsóknarfrestur er til og með 27. febrúar 1987. Eldri um-
sóknir ber að endurnýja. Umsóknareyðublöð liggja frammi í
afgreiðslu Seðlabanka íslands, Flafnarstræti 10, Reykjavík.
Nánari upplýsingar gefur ritari sjóðsstjórnar, Sveinbjörn Haf-
liðason, í síma (91)20500.
Reykjavík, 29. desember 1986
ÞJÓÐHÁTÍÐ ARSJÓÐU R.
Sturtuvagn sturtar á 3 hliðar.
Verð kr. 180.000
Bílflutningavagn.
Verð kr. 134.000,
Gísli Jónsson og co. hf
Sundaborg 11, sími 686644.