Morgunblaðið - 07.01.1987, Qupperneq 1
56 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
4. tbl. 75. árg.
MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
AP/Símamynd
Nikolai Ryzkhov, forsætisráðherra Sovétríkjanna (til
hægri), ásamt Mauno Koivisto Finnlandsforseta við mót-
tökuathöfn á Helsinki-flugvelli í gær. 30 stiga frost var
er Ryzkhov kom þangað og klæddist þessi finnski her-
maður, sem stóð heiðursvörð, lambhúshettu til að verjast
kuldanum.
Reagan út-
skrifaður síðar
í þessari viku
Washington, AP, Reuter.
TALSMAÐUR Ronalds Reagan
Bandaríkjaforseta sagði í gær
að vefjasýni sem tekin voru úr
blöðruhálskirtli forsetans hefðu
reynst góðkynja og að hann væri
óðum að hressast. Sagðist hann
búast við því að forsetinn gæti
tekið aftur til starfa síðar í þess-
ariviku.
Á sunnudag gekkst Reagan und-
ir skurðaðgerð á blöðruhálskirtli og
voru fjórir separ jafnframt fjar-
lægðir af ristli hans. Larry Speakes,
talsmaður forsetans, sagði að’vefja-
sýni úr ristlinum hefðu verið
rannsökuð og að ekkert hefði kom-
ið fram sem benti til illkynja
frumuvaxtar. Speakes kvaðst
vænta þess að forsetinn yrði út-
skrifaður af sjúkrahúsi flotans í
Bethesda síðar í þessari viku. Reag-
an átti í gær fund með þeim Donald
Regan, yfirmanni starfsliðs Hvíta
hússins, og Frank Carlucci örygg-
isráðgjafa. ‘
Fyrir rúmum 18 mánuðum
gekkst Reagan undir skurðaðgerð
og var krabbameinsæxli þá fjarlægt
úr ristli hans. Frá þeim tíma hefur
hann farið í krabbameinsskoðun
tvisvar á ári. Ronald Reagan verður
76 ára í næsta mánuði og er hann
elsti forsetinn í sögu Banda-
ríkjanna.
Mikhail Shirman:
Aðgerðin var síð-
asta hálmstráið
Ryzhkov forsætisráðherra Sovétríkjanna í Finnlandi:
Afnám vöruskipta og
samvinna fyrirtækja
Helsinki, frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins.
NIKOLAI RYZHKOV, forsætis-
ráðherra Sovétríkjanna, kom í
gær í heimsókn til Finnlands.
Heimsókn hans markar þáttaskil
í viðskiptum ríkjanna tveggja því
samkomulag hefur náðst um að
binda ekki öll viðskipti við gagn-
kvæm vöruskipti. í dag, miðviku-
dag, munu þeir Ryzhkov og
Kalevi Sorsa, forsætisráðherra
Finnlands, ræða hugsanlega
stofnun finnsk-sovéskra sam-
eignarfyrirtækja og fleiri nýj-
ungar á sviði efnahagsmála.
Frá því í haust hafa viðskipti
landanna gengið erfiðlega vegna
þess hve lítið Sovétmenn hafa getað
flutt út til Finnlands. Nú er gert
ráð fyrir að viðskiptin verði ekki
eingöngu bundin við gagnkvæm
vöruskipti og munu Sovétmenn
greiða fyrir finnskar útflutnings-
vörur með vestrænum gjaldeyri.
Æðstaráð Sovétríkjanna sam-
þykkti fyrir skömmu að heimila
sovéskum fyrirtækjum að stofna
hlutafélög í samvinnu við erlenda
aðila. Almennt er talið að stefnu-
breyting þessi sé runnin undan
rifjum Ryzhkovs og mun hann ræða
um stofnun finnsk-sovéskra fyrir-
tækja við ráðamenn í Finnlandi.
í hófi sem Mauno Koivisto Finn-
landsforseti hélt Ryzhkov til heiðurs
í gær sagði Ryzkhov að Reykjavík-
urfundur þeirra Ronalds Reagan
Bandaríkjaforseta og Mikhails S.
Gorbachev, leiðtoga Sovétríkjanna,
hefði verið „sögulegt skref í átt til
afvopnunar". Sagði hann Sovét-
stjómina vera reiðubúna til að
ganga þegar til samningaviðræðna
um hefðbundinn herafla allt frá
Atlantshafi til Úralfjalla og að vest-
rænir ráðamenn þyrftu því ekki að
óttast að öryggi ríkja þeirra yrði
ógnað þótt samið yrði um fækkun
kjarnorkuvopna.
Þetta er fyrsta heimsókn Ryzh-
kovs til vestræns ríkis. Hann er 57
ára gamall og tók við embætti for-
sætisráðherra í september árið
1985. Frami hans hefur verið skjót-
ur og er almennt talið að Gorbachev
Sovétleiðtogi treysti á að hann geti
hrint fyrirhuguðum efnahagsum-
bótum Sovétstjórnarinnar í fram-
kvæmd.
GYÐINGURINN Mikhail Shir-
man, sem þjáist af hvítblæði,
gekkst í fyrradag undir bein-
mergsaðgerð í Hassadah-sjúkra-
húsinu í Jerúsalem. Talsmaður
sjúkrahússins, Ruth Mekel, sagði
í viðtali við Morgunblaðið í gær
að Shirman hefði ákveðið að
gangast undir aðgerðina, þrátt
fyrir litlar líkur á að hún tækist.
Shirman kom til Reykjavíkur
meðan á leiðtogafundinum stóð til
að beijast fyrir brottfararleyfi syst-
ur sinnar, Inessu Fleurovu, vegna
þess að hans eina von var að fá
úr henni beinmerg.
Þegar Fleurova fékk að fara frá
Sovétríkjunum skömmu eftir fund-
inn sögðu læknar að of seint væri
að framkvæma aðgerðina, sjúk-
dómurinn hefði ágerst.
„Læknar sögðu að Shirman væru
Mikhail Shirman á blaðamanna-
fundi í Reykjavik.
flestar bjargir bannaðar, en ekki
væri útilokað að beinmergsaðgerð
bæri árangur," sagði Ruth Mekel.
„Shirman var sammála læknunum
um þetta og því var ákveðið að
framkvæma aðgerðina. Ég get ekki
sagt hvernig aðgerðin tókst. Það
væri brot á siðareglum lækna að
vera með slíkar vangaveltur á þess-
ari stundu.“
Ovenjulegt
ökutæki
Sydney, Rcuter.
KÍNVERJAR hyggjast, í sam-
vinnu við ástralskt fyrirtæki,
hefja framleiðslu á bifreiðum
sem munu m.a. geta gengið fyrir
soyaolíu.
Vélarhlutamir verða framleiddir
í Ástralíu en yfirbyggingin í Kína.
Stjómvöld eystra vonast til þess að
almenningur allur komi til með að
geta eignast bifreiðina, sem mun
kosta um 80.000 ísl. krónur. Til-
raunasmíði lýkur innan sex mánaða
og munu kínverskir ökuþórar því
innan skamms geta fest kaup á
soyabifreiðinni en hámarkshraði
hennar verður 80 kílómetrar á
klukkustund.
Tékkóslóvakía:
• /
Stjórnvöld reyna að af-
stýra mannréttindafundi
Prag, AP, Reuter.
TÍU ár voru í gær llðin frá
stofnun samtakanna „Mann-
réttindi 77“ (Charta 77) í
Tékkóslóvakíu. Af þessu tilefni
héldu samtökin blaðamanna-
fund í íbúð í Prag en í miðjum
klíðum var rafmagnið tekið af
húsinu. í gær sendu „Mannrétt-
indi 77“ frá sér yfirlýsingu þar
sem ahnenningur i Tekkóslóv-
akíu er hvattur til þess að
krefjast aukins lýðræðis og
frelsis.
Nokkrir helstu talsmenn sam-
takanna fengu ekki að sitja
fréttamannafundinn sem tíu vest-
rænir blaðamenn sóttu. Lögreglu-
menn stöðvuðu meðal annarra
leikritaskáldið Vaclav Havel er
hann hugðist sækja fundinn og
sögðu honum að halda sig heima.
Að minnsta kosti átta aðrir and-
ófsmenn voru stöðvaðir. Upphaf-
lega hafði verið boðað til
fundarins á veitingastað í Prag
en yfirvöld létu loka honum í gær.
Samtökin „Mannréttindi 77“
hafa starfað lengst allra mann-
réttindasamtaka austan jám-
tjalds. Fyrsta yfirlýsingin í nafni
þeirra leit dagsins ljós þann 6.
janúar 1976. Allt frá stofnuninni
hafa yfirvöld í Tékkóslóvakíu
reynt að hefta starfsemi þeirra.
Meðlimir samtakanna eru um það
bil 2000 og hefur flestum þeirra
verið vikið úr starfi vegna mann-
réttindabaráttu sinnar auk þess
sem nokkrir hafa verið fangelsað-
ir. Undanfarin ár hefur starfssvið
samtakanna orðið víðtækara og
hafa þau sent frá sér yfírlýsingar
um nauðsyn endurskipulagningar
efnahagslífsins, afvopnunarmál
og umhverfísvemdun.
Yfírlýsingin, sem birt var í
gær, er sex síður að lengd. í henni
segir að almenningur í Tékkóslóv-
akíu verði að sýna það hugrekki
að krefjast frelsis og mannrétt-
inda. Þá er fólk varað við því að
bíða breytinga og hvatt til þess
að knýja sjálft fram breytingar á
þjóðskipulaginu.