Morgunblaðið - 07.01.1987, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 07.01.1987, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1987 55 # Valur Ingimundarson var stigahæstur gegn Grikkjum í gærkvöldi skoraði 17 stig. Hann og ívar Webster uröu að fara af leikvelli meö 5 villur í lokin og Grikkir unnu meö 16 stiga mun. Munurinn í hálfleik var aðeins tvö stig, 32:34. íslendingar héldu íviðGrikki þartil 3 mínútur voru eftir - Valur og Webster fóru út af með 5 villur í lokin ÍSLENSKA landsliðið í körfu- knattleik tapaði fyrir Grikkj- um, 67:83, í Svíþjóð í gærkvöldi. Leikurinn var mjög jafn og spennandi allt fram á síðustu mínútur er Valur og ívar Webster urðu að fara af leikvelli með fimm villur. Staðan í leikhléi var 34:32 fyrir Grikkland. „Þetta var hörkuleikur og höfð- um við frumkvæðið oftast í fyrri hálfleik. En við misstum Val Ingi- mundarson og ívar Webster útaf með fimm villur þegar staðan var 64:62 og þrjár mínútur eftir. Grikk- ir með sína stóru og sterku menn færðu sér þetta í nyt og skoruðu 19 stig á móti sex,“ sagði Einar Bollason, þjálfari, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Fyrri hálfleikur var mjög jafn og spennandi og mátti varla á milli sjá hvot liðið væri A-þjóð. Grikkir urðu í 10. sæti á heimsmeistara- mótinu og eru með sjö leikmenn af tíu sem eru hærri en tveir metr- ar. „Það er sjaldgæft að sjá leikmann troða hreinlega yfir ívar Webster, en það gerði einn Grikk- inn tvívegis í þessum leik,“ sagði Einar Bollason. Jón Kr. Gíslason, Valur Ingi- mundarson og ívar Webster stóðu sig best í gærkvöldi. Nýliðinn ungi frá Grindavík, Guðmundur Braga- son, komst einnig mjög vel frá Enska knattspyrnan: Snodin til Everton fyrir 850.000 pund - Aldridge fer ekki strax til Liverpool Frá Bob Hennessy, fróttaritara MorgunblaAsins á Englandi. IAN Snodin miðvallarleik- maður og fyrirliði Leeds United var í gær seldur til Everton fyrir 850.000 pund. Bæði Everton og Liverpool voru á höttunum eftir Snodin en hann valdi Everton og mun leika með liðinu á laugardag- inn gegn Southampton í bikarkeppninni. Þá gerðu Liverpool og Oxford með sér samning um kaup þeirra Borðtennis: Arnarmótið á laugardaginn Á laugardaginn veröur Arnarmó- tið í bortennis. Keppt verður í öllum flokkum karla og kvenna og hefst mótiö klukkan 13 í Laug- ardalshöll. í karlaflokki verður keppt um Arnarbikarinn, en enginn hefur unnið hann tvö ár í röð. I fyrra sigr- aði Stefán Konráðsson, en hann er við nám í Noregi og ekki er víst að hann komist til að keppa á mótinu. Einnig er keppt um farand- bikar í meistaraflokki kvenna. fyrrnefndu á John Aldridge og er kaupverðið 750.000 pund. Aldridge mun þó ekki leika með Liverpool alveg strax því samið var um að hann léki með Oxford þar til þeir verða slegnir út úr bikarn- um. Þeir eiga léttan leik nú um helgina en Liverpool vonar að þeir verði slegnir út 3. febrúar, er 4. umferðin verður leikinn, þannig að Aldridge komi til félagsins daginn eftir. ( gær seldi Arsenal einn af sínum ungu og efnilegu leikmönn- um til West Ham fyrir 750.000 pund. Það var hinn 22 ára gamli miðvallarleikmaður Stewart Rob- son sem var seldur í gær. Robson hefur ekki getað leikið í vetur vegna meiðsla en hann stóð sig vel með liðinu í fyrra. Michael Robertson var einnig seldur í gær frá QPR en aðeins fyrir 150.000 pund. Nýja félagið hans er Osasuna og er í 1. deild- inni á Spáni. öllum leikjunum. Sannarlega leik- maður framtíðarinnar. Valur var atkvæðamesturog skoraði 17 stig. ívar Webster gerði 13, Pálmar Sig- urðsson 12 og Guðmundur Bragson 10. ísraelsmenn sigruðu í mótinu unnu Svía í gærkvöldi með 79 stig- um gegn 70. Grikkir urðu í öðru sæti, Svíar í þriöja og íslendingar ráku lestina. -Er mikið hægt að læra af svona móti? „Já, við vitum það núna að þetta er það eina sem gildir fyrir okkur, að leika gegn svona sterkum þjóð- um. Þessir leikir sýna að við getum staðið vel í A-þjóðum. Nú er bara að halda áfram og fá fleiri leiki og þá lætur árangurinn ekki á sér standa. Ég held að þetta sé besta Iandslið sem við höfum nokkru sinni átti í körfuboltanum," sagði Einar. „Árangurinn í þessu móti fór fram úr þeim vonum sem við gerð- um okkur fyrirfram. Við vorum að spila við tvö af 10 bestu landsliðum heims. ísrael var í 7. sæti og Grikk- land í 10. sæti á heimsmeistara- mótinu í sumar. Það að við skulum geta staðið í þeim fram eftir öllum leik, sýnir best á hvað leið við erum.“ -Hver eru svo næstu verkefni landsliðsins? „Það er Norðurlandamótið í apríl sem fram fer í Danmörku og þar stefnum við alla leið á toppinn. Við sýndum það gegn núverandi Norðurlandameisturum, Svíþjóð, að við geta unnið þá á góðum degi. Við förum hugsanléga f æf- ingaferð til Englands fyrir NM. Við tökum þátt í Ólympíuleikar smá- þjóða í Monaco í maí og síðan er það Evrópukeppnin í haust. Við ætlum okkur að reyna að vera með • Guðmundur Bragason úr Grindavík stóö sig mjög vel í sínum fyrstu leikjum með íslenska landsliðinu. liðið í æfingabúðum í allt sumar og undirbúa liðið eins og frekast er kostur. Leggjum allt í sölurnar til að komast áfram í Evrópukeppn- inni.“ Liðið kemur heim á morgun, fimmtudag. Islandsmótið í handbolta: Fjórir spennadni leikir íkvöld. FJÓRIR leikir verða í 1. deild karla í handknattleik í kvöld. Upphaflega áttu þeir að vera fimm en leik Víkings og Vals hefur verið frestað til 9. febrúar að beiðni Víkinga sem leika í Evrópukeppninni um helgina. Knattspyrna: Bandaríkjamaður gerir samning við Hamburger PAUL Caligiuri varö f gær fyrsti Bandarfkjamaðurinn sem gerir samning við knattspyrnuliö í Bun- desligunni f Vestur-Þýskalandi. Hann skrifaði undir samning hjá Hamburger SV sem nú er f efsta sæti Bundesligunnar. Caligiuri er 22 ára varnarmaður frá Los Angeles. Hann hefur leikið 15 landsleiki fyrir Bandaríkin og lék meðal annars f undankeppninni fyrir heimsmeistarakeppnina í Mexíkó í sumar. Framkvæmdastjóri Hamburger, Felix Magath, sagði að Caligiuri yrði hjá félaginu alla vega út þetta keppnistímbil og leika með varaliði félagsins til að byrja með. Eftir þá reynslu er gert ráð fyrir að hann fái að leika með aðalliðinu. Magath fékk áhuga á þessum leikmanni eftir að hann sá hann leika í Bandaríkjunum í sumar. Hann bauð honum síðan samning fram á sumarið 1988 sem hann þáði. Trúlega verður viðureign Stjörn- unnar og Breiðabliks leikur kvölds- ins en hann hefst klukkan 20 í Digranesi. Breiðablik vann fyrri leikinn með einu marki, 25:24, er liðin áttust við í annari umferð íslandsmótsins. FH bregður sér til Akureyrar oi leikur þar við KA. Hafnfiröingar eiga harma að hefna því þeir töp- uðu 29:27 fyrir KA í Hafnarfirði er liðin léku í 2. umferðinni. í Laugardalshöll leika Fram og KR en Fram vann fyrri viðureignina með 26 mörkum gegn 14 og ætla KR-ingar örugglega að bæta markatöluna eitthvað í leiknum í kvöld. Haukar taka á móti Ármenning- um í Hafnarfirði í kvöld og þar verður örugglega hart barist. Fyrri leiknum lauk með 24:22 sigri, Hauka. Allir þessir leikir hefjast klukkan 20. Einn leikur er í 1. deild kvenna og hefst hann klukkan 21.15 í Digranesi. Þar leika Stjarnan og Víkingur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.