Morgunblaðið - 07.01.1987, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 07.01.1987, Blaðsíða 56
VZterkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiðill! ^Ayglýsinga- síminn er 2 24 80 MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. Snorri Sturluson setur sölumet Hlutur skipverja um þrefaldur miðað við heimalöndun SNORRI Sturluson RE seldi í gær 224 lestir af karfa og ufsa í Bremerhaven. Heildar- verð fyrir aflann var 14.790.000 krónur og meðal- verð 66 krónur. Hvort tveggja er hæsta verð sem --fengizt hefur á þessum mark- aði talið í íslenzkum krónum. Verð á hvert kíló er um það bil þrisvar sinnum hærra en lágmarksverð Verðlagsráðs sjávarútvegsins og hlutur skipveija því um þrefaldur miðað við heimalöndun. Sveinborg SI seldi í gær 108 lest- ir í Grimsby. Héildarverð var 5.885.000 krónur, meðalverð 54,50. Á mánudag seldu fjögur fískiskip j^rlendis og fengu gott verð fyrir aflann. Viðey RE seldi 194,4 lestir í Cuxhaven. Heildarverð var 11.466.000 krónur, meðalverð 58,97. Halkíon VE seldi 90,7 lestir í Grimsby. Heildarverð var 5.286.000 krónur, meðalverð 58,26. Talsvert af ufsa í aflanum dró verð- ið niður. Vöttur SU seldi 64,6 lestir í Grimsby. Heildarverð var 4.287.000 krónur, meðalverð 66,68. Loks seldi Ásþór RE í Hull. Síðdeg- is á þriðjudag höfðu LÍÚ ekki borizt upplýsingar um söluna aðrar en þær, að meðalverð var 58,23. Morgunblaðið/Helena Stefánsdóttir Stefni Synetu stendur upp úr á strandstaðnum við Skrúð, skömmu áður en skipið hvarf alveg í hafið. Komin fram ósk um opinbera rannsókn á Synetu-slysinu: Beiðni um flutning’ líkanna barst í gærkvöldi BEIÐNI barst í gærkvöldi til íslenzkrar útfararstofu um að annast flutning á líkum skipveijanna af brezka skipinu Synetu ti) Englands. Líkin hafa verið í geymslu í líkhúsi rannsóknarstofnunar Háskólans í veirufræði við Barónsstíg síðan rétt- arkrufning fór fram fyrir áramót. Þar til í gærkvöldi hafði engin ósk komið frá Bretlandi um ráðstöfun á líkunum, hvorki frá ættingjum hinna látnu né útgerð skips- ins. í Morgunblaðinu í gær var haft eftir Heather Gamble, systir eins skipveijans á Synetu, að ættingjum hinna látnu hefði verið neitað um upplýsingar um það hvar líkin væru geymd. Gamble er komin hingað til lands og fór hún í gær til Eskifjarðar og hitti þar að máli nokkra þá sem tóku þátt í björg- unaraðgerðum. John Prescott, þingmaður frá Hull, stað- festi í samtali við Morgunblaðið að hann hefði óskað eftir opinberri rannsókn á strandi Syn- etu. Sagði hann að mörgum spumingum væri ósvarað. Prescott er þekktur hér á landi, kom m.a. hingað í síðasta þorskastríði. Vamarliðið á Keflavíkurflugvelli bar í gær til baka blaðafregnir um að sérstaklega hefði verið fylgst með ferðum Synetu hingað til lands. Sjá fréttir og viðtal við Heather Gamble á bls. 32 og 33. Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Skrifstofur sjúkrahússins eru á neðri hæð hússins við Sólvallagötu 18 í Keflavík, þar sem hinar meintu hleranir áttu að eiga sér stað. Stj órnarf undur Sjúkrahúss Keflavíkur: í\indur fluttur vegna gruns um hleranir Keflavík. STJÓRNARFUNDUR hjá stjórn Sjúkrahúss Keflavíkur þann 17. desember sl. var haldinn i Hitaveitu Suðurnesja í Njarðvík, en ekki í skrifstofu sjúkrahússins eins og aðrir fundir höfðu verið til þessa. Ástæðan var grunsemdir um hleranir á skrifstofu sjúkrahússins. „Ég tel að stjómarfundur þar sem viðkvæmt trúnaðarmál /j.r rætt, hafi verið hleraður. Fundarefnið var breytt yrði um fundarstað vegna grunsemda um að skrifstofa sjúkra- hússins væri hleruð. Hún sagði að -^pmið út um allan bæ áður en ég kom heim“, sagði Arndís Tómas- dóttir varaformaður stjórnar Sjúkra- hússins í Keflavík í samtali við Morgunblaðið. Arndís sagðist ekki vilja trúa að stjómarmenn hefðu lek- ið fundarefninu. Amdís sagði að á síðasta stjómar- fundi hefði viðkvæmt mál verið tekið ^pir og hefði hún óskað eftir að ekki hefði verið tekin ákvörðun um hvort óskað yrði rannsóknar. Menn hefðu verið önnum kafnir að undan- förnu og ekki gefist tími til að taka mál þetta til meðferðar. Næsti stjómarfundur verður hald- inn 14. janúar nk. og sagði Amdís að ekki hefði verið tekin ákvörðun um hvar sá fuudur yrði haldinn. - BB Isal tapaði um 620 milljónum í fyrra Tapið 13—14% af veltu - batamerki ekki sjáanleg ÁLVERIÐ í Straumsvík var rekið með umtalsverðum halla á ný- liðnu ári, eða nálægt 14%, samkvæmt upplýsingum Ragn- ars S. Halldórssonar forstjóra ÍSAL. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að aðalástæða þessarar slæmu afkomu fyrir- tækisins á liðnu ári væri sú að verð á áli væri afar lágt. „Velta fyrirtækisins á liðnu ári var um 4,4 milljarðar króna og tap nálægt 620 milljónum króna, sem þýðir að tapið á árinu er á milli 13 og 14%,“ sagði Ragnar. Hann sagði að endanlegt uppgjör lægi ekki enn fyrir, þannig að eitthvað gætu þess- ar tölur breyst. „Aðalástæða þessa er náttúrlega sú hvað álmarkaðimir hafa verið slæmir, miðað við það sem maður var alltaf að vonast eftir, auk þess sem mikið af þessu em afskriftir hjá okkur,“ sagði Ragnar. Hann sagði að álverið hefði á síðastliðnu ári framleitt ódýrar en nokkm sinni fyrr og framleiðni hefði verið mik- il, en þetta hefði einfaldlega ekki dugað til, vegna markaðsverðs á áli. Ragnar var spurður hveijar horf- urnar væm; varðandi álverð á næstunni: „Ég hef ekki orðið var við neina vísbendingu um breyting- ar þar á og raunar þorir enginn lengur að spá breytingu til batnað- ar, því menn hafa vonast svo lengi eftir slíkri breytingu, án árangurs." Ragnar var spurður hvort þessi afkoma fyrirtækisins á liðnu ári hefði það í för með sér að ÍSAL þyrfti að draga saman seglin: „Nei, ekki á ég von á því. Við þurfurn að minnka fjármagnskostnað okkar og með því móti að auka hagræð- ingu í rekstrinum." Jól kvödd án láta Þrettándinn var í gær og víða um land voru jólin kvödd með hátíðarhöldum. AIls staðar fóru þau vel fram og lítið var um ölvun og ólæti eins og oft hefur viljað brenna við. I Reykjavík og nágrannabyggð- um var allt með kyrrum kjömm í gærkveldi. Sömu sögu var að segja á ísafirði, Akureyri, Höfn, Vestmannaeyjum, Selfossi, Ákra- nesi, Keflavfk og víðar. Á flestum þessara staða vom álfabrennur og flugeldasýningar, en mest var um fjölskyldufólk á skemmtunum þessum og fóm þær friðsamlega fram.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.