Morgunblaðið - 07.01.1987, Page 5
1
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1987
5
Utgerðarfélag Norður-Þingeyinga:
Breytingiim á
Stakfellinu frestað
- gegn 6.550 þús. kr. styrk
SAMKOMULAG hefur náðst eft-
ir mikið samningaþóf á milli
Utgerðarfélags Norður-Þingey-
inga og Þórshafnarhrepps um
frestun á fyrirhuguðum breyt-
ingum á togaranum Stakfelli um
þrjá mánuði, en því átti að breyta
í frystiskip nú eftir áramótin.
Samkomulagið gerir ráð fyrir
að skipið fái 6.550.000 kr. styrk
til útgerðarinnar frá fjórum aðil-
um í þessa þtjá mánuði og er þá
miðað við að skipið fái 800 tonna
afla á tímabilinu. Eftir er að
bera samkomulagið undir stjórn
Hraðfrystistöðvarinnar og stjórn
Jökuls á Raufarhöfn, sem er
annar fiskkaupandinn.
Samkvæmt samkomulaginu mun
Hraðfrystistöð Þórshafnar greiða
3.5 milljónir, Kaupfélag Langnes-
inga og Þórshafnarhreppur
925.000 krónur hvor aðili og gert
er ráð fyrir að frystihúsið Jökull á
Raufarhöfn greiði 1.2 milljónir vilji
það fá fisk til vinnslu úr togaran-
um. Miðað við 800 tonna afla þýðir
styrkurinn rúmlega 8 krónur á
hvert kg ofan á gildandi fiskverð.
Styrkurinn er nálægt því að vera
greiðslubyrðin af skipinu, en hún
er á ári um 25 millj. kr. Skuldir á
skipinu nema nú 220 milljónum
króna og sagði Óli Þorsteinsson,
stjómarmaður í Hraðfrystistöðinni,
í samtali við Morgunblaðið að Stak-
fellið væri búið að tapa 74 millj.
kr. frá því það kom á miðju ári
1982 til ársloka 1985. Reksturinn
hefur hinsvegar gengið vel á síðasta
ári, að sögn Óla.
Upphaflega var Stakfellið í eigu
Jökuls á Raufarhöfn sem átti 40%,
Kaupfélags Langnesinga átti 12%,
Þórshafnarhrepps og Hraðfrysti-
stöðvar Þórshafnar sem áttu saman
46% af eignarhlut skipsins_ og Sval-
barðshrepps, sem átti 2%. Ákvörðun
um að breyta Stakfellinu alfarið í
frystiskip var tekin á fundi útgerð-
arfélagsins þann 4. júní sl. og
mynduðu Raufarhafnarbúar meiri-
hluta með Kaupfélagsmönnum um
ákvörðunina þá. Hinsvegar gerðist
það í haust að Kaupfélagið keypti
eignarhlut Jökuls í skipinu og á í
því nú 52%.
„Menn héldu að eftir að kaup-
félagið hefði eignast meirihluta í
skipinu og það komið alfarið til
Þórshafnar, yrði hætt við breyting-
amar, en svo reyndist ekki. Til-
kynnt var í nóvember að skipið
færi í breytingamar 5. janúar í
Slippstöðina á Akureyri. Haldinn
var fjölmennur borgarafundur nú
strax eftir áramótin og vom allar
tillögur í þá átt að hætt yrði við
breytingamar þar sem þær myndu
þýða algjört atvinnuleysi hjá fisk-
vinnslufólki, 50 til 60 manns. Mikil
samstaða ríkti á fundinum á meðal
hinna almennu borgara um að
hætta við breytingamar. Hinsvegar
sá kaupfélagsstjórinn, Þórólfur
Gíslason, sér ekki fært um að
mæta á fundinn, en hann er jafn-
framt stjómarformaður í Útgeraðr-
félagi Norður-Þingeyinga," sagði
Óli Þorsteinsson.
GLEÐILEGT
NÝTT ÁR!
Skólinn tekur til starfa 12. janúar
í Bolholti allir aldurshópar frá 12 ára
aldri. Framhald - byrjendur.
Tími 2 sinnum og 3 sinnum í viku.
Þriðji tíminn frjálst val. Jazz eða ballett.
Opnir tímar á laugardögum. Ath.
nemendur sem eru 3 sinnum í viku fá
fría tíma á laugardögum.
Gestakennari Jack Gunn frá London.
Kemur 12. janúar.
Ps. Ekki missa af fyrsta tíma.
Pps. Framhaldsnemendur mæti á
sömu tímum og áður.
í Suðurueri: Barnaskóli 5—12 ára.
Byrjendaflokkar - framhaldsflokkar.
Tímar 1 sinnum og 2 sinnum í viku.
*
Avöxtun hefur sölu
á ávöxtunarbréfum
Stjórn Verðbréfasjóðs Ávöxtunar hf., f.v.: Ármann Reynisson for-
stjóri, dr. Páll Sigurðsson dósent og Pétur Björnsson forstjóri.
ÁVÖXTUN sf. hefur stofnað
verðbréfasjóð og hefur nú ve-
rið hafin opinber sala ávöxtun-
arbréfa sjóðsins. Sjóðurinn ber
nafnið Verðbréfasjóður Ávöxt-
unar hf.
Ármann Reynisson forstjóri
Ávöxtunar sf. sagði að á undanf-
ömum mánuðum hefði fyrirtækið
verið endurskipulagt, meðal ann-
ars til að forðast árekstra við
bankaeftirlitið sem hefði haft fyr-
irtækið undir smásjánni. Verð-
bréfasjóðurinn hefði verið
stofnaður til að taka við þjónustu
fyrirtækisins við sparifjáreigend-
ur og væri hann þó að öllu leyti
rekinn af Ávöxtun sf.
Ávöxtunarbréfin sem Verð-
bréfasjóðurinn selur eru í þremur
verðflokkum, 1.000 krónur,
10.000 krónur og 50.000 krónur.
Sagði Ármann að markmiðið
væri að bréfin hefðu hæstu ávöxt-
un á hveijum tíma. Enginn
aukakostnaður væri dreginn frá
andvirði bréfanna við innlausn.
Þá væri engin bindiskylda á þeim,
og ætti að vera hægt að leysa
þau út hvernær sem er. Ávöxtun-
arbréfin væru því fjárfesting til
lengri og skemmri tíma. Ávöxtun-
arbréfin verða fyrst um sinn
eingöngu til sölu á skrifstofu
Ávöxtunar sf.
Á síðasta ári náðu fjármunir á
fjárvörslusamningum Ávöxtunar
sf. yfir 31% ávöxtun, að sögn
Ármanns, og samsvaraði það
rúmlega 14% ávöxtun umfram
verðbólgu.
I stjórn Verðbréfasjóðs Ávöxt-
unar hf. eru: Dr. Páll Sigurðsson
dósent, sem er formaður; Pétur
Björnsson forstjóri og Ármann
Reynisson forstjóri.
Nýtt - nýtt: Nemendur teknir frá 5 ára
aldri.
í Hraunbergi - Nýr skóli.
Byrjendaflokkar — framhaldsflokkar.
Ath. nú einnig tímar 2 sinnum í viku.
Innritun hefst í alla flokka
5. janúar.
Kennarar skólans:
Bára, Anna, Margrét A., Sigríður, Margrét
Ó., Agnes og Arndís.
IMemendasýning í apríl.
Dansarapróf tekin í maí. Skólanum slitið
24. maí með veglegri veislu og afhendingu
prófskírteina.
Nú geta allir komið og kynnt sér tímana
hjá JSB. Opnir tímar á laugardögum.
Jazz - þol - og teygjutímar.
Gjald 250 kr. per tíma.
Flugleiðir:
Veruleg’ur hagnaður í fyrra
Slæm afkoma hjá Arnarflugi
ALLT útlit er fyrir að hagnaður
Flugleiða á árinu 1986 verði
meiri en árið á undan en þá var
hann tæplega 200 milljónir að
sögn Sigurðar Helgasonar for-
stjóra Flugleiða.
Sigurður sagði að endanlegar
tölur um afkomu félagsins lægju
ekki fyrir, fyrr en viku fyrir aðal-
fund félagsins sem haldinn verður
20. mars næstkomandi. Hann sagði
að hagnaðinn mætti meðal annars
rekja til verðlækkunar á eldsneyti,
miklum flutningum og góðri nýt-
ingu á flugvélum, hótelum og
bílaleigu. Þá varð mikill hagnaður
af verkefni, sem félagið tók að sér
í Alsír og sölu á hlut félagsins í
Cargolux auk sölu á einni af Fok-
ker Friendship vélum félagsins. Um
horfur á þessu ári sagði Sigurður
að ágætt útlit væri með flutninga
en verð á eldsneyti, gengi dollars
og efnahagsástandið hér á landi
gæfi ekki tilefni til mikillar bjart-
sýni.
Að sögn Kristins Sigtryggssonar,
forstjóra Arnarflugs, er gert ráð
fyrir að afkoma félagsins á árinu
1986 verði slæm og jafnvel verri
en búist var við. Endanlegar tölur
liggja ekki fýrir og er ekki að vænta
fyrr en síðar.
ff
J azzballettskólí
Báru
Bolholt, Suðurver, Hraunberg,
36645. 83730. 79988.
Þökkum nemendum okkar góðar samveru-
stundir á liðnu ári.
FÍD
Fólag ísl. danskonnara.