Morgunblaðið - 07.01.1987, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1987
Snjó-hvað?
Snjór er mjög vinsæll af
börnum. Úr honum má gjarnan
búa til ýmislegt s.s. karla, hús
og snjóbolta. Menn fara á skíði,
sleða, þotur og allt annað sem
fólki dettur í hug að renna sér
á. Einnig eru skautarnir teknir
upp á þessum árstíma.
í snjónum er hægt að fara í
sporleik. Þá er það einn sem á
að fela sig og hinir reyna að finna
hann með því að rekja sporin
hans. Þetta getur verið erfitt þar
sem mörg önnur spor geta verið
í snjónum. Krakkamir hérna á
myndinni eru á góðri leið með að
búa til heilan snjókarlakór. Hjá
snjókarlakórnum sínum hafa þau
einnig búið til smá ljós. Þau hafa
raðað saman snjóboltum í hrúgu,
þannig að autt er inni í hrúgunni
og svolítið op á hliðinni þannig
að þau geta sett kerti þar í og
nú eru þama „upplýstir" snjókarl-
ar.
Það er margt skemmtilegt
hægt að gera úr snjó og ykkar
að nota hann til að búa til allt
mögulegt. Ég held að allir krakk-
ar brosi út að eyrum þegar
snjórinn fellur líka þau sem ekki
geta sagt snjór en þau tákna hann
á ákveðinn hátt.
Nýtt ár, árið 1987, er hafið. Gleðilegt ár krakk-
ar og hjartans þakkir fyrir liðið ár. Sérstakar
þakkir flyt ég öllum þeim sem hafa skrifað
Barnasíðunni, komið í viðtal, eða aðstoðað á
annan hátt. Vonandi eigum við eftir að eiga
gott samstarf á þessu nýbyijaða ári.
Okkar tímatal miðast við fæðingu Jesú Krists.
1 hverju ári eru 12 mánuðir eða 52 vikur. Menn
1987
hafa ekki alltaf talið þetta eins en það er mikið
hagræði að því að hafa ákveðið tímatal og milli
landa getum við talað um ákveðna daga og ver-
ið að meina það sama. Stundum áður fyrr urðu
menn að miða við gang himintungla og fleira
þess liáttar.
A nýju ári væri gaman að fá bréf frá ykkur
með hugmyndum og tillögum að efni á síðuna.
ELDSPYTNA-
VANDAMÁL
Eldspýtur hafa verið mikið
notaðar upp á síðkastið. Kveikt
hefur verið í flugeldum, brenn-
um og á stjörnuljósum fyrir utan
öll kertin sem við höfum kveikt
á.
Hérna eru sex heilar eldspýt-
ur og fjórar hálfar. Það er hægt
að búa til fimm ferninga úr
þeim. Getur þú gert það?
MYNDAGATAN 19
12 3 4 5 6 7 8 9
1$7 XI
ja
ram
L- i_
Myndagátan í dag er svolítiið öðruvfsi en oftast. Hérna sjáið
þið teiknaða mynd. Búið er að taka fimm ferninga út úr mynd-
inni. Getið þið fundið hvaðan þeir eru?
í skíðabrekkunni
Margir eru í skíðabrekkunni í dag. Ekki eru þó allir jafn flínkir
á skíðum, og detta hver um annan. Tvö bamanna eru systkin.
Þau eru í svipuðum fötum. Getur þú fundið hver þau eru?
Gettu
betur
Nú reynum við að hressa og vekja hugann eins og
við getum eftir hátiðina. Hérna eru nokkrar laufléttar
gátur sem þið eigið auðvelt með að leysa.
1. Hver hefur auga, en ekki höfuð?
2. Hver hefur fjóra fætur, en getur þó ekki gengið?
3. Hver hefur höfuð en hvorki nef né augu?
4. Hvað stækkar því meira sem meira er rifið af því?
5. Þvottur gerir það óhreint. Það er hreinna, ef það
hefur ekki verið í þvotti. Hvað er það?
Ef þið vitið svörin sendið. okkur þá línu. Heimilis-
fangið er:
Barnasíðan, Morgunblaðinu,
Aðalstræti 6, 101 Reykjavík.
7 — X -8
4- X fH X M
+ —- =8
— §§ — 11 + H
+ — =9
^8 M --Q M -9 (H
TALNA-
KROSSGÁTA
Um leið og skólaleyfinu um
jólin lýkurtekur alvaran viö.
Hérna er smá talnakrossgáta eða
reiknisþraut sem þú getur æft
þig á. Er þetta nokkuð voða flók-
ið?