Morgunblaðið - 07.01.1987, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1987
Peking:
Stúdentar hlægja að
viðbrögðum dagblaða
Peking, Reuter.
STÚDENTAR í Peking gerðu í
gær grín að opinberu dagblaði,
sem sakaði þá um að vera barna-
legir og hræddir við sannleikann.
Námsennirnir brenndu á mánu-
dag eintök af Dagblaðinu í
Peking til að mótmæla umfjöllun
blaðsins um aðgerðir stúdenta
um allt landið fyrir auknu frelsi
og lýðræði.
Harðorður leiðari birtist í blaðinu
í dag: „Stúdentarnir þola ekki einu
sinni gagnrýni. Þeir munu roðna
Gengi
gjaldmiðla
London, AP.
BANDARÍKJADOLLAR lækkaði
í gær gagnvart sumum helztu
gjaldmiðlum heims en hækkaði
gagnvart öðrum. Síðdegis kost-
aði brezka pundið 1,4760 dollara
(1,4725), en annars var gengi
dollarans þannig, að fyrir hann
fengust 1,9230 vestur-þýzk mörk
(1,9315), 1,61525 svissneskir
frankar (1,6280), 6,4050 franskir
frankar (6,3900), 2,1725 hollenzk
gyllini (2,1815), 1.340,50 ítalskar
lírur (1.345,00), 1,37375 kanadí-
skir dollarar (1,3773) og 158,95
jen (158,65).
Gullverð hækkaði og var
401,40 dollarar únsan (399,00).
Námsmaður í Peking les hér
texta um lýðræði af vegg-
spjaldi inn á segulband til að
dreifa til annarra námsmanna.
Af ótta við lögreglu gefur hann
sér tima til að líta um öxl. Þessi
texti og fleiri, þ. á m. einn
undirritaður með blóði, hafa
verið límdir á veggi á töflur
víða um háskólann.
af skömm þegar þeir gera sér grein
fyrir hversu barnalegar aðgerðir
þeirra eru.“
„Roðna? Við erum stoltir af því
sem við gerðum og við myndum
gera það aftur,“ sagði stúdent, sem
stóð ásamt félögum sínum fyrir
framan vegg, sem límd höfðu verið
á ólögleg veggspjöld með skömmum
um blaðið.
„Dagblaðið birtir fullt af lygum,"
sagði hann. „Allur leiðarinn er upp-
fullur af lygum utan ein lína. Þar
segir að maður eigi ekki að óttast
sannleikann."
A veggspjöldunum höfðu náms-
menn í háði skrifað tíu tilskipanir
frá borgaryfirvöldum um viðurlög
við að birta rangar fréttir. Þar var
gert grín að samskonar reglur, sem
borgaryfírvöld settu í síðasta mán-
uði um mótmælafundi.
„Áður en rangar fréttir eru birtar
þurfa hlutaðeigandi aðiljar að sækja
um leyfi hjá skrifstofu almannaör-
yggis með fimm daga fyrirvara.
ERLENT
UTSALA
Dúnúlpur, stærðir 8—16.
Verð áður 5.320,- Nú 3.100,-
Fiberúlpur, stærðir 12—14
Verð áður 2.995,- Nú 1.995,-
Adidas æfingaskór nr. 36—41
Verð áður 995,- Nú 750.-
Moon Boots nr. 25—38
Verðáður 1.146,-Nú 800,-
Háskólapeysur S-M-L
Verð áður 995,- Nú 490,-
Skokk æfingagallar S-M-L
Verð áður 3.150,- Nú 1.950,-
Adidas æfingagallar á börn
Verðáður 1.585,-Nú 1.150,-
Nike æfingaskór á börn
Verð áður 990,- Nú 690,-
Reiðbuxur á börn
Verð áður 2.495,- Nú 1.750,-
Útsalan hefst í dag
Komið og gerið góð kaup
Póstsendum samdægurs
Þar þarf að taka fram nafn blaðs,
stað og dagsetningu útgáfu sem
og innihald lygafréttarinnar,"
sdagði í einni tilskipun námsmann-
anna.
Mótmæli námsmanna hófust fyr-
ir um mánuði síðan og hafa þeir
helst krafist prentfrelsis og aukins
líðræðis.
Námsmenn kváðust í gær efast
um að til frekari mótmæla kæmi.
„Við höfum náð því markmiði að
ýta við stjómvöldum. Nú taka við
próf og mánaðar frí,“ sagði einn
námsmanna. „Enn kvað okkar aðal-
markmiði viðvíkur - hver veit?“
sagði hann brosandi ogyppti öxlum.
Annar námsmaður sagði að stúd-
entar hefðu viljað koma til liðs við
endurbótasinna í kommúnista-
flókknum: „En nú eru allir aftur-
haldmennimir komnir á kreik,"
sagði hann og benti á leiðara Dag-
blaðsins í Peking.
Vestrænn stjómarerindreki sagði
að lögregla hefði bmgðist við mót-
mælum stúdenta af skynsemi og
þolinmæði. Skrif dagblaða bentu
því til þess að stjómvöld væru klof-
in í afstöðu sinni til aðgerða
stúdenta.
AP/Símamynd
Sovétríkin:
Eiturlyfj aney sla
mikið vandamál
Moskvu, Reuter, AP.
VANDAMAL vegna neyslu eitur-
lyfja, sem hingað til hafa verið
sögð fylgifiskar vestrænna þjóð-
félaga, eru mun viðameiri í
Sovétríkjunum en yfirvöld þar
hafa hingað til viljað viðurkenna.
Kom þetta fram í viðtali við inn-
anríkisráðherra Sovétríkjanna,
Alexander Vlasov, er birt var í
dagblaði sovéska kommúnista-
flokksins Pravda í gær. Sagði
hann að skráðir eiturlyfjaneyt-
endur i landinu væru 46.000, en
hingað til hefur þvi verið haldið
fram að þeir væru um 2.500.
Vlasov sagði að baráttan gegn
eiturlyfjaneyslu og glæpum þeim
tengdum væri eitt brýnasta verk-
efni ráðuneytis síns. Á síðasta ári
hefði verið hafín sérstök herferð í
þessu skyni, 4.000 eiturlyfjasalar
hefðu verið handteknir og miklu
magni eiturlyija eytt. Ráðherrann
gagnrýndi ómarkvissar aðgerðir
lögreglunnar og sinnuleysi yfir-
valda, sem gert hefðu lítið úr
vandanum og þar með óbeinlínis
orðið til þess að auka eiturlyfja-
neyslu. Vlasov sagði neysluna hafa
vaxið mjög síðustu fimm árin og
að 80% skráðra eiturlyfjaneytenda
væru yngri en 30 ára.
Á síðasta ári hefði einkum verið
lögð áhersla á að koma í veg fyrir
dreifingu efnanna og ræktun jurta
sem eiturefnin væru unnin úr.
Nútíma tækni væri í vaxandi mæli
notuð í þessu skyni og sérstakar
lögreglusveitir hefðu verið þjálfað-
ar, er m.a. hefðu yfir að ráða
hundum er þefa ættu uppi eitur-
efni. Innanríkisráðherrann sagði að
tugþúsundir glæpa er tengdust eit-
urlyfjanotkun hefðu verið framdir
á síðasta ári og væru eiturlyfjaneyt-
endur greinilega mun líklegri til
glæpaverka en þeir sem neyttu
áfengis.
Í síðasta mánuði var sagt frá því
í fréttum sovéska sjónvarpsins, að
tollverðir í Moskvu hefðu fundið
eitt tonn af hassi í gámi er innihélt
rúsínur. Er álitið að sú frétt sé liður
í baráttu yfirvalda við eiturlyfja-
vandamálið.
Vilja Sovétmenn
frið í Afganistan?
Laugavegi 62,
sími 13508
Islamabad, Reuter.
FÖR Eduards Shevardnadze, ut-
anríkisráðherra Sovétrílg'anna
til Afganistan er talin sýna vilja
ráðamanna i Moskvu til þess að
fylgja eftir áformum Najibullah,
leiðtoga Kabúlstjórnarinnar, um
að koma á friði í landinu. Var
þetta haft eftir vestrænum
stjómmálafræðingum í gær..
í för með Shevardnadze eru m. a.
Anatoly Dobrynin, einn helzti sef-
fræðingur Sovétstjómarinnar í
utanríkismálum. Þeir komu til Kab-
úl á mánudag og áttu þá strax fund
með helztu leiðtogum afganskra
kommúnista. Heimsókn þessi, sem
ekki var kunngerð fyrirfram, á sér
stað, er ekki eru liðnar fjórar vikur
frá því að Najibullah og nær allt
stjómmálaráð afganska kommúni-
staflokksins fór til Moskvu til
viðræðna við Mikhail Gorbachev,
leiðtoga Sovétríkjanna. Þá em ekki
nema fjórir dagar síðan Najibullah
hófst handa um nýja friðarviðleitni
með tilkynningu um vopnahlé frá
og með 15. janúar og áskorun til
frelsissveitanna um að hætta 8 ára
baráttu þeirra.
Sumir vestrænir stjómmálasér-
fræðingar telja að hér sé aðeins um
áróðursbragð að ræða hjá sovézk-
um ráðamönnum í því skyni að
styrkja stöðu Kabúlstjómarinnar,
áður en friðarviðræður þær, sem
Sameinuðu þjóðarinar hafa gengizt
fyrir, hefjast á ný 11. febrúar nk.
Er því haldið fram, að tillögur Sov-
étmanna nú, enda þótt þær gangi
lengra en fyrri tillögur þeirra, séu
augljóslega óaðgengilegar fyrir
ffelsissveitimar.
Aðrir halda því fram, að Gorbac-
hev sé staðráðinn í því að binda
endi á þátttöku Sovétmanna í
stríðinu í Afganistan,, en hún valdi
þeim feiknarlegum álitshnekki víða
um heim. Aðgerðir Sovétmanna nú
sé fyrsta skrefið í þá átt að vinna
nógu marga skæruliða á sitt band
til þess að binda enda á stríðið.