Morgunblaðið - 07.01.1987, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JANÚAR 1987
Útgefandi Árvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthias Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 500 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 50 kr. eintakiö.
Snorri Hjartarson
kvaadur
Eg held ég verði aldrei pop-
úlert skáld, sagði Snorri
Hjartarson í samtali við Morg-
unblaðið fyrir 30 árum. Og
hann bætti við: Ég verð senni-
lega alltaf mest lesinn af
skáldum. Þegar þetta var
skrifað hafði Snorri Hjartarson
gefíð út tvær ljóðabækur,
Kvæði árið 1944 og Á Gnita-
heiði árið 1952. I Morgun-
blaðssamtalinu kemur fram,
að þær eru báðar ófáanlegar.
Af hógværð eða til afsökunar
segir skáldið, að það komi sér
mjög á óvart.
Snorri Hjartarson var lesinn
af fleirum en skáldum. Hann
er í hópi ástsælustu skálda
þessarar aldar — ekki aðeins
virtur af skáldbræðrum heldur
einnig af allri þjóðinni. Há-
skóli íslands staðfesti þá
virðingu, sem Snorri nýtur,
með því að útnefna hann sem
heiðursdoktor á 75 ára afmæli
skólans síðastliðið haust. Al-
þingi sýndi honum virðingu
með því að skipa honum í hóp
þeirra manna, er hljóta heið-
urslaun á fjárlögum. Honum
hlotnaðist sá heiður að fá bók-
menntaverðlaun Norðurlanda-
ráðs 1981 fyrir ljóðabókina
Hauströkkrið yfir mér.
Snorri Hjartarson kunni að
sjálfsögðu að meta þá viður-
kenningu, sem hann hlaut.
Ljóð hans bera það á hinn
bóginn með sér, að honum var
mest í mun að þjóna skáldgyðj-
unni. Virðing hans fyrir við-
fangsefninu, ljóðinu og
tungunni var ofar öðru. Hann-
es Pétursson skáld komst
þannig að orði, að ljóð Snorra
glitruðu í hljómi og lit. Hann
unni náttúrunni og leitaði
fanga í litbrigðum hennar. í
einu kvæða sinna segir hann,
að landið, þjóðin og tungan séu
óijúfandi heild og dýrð þessar-
ar þrenningar hafí skinið um
sig á „dimmum vegi“ útlegðar
og fjarvistar frá fósturjörðinni.
Þar fann hann, að hann var
sjálfur aðeins til í þessari
sönnu og einu þrenningu.
Þú átt mig, éger aðeins til
í þér...
í ræðunni, sem Snorri Hjart-
arson flutti í Kaupmannahöfn,
þegar honum voru afhent bók-
menntaverðlaun Norðurlanda-
ráðs, ræddi hann um hlutverk
skálda. Hann sagði það annað
nú en á nítjándu öld, þegar
þau voru víða í fylkingar-
brjósti þar sem barist var fyrir
frelsi, auknum lýðréttindum
og þjóðlegri endurreisn, „voru
í einu þjóðskáld og þjóðhetj-
ur“, eins og hann orðaði það
og sagði síðan orðrétt: „En þó
nú sé öldin önnur og kvæði
geti fáu breytt, hafa skáld
ærið hlutverk að leysa af
hendi: vekja samkennd og
samúð, opna augu fólks fyrir
því sem fagurt er og gott, og
þá vissulega einnig hinu sem
illt er og rangsnúið, túlka til-
fínningar sínar og viðhorf á
þann hátt sem ljóðið eitt fær
gert. 0g það getur verið styrk-
ur í baráttunni fyrir rótgróinni
menningu hinna smærri þjóða,
sem nú á í vök að veijast gegn
innrás alþjóðlegra íjölmiðla."
Snorri Hjartarson brást ekki
í hlutverki sínu sem skáld,
hann lét ekki undan síga í
baráttunni fyrir landið, þjóðina
og tunguna. Um ljóðlist hans
sagði Hannes Pétursson meðal
annars 1960: „Bækur Snorra
eru því í eðli sínu symfónísk
verk, fjöldi hljóðfæra ber Ijóð-
list hans uppi. Þetta markar
stöðu hans í íslenskri nútíma-
ljóðagerð, hann er klassískur,
nýtískulegur og þjóðlegur í
senn, og skáldskapur hans er
beint framhald íslenskrar ljóð-
hefðar, hann auðgar hana og
samræmir kröfum tímans, eins
og öll meiriháttar skáld á und-
an honum höfðu gert, en þó
er mikilvægast af öllu: hann
gengur aldrei að list sinni með
kæruleysi, heldur með alvöru
og óskiptur, því hann veit að
skáldskapur er alvörumál, ekki
til að gamria sér við, heldur
dýrmætt tæki til að tjá á var-
anlegan hátt það, sem
mönnum býr dýpst í huga, og
hann hefur aldrei ort fyrir aðra
en hina vandlátustu og kröfu-
hörðustu lesendur og ber því
hátt merki hins sanna Iista-
manns.“
Snorri Hjartarson taldi sig
verða mest lesinn af skáldum.
Hann orti sig á hinn bóginn
inn í þjóðarsöguna og hann er
kvaddur með virðingu af þjóð-
inni allri sem sannur listamað-
ur. Morgunblaðið þakkar
honum samfylgdina og vottar
ástvinum hans samúð.
Bryndís Pálsdóttir, Auður Hafsteinsdóttir og Svava Bemharðsdóttir (Morgunbiaðið/Árni Sæberg)
„Förum í jólafrí
eftír þessa tónleika“
ÞRÍR ungir strengjaleikarar,
Auður Hafsteinsdóttir,
Bryndís Pálsdóttir og Svava
Bemharðsdóttir, efna til tón-
leika í Áskirkju í Reylgavík í
kvöld, miðvikudagskvöld, 7.
janúar kl. 20.30. A tónleikun-
um leika þær dúetta eftir
Mozart og Martinú og tríó eft-
ir Dvorak og Kodaly. Þær
Auður og Bryn dís leika á
fiðlu, en Svava á lágfiðlu. Þær
era allar við tónlistarnám í
Bandaríkjunum og fyrsta
spurningin var hvort þær
hefðu spilað mikið saman þar.
„Nei, ekki mikið. En s.l. sumar
vorum við allar styrkþegar sum-
arskólans í Aspen í Colorado.
Þetta er mjög góður skóli, og
stór, það voru um 1100 nemend-
ur þama. Við vorum þó einu
íslendingamir, og ákváðum að
spila saman þar sem við bjuggum
að samspilsreynslu frá því fyrr.
Við fengum leiðsögn hjá kennur-
um og þetta gekk vel, þessvegna
ákváðum við að spila hér heima
fyrir fólkið sem við þekkjum í
jólafríinu.
Meðal leiðbenenda okkar í
Aspen var Lilian Fuchs. Hún
hefur, ásamt bróður sínum, getið
sér gott orð fyrir flutning
strengjadúetta. Einu sinn heyrði
tónskáldið Marinu þau systkin
leika strengjadúett eftir Mózart
og hreifst svo af leik þeirra að
hann skrifaði dúett sérstaklega
fyrir þau. Við æfðum þessa tvo
dúetta undir leiðsögn Lillian og
þeir verða á efnisskránni hjá
okkur í kvöld.
Aður en við fómm út vomm
við allar í Tónlistarskólanum í
Reylqavík. Þar vomm við í
strengjasveit skólans. Þetta var
ca. 12 manna hópur. Við æfðum
mikið saman í mörg ár, undir
stjóm Mark Reedman. Það náðist
upp mjög gott samspil. Hópurinn
fór saman í ferðalög, t. d. til
Júgóslavíu og Skotlands. Eftir
að við útskrifuðumst úr Tónlist-
arskólanum fómm við þrjár í
framhaldsnám til Bandaríkjanna,
Bryndís og Svava em í Juilliard
skólanum í New York og Auður
við New England Conservatory
í Boston. Síðan hittumst við allar
í Aspen í sumar og fómm þá að
spila saman.
Emð þið við nám allan ársins
hring?
Já, og höfum verið það alveg
frá því við fómm héðan, það má
eiginlega segja lengur, því það
er mjög algengt að fara út á
sumamámskeið. Þessi námskeið
em miklu „intensivari" en venju-
legt tónlistamám. Á þeim er
mússík allan sólarhringinn. Fólk
kemur alls staðar að úr heiminum
og maður fær tækifæri til að
fylgjast mikið betur með því sem
er að gerast annars staðar. Flest
þessara námskeiða hafa mjög
góða styrki þannig að þau koma
út eins og sumarvinna. Þessi
sumamámskeið em yfirleitt 6—8
vikur í Bandaríkjunum, styttri í
Evrópu, en námskeiðið í Áspen
í sumar var í 9 vikur. Stundum
fer maður líka á fleiri en eitt
námskeið yfir sumarið."
Hver er munurinn á tónlist-
arlífinur hér heima og í Banda-
ríkjunum
„Það er miklu fjölbreyttara í
Bandaríkjunum," segir Svava,
„þar er lengri tónlistarhefð, skól-
amir em stærri og skipulagðari.
Það segir sig sjálft að þar em
miklu fleiri tóniistarmenn, þann-
ig að samkeppnin er enn harðari.
Og þá er ég ekki að tala um
samkeppni í neikvæðri merkingu,
heldur líka jákvæðri, því það era
fleiri til að læra af. Síðan er auð-
vitað miklu meira framboð af
tónleikum. Við Biyndís emm t.d.
í New York, og þar koma á fræg
nöfn. Það er hægt að fara á tón-
leika á hveiju kvöldi hjá fóiki sem
kemur hingað aðeins á Lista-
hátíð. Það er ekki sísti skólinn í
því að fara á slíka tónleika."
Nú erað þið við nám á háskóla-
stigi, hvaða undirbúningsmennt-
un þurftuð þið að hafa?
„Það er rétt, Auður og Brjmdís
em að ljúka BM prófi í vor, en
sjálf er ég í doktorsnámi," svarar
Svava, en þetta með aðfaramám
er mikið áhyggjuefni gagnvart
Lánasjóði íslenskra námsmanna.
Efsta próf sem maður getur tek-
ið héðan, er einleikarapróf, en í
Bandaríkjunum er það ekki metið
lengra en á 2. eð 3. ár á „bachel-
or“ stigi. LÍN vill helst ekki lána
námsmönnum fyrr en eftir það
stig. Þessar reglur ganga ekki
alveg upp að því er tónlistamám
varðar. Þær geta tafíð fyrir fólki,
eða jafnvel eyðilagt algerlega
alla möguleika til frekara tónlist-
amáms. Það er soiglegt því það
þarf endumýjun í tónlistinni eins
og annars staðar
En það þarf ekki stúdentspróf
eða eitthvað hliðstætt, til að kom-
ast inn í þessa skóla. Það em
rejmdar mjög skiptar skoðanir
um þessa hluti í þeim skólum sem
við emm . Til dæmis í Juilliard
er nýr skólastjóri, sem aðhyllist
þá kenningu að ekki sé nóg að
kenna fólki að spila á hljóðfæri,
það verði að hafa alhliða þekk-
ingu, kunna að vera manneskjur.
Gamlir kennarar við skólann era
þessu ekki sammála, telja það
vera eina hlutverk skólans að
útskrifa fyrsta flokks hljóðfæra-
leikara, ef fólk vilji alhliða
menntun líka verði það að afla
hennar annars staðar.“
Hvað tekur svo við eftir námið?
„Við höldum kannski áfram,
fömm í aðra skóla, til annars
kennara í 1—2 ár í viðbót. Maður
hugsar ekki lengra. Það er nú
líka svo að maður hættir aldrei
að læra. En eftir útskrift kemur
oft millibilsástand. Fólk fer í
„free—lance" vinnu í hinum og
þessum stórborgum, sækir mikið
tónleika og með tíð og tíma reyn-
ir það að koma sér í fasta vinnu.
Við stefnum allar heim, á endan
um.“
Hvað er svo á efnisskránni hjá
ykkur í kvöld?
„Þessir tónleikar em afrakstur
af því sem við vomm að gera í
Aspen í sumar,“ segir Svava.
„Eftir það hélduml við Biyndís
áfram hjá Lilian Fuchs og eins
og við sögðum áðan þá æfðum
við tvo dúetta hjá henni, annan
eftir Mozart, hinn efgtir Martinu.
Við spilum þá í kvöld. Síðan emm
við með tvö tríó, annað eftir
Dvorak og hitt eftir Kódali. Við
emm með mjög sérkennilega
strengjasamsetningu. Ef við
hefðum tvær fiðlur og celló væri
þetta ekkert mál. Það er til nóg
af verkum fyrir þá samsetningu,
en ekki fyrir tvær fiðlur og eina
lágfiðlu. Þannig verk em mjög
sjaldgæf. En við fundum þessi
verk, þurftum að sérpanta þau,
því þau em of sjaldgæf til að
vera til á bókasöfnum. Síðan
höfum við verið að æfa saman.
Við höldum aðeins þessa einu
tónleika hér heima núna, eftir
það ætlum við að fara í jólafrí.
Við höfum nefnilega verið að æfa
öll jólin. Síðan fömm við aftur
út til Bandaríkjanna um miðjan
janúar."