Morgunblaðið - 01.04.1987, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1987
Póstur og sími:
Símanúmer á Suðurnesj-
um verða með 5 stafa tölu
Keflavík.
SÍMANÚMER á Suðurnesjum
breytast öll úr fjögurra starfa
tölu í fimm stafa tölu þegar ný
símaskrá tekur gildi í maí eða
júní nk. Björgvin Lúthersson,
símstöðvarstjóri í Keflavík, sagði
að talan 1 kæmi fyrir framan öll
símanúmer í Keflavík, Njarðvík
og Höfnum, í Garðinum yrði tal-
an 2, í Sandgerði 3, í Vogunum
4, í Grindavík 6, og 5 á Keflavík-
urflugvelli hefur þegar verið
tekin í notkun.
Nú stendur yfir bygging á nýju
húsi fyrir Póst og síma og kvaðst
Björgvin vonast til að hægt yrði
að fara með bögglapóstinn í nýja
húsið fyrir næstu jól, en hann væri
nú geymdur í gömlum skúrum.
Björgvin sagði að núverandi hús-
næði væri alltof lítið fyrir starfsem-
ina og væri það rekið á undanþág-
um vegna þess hve lágt væri undir
loft í kjallaranum þar sem tækni-
menn væru með aðstöðu. Bifreiða-
stæði fyrir viðskiptavini væri
talsvert vandamál, því fólk sem
ynni í nýbyggingum í grenndinni
tæki bróðurpartinn af bílastæðun-
um.
Nýja húsið sem nú er í byggingu
verður 900 fermetrar á tveimur
hæðum og með tilkomu þess verður
mikil breyting á allri aðstöðu í póst-
og símamálum á Suðurnesjum.
Björgvin kvaðst að lokum vera
ákaflega þakklátur ráðamönnum
fyrir velvilja í þessu máli.
- BB
Jón B. Hannibalsson í ræðustól á fundinum í Gerðubergi.
Morgunblaðið/Einar Falur.
Jón Baldvin Hannibalsson á fundi í Gerðubergi:
Erum stödd í miðri póli-
tískri revíu eða sápuóperu
„Við erum nú stödd í miðri pólítískri revíu eða sápuóperu
sem gæti heitið Valdatafl í Valhöll 2 eða því miklu rómantí-
skara heiti A veldi tilfinninganna“, sagði Jón Baldvin
Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, á almennum
stjórnmálafundi í Gerðubergi sl. mánudagskvöld.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Gamla símstöðin við Hafnargötu er fyrir löngu orðin allt of lítil
fyrir starfsemi Pósts og sima. Skúrarnir eru notaðir undir geymslur
fyrir bögglapóstinn.
Unnið er að krafti við nýju símstöðina og vonast er til að hægt verði
að hefja þar einhveija starfsemi fyrir næstu jól.
Jón Baldvin rifjaði upp þau orð
Þorsteins Pálssonar, formanns
Sjálfstæðisflokksins, á flokksráðs-
fundi Sjálfstæðisflokksins um
síðustu helgi, að afsláttargreiðslur
vegna flutninga, sem hefðu átt að
renna til ÁTVR, fóru þess í stað
til Alberts Guðmundssonar, þáver-
andi ijármálaráðherra og yfirmanns
ÁTVR og að ferð sem Albert Guð-
mundsson fór til Nizza hefði verið
greidd bæði af Hafskip og ríkis-
sjóði. „í öllu því mikla fjölmiðlafári
sem verið hefur um persónu Al-
berts Guðmundssonar síðustu daga
er það hvað athyglisverðast að eng-
in fréttamaður hefur kveikt á
perunni varðandi þetta", sagði Jón
Baldvin.
Jón Baldvin sagði að í útlöndum
væru spurningar af þessu tagi tekn-
ar alvarlega. Ef erlendur valdhafi
væri borinn sökum í blöðum, t.d.
um skattsvik væri það afdráttarlaus
regla, burtséð frá spumingunni um
sýknu eða sekt, að maðurinn segði
af sér, legði spilin á borðið og færi
fram á afdráttarlausa opinbera
rannsókn. Stjórnmálamaður gæti
ekki starfað ef hann lægi undir
grun um misferli. „Ef við viljum
halda í heiðri grundvallarreglur lýð-
ræðis þá förum við svona að, því
ella er varpað grun á stjómkerfið
sjálft. Stjórnmálamaður sem bregst
öðmvísi við er í raun að vekja upp
tortyggni og efasemdir um að
stjómmálamenn séu heiðarlegir
menn“, sagði Jón Baldvin.
Hann gagnrýndi Þorstein Páls-
son, formann Sjálfstæðisflokksins,
fyrir að hafa ekki krafist þess, strax
á síðasta ári, að þessi málsmeðferð
yrði viðhöfð þegar sýnt var „að
Albert Guðmundsson myndi ekki
gera það“. Sagði hann það hafa
verið vegna þess að þeir „hefðu
haldið að þeir kynnu að sleppa“.
Þessi afstaða opinberaði siðferðis-
brest og hann spyrði því Þorstein,
nú þegar þetta hefði komið í ljós,
hvort hann væri búinn að gera kröfu
um endurgreiðslu og hvort hann
hafi virkilega ætlað að þegja og
ekki draga „skítugan þvott“ Sjálf-
stæðisflokksins fram fýrir almenn-
ing fyrr en Albert væri farinn og
búinn að stofna nýjan flokk.
Enn einn kafla í revíunni sagði
Jón Baldvin hefjast þegar fyrsta
skoðanakönnunin birtist. „Skoð-
anakönnuninn sýndi að Albert
Guðmundsson , S-flokkurinn, Sið-
lausi flokkurinn eða Skattlausi
flokkurinn er stærri en Siðlegi
flokkurinn í Reykjavík. Þá segja
menn að þetta sé vegna þess að
fólk sé á valdi tilfínninganna. En
þegar fólk sé orðið eins og það á*
að sér, algjörlega tilfínningalaust,
þá kemur það aftur". Jón Baldvin
taldi menn hafa gleymt mannlega
þættinum hvað varðar þetta mál,
því að „við emm öll breysk. Við
finnum svo sterkt til þess. Albert
varð á, Albert er breyskur. Hann
Morgunblaðið/Sigurgeir
Ritstjóri Frétta er Gísli Valtýsson og blaðamenn Ómar Garðars-
son og Þorsteinn Gunnarsson.
Blaðinu er dreift ókeypis til bæjarbúa og er útgáfan fjármögnuð
með auglýsingum.
Vestmannaeyjar:
Fréttir koma út tvisvar í viku
Vestmannaeyjum.
TÍMAMÓT voru í blaðaútgáfu
í Vestmannaeyjum á þriðjudag-
inn í liðinni viku. Vikublaðið
Fréttir, sem hefur komið út á
fimmtudögum frá árinu 1974,
hóf þá einnig útgáfu á þriðju-
dögum og mun blaðið fram-
vegis koma út tvisvar í viku.
Fréttir er langstærsta blaðið
sem gefið er út í Eyjum, hefur
verið 16-20 siður vikulega und-
anfarna mánuði.
Það er prentsmiðjan Eyjaprent
hf. sem gefur blaðið út. Ritstjóri
er Gísli Valtýsson og blaðamenn
Ómar Garðarsson og Þorsteinn
Gunnarsson. Blaðinu er dreift
ókeypis til bæjarbúa og er útgáfan
fjármögnuð með auglýsingum.
Blaðinu er einnig dreift í Þorláks-
höfn, á Selfossi og á nokkrum
stöðum á höfuðborgarsvæðinu.
Einnig er það sent til fjölmargra
áskrifenda.
Starfsmenn Frétta fögnuðu
þriðjudagsútgáfunni með því að
skála í kampavíni. Gísli Valtýsson
ritstjóri sagði í viðtali við fréttarit-
ara að ástæðan fyrir því að ráðist
var í það að fjölga útgáfudögum
blaðsins væri fyrst og fremst sú,
að þeir vildu bæta fréttaþjónustu
blaðsins og dreifa vinnuálaginu.
„Við höfum fundið fyrir þeim tak-
mörkunum blaðsins sem frétta-
ijölmiðils að blaðið kemur aðeins
út einu sinni í viku. Fátt er eins
fljótt að úreldast og frétt," sagði
Gísli. „Við höfum metnað til að
gera betur og vonum að þetta fái
hljómgrunn hjá bæjarbúum. Við
höfum verið að bæta tækjakost
okkar og nú setja blaðamenn allan
sinn texta sjálfir á tölvur."
Gísli sagði að rekstur bæði
prentsmiðju og blaðs hefði gengið
mjög vel að undanförnu. „Fréttir
er óháð blað og það er opið fyrir
skoðanaskipti Vestmanneyinga,"
sagði Gísli Valtýsson.
- hkj.
er svo breyskur að hann reiðist,
hann gaf manni á kjaftinn og kom
svo og grét í beinni útsendingu og
sagði að þetta hefði bara verið á
milli vina. Auðvitað grét þjóðin með
honum, svona eiga sýslumenn að
vera“, sagði Jón Baldvin. „Þetta er
málið. Fólk vill menn sem eru á
valdi tilfinninganna. Einungis einn
póll er fastur í tilverunni, aðeins
einn flokkur sem bifast ekki. Það
eru konur, þær eru ekki tilfinninga-
verur samkvæmt þessum skoðana-
könnunum“. Sagði hann það vera
hina alvörugefnu menn með
stresstöskurnar sem væru eins og
„tilfinningavinglar" sem „sveifluð-
ust fram og aftur á valdi tilfinning-
anna“. Það gerðu aftur á móti ekki
konumar, þær væru ekki einu sinni
snortnar „þó að maður gréti í beinni
útsendingu“. „Það er búið að snúa
öllu á haus", sagði Jón Baldvin og
vísaði þar til þess að Kvennalistinn
er eini flokkurinn sem eykur við
fylgi sitt í nýgerðum skoðanakönn-
unum.
„Fjölmiðlaruglið" í málinu sagði
Jón Baldvin vera slíkt að allir væru
búnir að gleyma um hvað málið
snérist. Sagði hann að rekja mætti
þetta til þess, þegar Þorsteinn Páls-
son vantaði ráðherraembætti fyrir
t.veimur ámm síðan. Þetta mál
væri framhald á því máli því að það
snérist um „stólinn hans Alberts“.
Albert hefði verið sáttur ef hann
hefði fengið að halda honum. Þegar
Ijóst hefði verið að hann fengi það
ekki hefði honum verið nóg boðið
og farið út og stofnað flokk. „Ef
þetta sem skoðanakannanir sýna
nú væru kosningaúrslit værum við
komin með það sem þá kumpána
dreymir um“, sagði Jón Baldvin,
„50% Sjálfstæðisflokk". Taldi hann
að Albert myndi fá stól forsætisráð-
herra í samstjórn Sjálfstæðisflokks-
ins og Borgaraflokksins.
Jón Baldvin ræddi einnig um af-
skipti fjölmiðla af Albertsmálinu og
sagði þann þátt málsins er liti að
ríkissjónvarpinu vera sér í lagi at-
hyglisverðan. „Þar sitjum við uppi
með fréttastjóra, sem heldur uppi
43 mínútna þætti, á besta tíma,
með Alberti Guðmundssyni, sem
auglýsingamenn segja mér, að
myndi samsvara framlagi upp á 2,4
milljónir í kosningasjóð Alberts, ef
þetta væri keyptur. tími. Þeir sem
sáu þennan þátt horfðu á þessa tvo
menn, fréttastjórann og starfsmann
hans, mæna upp á meistara Albert
nánast eins og ástfangnar ungpíur
eða kjölturakkar við hné húsbónda
síns“, sagði Jón Baldvin.
Erindi um ný-
sköpun atvinnu-
lífs 1880-1930
MÁLSTOFA heimspekideildar
gengst fyrir erindi fimmtudag-
inn 2. apríl kl. 16.15 í stofu 301
í Árnagarði.
Magnús S. Magnússon sagn-
fræðingur flytur erindi er hann
nefnir „Nýsköpun atvinnulífs
1880-1930“. Að loknu erindinu
verða umræður.
Öllum er heimill aðgangur.