Morgunblaðið - 23.04.1987, Side 4

Morgunblaðið - 23.04.1987, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987 Sagan af brauðinu dýra í viðhafnarútgáfu á afmæli Nóbelsskáldsins Nóbelsskáldið Halldór Laxness tekur við fyrsta eintakinu af nýju bókinni, Sögunni af brauðinu dýra, úr hendi forleggjara síns Ólafs Ragnarssonar hjá Vöku-Helgafelli en bókin er gefin út í tílefni af 85 ára afinæli skáldsins. Vinstra megin á myndinni er Ragnar Gísla- son útgáfustjóri og til hægri Snorri Sveinn Friðriksson listmálan sem gerði vatnslitamyndir í bókina. BÓKAÚTGÁFAN Vaka-Helga- fell minnist 85 ára afmælis Nóbelsskáldsins Halldórs Lax- ness með útgáfu nýrrar bókar sem ber heitið Sagan af brauðinu dýra. Þetta er sérstök viðhafnar- útgáfa í stóru broti svipuðu því sem tíðkast hefur við útgáfu listaverkabóka og er bókin skreytt vatnslitamyndum eftir Snorra Svein Friðriksson listmál- ara. Bókin er öll litprentuð og kemur út á afmælisdegi skáids- ins 23. apríl. Sagan af brauðinu dýra var fyrst birt í tveimur köflum í Innansveitar- króniku eftir Halldór Laxness árið 1970 en birtist í nýju bókinni örlít- VEÐUR Heimild: Veðurstofa Islands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær) I/EÐURHORFURIDAG: YFIRLIT á hádegi í gær: Yfir iandinu er dálítill hæðarhryggur á leið norðaustur en um 200 km suður af Hvarfi er 970 millibara djúp lægö sem þokast norðnorðaustur. SPÁ: Sunnan- og suðaustanátt á landinu. Nyrðra veröur þurrt og allt að 10 stiga hiti en víða súld eða rigning og öllu svalara í öðrum landshlutum. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: FÖSTUDAGUR og LAUGARDAGUR: Sunnan- og suðvestanátt, víða kaldi eða stinningskaldi (5-6 vindstig) og skúrir um sunnan- og vestanvert landið en úrkomulaust eða úrkomulítið annars staðar. TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- ■J0° Hitastig: 10 gráður á Celsius — A ■ stefnu og fjaðrirnar V Skúrir { \ Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður ▼ er 2 vindsfig. V Él Léttskýjað / / / / / / / Rigning Þoka Hálfskýjað / / / ♦ * / * 5 5 5 Þokumóða Súld A 'Qaiik sk^að / * / * Slydda / * / * * * co 4 Mistur Skafrenningur JjjjjL Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður ið breytt frá hendi skáldsins sem sjálfstæð saga. Þar segir frá Guðrúnu Jónsdóttur vinnukonu prestsins á Mosfelli í Mosfellsdal sem að sögn skáldsins „lifði og starfaði langa ævi í þess- ari sveit án þess hún tæki kaup fyrir verk sín það menn vissu". Guðrún var send „að sækja pott- brauð úr seyðslu í hverasandi fyrir sunnan ána“ eins og segir í sög- unni. Hún missir áttanna í þoku og er í villu á heiðum upp fjarri manna- byggð í þijá sólarhringa. En brauðið snerti hún ekki: „Maður étur nú ekki það sem manni er trúað fyrir bamið gott," svaraði hún þegar hún var spurð hveiju það sætti. Guðrún aðhylltist fomar dyggðir og setti þá meginreglu ofar öðm að maður væri trúr sjálfum sér. í kynningartexta á hlífðarkápu bókarinnar Sagan af brauðinu dýra segir meðal annars: „Sagan af villu vinnukonunnar á Mosfellsheiði með brauð prestsins í tréskjólu varpar ljósi á hugsunarhátt alþýðunnar sem byggði landið á fyrri tíð. Sagan er meistaralega sögð og á brýnt erindi við fólk á öllum tímum." Eins og áður var getið sagði Nóbelsskáldið þessa sérstæðu sögu fyrst í Innansveitarkróniku sinni. Sú bók er yfírlætislaus héraðssaga úr Mosfellssveit og lýsir hún lífsvið- horfum tvennra tíma. Annars vegar er kyrrstætt bændasamfélag fyrri • alda: Þá bragðaðist mönnum mat- urinn vel, þá var hvorki til erfíði né náttúrufegurð. Hins vegar er nútíminn sem felur í sér þróun, peninga og það „að traffík og kon- kúrensi er farið að gera vart við sig í héraðinu" eins og skáldið kemst að orði. Sagan af brauðinu dýra er nú gefín út í nýjum búningi í tilefni af 85 ára afmæli Halldórs Laxness, 23. apríl 1987. Myndir Snorra Sveins Friðrikssonar listmálara sem prýða bókina þykja lýsa einkar vel andblæ efnisins, en þess má geta að flestar þeirra vom birtar með lestri skáldsins á sögunni í sjón- varpinu á jólum 1986. Prentvinnsla, litgreining og band bókarinnar fór fram hjá Prentsmiðj- unni Odda hf. Fréttatilkynning Ný sending af „Happaþrennu“ HAPPDRÆTTI Háskóla íslands setti í síðasta mánuði nýja tegund happdrættismiða á markaðinn, svonefnda „Happaþrennu“. Eru þeir þannig gerðir að kaupandi sér strax hvort hann hefur hlotið vinning og vinningarnir eru greiddir út strax, hinir minni hjá seljendum og hinir stærri á aðal- skrifstofu Happdrættisins. Viðtökur vora þannig að ein millj- ón miða seldist upp á nokkmm dögum. í einni milljón miða, sem nú em til sölu, em sem fyrr hæstu vinningar átta, 500 þúsund hver, en samtals nema vinningar 50% af söluverði miðanna. Þórður Einarsson sendiherra í Svíþjóð 9 w V r % VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri 8 skýjað Reykjavik 5 úrkomafgr. Bergen 8 rignlng Helsinki 5 léttskýjað Jan Mayen 0 snjókoma Kaupmannah. 10 súld Narssarssuaq 3 snjókoma Nuuk —5 alskýjað Osló 6 skýjað Stokkhólmur 8 skýjað Þórshðfn 9 rigning Algarve 20 skýjað Amsterdam 14 léttskýjað Aþena 19 skýjað Barcelona 17 léttskýjað Beriín 8 alskýjað Chicago 7 rignlng Glasgow vantar Feneyjar vantar Frankfurt vantar Hamborg 11 skýjað LasPalmas vantar London 16 skýjað LosAngeles 18 heiðskfrt Lúxemborg vantar Madrfd 22 léttskýjað Malaga 26 léttskýjað Mallorca 21 skýjað Miaml 20 helðskirt Montreal 4 skýjað NewYork 13 þoka París 18 léttskýjað Róm 21 léttskýjað Vln 8 skúr Washington vantar Winnipeg 8 léttskýjað ÞÓRÐUR Einarsson sendifull- trúi mun, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, verða skipaður sendiherra íslands í Sviþjóð f stað Benedikts Gröndal sem nú gegn- ir því embætti. Benedikt mun taka við sendiherraembætti í nokkrum löndum Austur og Suð- austur Asíu, með aðsetri i Reykjavík. Þórður Einarsson hefur verið sendifulltrúi og varafastafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum í New York undanfarið en hann hefur verið sendiráðunautur í ýmsum löndum og varafastafulltrúi í fastaráði Atl- antshafsbandalagsins. Þórður Einarsson sendifuUtrúi. Sesselja Konráðsdóttír f.v. skólastjóri látin SESSELJA Konráðsdóttir f.v. kennari og skólastjóri barnaskól- ans í Stykkishólmi lést á Hrafn- istu í gær, 90 ára að aldri. Sesselja var fædd þann 31. jan- úar árið 1897 á Syðra-vatni, Lýtingsstaðahreppi í Skagafírði. Foreldrar hennar vom Ingibjörg Hjálmarsdóttir og Konráð Magnús- son. Sesselja nam í Kennaraskóla íslands og hóf kennslu árið 1920. Það sama ár giftist hún Jóni Ey- jólfssyni kaupmanni. Hann lést árið 1968. Sesselja og Jón áttu fjögur böm, Auði, Ingibjörgu Margréti, Þóm Margréti og Eyjólf Konráð. Þau em öll á lífi. Sesselja Konráðsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.