Morgunblaðið - 23.04.1987, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 23.04.1987, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987 Geðheilbrigðismál bama og unglinga eftir Borghildi Maack Almenn vanræksla til margra ára og skortur á markvissri stefnu stjómvalda í málefnum bama og unglinga hefur leitt til þess, að þörfum þeirra hefur ekki verið sinnt. Böm og unglingar hafa orðið útundan í geðheilbrigðismálum eins og annars staðar og hefur engin stefnubreyting orðið þar á sl. kjörtímabil. Rangfærslur í skýrslu heilbrigðisráðuneytisins í Morgunblaðinu þ. 12. apríl sl. birtist skýrsla M heilbrigðisráðu- neytinu og eru þar m.a. taldar upp þær „framfarir", sem orðið hafa í geðheilbrigðismálum bama og unglinga á lqortímabilinu 1983—1987. Þar er tvennt nefnt: Bamageðdeild Borgarspítalans á Kleifarvegi 15, sem ekki er til! Við Kleifarveg 15 er rekið vistheimili fyrir böm, ekki bamageðdeild. Unglingageðdeild Landspítalans við Dalbraut. Þessi deild er enn ekki tekin til starfa! Verið er að end- umýja húsnæðið sem deildinni er ætlað til afnota, en ríkið keypti gamalt húsnæði af Reykjavíkur- borg og gert er ráð fyrir að þar verði unglingageðdeild með rými fyrir 6—8 einstaklinga. í geðheilbrigðismálum fullorð- inna hefur verið gert mikið átak. Má þar nefna byggingu geðdeildar Landspítalans og endurbyggingu og bættan aðbúnað á Kleppsspítala, (sem nú ber nafnið geðdeild Land- spítalans við Kleppsveg.) Þetta er vel þótt enn sé þörf átaka, svo sem í stóraukinni göngudeildarþjónustu, aukinni endurhæfíngu, fjölgun áfangastaða og meiri félagslegri aðstoð. í heilbrigðismálum bama og unglinga þarf stórátak strax. Það myndi ekkí síst leiða til þess, að færri fullorðnir munu eiga við geð- ræn vandamál að stríða. Síðar meir. Eins og fjárhagsstaða væntan- legrar unglingageðdeildar er í dag, verður ekki gjörlegt að hefja starf- semina á þessu ári. Starfandi unglingageðdeild er ekki til í landinu, svo augljóst er, að stjóm- völd hafa ekki metið slíkt starf sem forgangsverkefni. I febrúar 1984 lagði Guðrún Agnarsdóttir þingkona Kvennalist- ans fram eftirfarandi fyrirspum á Alþingi: „Hveijar eru aðstæður í heilbrigðiskerfínu til að sinna geð- rænum vandamálum bama og unglinga?“ Síðan hefur unglinga- geðdeildin komist nokkuð á legg eins og að framan greinir. Geðheilbrigðisþjónusta bama hefur verið í fjársvelti. Að vísu keypti ríkið það húsnæði, sem bamageðdeildin hefur verið til húsa í frá 1970, en það var í eigu Reykjavíkurborgar. Árið 1970 var opnuð Bamageðdeild Bamaspítala Hringsins með framlagi Kvenfé- lagsins Hringsins. Þessi deild ber nú nafnið Bama- og unglingageð- deild Landspítalans (BUGL). Bamageðdeildin hefur yfír þremur deildum að ráða, legudeild fyrir 6 böm, dagdeild fyrir sex böm og göngudeild þar sem vinna 5 sér- fræðingar. Vert er að geta þess hér, að þrátt fyrir mjög fært starfsfólk, hefur göngudeild lengi verið ill-starfrækj- anleg sökum húsnæðisskorts. Sama máli gegnir í raun um hinar tvær deildimar, húsnæðisskortur stendur starfínu þar líka fyrir þrifum. Þó er þessi starfsemi sú eina sinnar tegundar í landinu og þjónar því allri landsbyggðinni. Gefur augaleið að þetta nægir engan veginn þeirri þörf, sem er á meðferðarþjónustu. Fyrirbyggjandi starf tengt bama- og unglingageðdeild er ekk- ert, enda ekki gert ráð fyrir því í íjárveitingu auk þess sem framan- greindur húsnæðisskortur göngu- deildar stendur í veginum fyrir starfínu þar. í umræddri skýrslu heilbrigðis- ráðuneytisins segir eftirfarandi: „Fáar þjóðir hafa jafn góða heil- brigðisþjónustu og við íslendingar eða jafn greiðan aðgang að slíkri þjónustu." Þegar heilbrigðisráðu- neytið sendir út slíka staðhæfingu hefur núverandi geðheilbrigðisþjón- usta fyrir böm og unglinga a.m.k. ekki verið höfð til viðmiðunar. Það getur ekki verið greiður aðgangur að því sem alls ekki er til! Skólahúsnæði bama og ungl- ingageðdeildar Landspítalans er á sömu hrakhólum og önnur starf- Borghildur Maack „Kvennalistinn vill aðra forgangsröðun verk- efna en nú verandi stjórnvöld og hefðum við Kvennalistakonur því látið þarfir barna og unglinga sitja í fyr- irrúmi til að mynda fyrir áfengisverslun í Kringlunni, en sú búð fékk fjárveitingu sem nam 40 milljónum króna.“ semi bamageðdeildarinnar. Þar þarf skjótra úrbóta við. Auk bama á legudeild er stór hópur bama, sem nýtur göngudeildarþjónustu og stundar nám í skólanum. Forsvars- fólk BUGL hefur til lengri tíma barist fyrir bættri aðstöðu skólans en án árangurs. Það sem gera þarf til úrbóta er: — Stækkun bamageðdeildar. — Stækkun skólahúsnæðis. — Auka fjárveitingar til reksturs starfsemi bama- og unglingageð- deilda, m.a. þarf að fjölga starfs- fólki, sem annast fræðslu og fyrirbyggjandi starf. — Styrkja alhliða bamavemd. — Auka félagslega aðstoð til bama og ljölskyldna þeirra. Mikilvægt er, að öll ákvarðana- taka um stefnumótun í heilbrigðis- málum eigi sér stað sem næst vettvangi. Forgangsröðun verkefna Kvennalistinn vill aðra forgangs- röðun verkefna en núverandi sijóm- völd og hefðum við Kvennalistakon- ur því látið þarfir bama og unglinga sitja í fyrirrúmi til að mynda fyrir áfengisverslun í Kringlunni, en sú búð fékk fjárveitingu sem nam 40 milljónum króna. Og í fyrirrúmi fyrir risnukostnaði ráðuneyta sem nam 400 milljþnum á kjörtímabil- inu, svo aðeins séu nefnd tvö sláandi dæmi um forgangsröðun verkefna hjá stjómarflokkunum. Kvennalist- inn vill beita sér fyrir breyttu verðmætamati og þá um leið breyttri forgangsröðun verkefna — forgangsröðun sem ber með sér virðingu fyrir samábyrgð einstakl- inganna í þjóðfélaginu. Höfundur starfar við Barna- og unglingageðdeild Landspítalans. Hún skipar 12. sæti & framboðs- lista Kvennalistans íReykjavík. Tvennskonar aðferðir notaðar við gerð skoðana- kannana hér á landi Elías Héðinsson, lektor við Háskóla íslands. Undanfarið hefur hver skoð- anakönnunin af annarri verið birt um fylgi stjómmála- flokka og samtaka. Misjafnar aðferðir eru notaðar við gerð þessara kannana og borið hefur á því að leikmenn ættu erfítt með að átta sig á því í hveiju munurinn liggur. Morgunblaðið ræddi við Elías Héðinsson, lektor í aðferðafræði við Háskóla ís- lands, um helstu einkenni þeirra aðferða sem notaðar em við gerð skoðanakannana hér á landi. „Flestar skoðanakannanir eru úrtakskannanir og í slíkum könn- unum er tilgangurinn sá að alhæfa út frá svörutn tiltölulega fámenns hóps, sem myndar svo- kallað úrtak, yfír á mun stærri hóp. En til þess að slíkt sé mögu- legt þarf úrtakið að uppfylla viss skilyrði. Meginforsendan er sú að úrtakið sé valið á þann hátt að alger tilviljun ráði hveijir lenda í úrtakinu. — Hvaða munur er á þeim aðferðum sem notaðar em við gerð skoðanakannana hér á landi? Fjórir aðilar stunda um þessar mundir nokkuð reglubundnar skoðanakannanir hérlendis, SKÁÍS, DV, Hagvangur og Fé- lagsvísindastofnun Háskóla „Kvótakannanir fræðilega ófullkomnar,“ segir Elías Héðinsson, lektor í aðferðafræði íslands. Þessir aðilar nota tvenns konar aðferðir. Annars vegar era Félagsvísindastofnun og Hag- vangur, sem nota svokölluð til- viljunarúrtök sem unnin era upp úr þjóðskrá að fengnu leyfí Tölvunefndar og Hagstofu Is- lands og mikið er lagt upp úr því að hafa upp á þeim einstakling- um sem lenda í úrtakinu. Þetta er gert til að tryggja að úrtakið endurspegli raunveralega þjóð- ina, það er sýni rétt hlutföll af þjóðinni hvað varðar þætti eins og búsetu, aldur, kyn, starf o.s. frv. og það er mjög mikilvægt að þessi hlutföll raskist ekki. Úrtaksstærðin hjá Félagsvísinda- stofnun er 1.500 manns í stjóm- málakönnunum, en þeim mun stærra sem úrtakið er, þeim mun nákvæmari verða niðurstöðum- ar. Hins vegar er svo sú aðferð sem DV og SKÁÍS nota við skyndikannanir. Þar er í raun ekki hægt að tala um úrtak, þó það sé oftast gert, heldur er not- aður nokkurs konar kvóti. Talað er við ákveðinn fjölda einstakl- inga, oftast 600-800 manns. í þessum könnunum er samsetning „úrtaksins" ekki ákveðin í upp- hafí, heldur ákveðið að ná í tiltekinn fjölda einstaklinga og þess aðeins gætt að búseta og kynferði sé í réttum hlutföllum við þjóðina. Ekki er vitað hvort hópurinn endurspeglar þjóðina að öðra leyti. Ákveðinn fjöldi símanúmera er valinn úr síma- skrá. Ef ekki svarar í einu númeri er einfaldlega hringt í það næsta og kvóti fylltur, t.d. talað við 300 konur og 300 karla. I þessum könnunum er ekki vitað um þætti eins og aldur og starf. Fræðilega era kvótakannan- imar ófullkomnar. Það er auðvit- að hægt að gera hlutina án þess að uppfylla ströngustu kröfur og útkoman verður alveg þokkaleg, en eins og ég hef bent á þekkjum við ekki skekkjumar. — í sumum löndum, t.d. í Bandaríkjunum, er ekki mögu- leiki á þjóðskrárúrtökum og þess vegna algengast að notuð séu símanúmeraúrtök. Era þá kann- anir þar í landi ómarktækar að þínu mati? „Nei, því það era margvíslegar aðferðir notaðar til að velja síma- númer á tilviljunarkenndan hátt. Til að halda tilviljunareiginleik- um úrtaksins eru númer ákveðin fyrirfram og þeim haldið inni í könnuninni, ef ekki svarar er reynt aftur, en nýjum númerum ekki bætt inn í könnunina. í ann- an stað er séð til þess að tilviljun ráði við hvem er talað á heimilinu eftir að samband hefur náðst. Þetta er gert á ýmsan hátt. Mér er ekki kunnugt um að notuð séu hér á landi nein af þeim atriðum sem tryggt geta tilviljunareigin- leika símanúmeraúrtaka. Enda veldur slíkt örugglega meira umstangi en að nota þjóðskrárúr- tök. En nú hefur það sýnt sig að kannanir DV hafa komist ótrú- Iega nálægt úrslitum kosninga? Niðurstöður fara oft saman í báðum gerðum kannana, en kvó- takönnunum fylgir áhættuþáttur Morgunblaðið/Júlíus sem ekki er hægt að meta. Það er ósköp stutt reynsla komin á kosningakannanir þeirra, en það hefur sýnt sig erlendis að kvóta- kannanir hafa gengið ágætlega í nokkur skipti, en síðan brugð- ist. Hins vegar nýtist sá kostur að hægt er að Mmkvæma þess- ar kannanir á mjög skömmum tíma, jafnvel rétt fyrir kosningar. Það skiptir ekki svo litlu máli ef breytingar á fylgi eiga sér stað á síðustu dögunum, auk þess sem margir ákveða sig síðustu dag- ana. En hluti eins og sveiflur á fylgi Kvennalistans í Reykjavík og Alþýðubandalagsins í tveimur nýlegum könnununum DV sem gerðar vora með stuttu millibili er ekki ólíklegt að rekja megi til lítilla úrtaka og ófullkominnar úrtaksgerðar. Það má segja að fullkomlega réttmætt sé að nota ólíkar aðferðir við gerð skoðana- kannana, en það verður að greina rækilega frá þeim forsendum sem könnun byggist á og þeim §ölda svara sem einstakar pró- sentur eru reiknaðar út M, þannig að fólk geti sjálft áttað sig á út frá hveiju er gengið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.