Morgunblaðið - 23.04.1987, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 23.04.1987, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987 47 Kammerkór gleðilegt sumar frá Miinster _______Tóniist Jón Ásgeirsson Kammerkór frá Munster í West- falen hefur verið á ferðalagi hér á landi, sungið á Akureyri, Húsavík, á Laugum og í Reykjavík laugar- daginn fyrir páska. Þá mun kórinn og hyggja á tónleika í Skálholti á páskadag. Samkvæmt efnisskrá er kórinn stofnaður á þessu ári en þegar betur er lesið mun það ekki vera rétt, því kórinn á að baki nokk- urt starf og hefur m.a. tekið þátt í söngkeppnum allt frá 1983. Viðfangsefni kórsins eru margvísleg, allt frá kirkjuverkum, nýjum og gömlum, til veraldlegrar tónlistar eins og madrigala, evróp- skra þjóðlaga, negrasálma og barbershop-söngva. A tónleikunum í Gamla bíói sl. laugardag flutti kórinn mardrigala, þjóðlög frá ýms- um löndum en síðast á efnisskránni voru barbershop-söngvar og dæg- urlög. Aðrir tónleikar sem fyrir- hugað var að halda í Hallgríms- kirkju, þar sem flytja átti tónverk eftir ýmsa meistara tónlistarsög- unnar, hefðu líklega verið meiri og betri skemmtan. Því miður féllu þeir tónleikar niður, þar sem kórinn var veðurtepptur fyrir norðan. Skemmtitiltektir, eins og ítalska salatið og undarlegur samsetningur um lagið Silunginn, eftir Schubert, má sjálfsagt skemmta sér við á góðri stundu, en heldur er þetta ókræsilegur samsetningur til hlust- unar á söngtónleikum. Þrátt fyrir gamallúin dægurlög söng kórinn eitt og annað af fal- legri tónlist, madrigala eftir Bennet, Weelkes og þjóðlög frá ýmsum lönd- um, og svo sem eins og heyra mátti í dægurlögunum var söngur kórsins mjög áferðarfallegur og hefði því trúlega verið ágæt skemmtan í að heyra eitthvað af þeim verkum, sem kórinn söng á Akureyri og Húsavík. Annað atriði er vert að gaumgæfa, að nauðsynlegt er fyrir þá er hyggja á tónleikahald að hafa samband við fjölmiðla, bæði til að auglýsa og fá birtar fréttir, því annars er næstum sjálfgefið að áheyrendur láta sig vanta. Auk þess ber að hafa í huga að framboð á tónleikum er mjög mikið, svo að hljómleikagestum er nauðugur einn sá kostur, að velja og hafna, og það gera þeir svo sann- arlega. MALLORKA S ^■/2 \ t i Royal Torrenova Gististaður í sérflokki. Ferftaskrifstofa, Hallveigarstig 1 símar 28388 og 28580 Ég kýs ðisflokkinn vegna þess að reynslan hefur sýnt að honum er einum treystandi til að mæta kröfum ungs fólks um aukið frjáls- ræði. Ungt fólk hafnar pólitískri og efnahagslegri forsjó ríkisvaldsins. Pálmar Sigurðsson, körfuboltamaður, Hafnarfirði. Á RETTM LEIÐ ... X-D í/V/V^K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.