Morgunblaðið - 23.04.1987, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 23.04.1987, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987 Handknattleikur: Gunnar þjálfar Stjörnuna • íslenski landsliðshópurinn. F.v. Vigdís K. Guðmundsdóttir, formað- ur B.S.Í., Ármann Þorvaidsson, TBR, Gunnar Björgvinsson, TBR, Njáll Eysteinsson, TBR og Jóhann Kjartansson, þjálfari. Krjúpandi, f.v. Guðrún Júiíusdóttir, TBR, Ása Pálsdóttir, TBR og Guðrún Gísladóttir, "*lA. Badminton: ísland í 14. sæti UNGLINGALANDSLIÐIÐ í bad- minton tók um páskana þátt í Evrópukeppni unglinga f badmin- ton, sem fram fór í Varsjá í Póllandi. Var keppt bœði í liða- keppni og einstaklingskeppni, en íslenska liðið hafnaði f 14. sœti. „Fyrirkomulag keppninnar var þó þannig að 14. sœtið gefur ekki raunhæfa mynd af styrk liðsins,11 segir Jóhann Kjartansson, þjálfari og bendir á að lið Norðmanna hafi hafnað f þvf áttunda, en Norðmennina hefur fslenska liðið unnið f tvfgang. „Það skiptir líka máii að menn voru þreyttir þegar til úrslitaleiks við Pólverja kom, voru þá samdægurs búnir að leika gegn Spánverjum og Svisslendingum," segir Jóhann, en fyrirkomulag keppninnar er þannig að liðunum 22 var skipt í fjóra hópa eftir styrkleika og lentu Islendingar í þriðja hóp, sem var svo aftur skipt í tvo riðla. íslenska liðið sigraði í sínum riðli, en tapaði 4:1 fyrir heimamönnum, sem sigr- uðu í hinum riölinum. Þá var keppt í einstaklingsflokkum og gekk íslensku keppendunum ekki nógu vel, að sögn Jóhanns. Nokkrir komust í 2. umferð, en enginn umfram það. „Þó okkur hafi ekki gengið nógu vel, þá er samt óhætt að segja að þeta stefnir allt upp á við. Það vantar dáiitla hörku í hópinn og metnað, en það kemur," segir Jóhann. GUNNAR Einarsson hefur verið ráðinn þjálfari handknattleiksliðs Stjörnunnar úr Garðabæ. Hann tekur við af Páli Björgvinssyni og mun þjálfa meistara- og 2. flokk félagsins næstu 3 til 4 árin. „Stjórnin og leikmenn stóðu frammi fyrir því vandamáli að velja milii Gunnars og Páls. Páll náði góðum árangri með liðiö í vetur og við berum hlýar tilfinningar til hans. Niðurstöðurnar urðu þær að Gunnar varð fyrir valinu. Ástæð- urnar voru aðailega þær að Gunnar er að koma heim eftir þriggja 3 ára íþróttanám í Noregir og er því með ferskar hugmyndir. Hann mun einnig starfa sem íþróttafulltrúi Garðabæjar," sagði Guðjón Friðriksson, stjórnarmaður í Stjörnunni í samtali við Morgun- blaðið í gær. Gunnar þjálfaði og lék með Stjörnunni frá 1980 til 1984 og kom þeim upp úr 3. deild í þá fyrstu. Síðan þjálfaði hann Fred- riksborg/ski í norsku 1. deildinni með góðum árangri 1985 og 1986. Jafnframt því að þjálfa meistara- og 2. flokk félagsins næstu 3 til 4 árin mun hann taka við starfi íþróttafulltrúa Garðabæjar. Gunnar Einarsson. NM íkörfubolta: Gott að vinna tvo leiki - segir Einar Bollason, landsliðsþjálfari Frá Skúla U. Sveinssyni, blaðamanni Morgunblaösine I Danmörku ÍSLENSKA landsliðið leikur fyrsta leik sinn á Norðurlandamótinu f körfubolta hér f Horsens f Dan- mörku f dag og verður leikið gegn H ■<> II FIAT UNO VERDFRÁ 283 i---ÞÚS.KR. • • SKIPTIKJOR Dæmi: Peningar Lán til 6 mán. Eldri bifreiö kr. 70.000 kr. 63.000 kr. 150.000 Nýr FIAT UNO kr. 283.000,- Sýnmgarsalurinn er opinn virka daga frá kl. 09:00-18:00 og laugardaga frá kl. 13:00-18:00. Umbooio Skeifunni 8 s. 91-68 88 50 Norðmönnum. Erfiður leikur, eins og raunar allir leikir mótsins, og búast menn við jafnri og skemmtilegri keppni, þvf sjaldan eöa aldrei hafa liðið verið eins jöfn og einmitt nú. Við sögðum frá því í gær hvern- ig landsliðið er skipað. „Það var í sjálfu sér ekki erfitt að velja þenn- an hóp. Eftir að Ijóst var hverjir kæmist í þessa ferð var ekki um svo marga aö ræða. Við verðum að reyna að vera með eins hávax- ið lið og mögulegt er, þaö höfum við lært í gegnum tíðina og þó við eigum mikiö af litlum og snjöllum leikmönnum heima duga þeir ekki þegar komið er í keppni sem þessa," sagði Einar Bollason, landsliðsþjálfari er hann var spurð- ur um valið á landsliðinu. „Við erum dálítið spenntir að sjá hvernig okkur gengur í þessu móti. Við eigum möguleika á að vinna öll liðin ef við hittum á góðan leik. Við erum farnir að narta í hælana á þeim þó svo við eigum eftir að sína að við séum jafn góðir. Ég held að við getum verið án- ægðir með að vinna tvo leiki hér og allt umfram það er mjög gott. Á síöasta Norðurlandamóti urðum við í 4. sæti, eins og reyndar á næstu tveimur mótum þar á und- an, og ef við náum að vinna tvo leiki núna færumst við líklega upp í 3. sætið, sem væri mjög gott.“ Já, Einar telur að viö eigum möguleika á verðlaunasæti á Norðurlandamótinu að þessu sinni. Ef það á að takast þurfa strákarnir að leika vel, og ekki er einu sinni víst að það dugi, þvi hin iiðin eru mjög áþekk að styrkleika og allt getur gerst í íþróttum. Svíar eru núverandi Noröur- landameistarar og hafa því titil aö verja. Þeir, ásamt Finnum og Norð- mönnum urðu jafnir að stigum, en Svíar unnu á hagstæðara inn- byrðis skori. Það var mál manna að þá heföu Norðmenn trúlega verið með besta liðið, en þeir uröu að láta sér lynda 3. sætið. Á síðasta Norðurlandamóti tap- ‘aði ísland stórt fyrir Finnum, munaði um 40 stigum er flautað var til leiksloka, en töpuðu hins vegar með fjórum stigum fyrir Svíum. Við höfum aldrei unniö Svía í körfubolta og aðeins einu- sinni Finna, það var í Keflávík eftir framlengdan leik. Norðmenn slóg- um við út í Evrópukeppninni, sælia minninga, og Dani eigum við að geta unnið, þó svo þeir séu á heimavelli að þessu sinni. Róðurinn verður erfiður hjá landsliðinu, en strákarnir eru til- búnir að gefa sig alla í þessa keppni til að sem bestur árangur náist. ísland hefur trúlega aldrei haft á að skipa eins sterku lands- liði í körfubolta og menn lifa því í voninni um að strákarnir geri góða hluti hér í Horsens. Tekstokkurað vinna Norðmenn? Frá Skúla Svelnssynl, blaAamannl MorgunblaAsins I Danmörku. ÞAÐ er langt frá þvf aö dagskré íslenska landsliðsins í körfu- bolta sé auðveld. Æfing á hverjum morgni og leikur síðari hluta dags. Gamanið byrjar fyrir alvöru f dag, með mikilvægum og erfiöum leik gegn Norö- mönnum. Dagskrá mótsins er annars þannig að í dag leika fyrst Danir og Svíar, síðan (slendingar og Norðmenn. Á morgun leika Finnar fyrst við Norðmenn, síðan er leikur á milli íslendinga og Svía og loks leika Finnar sinn annan leik þann daginn og þá gegn Dönum. Svíar og Norðmenn leika fyrsta leikinn á laugardag og Finnar og íslandingar þann næsta. En síðasti leikur dagsins verður á milli Dana og Norð- manna. Á sunnudag, sem er síðasti dagur mótsins, leika Svíar og Finnar og síöasti leikur móts- ins er á milli Dana og íslendinga. Það má lesa út úr niðurröðun- inni hjá frændum vorum Dönum, að þeir telja úrslitaleikinn vera á milli Svía og Finna og eftir þann leik ætla þeir sór að vinna fslend- inga fyrir fullu húsi áhorfenda. Vonandi kemur ekki til þess! Ef marka má æfingu hjá lands- liðinu síðegis í gær munu þeir Pálmar Sigurðsson, Guðni Guðnason, ívar Webster, Guð- mundur Bragason og Valur Ingimundarson hefja leikinn í dag gegn Norðmönnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.