Morgunblaðið - 23.04.1987, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 23.04.1987, Blaðsíða 49
49 MORGUNBLAÐIÐ, HMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987 Minning: Sigmjóna Jóhannes- dóttirfrá Laxamýri Fædd 28. maí 1916 Dáin 15. apríl 1987 Síðla sumars 1922 fluttist sex ára stúlka frá heimili sínu á Laxa- mýri í Aðaldal suður til Hafnar- fjarðar frá föður og fímm systrum. Hún hafði skömmu fyrir jólin árið áður misst móður sína, sem aðeins var 46 ára að aldri. Þegar skipið, sem hún kom með í fylgd foður síns, lagðist að bryggju, biðu henn- ar foreldrar mínir, sem tóku hana að sér til fósturs, en litla stúlkan og móðir mín voru systkinadætur. Hún er minnisstæð myndin frá fyrstu dögum hennar í nýjum heim- kynnum. Með fagurlega fléttað hárið og prjónahúfu hvílir fíngerða telpan með bros á vör í faðmi fóstur- móður, sem ætíð veitti henni sama ástríki og eigin bömum og uppeldi með trú á guð og fagurt fordæmi sem kjölfestu. Sigga, eins og hún var oftast kölluð, kom og var alltaf sem „sann- ur sólargeisli" í lífi foreldra minna. Hún var „prúð, síglöð og skemmti- leg“, eins og faðir minn komst að orði í bréfí til föður hennar. Hún lést 15. apríl sl., tæplega 71 árs, eftir margra ára þungbær veikindi. Útför hennar fer fram á morgun frá Dómkirkjunni. — Við ylinn af hugljúfum minningum um fóstursystur mína vil ég minnast hennar með nokkmm orðum en umfram allt þakka þá miklu hlýju, góðvild og órofa tryggð, sem hún sýndi fósturforeldrum sínum og okkur systkinunum. Siguijóna fæddist á Laxamýri í Suður-Þingeyjarsýslu 28. maí 1916. Hún var yngst ellefu bama hjón- anna Jóhannesar Baldvins Sigur- jónssonar og Þórdísar Þorsteins- dóttur. Þau eignuðust sex dætur og fímm syni, sem allir dóu í bemsku. Af dætrunum eru auk Sig- uijónu þtjár fallnar frá, Jóna, 1956, Snjólaug, 1957, og Soffía, 1985. A lífi eru Margrét, hjúkrunarkona, og Líney, rithöfundur. Jóhannes, faðir Siguijónu, var elstur bama Siguijóns Jóhannes- sonar, stórbónda og sveitarhöfð- ingja á höfuðbólinu Laxamýri, og konu hans, Snjólaugar Guðrúnar Þorvaldsdóttur frá Krossum, Ár- skógsströnd. — Jóhannes var mikill gáfumaður, stundaði tungumála- nám í Kaupmannahöfn og lauk stúdentsprófí. Hann var einkar vel að sér í enskri tungu og mikill áhugamaður um grasafræði. Hann hóf búskap á Laxamýri 1896 í fé- lagi við Egil bróður sinn og tíu árum síðar seldi faðir þeirra þeim þessa miklu kostajörð ásamt fjórum grannjörðum, sem hann átti. Jó- hannes lét af búskap 1924 eða rúmum tveim árum eftir fráfall konu sinnar. Þórdís, móðir Siguijónu, var mik- ilhæf húsmóðir, dóttir Þorstejns Þorvaldssonar, bónda á Stóru- Há- mundarstöðum, Árskógsströnd, en hann var bróðir Snjólaugar á Laxa- mýri. Voru forldrar Siguijónu því systkinaböm. — Móðurfaðir Þor- steins Þorvaldssonar, Baldvin, var bróðir Hallgríms, föður þjóðskálds- ins Jónasar. Fljótt kom í ljós, að Siguijóna bjó yfir fjöiþættum hæfíleikum og miklum mannkostum. Henni sóttist vel allt nám og lauk prófí frá Flens- borgarskóla vorið 1932. Hún var skarpgreind, einbeitt og iðin, sjálf- stæð í skoðunum, aðlaðandi með létta og glaða lund. Hún var vel hagmælt, en lét lítið á því bera. Á skólaárunum samdi hún góðar smá- sögur, en hún var ritfær vel, víðlesin og hafði yndi af góðum bókmennt- um. Foreldrum mtnum reyndist hún mikil hjálparhella. Hún passaði okk- ur systkinin og leiðbeindi og var fús að aðstoða í verslun fósturföður síns. Þar var hennar fyrsti skóli í afgreiðslustörfum. 17 ára fluttist hún til Reykjavík- ur og fékk samastað hjá Jónu, systur sinni, sem þá hafði stofnað heimili. Siguijóna vildi sem fyrst reyna að standa á eigin fótum í lífsbaráttunni og það tókst henni með mikilli prýði. Hún hóf störf hjá Kaupfélagi Reykjavíkur, síðar Kron, og var þar til 1943. Um tíma veitti hún for- stöðu einni af verslunum Kron í Reykjavík sem deildarstjóri. Mun það fátítt, að konur hafí á þeim árum valist til slíkra trúnaðar- starfa. — Fólki þótti eftirsóknarvert að eiga við hana viðskipti. Hún átti ósvikna þjónustulund, var greiðvik- in, lipgur og snögg við afgreiðslu og samviskusöm í trúnaði við hús- bændur og viðskiptavini. Á árinu 1943 verða þáttaskil í lífi hennar. Hún stofnar þá til hjú- skapar með Baldri Guðmyndssyni, sem var sonur hjónanna Guðmund- ar Benediktssonar, gullsmiðs á Seyðisfirði, ogGuðbjargar Sæunnar Ámadóttur. Baldur lést 1983. Hann stundaði lengi ýmis kaupsýslustörf, var um tíma framkvæmdastjóri Al- þýðuflokksins og kom fyrr á árum við sögu í leiklistarlífinu sem góður leikari. Þau eignuðust fjögur böm. Eitt þeirra, Jóhannes Baldvin, dó skömmu eftir fæðingu, en hin eru: Gunnlaugur, arkitekt, starfandi í Köln í Þýskalandi, Guðbjörg Þórdís, snyrtifræðingur, og Jóna Margrét, sjúkraliði. Það var gæfa þeirra að eiga ástríka og samhenta foreldra, sem létu sér annt um að koma böm- unum til manndóms og þroska. Ég á margar bjartar endurminn- ingar frá heimsóknum til Siguijónu, Baldurs og baraanna. Þar á heimili ríkti andi glaðværðar, Ijúfmennsku og gestrisni. Oftast var tekið lagið, þegar fjölskyldan kom saman í jóla- og afmælisboðum, en Sigga var söngelsk og lék á hljóðfæri. Hún hafði sjálf notið gleði söngs og hljóðfæraleiks hjá fósturforeldmm sínum og lét bömin fljótt læra vers og vísur. Var með ólíkindum, hversu snemma þau gátu raulað lög, sér og öðmm til ánægju. Siguijóna hafði yndi af samvist- um við náttúmna og var með opinn hugann fyrir dásemdum sköpunar- verksins. í sumarbústaðnum, sem þau hjónin áttu lengi í Vatnsenda- landi, kappkostaði hún að kenna bömunum að þekkja blóm og annan jarðargróður. Hún naut þess ríku- lega að vera sem mest í návist þeirra. Hún var fómfús og gæsku- rík móðir. Böm Siguijónu gætu gert að sínu eftirfarandi erindi í kvæðinu „Til móður skáldsins", sem föðurbróðir hennar, Jóhann skáld Siguijónsson, tileinkaði móður sinni: „Ég veit, að það besta, sem í mér er í arfleifð ég tók frá þér. Ég veit, að þú gafst mér þá glöðu lund sem getur brosað um vorfagra stund og strengina mína, sem stundum titra er stráin af náttköldum daggperlum glitra stemmdi þín móðurmund". Guð blessi minningu góðrar konu. Arni Gunnlaugsson t Utför föður okkar, tengdaföður, sonar og bróður, EINARS INQA JÓNSSONAR, prentsmiðjustjóra, veröur gerö frá Dómkirkjunni ó morgun föstudag 24. april kl. 13.30. Kristján Ingl Efnarsson, Ásdfs Lllja Emllsdóttir, Hildur Einarsdóttlr, Sigmundur Hannesson, Ásdfs Hrund Einarsdóttir, Erling Nasse, Jón Vilhjálmsson, Erla Jónsson. t Faðir okkar, JÓN GUÐMANN SIGURJÓNSSON, lést i Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar pálmasunnudag 12. apríl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fyrir hönd vandamanna, Sigrfður Guðrún Jónsdóttir, Mary Valdfs Jónsdóttir. t Eiginkona mín og móðir, UNNUR ÞÓRÐARDÓTTIR, BrúsastöAum, er andaöist ó heimili sínu miövikudaginn 15. apríl, verður jarð- sungin frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 24. apríl kl. 15.00. Björn Björnsson, Sigrfður Þórðar. t Eiginkona mín og móir okkar, HALLDÓRA GUÐLAUG KJARTANSDÓTTIR, verður jarösungin fró Bústaðakirkju föstudaginn 24. apríl kl. 15.00. Fyrir hönd tengdamóður, tengdasona og barnabarna, Guðmundur Már Brynjólfsson, Sesselja Þ. Jónsdóttir, Una Marfa Guðmundsdóttir, Sólrún Erla Guömundsdóttir. „Einhvers staðar er einhver að smíða veröld úr óskum þínum" (Þorsteinn M Hamri) Veröld sem hvem mann dreymir um að líta augum. Veröld sem með draumum okkar verður jafn fögur og hún amma. Stundum verður okkur fótaskortur í framtíðinni og þá mun reynsla hennar ömmu okk- ar verða sem klettur í hafróti lífsins. Við höldum áfram í leit að sannleik- anum. Amma hefur hlotið hann í heilu lagi og þess vegna vitum við að hún er á göngu með honum afa, sælli en nokkru sinni fyrr, einhvers staðar í ósk okkar allra. Kolbrún, Jónína María, Sigurjón Baldur. Hinn 15. apríl lézt frú Siguijóna Jóhannesdóttir eftir langvarandi veikindi. Á morgun verður hún jarð- sett að lokinni útfararathöfn í Dómkirkjunni í Reykjavík. Með henni er gengin góð og grandvör kona, sem innti lífsstarf sitt af hendi eins og bezt varð á kosið og gengur nú til móts við það vor og sumar nýs lífs, sem við trúum að bíði okk- ar handan móðunnar miklu. FVú Siguijóna fæddist á Laxa- mýri í Suður-Þingeyjarsýslu hinn 28. maí 1916. Aðeins 6 ára gömul fór hún í fóstur til frænku sinnar, frú Snjólaugar Ámadóttur, og manns hennar, Gunnlaugs Stefáns- sonar, kaupmanns í Hafnarfírði. Þar óíst hún upp allt til 17 ára ald- urs, að hún fluttist til Reykjavíkur. Uppvaxtarárin á hinu merka og þjóðkunna heimili fósturforeldra hennar hafa áreiðanlega verið eitt- hvert bezta vegamesti, sem henni gat hlotnast í lífínu, til viðbótar því góða atgervi, sem hún hlaut í vöggugjöf. Þar ólst hún upp sem eitt bama í systkinahópi og ætíð síðan voru þau tengd þeim sterku tilfínningaböndum, sem einkenna góð systkin. Það var henni miki'A styrkur í lífínu og fyrir það var hún þakklát. Frú Siguijóna giftist Baldrí Guð- mundssyni árið 1943. Þau eignuð- ust saman fjögur böm, þar af komust þijú til fullorðinsára. Elztur þeirra er Gunnlaugur, arkitekt í Köln í Vestur-Þýskalandi. Næst honum að aldri er Guðbjörg Þórdís, snyrtifræðingur í Reykjavík, og yngst er Jóna Margrét, sjúkraliði. Allt er þetta hið bezta fólk, sem hefur með fullum sóma gegnt sínum hlutverkum í lífínu. Framan af ævi sinni hafði vinur minn, Baldur Guðmundsson, margvísleg kaupsýslustörf með höndum. Hann tók síðan við starfí framkvæmdastjóra Alþýðuflokks- ins og gegndi því um margra ára skeið við hinar erfíðustu aðstæður. Ég efast ekki um, að þeir erfíðleik- ar hafí oftsinnis komið niður á' heimili hans, ekki sízt konunni góðu, sem kvödd er í dag. En hún var honum stoð og stytta alla tíð og til viðbótar naut hann ætíð þeirr- ar eindrægni og samheldni, sem jafnan einkenndi fjölskyldulífíð. Síðustu ár sín var Baldur sárþjáður af þeim veikindum, sem siðan lögðu hann að velli. Þótt frú Siguijóna gengi þá heldur ekki heil til skógar veitti hún honum allan sinn stuðn- ing meðan hún mátti. Þannig stóðu þau saman þar til yfír lauk. Þegar ég mæli nú eftir þessa látnu öðlingskonu er það gert með virðingu og þökk fyrir allt hennar góða lífsstarf. Þegar þessi góðu. hjón em nú bæði gengin er fullvíst,' að minning þeirra muni lengi lifa meðal okkar, sem áttum þau að vinum og félögum í þeirri löngu baráttu, sem hreyfing okkar hefur þegar háð fyrir betra og bjartara mannlífi á Islandi. Bömum þeirra votta ég samúð mína við andlát frú Siguijónu; hún gaf þeim allt sem hún átti og þess munu þau og niðj- ar þeirra alla tíð njóta. Sigurður E. Guðmundsson t Minningarathöfn um eiginkonu mína, móöur, tengdamóður og ömmu, SIGRÍÐIJÓNSDÓTTUR, Kleppsvegl 28, fer fram frá Áskirkju föstudaginn 24. apríl kl. 13.30. Útför verður gerö frá Víkurkirkju laugardaginn 25. apríl kl. 14.00. Jón Hallgrfmsson, Sigurgrfmur Jónsson, Sigrún Scheving, Erien Jónsdóttir, Matthfas Gfslason, Elfn Jóna Jónsdóttir, Gunnar Gunnarsson og barnabörn. t Maðurinn minn, RAGNAR G. JÓNSSON, RauðalæklB, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 24. apríl kl. 10.30. Guörún Benediktsdóttir. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÓLAFS INGA ÁRNASONAR frá Huröarbaki, Bústaðavegl 69. Guörún Ólafsdóttir, FrlArlk Friðlelfsson, Guðmundur Ólafsson, GuArún Vigfúsdóttlr, Unnur Ólafsdóttir, AlfreA Eymundsson, Alexfa M. Ólafsdóttir, Jens Halldórsson, Ámi Ólafsson, Elsa Kaldalóns Jónsdóttir, Jón Ólafsson, Helga Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum auðsýnda samúö og hlýhug viö andlót og jaröarför HELGU JÓNSDÓTTUR, GarAI, Hauganesl. Sórstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri. Böm, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.