Morgunblaðið - 23.04.1987, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 23.04.1987, Blaðsíða 50
r-rS . Ví>í»r cé avjh imwwnt 50 _______________________MORGUNBLABIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987 Hjónaminning: Karlína Jóhannsdótt- I ir og Flosi Pétursson I Karlina Fædd 8. apríl 1901 Dáin 14. apríl 1987 Flosi Fæddur 2. júlí 1902 Dáinn 3. janúar 1987 Það varð ekki langt á milli þeirra. Okkur, vinum og frændum, þótti það síður en svo undarlegt. Það ,náin voru þau hvort öðru að í vit- und okkar voru þau eitt; og sjálf- sagt ekki einungis í hugum okkar heldur líka í raun. Kynni þeirra hófust á fögrum sumardögum í Eyjafirði árið 1929. Hún hét Karlína og var Jóhanns- dóttir, hann Flosi Pétursson. Þau voru náskyld, systraböm, en höfðu þó ekki kynnst fyrr en þetta sumar þegar þau voru bæði komin undir þrítugt. Karlína var fædd 8. apríl 1901, dóttir hjónanna Sigríðar Jónsdóttur frá Laugalandi á Þela- mörk og Jóhanns Ámasonar frá Hvammkoti á Höfðaströnd. Flosi var fæddur 2. júlí 1902, sonur hjón- anna Kristínar Jónsdóttur, systur Sigríðar, og Péturs Gunnarssonar frá Torfum í Eyjafirði, en þau bjuggu síðan lengi í Sigtúnum. Þeg- ar þetta sumar rennur upp hefur Flosi veirð um skeið við trésmíða- nám á Akureyri hjá Hjalta Sig- urðssyni. Hann heldur heim um vorið til að hjálpa foreldrum sínum í sumarönnum. Karlína hefur alist upp í fóreldrahúsum í Skagafirði, gerst ung sýsluskrifari hjá Kristjáni Linnet sýslumanni og flust með fjöl- skyldu hans til Vestmannaeyja er hann tekur við bæjarfógetaembætti þar. Hún gegnir fleiri störfum en skriftum hjá Linnet. Hún dvelst á heimili hjónanna, sinnir þar venju- legum húsverkum, er bamfóstra og raunar partur af fjölskyldunni um árabil. Tengsl hennar við Linnets- fólkið verða það sterk að þau bresta ekki meðan ævi varir. Karlína veik- ist alvarlega seint á þriðja áratugn- um en sigrast á veikindunum og heldur til sumardvalar til frænku sinnar og manns hennar í þann sæludal sem Eyjafjörður er. Þess er vænst að þar nái hún sér eftir sjúkleikann. Þannig var högum þeirra háttað sumarið góða og síðan áttu þau samleið alla tíð. Þau gifust 20. maí 1930 og reistu heimili sitt á Akur- eyri. Þar fæddust þeim synimir tveir, Skúli málarameistari, ráðs- maður Menntaskólans á Akureyri, og lngvi rakarameistari. Eg man þau við Hamarsstíg en lengst við Oddeyrargötu. Til þeirra var gott að koma. Þau vom ólík ásýndum þó skyld væru. Flosi var vörpulegur maður og karlmannleg- ur, svipmikill og lagði frá honum bjamyl eins og mörgum frændum hans af Gilsætt. Karlína var fremur lág vexti og grönn, fríð kona og brosmild, og átti hlýju aflögu fyrir umhverfi sitt eins og maður henn- ar. Þegar við, frændfólkið á Siglu- fírði, dvöldumst á Akureyri eða áttum leið þar um var jafnan kom- ið til Köllu og Flosa. Óll áttum við þar gott athvarf. Ég og systkini mín tvö stunduðum nám í Mennta- skólanum á Akureyri og nutum þess að eiga þau að. Og alllöngu síðar, þegar dóttir mín var í MA, átti hún þar hauka í homi sem þau hjón vom. Öll þessi ár stundaði Flosi iðn sína en Karlína sinnti heimilisstörf- um. Hann vann löngum hjá Stefáni Reykjalín byggingameistara. Sam- starf þeirra var með afbrigðum gott og vinátta Stefáns honum mik- ils virði. Um langan aldur var hann yfírsmiður við hina nýju heimavist Menntaskólans á Akureyri. Tókust góð kynni milli hans og Þórarins Bjömssonar skólameistara. Flosa fór eins og mörgum öðmm, að því betur sem hann kynntist meistara þeim mun meira dáði hann mann- kosti hans og gáfur. Þórarinn kunni líka vel að meta Flosa, verkhyggni hans og trúmennsku. í ræðu, sem hann flutti við opnun setustofu í heimavistinni, sagði hann m.a. um Flosa: „Er gaman að fínna, hve samgróinn hann er orðinn húsinu og hefur fengið á því eins konar föðurást, svo að honum líður illa, ef þar fer eitthvað afíaga eða hon- um fínnst því misboðið á einhvem hátt.“ Hjónaband Karlínu Jóhannsdótt- ur og Flosa Péturssonar varði hálfa öld og nærri sjö ámm betur. Það einkenndist af því að ást þeirra þvarr ekki í áranna rás, miklu held- ur að hún styrktist. Gagnkvæm virðing, eindrægni og takmarka- laust traust mótuðu samskipti þeirra. Heimili þeirra var hlýtt og notalegt, kyrrlát vin á erilauðnum þess neyslusamfélags sem metur fólk fremur eftir því sem það á en því sem það er. Hvorugt þeirra kunni þær listir að sýnast fyrir mönnum. Sýndarmennska þrífst ekki þar sem em sannar manneskj- ur, heilsteyptar og heiðarlegar. Síðustu æviárin vom Flosa Pét- urssyni erfíð. Hann var farlama maður, gat vart tjáð sig, og vissu fáir hvort hann næmi mál manna eður ei. Á þeim dimmu dögum sýndi Karlína hvað í henni bjó. Þótt hún hefði sjálf löngum verið heilsutæp var eins og henni ykist þróttur er þrek hans þvarr. Fyrst annaðist hún hann á nýja heimilinu þeirra á Dval- arheimilinu Hlíð; síðar, þegar hann lá máttvana í sjúkrahúsi, leið varla sá dagur að hún gengi ekki þangað til að sitja hjá honum, vera honum stoð, eiga með honum stund, vinin- um sínum kæra. Hún kunni ekki að bregðast; hún gat ekki hlíft sjálfri sér ef henni fannst þörf fyrir krafta sína; hún tók af heilindum undir með Stephani G.: „Hvar sem mest var þörf á þér, þar var best að vera.“ Ef til vill var það ekki tilviljun að drengskaparímynd forfeðra vorra var ekki síður bundin konum en körlum. „Ég var ung gefín Njáli," mælti Bergþóra, „og hef ég því heitið honum að eitt skyldi ganga yfír okkur bæði.“ Þær hafa lifað margar slíkar á landi voru ald- imar allar síðan Bergþóra gekk hinsta sinni til hvílu með manni sínum og dóttursyni. Ein þeirra var Karlína Jóhannsdóttir. Þegar sjúkdómsstríði Flosa slot- aði, 3. janúar í Vetur, fannst Karlínu hlutverki sínu hér á jörð lokið. Þó að hún héldi skýrleika sínum, minni og óvenjulegu andlegu fjöri til hinstu stundar hafði hún raunar aldrei gengið heil til skógar síðan hvíti dauðinn ógnaði henni ungri. En henni hafði gefíst óskýranlegur kraftur meðan ástvinur hennar þurfti á styrk að halda. „Og nú fór sól að nálgast æginn og nú var gott að hvíla sig.“ Karlína Jóhannsdóttir fékk hægt andlát 14. apríl. Hún hafði lifað fallega og henni auðnaðist að deyja fallega. Guð blessi þau hjónin bæði og ástvinum þeirra minningar sem hvergi slær á skuggum eða fölskva. Ólafur Haukur Árnason t Þökkum innilega auösýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ELÍNAR EIRÍKSDÓTTUR SÖEBECH frá Ökrum. Einnig sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimiiisins í Seljahlíð, lækna og hjúkrunarfólks deildar 5-B, Borgarspítalanum. Sigríður Söebech, Kristjana Quinn, Sunna Söebech, barnabörn og barnabarnabörn. t Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, HERMANNS G. HERMANNSSONAR trósmíðameistara, Njðlsgötu 92, Reykjavfk. Dýrlaug Hermannsdóttir, Björg S. Hermannsdóttir, Ingvi Þorsteinsson, Unnur Jónasdóttir, Jóhannes Bergstelnsson, Gunnar Gfslason, Inga L. Guðmundsdóttir, Páll Sigurðsson. t Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför INGIBJARGAR J. HALL. Sólrún Kjartansdóttir, Kormákur Kjartansson, Ingvi Þór Kormáksson, Ársæll Þór Ingvason. Hólmfríður Frlðsteinsdóttir. Dagrún Ársælsdóttir, LOKAÐ Skrifstofa okkar verður lokuð eftir hádegi föstudaginn 24. apríl vegna jarðarfarar EINARS INGA JÓNSSONAR, prentsmiðjustjóra. Ólafur Þorgrímsson, hrl., Kjartan Reynir Ólafsson, hrl. Lokað Vegna útfarar EINARS INGA JÓNSSONAR, prent- smiðjustjóra, verður prentsmiðjan lokuð á morgun, föstudag 24. apríl LETURprent, Síðumúla 22. Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfund- ar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. SVAR MITT eftir Billy Graham Skírlífi Ég er ekki alinn upp á trúræknu heimili. Mér þætti fróðlegt að vita hvort Biblían segir nokkuð um kynmök fyrir hjónaband. Ég er þakklátur fyrir þessa spumingu því að hún bendir til þess að þú viljir gera það sem er rétt, þó að þú hafí til þessa verið ófróður um hvemig Guð vill að við breytum. Já, Biblían segir margt um líkamlegt samneyti fyrir hjóna- band. Hún segir skýrum orðum svo að ekki verður um villst að kynmök fyrir hjónaband séu á móti vilja Guðs og að við verðum krafín reikningsskapar ef við bijótum gegn honum í þessu atriði. Biblían segir: „Það er vilji Guðs að þér verðið heilagir. Hann vill að þér haldið yður frá frillulífí (ensk þýðing: frá siðleysi í kynferðis- málum), að sérhver yðar láti sér lærast að lifa hjúskaparlífí við konu sína eina, í heilagleika og heiðri en ekki í gimdar- bruna" (1. Þess. 4,3—5). Eitt boðorðið hljóðar svo: „Þú skalt ekki drýgja hór“ (2. Mós. 20,14). Það er nauðsynlegt að þú skiljir hvers vegna Guð hefur gefíð þessi fyrirmæli. Meginástæðan er sú að Guð hefur gefíð mannkyninu hjónabandið. Hann hefur sett fjölskyld- unni ákveðið takmark sem aðeins verður náð innan vébanda hjóanbandsins. Guð vill t.d. að hjónabandið sé reist á gagnkvæmum kær- leika og trausti. Kynmök utan hjónabandsins eyðileggja þetta traust, enda gerir sá sem gengur í hjónaband heit frammi fyrir Guði þar sem hann lofar hinum aðilanum, og honum einum, tryggð og ást. Fleira mætti segja um þetta mál, en ég vil leggja mikla áherslu á þetta: Þó að svo kunni að vera að þú hafír ekki hlotið trúarlegt uppeldi máttu vita að Guð elskar þig. Hann skapaði þig og hann vill að þú þekkir sig á persónulegan hátt. Ennfremur: Hann lætur sér annt um hvaðeina í lífí þínu. Hann vill að þú varðveitir hreinleikann af því að honum er i mun að hjónaband þitt, þegar þar að kemur, beri einkenni virðingar og gleði. Já, ég hvet þig til hreinlífís. En ekki það eitt: Ég býð þér að snúa þér af öllu hjarta tilk Jesú Krists. Stígðu skrefíð í trú með því að bjóða syni Guðs að koma inn í líf þitt og til- veru. Það er ekki víst að þú skiljir allt en þetta verður upphaf þess að þú eignast nýtt líf með Guði. Það veitir þér dýrlegri gleði en nokkuð annað sem þú hefur kynnst.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.