Morgunblaðið - 23.04.1987, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987
Stuðningnr við
aldraða og öryrkja
eftir Ragnhildi
Helgadóttur
Mannfjöldaspár sýna að fjöldi
aldraðra á Islandi fer mjög vaxandi
á næstu áratugum. Jafnframt dreg-
ur úr fjölgun fæðinga. Þetta þýðir
að hlutföll aldurshópanna verða
önnur en nú er. Nauðsynlegt er að
bregðast strax við þessari þróun.
Til þess að sem best verði búið
að öldruðum er höfuðáhersla lögð á:
1. Hverskonar heimaþjónustu, svo
að aldraðir geti öruggir um hag
sinn notið sem lengst síns eigin
persónulega umhverfís.
2. Samtímis þarf að vea tryggt að
unnt sé að komast að á sjúkra-
og hjúkrunardeildum þegar
heimahjúkrun og önnur aðstoð
í heimahúsum dugar ekki leng-
ur.
3. Vistheimili fyrir þá sem eiga
erfitt með að reka eigin heimili.
4. Dagvistir með ýmiss konar fyrir-
komulagi og fjölbreyttum
kostum í þjálfun og þjónustu.
5. Þjónustuíbúðir fýrir þá sem
haldið geta heimili í tengslum
við þjónustustofnum.
Hjúkrun aldraðra
Fjölgun hjúkrunarrýma fyrir
veikt, aldrað fólk er mjög aðkall-
andi verkefni og þarf næstu ár að
vera forgangsverkefni. Þarf þar að
koma til bæði aukning fram-
kvæmda og betri nýting rýma, en
eins og kunnugt er veldur skortur
á hjúkrunarfólki því að rými eru
ekki notuð sem skyldi. Vegna þessa
er lögð áhersla á sérhæft nám í
öldrunarhjúkrun. Annars vegar fyr-
ir hjúkrunarfræðinga og hins vegar
fyrir sjúkraliða, en um það m.a.
hefur heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið nýverið gefið út
reglugerð. Jafnframt styður Sjálf-
stæðisflokkurinn námskeið fyrir
ófaglærða í aðhlynningu aldraðra.
Eðlilegt er og sjálfsagt að nám
þetta leiði til sérstakra launahækk-
ana fyrir starfsmenn. Nýlega
fengust verulegar lagfæringar á
launum hjúkrunarstétta. Þá var á
síðasta ári lögfest heimild til að
sjúkrasamlög taki þátt í heima-
hjúkrun sjálfstætt starfandi hjúkr-
unarfræðinga.
Framkvæmdasjóður
aldraðra
Vegna sárrar þarfar fyrir öldr-
unarrými hafa tekjur Fram-
kvæmdasjóðs aldraðra verið með
lögum auknar fram yfir verðlags-
þróun, þannig að upphæðin hefur
á tveimur árum tvöfaldast að raun-
gildi. Fjárins er aflað með „nef-
skatti" að upphæð kr. 1.500 á ári
á hvem skattborgara yfír vissu
tekjumarki til 75 ára aldurs og
ríkissjóður leggur fjárhæð á móti
þeim hluta sem varið er til hjúkr-
unarheimila.
Framlög skiptast að meginefni í
þrennt:
1. Hjúkrunarheimili og hjúkrunar-
deildir sem tengjast oft sjúkra-
húsi, sbr. B-álma Borgarspítal-
ans.
2. Vistheimili eða elliheimili sem
henta mörgum af félagslegum
ástæðum, þó að heimaþjónusta
aukist.
3. Þjónustuíbúðir, oft með sameig-
inlegum þjónustukjama og
aðstöðu til félagsstarfsemi.
Verkefni framundan
Dagvistir njóta vaxandi vinsælda
og þarf að ná auknu samstarfi við
sveitarfélög um að styðja aukna
dagstarfsemi fyrir aldraða m.a. í
einkarekstri í heimahúsum. Þetta
hefði þýðingu til að draga úr
einangrun sem suma hijáir, auka
virkni og vemda heilsu. Slík starf-
semi, dagskjól eða dagklúbbar,
gætu verið með líku fyrirkomulagi
og „dagmömmukerfið" sem komið
hefur verið á fyrir yngstu borgar-
ana.
Elli- og örorkulífeyrir
Það er skoðun sjálfstæðismanna
að það sé réttlátt og þjóðhagslega
hagkvæmt að heimilt sé að greiða
Ragnhildur Helgadóttir
„Það er skoðun sjálf-
stæðismanna að það sé
réttlátt og þjóðhags-
lega hagkvæmt að
heimilt sé að greiða úr
tryggingum til heima-
vinnandi fólks sem
hefur umönnunarsjúkl-
inga á heimili sínu.“
úr tryggingum til heimavinnandi
fólks sem hefur umönnunar-
sjúklinga á heimili sínu.
Við teljum eðlilegt að elli- og
örorkulífeyrir ásamt tekjutrygg-
ingu og heimilsuppbót hækki í
lágmark.
Samanburður
1982 og 1986
Við höfum aldrei verið nær því
að elli- og örorkulífeyrir með tekju-
tryggingu og heimilisuppbót næði
lágmarkslaunum en tvö síðustu ár,
1985 og 1986, er bætur hækkuðu
mun meira hlutfallslega en laun á
þeim tíma eða fóru í um 95% af
lágmarkslaunum. Þegar Alþýðu-
bandalagið fór með tryggingamálin
voru upphæðir elíi- og örorkulífeyr-
is ásamt tekjutryggingu og heimil-
isuppbót langtum lægri í
samanburði við lágmarkslaun og
var samt miðað við enn lægri lág-
markslaun að raungildi en samið
var um nú í vetur. Árið 1982 í
stjómartíð Svavars Gestssonar var
þetta hlutfall 72%. Er þetta fróðleg
staðreynd sérstaklega þegar hún
er skoðuð í ljósi málflutnings Al-
þýðubandalagsins nú og sést á
tölunum sem hér eru birtar.
í lögum um almannatryggingar
segir: „Nú verður breyting á viku-
kaupi í almennri verkamannavinnu
og skal þá ráðherra innan 6 mán-'
aða breyta upphæðum bóta...“
Kjarasamningamir í vetur vom
uppbyggðir með öðmm hætti en
áður hafði tíðkast, en þeir sem stóðu
að samningunum töldu að kaup-
hækkunin í „almennri verkamanna-
vinnu“ hefði orðið um 5%.
Hagstofan leit svo á að hækkunin
væri 7%. Ríkisstjórnin hækkaði
samt allar tryggingabætur um 12%
og heimilisuppbót að um 50% að
auki og giltu þær hækkanir frá 1.
desember 1986 auk hækkana, sem
höfðu verið ákveðnar umfram verð-
lag.
Nú á fyrri hluta þessa árs hefur
aftur nokkuð breikkað bil milli lág-
markslauna annars vegar og elli-
og örorkulífeyris með tekjutrygg-
Hver gegn öðrum
Er það þess konar þjóðfélag
sem Islendingar vilja?
eftir GuðmundH.
Garðarsson
Stétt gegn stétt. %
Ungir gegn öldruðum.
Börn gegn foreldrum. .
Konur gegn körlum. ”
Hveijir leggja áherslu á þessa
þjóðfélagsmynd í íslenzkum stjóm-
málum í dag? Hveijir byggja upp
stjómmálafylgi sitt á grundvelli
stéttaandstæðna og óvildar milli
manna eftir stöðu og kyngreiningu?
Til hvers leiðir þessi neikvæði boð-
skapur, þessi neikvæða afstaða í
samskiptum manna? Er sennilegt
að boðskapur efasemda og sundr-
ungar treysti hamingju og farsæld
fólksins?
Sagan sýnir annað. Óhamingja
fólksins og mikilla menningarþjóða
hefst þegar einstaklingum og stétt-
um er att saman á gmndvelli tilfinn-
ingalegra atriða í samskiptum
manna. Upphafið að ógæfu Þýzka-
lands byijaði með þessum hætti upp
úr 1930.
Að veikja tiltrú
Róttækir sósíalistar og kommún-
istar leggja megináherzluna á
stéttaátökin í baráttu sinni gegn
borgarastéttinni. Afnám lýðfijáls
borgaralegs þjóðfélags byggist á
óumflýjanlegu stéttastríði. í því
felst réttlæting blóðugrar byltingar,
þar sem það á við samkvæmt kenn-
ingum kommúnista. En áður en
uppgjörið fer fram, verður að veikja
tiltrú manna, sérstaklega þess hluta
fólks sem býr við erfið kjör, á
ríkjandi þjóðskipulagi. Trúarbrögð
eru niðurlægð. Markvisst er unnið
að því að stefna einstaklingi gegn
einstaklingi, stétt gegn stétt.
Hættulegasti óvinurinn
Hættulegasti óvinur borgaralegs
lýðræðis er andvaraleysi. Það er
vatn á myllu róttækra sósíalista. í
dagsins önn varar fólk sig ekki á
því hvemig róttækir vinstri menn
vefa sinn svikavef gagnvart borg-
aralegu lýðræði og einstaklings-
frelsi. Þeir eru á móti auknu frelsi
einstaklingsins. Það birtist m.a. í
andstöðu þeirra við auknu tjáning-
arfrelsi, fijálsu útvarpi og sjónvarpi
á íslandi. Hörðustu andstæðingar
þess á Alþingi íslendinga voru al-
þýðubandalagsmenn (íslenzkir
nútíma kommúnistar) og kvenna-
listakonur (róttækir vinstri sósíal-
istar.)
Að ala á stéttahatri
Kommúnistum og róttækum sósí-
alistum er það sameiginiegt að þeir
ala á vantrú fólks á ríkjandi þjóð-
skipulagi. Þessir aðilar ala á stétta-
hatri og leggja áherzlu á að
framkalla neikvæðar andstæður
milli stétta, kynja og einstaklinga,
hvar sem því verður við komið.
í háþróuðum borgaralegum þjóð-
félögum, þar sem menntun og
almenn velmegun er mikil er sífellt
erfiðara fyrir róttæka vinstri menn
að ná árangri á grundvelli gömlu
aðferðanna: Stétt gegn stétt —
ungir gegn öldruðum — böm gegn
foreldrum. Vinstri mönnum hefur
ekki tekizt að eyðileggja tiltrú fólks-
ins á lýðræðislegum stjómarhátt-
um. Þess vegna hafa þeir gripið til
nýrra aðferða, sem eru meira í sam-
ræmi við nútímaaðstæður og þróun
atvinnuhátta á síðustu áratugum. í
skjóli vinnupólitíkur hyggjast þeir
ná öðrum óskyldum markmiðum,
sem geta haft mjög örlagaríkar
afleiðingar fyrir borgaralegt frelsi
á íslandi.
Guðmundur H. Garðarsson
„Staða konunnar í
nútíma þjóðfélagi er
ekkert einangrað fyrir-
bæri sem unnt er að
stilla upp í óbrúanlegar
andstæður með þeim
hætti sem kvennalista-
konur gera, nema að
baki felist annarleg
markmið, sem höfund-
ur þessarar greinar vill
ekki trúa að óreyndu.“
Karl gegn konu
Hættan er fyrir hendi. Andvara-
leysi leiðir til ófrelsis. Stéttastríð,
stéttaátök vinstrimanna, hefur tek-
ið á sig nýja mynd. Áherzla er lögð
á að magna upp andstæðuna karl
gegn konu. Baráttuaðferðin er hin
sama og hjá kommúnistum í hinu
eilífa stéttastríði þeirra. Formerkin
eru önnur, en markmiðið hið sama,
þ.e. að grafa undan tiltrú og veikja
jákvæð samskipti einstaklinga á
grundvelli stríðs eða þjóðfélags-
átaka milli k}mjanna: Karl gegn
konu.
Að gefa sér ranga
forsendu
Gamla kommúníska arðráns-
kenningin og útfærsla ranglætis í
heiminum er yfírfært á karlmann-
inn. Forustukonur kvennalistans
ala á nútíma stéttastríði í mynd
karlmanns andstætt stöðu konu.
Aróðursaðferðimar hjá þeim eru
hinar sömu og kommúnistar hafa
viðhaft í gegnum árin. Hin kúgaða,
konan, samkvæmt kenningum
kvennalistakvenna, er í hlutverki
hins undirokaða, verkamannsins.
Kúgarinn, karlinn, er í hlutverki
arðræningjans sem vill halda niðri
kjörum konunnar. Kvennaiistakon-
ur gefa sér þá forsendu, að karl-
menn hljóti að vilja fara illa með
konur í starfs- og launalegu tilliti.
Kommúnistar hafa ætíð gefið sér
þá forsendu, að handhafar fjár-
magnsins hafí það sem megin-
markmið að fara illa með launafólk.
Hvort tveggja er að sjálfsögðu
rangt. Hvergi í heiminum býr al-
menningur við jafngóð lífskjör og
í háborg kapftalismans, Banda-
ríkjunum. Hvergi er efnahagsleg
niðurlæging almenns launamanns
meiri en í móðurlandi kommúnism-
ans, Sovétríkjunum. Þetta eru
óhrekjandi staðreyndir.
Staða konunnar í nútíma þjóð-
félagi er ekkert eingrað fyrirbæri
sem unnt er að stilla upp í óbrúan-
legar andstæður með þeim hætti
sem kvennalistakonur gera, nema
að baki felist annarleg markmið,
sem höfundur þessarar greinar vill
ekki trúa að óreyndu.
Óprúttnir sljórn-
málamenn
Hins vegar hlýtur það að vekja
ugg, hversu kvennalistakonur hafa
grímulaust reynt að hagnýta sér
tilfinningalíf og erfiða aðstöðu lág-
launakvenna, sér til pólitísks
framdráttar í þessum kosningum. í
þeim efnum kenna þær karlmönn-
um erfiða stöðu þessa fólks. Það
er auðvitað alrangt. Bakgrunnur
þess er miklu flóknari og marg-
slungnari. En óprúttnir stjómmála-
menn geta hagnýtt sér þessa stöðu.
Sagan sýnir einnig, að kommúnist-
ar hafa notað svipaðar aðferðir.
Markmið þeirra er að ala á óánægju
og framkalla upplausn. í stuttu
máli sagt að koma ftjálsu, borgara-
legu þjóðfélagi fyrir kattamef og
koma á sósíalísku þjóðskipulagi.
Á valdi öfga
í þeim efnum hafa kommúnistar
m.a. stuðzt við stétt menntamanna.
Þekkingarvaldið er hið dulda vald
nútímans. Þar hafa kommúnistar
komið sér vel fyrir víða um heim.
Einnig á íslandi. Athyglisvert er,
að ýmsar helztu frammákonur
Kvennalistans em hámenntaðar, en
því miður róttækar á leniníska vísu
í stéttaandstæðukenningum sínum.
Það er íslendingum hættuiegt. Öfg-
ar hafa aldrei átt við okkur íslend-
inga. Við emm ekki kúgarar. Við
höfum ekki farið illa með íslenzku
konuna. Konan hefur þvert á móti
verið í hávegum höfð. Lífssýn karl-
manna er ekkert önnur en lífssýn
kvenna. Þetta er orðaleikur hjá
kvennalistakonum.
íslenzkir karlmenn hafa yfirleitt
komið vel fram við konur. Það
byggist ekki á kyngreiningu, heldur
almennri, jákvæðri afstöðu til
mannlegra samskipta.
Kvennalistakonur
gegn NATO
Þá veldur það áhyggjum, að