Morgunblaðið - 23.04.1987, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987
15
Samstarf sjálfstæðismanna getur
aldrei orðið í tveimur f lokkum
eftirFriðrík
Sophusson
Reynslan er ólygnust.
Sjálfstæðismenn hafa ætíð
stjómað Reykjavíkurborg, að
einu lq'örtímabili undanskildu,
sem Reykvíkingar minnast
vegna óstjómar og upplausnar.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
verið kjölfestan í íslenskum
stjómmálum. Það er ekki tilvilj-
un, að ríkisstjóm hefur aldrei
starfað heilt kjörtímabil hér á
landi, nema þegar Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur verið í stjóm.
Aldrei hafa flokkamir og
flokksbrotin verið fleiri en nú.
En þjóðin þarf ekki fleiri flokka.
Þvert á móti er ástæða til að
efla færri flokka til ábyrgðar.
Flokkar, sem em stofnaðir
utan um persónu eins manns
og efna til framboðs án stefnu,
eru ekki líklegir til að stuðla
að festu og stöðugleika. Slíkir
flokkar liðast í sundur, þegar á
reynir. Sagan sýnir, að þeir
hafa ekki dugað í stjómarsam-
starfí.
í kjörklefanum tökum við
afstöðu til stjómmálaþróunar
næstu ára. Með atkvæði okkar
Fríðrik Sophusson
leggjum við grunn að framtíð-
inni. Ábyrgð okkar er því mikil.
Viljum við kljúfa borgaraleg öfl
og gefa vinstri flokkunum tæki-
færi til að sundra okkur til
frambúðar? Viljum við opna leið
til að fella meirihluta sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík? Þessum
spumingum hljótum við að
svara neitandi.
Málefnaleg samstaða okkar
er meiri en svo, að við bjóðum
hættunni heim. Samstarf sjálf-
stæðismanna getur aldrei orðið
í tveimur flokkum. Aðeins einn
stór og stefnufastur Sjálfstæð-
isflokkur er líklegur til að ná
árangri. Við skulum ekki taka
þátt í þeim ábyrgðarlausa
glæfraleik að draga úr áhrifum
Sjálfstæðisflokksins. Forsenda
þess að komið verði í veg fyrir
upplausn og stjórnarkreppu er, w
að Sjálfstæðisflokkurinn vinni
sigur og verði áfram stór og
sterkur.
Þetta segir reynslan okkur.
Höfundur skipar 1. sæti á fram
boðlista Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavíkurkjördæmi.
Sinfóníuhljómsveitin með
tónleika á laugardaginn
Á FJÓRTÁNDU áskriftartón-
leikum Sinf óníuhlj ómsveitar
íslands á þessu starfsári á laug-
ardaginn kemur, 25. apríl, verða
flutt þijú verk: Eftir Hector
Berlioz, Gustav Mahler og Oliver
Kentish. Tónleikarnir verða að
vanda i Háskólabíói og hefjast
klukkan 14.30. Sljórnandi verður
bandaríski hljómsveitarstjórinn
Arthur Weisberg.
Verkin sem flutt verða eru
Kameval í Róm, forleikur, op. 9,
eftir franska tónskáldið Hector
Berlioz (1803—1869), Sinfónía nr.
5 í cís-moll eftir þýska tónskáldið
Gustav Mahler (1860—1911) og
Myrkraverk eftir breska tónskáldið
Oliver Kentish.
Oliver Kentish er breskur selló-
leikari sem kom til starfa með
Sinfóníuhljómsveit íslands árið
1977 og hefur búið hér á landi
síðan, lengst á Akureyri sem kenn-
ari við Tónlistarskólann. Hann er
nú búsettur í Reykjavík. Kentish
hefur frá unga aldri fengist við
tónsmíðar.
Myrkraverk var samið árið 1983
að ósk Roars Kvam, stjómanda
Kammerblásarasveitar Tónlistar-
skólans á Akureyri. Verkið var
frumflutt á Akureyri vorið 1983,
Oliver Kentish, tónskáld og selló-
leikarí.
en síðan hafa verið gerðar á því
smávægilegar breytingar.
Stjómandi tónleika Sinfóníunnar
á laugardaginn kemur, Bandaríkja-
maðurinn Arthur Weisberg, fæddist
í New York árið 1931. Hann lauk
prófi frá Julliard-skólanum í New
York á fagott og var fagottleikari
með mörgum viðurkenndum hljóm-
sveitum og blásarakvintettum
vestra. Á síðari ámm hefur hann í
æ ríkari mæli snúið sér að hljóm-
sveitarstjóm. Arthur Weisberg
stjómaði fyrst á tónleikum Sin-
fóníuhljómsveitar Islands í mars
1985 og á þessu starfsári stendur
hann oftar á stjómendapallinum en
nokkur annar gestur sveitarinnar.
kqsta](boda)
á horni Bankastrætis og Ingólfsstrætis