Morgunblaðið - 23.04.1987, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987
33
Háskóli á Akureyri:
3 sóttu
um stöðu
forstöðu-
*
Utvarp
Norðurland
hefst í
næstuviku
manns
ÞRJÁR umsóknir bárust um
starf forstöðumanns háskóla-
kennslu á Akureyri og ein um
brautarstjóra í iðnrekstrar-
fræði og hjúkrunarfræði.
Þeir sem sóttu um starf for-
stöðumanns háskólakennslunnar
voru Haraldur Bessason, prófess-
or við íslenskudeild Manitobahá-
skóla í Winnipeg, Hermann
Óskarsson, kennari við Verk-
menntaskólann á Akureyri, og
Stefán G. Jónsson, doktor í eðlis-
fræði og kennari við Verkmennta-
skólann á Akureyri.
Ein umsókn barst um starf
brautarstjóra og óskaði umsækj-
andi nafnleyndar.
Það er menntamálaráðherra
sem skipar í þessar stöður.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Gestur Einar Jónasson, útvarpsstjóri, reynir tækin í hljóðstofu nýju stöðvarinnar í gær.
NÚ ER ijóst að Útvarp Norður-
land hefur ekki útsendingar
fyrr en eftir kosningar. Að
sögn Gests Einars Jónassonar,
útvarpsstjóra, er ástæðan sú að
örbylgjusendir fæst ekki að iáni
hjá Pósti og síma fyrr en eftir
kosningar þar sem hann var
lánaðar ríkissjónvarpinu.
Gestur sagði að líklega hæfust
útsendingar síðari hluta næstu
viku en allt er klappað og klárt
til að byija. Öll tæki eru til stað-
ar, dagskrárgerðarmenn sitja nú
í hljóðstofu og æfa sig - en það
eina sem vantar í raun að sögn
Gests er fréttamaður, sem enn
hefur ekki verið ráðinn.
Útsendingartími verður frá kl.
6.30 til 19.00 á mánudögum,
þriðjudögum og miðvikudögum,
en lengri aðra daga. Útvarpað
verður fram eftir kvöldi á fímmtu-
dögum og næturútvarp verður svo
um helgar.
Heyrn og tal
rannsökuð
á Húsavík
EINAR Sindrason háls-, nef- og
eynarlæknir ásamt öðrum sér-
fræðingum Heyrnar- og tal-
meinastöðvar íslands verða á
ferð á Húsavík dagana 3. og 4.
maí nk.
Rannsökuð verður heym og tal
og útveguð heymartæki. Tekið
verður á móti tímapöntunum á
Heilsugæslu Húsavíkur og er fólki
bent á að panta tíma sem fyrst.
Kabarett gengnr vel
Sýningar í kvöld og á morgun
Gunnar Kvaran
Martin Berhofsky
Gunnar Kvaran og Martin
Berkofsky með tónleika
JUNNAR Kvaran, sellóleikari,
>g Martin Berkofsky, píanóleik-
iri, halda tónleika á Akureyri á
unnudaginn. Þeir fara fram í
al Tónlistarskólans, Hafnar-
itræti 81, og hefjast kl. 20.30.
Á efnisskránni verða þijú verk
eftir Beethoven, sem em tilbrigði
um þekkt og vinsæl lög, bæði úr
Judas Maccabeus eftir Hándel og
Töfraflautunni eftir Mozart. Verkin
einkennast af léttleika, gáska og
fegurð.
Gunnar og Martin fluttu þessa
efnisskrá nýverið í Norræna húsinu
við góðar undirtektir áheyrenda.
Þessir ágætu tónlistarmenn hafa
leikið á tónleikum á Akureyri og
em áheyrendum að góðu kunnir,
en þetta em þeirra fyrstu sameigin-
legU tónleikar þar. (Fréttatilkynmng;)
LEIKFÉLAG Akureyrar sýn-
ir hinn vinsæla söngleik
Kabarett í kvöld, fimmtu-
dagskvöld, og á morgun,
föstudag. Báðar sýningarnar
Vortónleik-
ar blásara-
sveita Tón-
listarskólans
VORTÓNLEIKAR A- B- og C-
blásarasveita Tónlistarskólans á
Akureyri fara fram í Akureyrar-
kirkju nk. sunnudag, 26. april,
kl. 17.00. Stjórnendur sveitanna
eru Atli Guðlaugsson og Roar
Kvam.
Hljómsveitimar em skipaðar 70
nemendum Tónlistarskólans, sem
undirbúa nú þátttöku í landsmóti
íslenskra skólalúðrasveita á Akra-
nesi 1.-3. maí.
Efnisskrá á tónleikunum verður
fjölbreytt og aðgangur ókeypis.
Radíónaust opnar
í Glerárgötunni
RADÍÓNAUST nefnist fyrirtæki sem Róbert Friðriksson hefur
sett á fót í Glerárgötu 26. Þar verslar hann með alls kyns radíó-
vörur, auk þess sem hann rekur myndbandaleigu á staðnum.
Róbert þekkja margir úr Ak-
urvík, sem er skammt frá, en þar
starfaði hann sem verslunarstjóri
í tíu ár, en hætti í vetur. „Ég tók
við þessu 25. mars. Hér var, og
verður áfram, myndbandaleiga
kvikmyndahúsanna, sem ég rek
líka,“ sagði Róbert er blaðamaður
leit við hjá honum. Hann sagðist
verða með á_ boðstólum alls kyns
radíóvömr. Ég er með mörg jám
í eldinum en það er of snemmt
að taia um margt af því. Það
verður bara að koma í ljós síðar
hvað það er.“
Róbert sagðist hafa hætt í
Akurvík 7. febrúar eftir nákvæm-
lega 10 ára starf. Nú er hann
kominn út í sams konar sölu-
mennsku á ný. „Já, svona hlutir
em orðnir hluti af manni. Það er
erfítt að slíta sig frá þessu. Þessu
fylgjr viss hasar sem á ákaflega
vel við mig,“ sagði Róbert er hann
var spurður hvort hann hefði ekki
verið orðinn þreyttur á þessu.
Róbert er með umboð fyrir
TEC- vömr. „Ég verð með ódýrar
vömr hér, það verður haft að leið-
arljósi að vera með góðar vömr á
góðu verði. Ég mun beijast fyrir
því eins og ég get,“ sagði hann.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Róbert Friðriksson í hinni nýju verslun sinni.
hefjast kl. 20.30.
Sýningar á Kabarett hafa
gengið mjög vel að sögn Péturs
Einarssonar, leikhússtjóra, og
er ljóst að sýningar standa að
minnsta kosti út maí — jafnvel
lengur. Þegar hefur mikið verið
selt af miðum á sýningar í maí
og er það áberandi nú hve fyrir-
tæki i bænum gera af því að
bjóða starfsfólki sínu í leikhús.
Segja forráðamenn leikhússins
það mjög ánægjulega þróun.
Sjónvarp
Akureyri
Næst Stöð 2
beint norð-
ur í dag?
ALLAR líkur eru á því að Stöð
2 sjáist í beinni útsendingu á
Akureyri og nágrenni á kosn-
ingadaginn - jafnvel fyrr, að
sögn Bjarna Hafþórs Helgason-
ar, sjónvarpsstjóra Sjónvarps
Akureyrar í gær.
Starfsmenn Pósts og síma unnu
af krafti að því í gær að koma
málinu í höfn og Bjami sagði ekki
loku fyrir það skotið að Stöð 2
næðist jafnvel í gærkvöldi. Ég
er sérlega ánægður með vinnubrögð
Pósts og síma í þessu máli. Það er
fyrir þeirra kraftaverkavinnu að
málið er komið þetta langt,“ sagði
Bjami Hafþór í gær.
Fari svo að Stöð 2 náist beint
norður verður það væntanlega var-
anlegt ástand. Þetta er að vísu
bráðabirgðalausn núna en í fram-
haldi af henni verður um varanlega
sendingu að raaða," sagði Bjami
Hafþór og bætti við að tvisvar í
viku myndi Sjónvarp Akureyri
senda yfir dagskrá Stöðvar 2, í
fullu samráði við forráðamenn þar
á bæ. Þar yrði um fréttatengt efni
af svæði Sjónvarps Akureyrar að
ræða og annað heimatilbúið efni
og yrði það í beinni útsendingu.