Morgunblaðið - 23.04.1987, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987
39
Morgunblaðið/Theodór
Hval rekur inn Borgarfjörð
Borgaraesi.
Á SKIRDAG rak dauðan hval inn Borgarfjörð. Kom nokkur fjöldi fólks út á Borgarfjarðarbrú til
að fylgjast með því er hvalinn rak undir brúna. Um kvöldið rak hvalinn aftur undir brúna og út
Borgarfjörð. Um páskana raka hvalinn siðan upp í fjöru undan bænum Lambastöðum á Mýrum
og reyndist þarna vera 9 metra löng hrefna.
Ný verslun
með barna- og
unglingafatn-
að opnar í
Kópavogi
VERSLUNIN Hans og Gréta
opnaði nýlega í Hamraborg 1
í Kópavogi. Eigendur versl-
unarinnar eru Magdalena
Gestsdóttir og Pétur Helga-
son.
Verslunin selur tískufatnað
fyrir böm og unglinga frá 0 til
14 ára ásamt tilheyrandi smá-
hlutum. Fatnaðurinn er aðal-
lega frá Frakklandi, Belgíu og
Þýskalandi.
Verslunin er opin virka daga
kl. 09.00-18.00 og laugardaga
kl. 10.00-13.00.
1
Eigandinn Magdalena Gestsdótt-
ir ásamt dætrum sínum í nýju
versluninni.
Keflavik.
SUMARDAGURINN fyrsti verð-
ur haldinn hátíðlegur í Keflavík
í dag eins og undanfarin ár og
mun skátafélagið Heiðarbúar
standa að hátíðarhöldunum.
Skrúðgangan verður fyrsti liður
hátíðarhaldanna, safnast verður
saman við skátahúsið við Hring-
braut kl. 10.00, en kl. 10.30 verður
Eyðing
minks við
Breiðafjörð
Stykkishólmi.
f VOR hefir verið leitað að mink
hér um slóðir bæði í landi og
eyjum. Er þetta gert á hverju
vori. Æðarræktarfélagið hér
hefir eins og áður forgöngu um
þetta. Hafa fundist minkar bæði
í eyjum og eins í landi og verður
ábyggilega haldið áfram að leita
því minkurinn er einn skæðasti
bölvaldur æðarvarpsins.
Meðal annars náðist minkur í
Elliðaey sem er langt undan og
hefir hann ábyggilega synt milli
eyja, en það er ótrúlegt þol sem
minkurinn hefir og langar þær leið-
ir sem hann kemst.
Það er ekki lítill sá kostnaður sem
af þessu dýri leiðir og öll sú fyrir-
höfn og fjármunir eru miklir. Það
er ekki búið að sjá fyrir endann á
þeim skaða og líklega verður erfítt
að uppræta hann.
— Árni
ióaf
meginþorra
þjóóarinnar
daglega!
Auglýsinga-
síminn er224 80
svo gengið undir leik lúðrasveitar
um bæinn og að kirkjunni þar sem
skátaguðsþjónusta hefst kl. 11.00.
Skátamir verða svo með skemmtun
fyrir yngstu bömin í Félagsbíói kl.
14.00 og er verð aðgöngumiða 50
krónur.
Á föstudagskvöldið verður svo
diskótek í Holtaskóla sem skátamir
standa að.
- BB
INNLENT
Morgunblaðið/Jón Sveinsson
Gönguklúbbur „Hana nú“ staldrar við lyá útsýnisskífunni í vetrarsólu 28. mars sl.
Kópavogur:
„Hana nú“ boðið á kosninga-
skrifstofur flokkanna
Á KJÖRDAG, laugardaginn 25.
apríl, bjóða allir stjómmála-
flokkarnir í Kópavogi
frístundahópnum „Hana nú“ að
koma í heimsókn á kosninga-
skrifstofur flokkanna i
Hamraborg og þiggja þar
hressingu.
Boð þetta tengist laugardags-
göngu frístundahópsins, en
laugardagsgangan hefst alla
laugardaga kl. 10.00 og er lagt
af stað frá Digranesvegi 12. Þátt-
taka í laugardagsgöngunni er
öllum heimil.
AMC
Það er ekki einungis á
íslandi sem AMC Jeep7
Cherokee og Wagoneer
eru stöðutákn
► ► ► ►
AMC
Þeir eru orðnir að stöðutákni á
tímum þar sem stöðutákn er
það sem máli skiptir. Framafólk
sækist eftir þeim. Kvikmynda-
stjömur í Hollywood hringja úr
þeim á meðan þeir þjóta um
hraðbrautir Suður-Kalifomíu.
Skoðanakannanir sýna að þeir
eru vinsælustu bifreiðirnar í
Bandaríkjunum í dag. „Þeir
munu alltaf seljast betur en
hvaða innfluttur bíll sem er,"
segir sérfræðingur um málefni
bílaiðnaðarins.
F1 JeeD EGILL VILHJÁLMSSON HF
Smiðjuvegi 4, Kóp.
■ s. 77200 - 77202.
Sumardagurinn fyrsti í Keflavík:
Skátarnir sjá um
hátíðarhöldin