Morgunblaðið - 23.04.1987, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987
+
Sumardagurinn fyrsti:
Urturnar með kaffi-
sölu í Kópavogi
SKÁTAFÉLAGIÐ Kópar var
stofnað áríð 1946 og- er eitt elsta
æskulýðsfélag Kópavogs. Skáta-
starfsemi hefur ávallt veríð mikil
í bænum og notið skilnings bæj-
aryfirvalda jafnt sem bæjarbúa.
Árið 1969 stofnuðu nokkrir skát-
ar úr Kópum Hjálparsveit skáta
í Kópavogi, sem er nú ein öflug-
asta og best búna björgunarsveit
landsins.
I Kópum starfar mömmuskáta-
.sveitin Urtur. Þetta er hópur
skátamæðra, sem vinnur að því að
efla og styðja það starf sem unnið
er í skátafélaginu og hjálparsveit-
inni.
Mikilvægur þáttur í starfí Urt-
anna er kaffisalan sem jafnan er
haldin fyrsta sumardag. Að vanda
verður efnt til hennar í Félags-
heimili Kópavogs, 2. hæð, og hefst
hún kl. 3. Einnig verða skátamir
með kaffísölu í Digranesi á meðan
á skemmtiatriðum sumardagsins
fyrsta stendur.
(Fréttatilkynning)
Tónleikar í Garðakirkju
KÓR Fjölbrautarskólans í kirkjuleg og veraldleg verk. Ein-
Garðabæ heldur tónleika í söngvarar með kómum eru Halldór
Garðakirkju í kvöld, 23. apríl, Vilhelmsson og Marta Halldórsdótt-
kl. 20.30. ir. Orgelleikari er Oddný Þorsteins-
dóttir. Stjómandi kórsins er
Á efnisskrá kórsins eru bæði Guðlaugur Viktorsson.
Innbrot og ölvun um páskana:
Brutust inn um hábjartan dag
og stálu fermingargjöfinni
MIKLAR annir voru hjá lögreglu
á höfuðborgarsvæðinu yfir
páskahelgina vegna innbrota. Þá
varð lögreglan einnig að hafa
talsverð afskipti af fólki vegna
ölvunar, bæði i heimahúsum og
á almannafæri.
Á annan í páskum barst lögregl-
unni tilkynning um innbrot í
íbúðarhús við Heiðarsel. Innbrotið
var framið um miðjan dag á meðan
heimilisfólkið var að heiman og
höfðu þjófamir farið inn um glugga
á fyrstu hæð. Þeir höfðu á brott
með sér um 25 þúsund krónur í
peningum. Hluti af fénu var gjöf
til fermingarbams. Innbrotið var
óupplýst er Morgunblaðið fregnaði
síðast.
Tveir ungir menn vom hand-
teknir aðfaranótt páskadags þar
sem þeir vom að bijótast inn í versl-
unarhús við Álfheima. Þá sömu
nótt vora tveir utanbæjarmenn
handteknir í Kópavogi þar sem þeir
vom að stela bensíni og hjólkoppum
af bifreiðum í Hólmahverfí.
Fyrirlestur
um málfræði
MARGRÉT Jónsdóttir cand.
mag. flytur í dag, 23. april, fyrir-
lestur á vegum Mímis, félags
stúdenta í islenskum fræðum.
Margrét mun §alla um fleirtölu
o-stofna kvenkynsorða. Fyrirlestur-
inn hefst kl. 16.30 í stofu 101 í
Odda, hugvísindahúsi Háskóla Is-
lands.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
Brotist var inn í Hólabrekkuskóla
og Fellaskóla í Breiðholti aðfara-
nótt laugardagsins. Litlu sem engu
var stolið en talsverðar skemmdir
unnar á hurðum og dyraumbúðum
í skólunum. Þá var brotist inn í
verslunarhús við Síðumúla um pá-
skana þar' sem lítið hafðist upp úr
BÆJARSTJÓRN Kópavogs hef-
ur áfrýjað til Hæstaréttar dómi
í svonefndu „Sæbólsmáli", sem
dæmt var í 17. desember síðast-
liðinn. Samkvæmt þeim dómi var
ógiltur samningur um sölu á
Sæbólslandi i Kópavogi frá 10.
september 1980. Vegna villandi
frásagnar i frétt blaðsins á sinum
tíma fara dómsorð bæjarþings
Kópavogs hér á eftir:
„Stefndu, Guðmundur Marinó
Þórðarson, Halldóra Þórðardóttir,
Þórður Öm Guðmundsson og Kópa-
vogskaupstaður, skulu vera sýkn
af kröfum stefnendanna, Sveins
Þórðarsonar, Sigríðar Lúthersdótt-
ur og dánarbús Helgu Sveinsdóttur,
en málskostnaður falli niður.
Stefndu, Þórður Öm Guðmunds-
son og Halldóra Þórðardóttir, skulu
krafs^u. Ennfremur var brotist inn
í nokkrar einkaflugvélar í flugskýli
á Reykjavíkurflugvelli um páska-
helgina og höfðu þjófamir á brott
með sér slökkvitæki úr nokkmm
vélanna. Rannsóknarlögregla ríkis-
ins vinnur að rannsókn þessara
mála.
vera sýkn af kröfum stefnanda,
dánarbús Þórðar Þorsteinssonar, og
falli málskostnaður niður.
Viðurkennd er krafa stefnanda,
dánarbús Þórðar Þorsteinssonar, á
hendur stefndu, Guðmundi Marinó
Þórðarsyni og Kópavogskaupstað,
um ógildi samnings þeirra frá 10.
september 1980. Málskostnaður
falli niður.
Gjafsóknarkostnaður stefnend-
anna, dánarbús Þórðar Þorsteins-
sonar og dánarbús Helgu
Sveinsdóttur, ákveðst kr. 462.643
og greiðist úr ríkissjóði, þar með
talin laun skipaðs talsmanns þeirra,
Gunnars Guðmundssonar héraðs-
dómslögmanns, kr. 400.000.
Olafur St. Sigurðsson
Hannes Pétursson
Stefán Már Stefánsson
Sæbólsland í Kópavogi:
Dómi vísað til
Hæstaréttar
^ t
CITROEN BX: RID
CITROÉN
BX
CITROÉN
BX
NÝ KYNSLÓÐ MEÐ
GOTT VEGANESTI
Viö köllum hann riddara götunnar eða fjölskyldubílinn
meö sporthjartað. Hvorttveggja á vel viö.
CITROÉN BX er einn af glæsilegustu fulltrúum ungu
bílakynslóöarinnar.
Hann er byggður á reynslu og hugmyndaríkri þróunar-
starfsemi Citroén verksmiöjanna og hefur þegiö í arf
kraft, smekkvísi og tæknilega fullkomnun Citroén ættarinnar.
Enginn bíll fær betra veganesti.
REYNIST VEL HVAR
SEM HANN FER
CITROÉN BX hagar sér eins og á heimavelli hérlendis.
Honum eru nánast allir vegir færir.
Framhjóladrif, vökvafjöðrun, kraftur og þægindi eru
kostir sem þú kannt fyrst aö meta til fulls þegar þú líöur
áfram eftir íslenskum vegum eöa vegleysum í CITROÉN BX.
CITROEN BILASYNING UM HELGINA
Riddari götunnar, CITROÉN BX og nýi smábíllinn sem
fékk Gullna stýriö, CITROÉN AX, sýna á sér nýjar hliðar
nú um helgina.
Opið frá kl. 10-6 laugardag og 1-6 sunnudag.
KOMDU OG FÁÐU NÁNARI ÚTLISTUN Á KOSTUM
CITROÉN BX OG TAKTU í EINN SEM ER TJÓÐRAÐUR
ÁSTAÐNUM!
Lágmúla 5 Reykjavík Sími 681555
4