Morgunblaðið - 23.04.1987, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987
41
t
Sigurður Örn Brynjólfsson með eitt af verkum sinum.
Sýnir myndir frá Ung-
veijalandi í Gallerí Borg
SIGURÐUR Öm Brynjólfsson
opnar sýningu í dag kl. 17.00 í
Galleri Borg við Austurvöll. Sig-
urður sýnir þar 40 myndir unnar
í olíu og þurrpastel í september-
mánuði síðastliðnum i Ungveija-
landi.
Sigurður er fæddur í Reykjavík
1947. Hann lauk námi frá auglýs-
ingadeild Myndlista- og handíða-
skóla íslands 1968 og stundaði
framhaldsnám í myndlist 1969-70
á Academie von Beeldende Kunsten
í Rotterdam í Hollandi.
Þetta er sjötta einkasýning Sig-
urðar en hann hefur einnig tekið
þátt í samsýningum, bæði hérlendis
og erlendis.
Sigurður hefur unnið við gerð
teiknimynda og má þar nefna
„Þrymskviðu" sem frumsýnd var
árið 1980 og er hann nú að vinna
við stuttar teiknimyndir fyrir
Sænsku kvikmyndastofnunina.
Einnig hefur hann fengist við að
myndskreyta bamabækur og náms-
bækur. Sigurður vinnur nú á eigin
auglýsingastofu og er deildarstjóri
auglýsingadeildar MHÍ.
Sýningin er opin virka daga kl.
10.00-18.00 nema mánudaga kl.
12.00-18.00, laugardaga og sunnu-
daga kl. 14.00-18.00.
Sýningin stendur til 5. maí nk.
BÍLALEIKUR
Úr myndinni Tvífarinn.
Kvikmyndir
Amaldur Indriðason
Tvífarinn (The Wraith). Sýnd
í Laugarásbíói. Stjörnugjöf:
it
Bandarísk. Leikstjóri og
handritshöfundur: Mike Mar-
vin. Framleiðandi: John
Kemeny. Tónlist: Michael
Hoenig og J. Peter Robinson.
Kvikmyndataka: Reed Smoot.
Helstu leikendur: Charles
Sheen, Nick Cassavetes,
Sherilyn Fenn og Randy
Quaid.
Þeir sem hafa gaman af að
horfa á kraftmiklar sjálfrenni-
reiðar eigast við á sveitavegum
Arizona gætu haft yndi af mynd-
inni Tvífarinn (The Wraith), sem
sýnd er í Laugarásbíói. Ef þeir
eru svo heppnir að eiga bfla sjálf-
ir gætu þeir látið þá leika
Corvéttu á leiðinni heim. Myndin
er nefnilega meira um bfla en
fólk og er varla við öðru að bú-
ast þegar meira að segja fram-
leiðslufyrirtæki hennar heitir
Turbo Productions.
A milli þess sem bflamir
springa í loft upp hver á fætur
öðram í miklum eldglæringum
og reyk eins og siður er í svona
bflamyndum er sögð sagan um
hinn yfirnáttúralega Turbo Int-
erceptor en það er bfll, einstakur
í þessum heimi.
Hann er miklu sportlegri en
sjálfrennireiðin í hryllingsmynd-
inni The Car, sem kemur í
hugann af því hún er á svipuðum
nótum nema að þegar bfllinn í
The Car myrti var það af hrein-
um illindum en Turbo Intercept-
or er að hefna sín. Sumir bflar
hafa sál eins og þið vitið.
Og á hveijum er Turbo að
hefna sín? Það er bófagengi sem
Nick Cassavetes stýrir en með-
limirnir heita eitthvað eins og
Rennusteinn og Fnykur og virð-
ast lifa mest á bflaolíum. í ljós
kemur að bófagengið myrti ung-
an mann, sem nú hefur snúið
aftur frá Paradís í lflri ökumanns
Turbosins.
En hann er líka Jake, nýi
gæinn í bænum. Enginn veit um
tengsl þama á milli og allra síst
áhorfendur fyrr en rétt í lokin
að hann hrifsar með sér stelpuna
sem allt snýst um og hverfur í
myrkrið.
Það era helst leikaramir sem
gera þessa mynd áhorfanlega
nema auðvitað fyrir bflafræðing-
ana. Charles Sheen vakti nýlega
athygli fyrir leik sinn í Platoon
en fer hér með hlutverk Jake
og feigðarboðans, Cassavetes er
talsvert góður í hlutverki ill-
mennisins og Randy Quaid, sem
leikur í hveiju smáhlutverkinu á
fætur öðra eins og hann fái ekk-
ert betra að gera, er skemmti-
lega svalur í hlutverki lögreglu-
foringja er rannsakar málið.