Morgunblaðið - 23.04.1987, Blaðsíða 46
46
mr jtHcTA 8? ÍTTJOACnJTMMra OTGAJaMTIOHOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987
ALBERTSMÁL
eftir Þorgeir Ibsen
„Ekki kosta minna mátti
málabrasið þan
Þjófurinn kærði þann sem átti
það, sem stolið var.“ (Jón Pálmason á Akri.)
í hinu mikla fjaðrafoki og fjöl-
miðlafári, sem skapast hefur um
Albertsmál, er í raun verið að bera
í bakkafullan lækinn að taka þar
til máls. Undirritaður hefði helzt
viljað sitja hjá í þessari ömurlegu
umræðu og leiða hana með öllu hjá
sér. En honum er öllum lokið og
getur ekki orða bundist, þegar fá-
ráðir lýðskrumarar eru í óðaönn og
í þeim ham að vilja hengja bakara
fyrir smið og taka að hossa yfír-
troðslu- og misgjörðarmanninum
og heQa hann upp á stall og dýrka
hann sem skurðgoð og það á kostn-
að heiðarleikans. Þegar_ slíkt
gerist eiga allir þjóðhollir íslend-
ingar, hvar í flokki sem þeir
standa, að stinga við fótum og
lýsa vanþóknun sinni og fyrirlitn-
ingu á öðru eins framferði.
Vísa Jóns heitins á Akri Pálma-
sonar frá dögum Skjónumálsins
alræmda í Húnaþingi leitar fram í
hugann þessa síðustu daga, sem
einkennzt hafa af óróa, spennu og
flokkariðlun í þjóðfélaginu og allt
vegna Albertsmáls, sem undanfarið
hefúr verið í algleymingi. Og m.a.
hafa þau ótíðindi gerzt að ýmsir
af málaliðum höfuðpaurans hafa
gengið hart fram í því og af mik-
illi ófyrirleitni að varpa rýrð á
Þorstein Pálsson, ijármálaráðherra,
og gera hann tortryggilegan í aug-
um samfélagsins, látið hann gjalda
þess, að hann hefír, sem fjárgæzlu-
maður ríkisins í einhverju ábyrgðar-
mesta ráðherraembættinu, orðið að
sinna þeirri siðferðilegu skyldu sinni
að hafa afskipti af Albertsmáli, sem
er eitthvert hið hallærislegasta
mál, sem um getur í ungri sögu
lýðveldisins. Þetta er ljótt mál og
ógeðslegt. Sama hvemig á það er
litið. Það hefur valdið miklum skaða
og óhugnanlegri truflun í þjóðfélag-
inu og á enn eftir að draga þungan
dilk á eftir sér og valda enn meiri
skaða og álitshnekki margra
manna, þar á meðal ekki svo fárra
saklausra manna, sem starfa síns
eða stöðu vegna hafa nauðugir vilj-
ugir dregist inn í þetta ólánsmál.
Að slá skjaldborg um skúrk
með guðhræðsluna að yfirskini.
Hinn erlendi mafíusiður að slá
skjaldborg um skúrka sína með
guðhræðsluna að yfírskini er ill-
ræmdur og alkunnur. Ef innleiða á
slíkan sið á íslandi og þeim hossað,
sem standa í því að bijóta þau lög,
sem þeim hefír verið falið að gæta
og framfylgja í landinu, er vegið
að rótum lýðveldisins. Og enn sann-
ast hið fomkveðna og sýnir sig
aldrei betur en þessa síðustu daga,
að sá sem slítur í sundur lögin slítur
einnig í sundur friðinn. Og sannar-
lega fær öll þjóðin að kenna á þessu
þessa síðustu daga og er það bitur
reynsla. Hið unga lýðveldi, sem
segja má að vart hafí slitið bams-
skónum, má ekki við því, að innan
helgra véa þess, á Alþingi og á
æðstu stöðum þess sé vörgum, sem
hvorki skeyta um skömm né heið-
ur, skipað til sætis og fenginn
jafnvel hinn hæsti virðingarsess,
svona rétt eins og hendi sé veifað.
Fyrr má nú rota en dauðrota að
slík ósköp gerist.
Á þjóðholla menn ráðist með
birgslyrðum um níð og róg, ill-
mælgi og af hinum versta
stráksskap, þegar þeir eru að
vara þjóð sína við og segja henni
beizkan og nöturlegan sannleik-
ann.
Margir þjóðhollir íslendingar
hafa reynt að benda þjóðinni á að
ná réttum áttum í moldviðri Al-
bertsmálsins og láta ekki óvandað-
an málflutning villa um fyrir sér.
Þeir hafa sagt álit sitt skilmerkilega
og skorinort, nefnt hlutina réttum
nöfnum. í hópi þeirra þjóðhollu ís-
lendinga, sem þama hafa gengið
fram fyrir skjöldu með viðvaranir
og sagt þjóð sinni ómegnaðan sann-
leikann, er m.a. dr. Gunnlaugur
Þorgeir Ibsen
„Og- þegar íslendingar
ganga að kjörborðinu
þann 25. apríl nk. ættu
þeir að rifja upp varn-
aðarorð þeirra um að
láta ekki af vegaleiða
sig í moldviðri Alberts-
málsins.“
Þórðarson í grein sinni „Lýðræðið
og siðgæðið“ í Morgunblaðinu 4.
apríl sl. Jón Sigurðsson, forstjóri,
fyrrum ráðuneytisstjóri í fjármála-
ráðuneytinu, í grein sinni „Að trúa
á Albert“ í Morgunblaðinu 8. apríl
sl., dr. Benjamín H.J. Eiríksson í
grein sinni „Eldur í æðum“ í Morg-
unblaðinu 15. apríl sl. og Einar J.
Gísla þar áður eða 12. apríl í Morg-
unblaðinu í grein sinni „Að veikja
Sjálfstæðisflokkinn væri slys“.
Ekki verður sagt um þessa menn,
að þeir séu sérstaklega hallir undir
Sjálfstæðisflokkinn, þegar undan
er skilinn sá síðastneftidi. En öllum
er þeim það sameiginlegt að unna
þjóð sinni og vilja henni vel. Mátu
meira að segja þjóð sinni beinan
og beran sannleikann en eigin
stundarhagsmuni. Fyrir þetta hafa
þeir orðið fyrir verstu brigslum um
róg og níð, svo furðulegt sem það
er, þar sem þeir, hver og einn þeirra,
skrifar undir fullu nafni, svo sem
háttur er siðaðra og drenglundað-
ara manna, sem skrifa um mál, sem
koma við kaun manna, en fela sig
ekki á bak við dulnefni. Mættu
margir, sem skrifa um viðkvæm
mál taka sér þá til fyrirmyndar.
Og þegar íslendingar ganga að
kjörborðinu þann 25. apríl nk. ættu
þeir að rifja upp vamaðarorð þeirra
um að láta ekki afvegaleiða sig í
moldviðri Albertsmálsins.
Aldrei hefír það verið brýnna en
nú að þjóðin haldi vöku sinni og
undir orð, vamaðarorð Einars J.
Gíslasonar skal heilshugar tekið er
hann segir: „Að veikja Sjálfstæðis-
flokkinn væri slys.“
Höfundur er fyrrverandi skóla-
stjóri Lækjarskóla í Hafnarfirði.
Styrk ríkisstjórn — forsenda
áframhaldandi bættra lífskjara
eftir Jón Hjaltalín
Magnússon
Það er erfitt að spá um framtíð-
ina og þá sérstaklega um horfumar
í stjómmálum á Islandi. En hver
þjóðfélagsþegn, sem hefur kosn-
ingarétt, getur með atkvæði sínu á
kosningadaginn lagt gmnn að þjóð-
félagi sínu og okkar allra næstu
árin og jafnvel næsta áratuginn.
Því reynslan hefur kennt okkur að
hægt er að halda áfram á leið til
bættra lífskjara, þar sem viðráðan-
leg verðbólga er ríkjandi, en einnig
er hægt að glata niður á stuttum
tíma því sem áunnist hefur og það
getur tekið nokkuð langan tíma að
lagfæra efnahagsleg vandamál, þar
sem þjóðfélagsþegnar, fyrirtæki og
Jí Jí- JÍ 3*5 Jí Jí
Luxemborg
Lykillinn að töfrum Evrópu.
Pað er margt aö sjá og gera I
stórhertogadæminu Luxemborg.
Fagurt landsiag, fomar
byggingar, fjölbreytt
menningarlif, verslanir og
veitingastaðir.
•\\oixAay ^rsjtC
Glæsilegt hótel og vel staösett í
borginni.
Helgarpakkl:
3 dagar i Luxemborg fyrir aðeins
14.990 kr.*
Súperpakki:
Kostar lítið meira, eða 16.050 kr*
en býður upp á miklu meira.
Kynntu þér þessar sérlega
hagstæðu Lúxemborgarferðir á
söluskrifstofum Flugleiða, hjá
umboðsmönnum og
feröaskrifstofum.
*Gildir til I5.nnal
FLUGLEIDIR
stjómmálamenn þurfa að leggja
mikið á sig til að árangur náist.
Öflugt og fjölbreytt
atvinnulíf á Islandi
Ein meginforsenda framfara og
bættra lífskjara á íslandi er öflugt
og flölbreytt atvinnulíf í stöðugu
efnahagslegu umhverfí, þar sem
fyrirtæki og einstaklingar hafa
möguleika á að þróast og eflast.
Þar sem fyrirtækin sjá sér hag í
því að íjárfesta í vöruþróun, mark-
aðsmálum, framleiðslutækjum og
mikilvægast af öllu, nýjum og
áhugasömum starfskröftum, sem
þau geta greitt góð og samkeppnis-
bær laun.
Þjóðfélag án atvinnuleysis er tal-
ið fyrirmyndarþjóðfélag. Þar hefur
fólk meiri möguleika á að fá vinnu
við sitt hæfi, þar á starfsfólk auð-
veldara með að færa sig milli
vinnustaða eftir búsetu og áhuga-
málum og flytur um leið starfs-
reynslu milli fyrirtækja. í slíku
þjóðfélagi sjá fýrirtæki sér hag í
því að greiða starfskröftum sínum
góð laun.
Nú er atvinnuleysi á íslandi talið
vera um 0,5% af vinnufæru fólki,
en samt er mikill skortur á starfs-
fólki víða um land við hin ýmsu
störf. Á sama tíma er atvinnuleysi
í nágrannalöndunum talið vera á
bilinu 5—10%, þó svo að fólk sé þar
látið hætta starfsævi sinni fyrr en
hérlendis, þar sem skólafólk og
unglingar eiga erfítt með að fá
vinnu á sumrin og að námi loknu
og mikill hluti vinnufærra manna
er í herþjónustu eða í endurskólun
á vegum hins opinbera.
Við þennan samanburð og skil-
greiningu á atvinnuleysi og miðað
við hina umfangsmiklu yfírvinnu
sem tíðkast hérlendis má vel segja
að atvinnuleysisprósentan sé með
neikvæðu formerki á íslandi, því
hér er í raun og veru skortur á
starfsfólki.
Okkar glæsilega unga fólk sem
nú er að koma út á vinnumarkaðinn
getur verið ánægt með þá fjöl-
Jón Hjaltalín Magnússon
„Ég er sjálfur búinn að
ákveða mig. Ég hef
vissar áhyggjur af
framtíðinni á sviði
íslenskra stjórnmála og
myndun nýrrar ríkis-
stjórnar til að halda
áfram á þeirri braut
sem nú hefur verið
mörkuð til bættra
lífskjara. Ég vil áfram
styrka og víðsýna ríkis-
stjórn með hlutdeild
Sjálfstæðisflokksins.“
breyttu starfsmöguleika sem
bjóðast. Trygg atvinna er forsenda
ánægjulegs heimilislífs og fjárfest-
ingar einstaklinga og fjölskyldu í
húsnæði, innbúi, farartæki, fatnaði,
fjölbreyttum frístundum og ferða-
lögum að ógleymdu hollu mataræði.
Trygg atvinna leiðir til jafnari og
stöðugri skattheimtu sem tryggir
öflugri félagslega aðstoð þjóðfé-
lagsins og fjárfestingu þess í bættu
starfsumhverfi þegnanna, eins og
malbikuðum þjóðvegum, flugvöll-
um, skólum, heilbrigðisþjónustu,
íþróttamannvirkjum, leikhúsum og
hliðstæðum mannvirkjum og að-
stöðu um land allt.
Styrk ríkissljórn — for-
senda áframhaldandi
bættra lífskjara
Heimur stjómmálanna er að
mörgu leyti sérstakur. Þar keppast
einstakir stjómmálamenn og flokk-
ar þeirra um völd til að koma í
framkvæmd stefnum sínum og leið-
um til betra þjóðfélags, en skilgrein-
ing þessara stjómmálamanna og
flokka á betra þjóðfélagi er nokkuð
mismunandi svo og tillögur þeirra
um leiðir að þessum þjóðfélögum
þeirra. Reynslan hefur kennt okk-
ur, að þeim mun fleiri stjómmála-
flokkar sem komast í þá aðstöðu
að mynda ríkisstjóm, þeim mun
líklegra er að ágreiningur verði um
stjómarstefnuna og framkvæmd
hennar. Styrk ríkisstjóm fárra
flokka á aftur á móti auðveldara
með að hrinda í framkvæmd stjóm-
arstefnu sinni og leið til betra
þjóðfélags með betri lífskjörum.
Gott dæmi um slíka stjóm er núver-
andi ríkisstjóm, einnig er núverandi
og fyrrverandi borgarstjóm
Reykjavíkur gott dæmi um öfluga
og virka stjórn.
Lífskjör á íslandi hafa farið batn-
andi undanfarin ár og möguleikar
fyrirtækja og einstaklinga til at-
hafna hafa einnig batnað verulega.
Styrk ríkisstjóm með víðsýnum og
ákveðnum stjómmálamönnum er
leiðin til áframhaldandi bættra
lífskjara á íslandi.
Lesandi góður, atkvæði okkar á
kosningadaginn er ein mikilvæg-
asta eign okkar til að búa betur í
haginn fyrir okkur, fjölskyldur okk-
ar og afkomendur. Við eigum að
nota okkur þessa eign okkar og
rétt til að hafa áhrif á það þjóðfélag
sem við viljum lifa í. Það em bara
við sjálf, sem vitum við hvaða flokk
við merkjum við í kjörklefanum á
kosningadaginn. Við þurfum ekki
að segja öðmm stjómmálaskoðun
okkar frekar en við viljum eða að
hafa áhrif á skoðanir annarra. En
ef við teljum okkur hafa ástæðu til.
að ætla, að lífskjör á íslandi gætu
skyndilega versnað ættum við að
hugleiða þessi mál af alvöru og
skiptast á skoðunum við vini okkar
og félaga. Ég er sjálfur búinn að
ákveða mig. Eg hef vissar áhyggjur
af framtíðinni á sviði íslenskra
stjómmála og myndun nýrrar ríkis-
stjómar til að halda áfram á þeirri
braut sem nú hefur verið mörkuð
til bættra lífskjara. Ég vil áfram
styrka og víðsýna ríkisstjóm með
hlutdeild Sjálfstæðisflokksins. Ert
þú búinn að ákveða þig?
Höfundur er verkfræðingur.
Fundur um tölv-
ur í skólastarfi
HALDINN verður fundur föstu-
daginn 24. apríl næstkomandi kl.
14.00 í Kennslumiðstöð Náms-
gagnastofnunar, Laugavegi 166
í Reykjavík, undir heitinu Tölvur
í skólastarfi.
Á fundinum munu þau Hörður
Lámsson deildarstjóri, Jón Torfí
Jónasson dósent, Ragnheiður Bene-
diktsdóttir kennari og Yngvi
Pétursson lektor segja frá námsferð
til Bandaríkjanna haustið 1986.
Hópurinn kynnti sér tölvunotkun á
öllum skólastigum víðs vegar um
Bandaríkin. Einnig kynntu þau sér
tölvunotkun í stofnunum sem tengj-
ast skólastarfi og heimsóttu
hugbúnaðarfyrirtæki.
Ferð þessi var farin á vegum
Independant Foundation-sjóðsins.
Fundurinn er öllum opinn.
(Fréttatilkynningf.)