Morgunblaðið - 23.04.1987, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, PIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1987
51
ÚTVARP/SJÓNVARP
ÚTVARP
©
FÖSTUDAGUR
24. apríl
6.4B Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin. Jón Bald-
vin Halldórsson og Jón
Guðni Kristjánsson. Fréttir
eru sagðar kl. 7.30 og 8.00
og veöurfregnir kl. 8.15. Til-
kynningar eru lesnar kl.
7.25, 7.55 og 8.25. Erlingur
Sigurðarson talar um dag-
legt mál kl. 7.20.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.0B Morgunstund barn-
anna: „Antonía og Morgun-
stjarna" eftir Ebbu Henze.
Steinunn Bjarman þýddi.
Þórunn Hjartardóttir les (5).
9.20 Morguntrimm. Tónleik-
ar.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir
10.30 Mér eru fornu minnin
kær. Umsjón: Einar Krist-
jánsson og Steinunr, S.
Sigurðardóttir. (Frá Akur-
eyri.)
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.OB Samhljómur. Umsjón:
Sigurður Einarsson.
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Hádegisfréttir
12.46 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
14.00 Miðdegissagan: „Fall-
andi gengi" eftir Erich Maria
Remarque. Andrés Krist-
jánsson þýddi. Hjörtur
Pálsson les (3).
14.30 Nýtt undir nálinni. Elín
Kristinsdóttir kynnir lög af
nýjum hljómplötum.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
1B.0B Landpósturinn. Lesið úr
forustugreinum landsmála-
blaða.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.06 Dagbókin.
Dagskrá.
16.16 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið
17.00 Fréttir. Tilkynningar.
17.0B Síðdegistónleikar.
a. PÐeter Schreier syngur
Ijóðalög eftir Felix Mend-
elssohn. Walter Olbertz
leikur með á píanó.
b. Les petite rien, balletttón-
list eftir Wolfgang Amadeus
Mozart. St. Martin in the
Fields-hljómsveitin leikur;
Neville Marriner stjórnar.
17.40 Torgið — Viöburðir
helgarinnar. Umsjón: Þor-
geir Ólafsson.
18.00 Fréttir. Tilkynningar.
18.06 Torgiö, framhald.
Tilkynningar.
18.46 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Tilkynningar.
Daglegt mál. Endurtekinn
þáttur frá morgni sem Erl-
ingur Sigurðarson flytur.
19.40 Náttúruskoðun. Einar
Egilsson flytur þáttinn.
20.00 „Royal Winter Music"
eftir Hans Werner Henze.
Jungen Ruck leikur á gítar.
(Hljóðritun frá útvarpinu í
Stuttgart.)
20.30 Framboðsfundur í sjón-
varpssal.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.16 Veöurfregnir
22.20 Hljómplöturabb Þor-
steins Hannessonar.
23.00 Andvaka. Þáttur í umsjá
Pálma Matthíassonar. (Frá
Akureyri.)
24.00 Fréttir
SJÓNVARP
FÖSTUDAGUR
24. apríl
18.30 Nilli Hólmgeirsson
Þrettándi þáttur. Sögumað-
ur Örn Árnason. Þýðandi
Jóhanna Þráinsdóttir.
19.00 Litli græni karlinn (11)
Sögumaður Tinna Gunn-
laugsdóttir.
19.16 Á döfinni
Umsjón: Anna Hinriksdóttir.
19.26 Fréttaágrip á táknmáli
19.30 Poppkorn
Umsjónarmenn Guömund-
ur Bjarni Harðarson, Ragnar
Halldórsson og Guðrún
Gunnarsdóttir. Samsetning:
Jón Egill Bergþórsson.
20.00 Fréttir og veöur
20.46 Auglýsingarogdagskrá
20.60 Hringborösumræöur I
lok kosningabaráttu.
Ingvi Hrafn Jónsson stýrir
umræöum formanna eða
annarra fulltrúa stjórnmála-
flokka og framboðssam-
taka.
22.30 Rokkarnir geta ekki
þagnaö
Hljómsveitin Fullt hús gesta
kynnt. Umsjón: Hendrikka
Waage og Stefán Hilmars-
son.
22.66 Seinni fréttir
23.06 Maðkar í mysunni
(Family Plot)
Bandarísk bíómynd frá árinu
1976. Leikstjóri Alfred Hitc-
hcock. Aðalhlutverk Karen
Black og Bruce Dern.
Heldri kona leitar til miðils
og öölast mikilvæga vitn-
eskju varðandi fortíð fjöl-
skyldu sinnar. Leigubilstjóri
nokkur býður hefðarfrúnni
aðstoð sína við að greiða
úr fjölskyldumálunum enda
eru góð laun í boöi. Þýðandi
Óskar Ingimarsson.
01.10 Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR
24. apríl
§17.00 Rita á skólabekk
(Educating Rita).
Nýleg bresk gamanmynd
með Michael Caine og Julie
Walters í aðalhlutverkum.
Mynd þessi er byggð á leik-
riti Willy Russel sem hefur
verið sýnt í 20 ár samfleytt
í London. Teflt er fram tveim
andstæðum; annars vegar
Ritu, hressilegri hár-
greiösludömu, sem ákveður
að leggja út á menntabraut-
ina, hins vegar drykkfelld-
um, kaldhæðnum prófess-
or, sem ráöleggur
nemendum sínum að taka
námið ekki of alvarlega.
Leikstjóri er Lewis Gilbert,
sá sami og leikstýröi Micha-
el Caine í kvikmyndinni
Alfie.
§18.46 Myndrokk.
19.05 Teiknimynd.
19.30 Fréttir.
20.00 Opin lína.
Áhorfendur Stöðvar Tvö á
opinni línu f síma 673888.
20.20 Klassapíur
Allt er fertugum fært og vel
það, eins og sannast í þess-
um þætti um klassapíumar.
§20.45 Gelmálfurinn
Geimveran Alf setur svip
sinn á heimilshald Tanner-
fjölskyldunnar.
§21.10 Vorboði (Swarm in
May).
( þessari bresku sjónvarps-
mynd er börnum og ungl-
ingum gefið tækifæri til að
spreyta sig á kvikmynda-
gerð og koma hugmyndum
sínum á framfæri. Kvik-
myndagerðarmennirnir og
leikararnir eru á aldrinum
10—15 ára.
§22.40 Hættuspil (Kicks).
Bandarísk spennumynd frá
1985. Aðalhlutverk: Anth-
ony Geary, Shelley Hack,
Tom Mason. Leikstjóri er
Willlam Wiard.
Ung kennslukona sættir sig
ekki við hversdagsleikann.
Hún keyrir um á hraðskreiðu
mótorhjóli og sækir í áhættu
og spennu. Þegar hún hittir
ungan mann sem hugsar á
sömu nótum er hættan á
næsta leiti.
§00.15 Staðgengillinn (Body
Double)
Leikstjóri þessarar kvik-
myndar er Brian De Palma,
en með aðalhlutverk fara
Craigi Wasson, Greg Henry
og Melanie Griffith.
Á hverju kvöldi svalar ung
og falleg kona ástriðum
sínum. Nágranni hennar
fylgist með í gegnum sjón-
auka. Kvöld eitt verður hann
vitni að morði á henni án
þess að fá nokkuð að gert.
Mynd þessi er stranglega
bönnuð börnum.
§02.06 Myndrokk.
§03.00 Dagskrárlok.
00.10 Næturstund í dúr og
moll
með Knúti R. Magnússyni.
01.00 Dagskrárlok. Næturút-
varp á samtengdum rásum
til morguns.
FÖSTUDAGUR
24. apríl
00.050 Næturútvarp. Gunn-
laugur Sigfússon stendur
vaktina.
6.00 í bítiö. Erla B. Skúladótt-
ir léttir mönnum morgun-
verkin, segir m.a. frá veðri,
færð og samgöngum og
kynnir notalega tónlist í
morgunsárið.
9.05 Morgunþáttur í umsjá
Kolbrúnar Halldórsdóttur og
Kristjáns Sigurjónssonar.
Meðal efnis: Óskalög hlust-
enda á landsbyggöinni og
getraun.
12.20 Hádegisfréttir
12.46 Á milli mála. Leifur
Hauksson kynnir létt lög við
vinnuna og spjallar við
hlustendur.
16.06 Hringiðan. Umsjón:
Broddi Broddason og
Margrét Blöndal. Meðal efn-
is er lýsing frá leik (slend-
inga og Svia á Noröurlanda-
mótinu í körfuknattleik í
Horsens í Danmörku.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Lög unga fólksins. Val-
týr Björn Valtýsson kynnir.
21.00 Merkisberar. Skúli
Helgason kynnir tónlistar-
menn sem fara ekki troðnar
sloðir.
22.05 Fjörkippir. Erna Arnar-
dóttir kynnir dans- og
skemmtitónlist.
23.00 Á hinni hliöinni. Þráinn
Bertelsson sér um þáttinn
að þessu sinni.
00.10 Næturútvarp. Andrea
Guðmundsdóttir stendur
vaktina til morguns.
02.30 Ungæði. Hreinn Valdi-
marsson og Sigurður
Gröndal senda hlustendum
tóninn og láta flest flakka.
Fréttir kl. 7.00, 8.00, 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00, 17.00, 18.00, 19.00,
22.00 og 24.00.
FÖSTUDAGUR
24. apríl
Dagur íslenskrar tón-
listar á Bylgjunni
7.00— 9.00 Á fætur með
Siguröi G. Tómassyni. Létt
tónlist með morgunkaffinu.
Sigurður lítur yfir blöðin og
spjallar viö hlustendur og
gesti. Fréttir kl. 7.00, 8.00
og 9.00.
9.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Föstu-
dagspoppið allsráðandi,
bein lina til hlustenda, af-
mæliskveðjur, kveðjur til
brúðhjóna og matarupp-
skriftir. Fréttir kl. 10.00 og
11.00.
12.00-12.10 Fréttir
12.10—14.00 Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson á hádegi. Frétta-
pakkinn, Þorsteinn og
fréttamenn Bylgjunnar fylgj-
ast meö því sem helst er í
fréttum, segja frá og spjalla
við fólk f bland við tónlist.
Fréttir kl. 13.00 og 14.00.
14.00—17.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Péturspil-
ar síðdegispoppiö og spjall-
ar við hlustendur og
tónlistarmenn. Fréttir kl.
15.00, 16.00 og 17.00.
17.00—19.00 Ásta R. Jóhann-
esdóttir í Reykjavík síðdeg-
is. Þægileg tónlist hjá Ástu,
hún lítur yfir fréttirnar og
spjallar við fólkið sem kemur
við sögu. Fréttir kl. 18.00.
19.00—20.00 Anna Björk
Birgisdóttir á flóamarkaöi
Bylgjunnar. Flóamarkaður
og tónlist. Fréttir kl. 19.00.
20.00—24.00 Músíktilraunir
Bylgjunnar og Tónabæjar
1987. Úrslitakvöld. Bein út-
sending frá Tónabæ. 8
hljómsveitir keppa til úrslita.
Auk þeirra leikur hljómsveit-
in MX 21. Hljóðstjórn:
Siguröur Ingólfsson, Gunn-
arSmári Helgason og Bjami
Friðriksson.
24.00—03.00 Haraldur Gfsla-
son, nátthrafn Bylgjunnar,
kemur okkur f helgarstuð
með góðri tónlist.
3.00— 8.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar.
í
-
Minning:
Þórarinn Bjamason
frá Reyðarfirði
Fæddur 9. nóvember 1907
Dáinn 14. apríl 1987
Löng og farsæl lífsganga er á
enda runnin. Lúinn erfiðismaður,
sem átti dug og bjartsýni að beztu
leiðarmerkjum, hefur nú lagzt til
hinztu hvíldar. Dijúgt liggur dags-
verkið að baki, þar sem atorkan og
æðruleysið héldust í hendur, þar
sem ætíð var réttu horfi haldið.
í önn þessara umrótsdaga verða
fá og fátækleg kveðjuorð ein að
duga, þar sem merlar á fáein minn-
ingabrot frá býsna fjarlægri tíð,
þegar starfsvettvangur beggja var
heima, heima á Reyðarfirði, þar sem
Þórarinn gekk bemskunnar spor,
þar sem ævigangan var lengstum
þreytt, þar sem faðmur fjölskyld-
unnar var og bamahópurinn efni-
legi og stóri komst á legg.
Lífsbaráttan var á stundum erfið
og óblíð, lífsbjörgina þurfti oft langt
að sækja, flarri fjölskyldunni var
langtímum dvalizt til að sjá mætti
öllum farborða.
Enn býr erfíðisfólk á íslandi við
alltof langan starfsdag, stritið er
alltof víða áberandi, en örðugri um
flest vom þó þeir tímar, sem Þórar-
inn þurfti á öllu sínu þreki og þori
að halda, en lífsgæðin færri og fá-
breyttari og nægjusemi og nýtni
vom í heiðri höfð. Um það vom þau
hjónin samhent sem í öðru að bjarg-
ast sem bezt og skila bömunum
sínum heilum í framtíðarhöfn. Ég
heyrði aldrei víl eða vandræðahjal,
en ég hlýddi á heita hvatning um
að duga betur í baráttunni fyrir
betra og réttlátara samfélagi, þar
sem hlutaskiptin yrðu í samræmi
við álag og erfíði handar og huga,
þar sem réttur hvers einasta manns
væri virtur að verðleikum og verka-
launin réttlát og sönn umfram allt.
Þórarinn var maður mikillar rétt-
lætiskenndar og verkalýðshreyfíng-
in átti þar ötulan talsmann bættra
kjara og betra lífs. Félagshyggjan
var honum í blóð borin. Við áttum
þess vegna ágæta samleið og hollt
þótti mér að hlýða á ráð sem gagn-
rýni hins raunsanna alþýðumanns,
sem miðlað gat svo ríkulega af
reynslunnar bmnni. Tæpitungu tal-
aði hann enga, en grunnt var á
glettninni og oft erfítt að greina á
milli, hvenær alvaran var með í leik
eða gáskinn einn allsráðandi. En
þannig var Þórarinn, gleðin og al-
varan áttu þar sinn sess og
samastað og hvoru tveggja beitt
af ærinni list, því orðheppni var
einstök og honum gat sannarlega
hitnað í hamsi, ef veija þurfti að
sækja réttmætan málstað.
Ég var svo lánsamur að mega
hitta þau sómahjón fyrir skömmu
og gott var að finna gleðinnar
streng bærast enn í bijósti þeirra,
þrátt fyrir að þrekið hefði dvínað
og daprast. Enn leitaði hugurinn
heim, þar sem svo margar mætar
minningar hrönnuðust að. Hlýtt var
handtakið og bjart brosið og gott
er þess að minnast við leiðarlok.
Ég ætla mér ekki þá dul að rekja
æviferil Þórarins, þó af ýmsu væri
að taka.
Þórarinn var borinn og bam-
fæddur Reyðfirðingur, fæddur í
Bakkagerði. Foreldrar hans voru
hjónin Þuríður Ólafsdóttir frá
Stóru-Breiðavíkurhjáieigu í Helgu-
staðahreppi og Bjami Nikulásson
frá Teigagerði í Reyðarfirði, en þar
bjuggu þau hjón lengst, einstök
atorkuhjón. Ættfólk Þórarins er
æði margt austur þar, kjamafólk
dugnaðar og drengskapar.
A Reyðarfírði ólst hann upp,
ærið snemma var til verka haldið
og á Reyðarfirði átti hann lengstum
sinn starfsdag. Hann var verkfús
og verklaginn, yndi hans og ánægja
af skepnum var slík að án efa hefði
hann orðið hinn bezti bóndi. En það
var til sjávarins, sem hann sótti
lengst sína lífsbjörg mesta. Hann
var á síld á summm, landmaður á
vertíðum og alltaf sami áhlaupa-
maðurinn, sem vannst allt jafn vel.
Vegavinnu stundaði hann lengi og
raunar var þar gripið til hendi, þar
sem eitthvað var að hafa á þessum
tímum.
Það varð lífslán Þórarins hið
mesta að eignast slíkan lffsföm-
naut, sem Jónlína ívarsdóttir er,
hörkudugleg, glaðsinna með af-
brigðum, mikil móðir og húsmóðir.
Jónlína er frá Djúpavogi ættuð, þar
sem hún á margt ættmenna. Þau
Þórarinn gengu í hjónaband 28.
maí 1929. Fyrstu 10 búskaparárin
eða svo áttu þau heimili á Djúpa-
vogi, en síðan lá leiðin til Reyðar-
fjarðar, þar sem Teigagerðisklöpp
eða Klöpp varð heimili þeirra £dlt
þar til þau fluttu til Hafnarfjarðar
1972. Þar unnu þau hjá Bæjarút-j
gerð Hafnarfjarðar allt til sjötugs
og undu þar hag sínum vel.
Böm þeirra hjóna em: Bjami
kennari á Selfossi, _ Þóranna hús-
móðir í Kópavogi, Ásdís húsmóðir
í Kópavogi, Óskar verkstjóri á Seyð-
isfírði, Ivar vélvirki í Garðabæ,
Þórir húsasmiður í Hafnarfírði og
Valur bifreiðarstjóri á Fáskrúðs-
fírði. Fríður hópur og farsæll.
Það er ljóst, hvert hlutverk hús-
móður var á slíku heimili, erfiði
hennar og umönnun öll þó æmust,
þegar húsbóndinn dvaldist mánuð-
um saman fjarri til að sjá fjölskyld-
unni sem bezt farborða. En
samtaka unnu þau og allt fór á
bezta veg með atorkusemi og útrt -
sjónarsemi.
Þórarinn var mikill heimilismað-
ur, bamgóður með afbrigðum og
lék við böm sín sem jafningja,
þroskaði þau þannig og varð um
leið góður faðir og mikill vinur.
Þeir kostir lýsa eðlisfari hans allra
bezt.
Með Þórami Bjamasyni er horf-
inn heillavinur góður heiman að,
sem ævinlega var jafn ágætt að
hitta. Traustur og trúr liðsmaður
hins róttæka málstaðar réttlætis og
jafnaðar er horfínn úr okkar röðum,
Ég kveð hann með söknuði og þökkT
fyrir gömul og kær kynni. Kæmm
vinum mínum, ágætri konu hans,
bömum þeirra og aðstandendum
öðrum sendi ég einlægar samúðar-
kveðjur. Góðum dreng er helguð
góð minning.
Helgi Seljan