Morgunblaðið - 12.06.1987, Page 1
72 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
130. tbl. 75.árg. FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987 Prentsmiðja Morgrmblaðsins
Kosningarnar á Bretlandi:
Qrugmir signr Thatcher
Lundúnum, Reuter.
LJÓST var að Margaret Thatcher, leiðtogi breska íhaldsflokks-
ins, hafði unnið afdráttarlausan kosningasignr þegar Morgnn-
blaðið fór í prentun i nótt. Þetta er i fyrsta sinn á þessari
öld, sem sami stjórnmálaleiðtogi á Bretlandi situr þijú kjörtíma-
bil í röð sem forsætisráðherra. Þegar úrslit í 522 kjördæmum
voru ljós hafði íhaldsflokkurinn fengið 326 þingmenn kjörna,
Verkamannaflokkurinn 191, Bandalagið aðeins 12, en aðrir
þijá. Samkvæmt því hafa íhaldsmenn tapað >/2% frá í kosning-
unum 1983, Verkamannaflokkurinn unnið á 3'/2%, en Bandalag-
ið tapað 3%. í spám bresku sjónvarpsstöðvanna klukkan hálf
tvö í nótt kom fram að Ihaldsflokkurinn myndi vinna meira
en 100 sæta meirihluta, en í síðustu kosningum hafði hann 144
sæta meirihluta. „Ég er mjög ánægð með þær tölur sem ég
hef heyrt, en ég fagna ekki sigri fyrr en meirihlutinn er ljós,“
sagði Thatcher þegar þar var komið sögu.
í kosningaspám
Margaret
Thatcher.
var Thatcher spáð
mismiklum meiri-
hluta allt frá því
hún boðaði til
kosninga, en á
kjördag jókst bilið
á ný og þegar
fyrstu úrslit frá
Torbay í Devon
bárust var ljóst að
sigur Thatcher var
umtalsverður. „Hún á eftir að halda
um stjómartaumana í dágóðan tíma
í viðbót," var haft eftir Douglas
Hurd, innanríkisráðherra, en sjálf
sagði Thatcher í upphafi kosninga-
baráttunnar að hún gæti vel hugsað
sér að siija í embætti „langalengi
enn“.
Kjörstaðir vom opnaðir klukkan
sjö í gærmorgun og kusu um 76%
kjósenda að þessu sinni og var það
töluvert meira en búist var við.
Alls vom um 43,6 milljónir Breta
á kjörskrá, en kosið var um 650
þingsæti í neðri deild þingsins í jafn-
mörgum kjördæmum.
Þegar Neil Kinnock, hinn 45 ára
gamli leiðtogi Verkamannaflokks-
ins, kom á lqörstað í gærmorgun
stóð hann á því fastar en fótunum
að þegar úrslitin væm orðin ljós
yrði Thatcher „að flytja út í fyrra-
málið", og bætti því við að 11. júní
yrði síðasti dagur „thatcherism-
ans“.
Sigur Thatcher var því mikið
áfall fyrir Kinnock, en flokkurinn
lagði mest upp úr persónu hans í
kosningabaráttunni. „Ég held að
tapið megi relq'a til þess að staðan
var frá upphafí mjög erfíð,“ sagði
Bryan Gould, kosningastjóri Verka-
mannaflokksins, en breskir frétta-
skýrendur töldu að helst hefði riðið
baggamuninn vantraust bresks al-
mennings á flokkinn hvað varðar
vamarmál. Tillögur flokksins í þeim
efnum vom að gera landið kjam-
orkuvopnalaust.
Kosningabandalag jafnaðar-
manna og ftjálslyndra á einnig um
sárt að binda eftir kosningamar og
fór Bandalag jafnaðarmanna sér-
lega illa út úr kosningunum, því
þrír stofnenda þess, þau Shirley
Williams, Bill Rodgers og Roy Jenk-
ins, náðu ekki kjöri.
Upplýsingaþjónusta NATO
Það fór sýnílega vel á með þeim Matthíasi Á. Mathiesen, utanríkisráðherra íslands, og Sir Geoffrey
Howe, utanríkisráðherra Bretlands, þegar þeir biðu þess fyrir framan Höfða í bliðviðrinu i Reykjavík
í gær að tekin yrði hefðbundin mynd af ráðhemun NATO-ríkjanna. Fyrir aftan þá standa (t.v.) Vahit
Halefoglu, utanrikisráðherra Tyrklands, og (t.h.) Giulio Andreotti, utanrikisráðherra ítaliu.
Utanríkisráðherrar ríkja Atlantshafsbandaiagsins:
Uppræting Evrópuflaug-
anna staðfest í Reykjavík
Ágreiningnr um sérstakar viðræður um hefðbundinn herafla
Utanríkisráðherrar aðild-
arríkja Atlantshafsbandalagsins
náðu í gær munnlegu samkomu-
lagi um að veita Ronald Reagan
Bandaríkjaforseta vilyrði fyrir
þvi að halda áfram samningavið-
ræðum við Sovétmenn um að
uppræta meðaldrægar og skamm-
Noregnr:
Atlagan gegn stjóm-
inni rann út í sandinn
Ósló. Frá fréttarítara Morgunblaðsins, Jan Erík Laure.
Framfaraflokkurinn neitaði í
gærkvöldi að styðja væntanlega
vantrauststillögu á rikisstjórn
Verkamannaflokksins vegna til-
lagna stjómarinnar um lækkun
niðurgreiðslna og styrlqa til
bænda. Carl Hagen, formaður
Framf araflokksins, tilkynnti
þetta á fréttamannafundi i gær
og sagði bændastyrkina ganga
þvert á stefnu flokks síns.
„Verkamannaflokkurinn hefur
sýnt mikið pólitískt hugrekki með
tillögum sínum í landbúnaðarmálun-
um,“ sagði Hagen. Hann sagði
jafnframt að ríkisstjóm borgara-
flokkanna þriggja myndi fylgja
svipaðri stefnu og stjóm Brundt-
lands og væri því ekki raunverulegur
kostur gegn sitjandi stjóm.
Formaður Miðflokksins, Johan J.
Jakobsen, sló þvi föstu í gærkvöldi
að flokkur hans myndi gera land-
búnaðarmálin að úrslitaatriði en ekki
taka þátt í að fella stjómina. Það
er því ljóst að stjómin heldur velli.
drægar kjaraorkuflaugar í
Evrópu eða hina svokölluðu „tvö-
földu núlllausn". Háttsettur
ítalskur embættismaður sagði
blaðamönnum í fréttamiðstöðinni
í Hagaskóla að Reagan fengi eft-
ir Reykjavíkurfund ráðherranna
ákveðin skilaboð um að halda
áfram samningaviðræðum við
Sovétmenn.
Búist er við að formleg yfírlýsing
þess efnis verði gefin út að loknum
fundi ráðherranna í Reykjavík á
hádegi í dag. Helstu ágreiningsefnin
á fundinum varða yfirburði Sovét-
manna á sviði hefðbundins herafla
og hvort binda beri stuðning Atlants-
hafsbandalagsins við samkomulag
um eldflaugamar því skilyrði að
þegar í stað verði hafnar viðræður
um efnavopn, jafnvægi í hefðbundn-
um herafla, kjamorkuvopn á vígvöll-
um og helmingsfækkun langdrægra
flauga.
Fundur utanríkisráðherranna var
settur í Háskólabíói klukkan ellefu
í gærmorgun og fluttu Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra,
Matthías Á. Mathiesen utanríkisráð-
herra, Guilio Andreotti, heiðursfor-
seti Atlantshafsráðsins og utanríkis-
ráðherra Ítalíu, og Carrington
lávarður, framkvæmdastjóri Atl-
antshafsbandalagsins, ávörp.
Klukkan hálfþijú hófst lokaður
fundur utanríkisráðherranna og stóð
hann til klukkan sex. Skömmu áður
en fundinum lauk hélt Sir Geoffrey
Howe, utanríkisráðherra Bretlands,
af landi brott. Sagði hann við brott-
förina að samkomulag um uppræt-
ingu Evrópuflauganna væri innan
seilingar. Hins vegar lét hann að því
liggja að mistekist hefði að leysa
ágreining um það hvort Atlantshafs-
bandalagið ætti að eiga frumkvæði
að viðræðum austurs og vesturs um
niðurskurð hefðbundins herafla á
nýjum vettvangi.
Frakkar og Bandaríkjamenn hafa
deilt um hvemig taka beri á hefð-
bundna heraflanum. Frakkar óttast
að slíkar viðræður, sem flest aðild-
arríki NATO eru hlynnt, skerði
sjálfstæði þeirra á sviði vígbúnaðar-
mála. Vilja þeir að viðræður um
þessi mál verði einskorðaðar við
Ráðstefnuna um öryggi og samvinnu
í Evrópu (CSCE), sem haldin er inn-
an ramma Helsinki-sáttmálans.
Háttsettur aðstoðarmaður Hans-
Dietrich Genscher, utanríkisráð-
herra Vestur-Þýskalands, sagði
aftur á móti á lokuðum blaðamanna-
fundi í Hagaskóla eftir fund ráð-
herranna á Hótel Sögu, að í dag
yrði gengið frá formlegu slq'ali um
þessar nýju viðræður og myndu ráð-
herramir allir geta sætt sig við
orðalag þess.
Aðstoðarmaður Genschers sagði
að jafnframt samningaviðræðum um
Evrópuflaugamar yrðu þegar hafnar
viðraeður um helmingsfækkun lang-
drægra kjamorkuflauga, bann við
framleiðslu efnavopna, jafnvægi á
sviði hefðbundins herafla og fækkun
kjamorkuvopna á vígvöllum. Haft
er eftir áreiðanlegum heimildum að
Thorvald Stoltenberg, utanríkisráð-
herra Noregs, hafí tekið í sama
streng á fundi með norskum blaða-
mönnum.
Matthías Á. Mathiesen utanríkis-
ráðherra boðaði til fundar með
fslenskum blaðamönnum í Haga-
skóla til að greina frá fundi ráð-
herranna og einkaviðræðum sínum
við Genscher utanríkisráðherra.
Kvaðst Matthías einkum hafa rætt
við Genscher um hvalkjötsgámana,
sem kyrrsettir voru í Hamborg.
Fundi ráðherranna lýkur á hádegi
í dag og heldur Carrington lávarður
þá fund með blaðamönnum og grein-
ir frá niðurstöðum ráðherranna.
Sjá bls. 2, 3 og 22 og forystu-
grein og ræður frá setningarat-
höfn í gær á bls. 28 til 30.