Morgunblaðið - 12.06.1987, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 12.06.1987, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987 1 Carlzon bjartsýnn á sameiningu S AS og Sabena New York, Reuter. JAN Carlzon, forstjóri SAS- flugfélagsins, segist vera bjart- sýnn á sameiningu SAS og belgíska flugfélagsins Sabena. Hann sagði í samtali við Reuter að enn væru þó margar hindran- ir i veginum og samningur um sameininguna lægi ekki fyrir. Carlzon sagði samningaviðræður félaganna í fullum gangi og sagði að fulltrúar SAS myndu fljótlega gera formlega tillögu um samein- inguna og útfærslu hennar. Ríkis- stjómir Belgíu, Noregs, Danmerkur og Svíþjóðar þurfa að veita sam- þykki fyrir sameiningunni. Af sameiningu getur heldur ekki orðið án samþykkis Evrópubandalagsins. Stjómendur SAS hafa leitað eftir sameiningu félaganna til að vera betur í stakk búnir að mæta sam- keppni, sem búist er við á flugleið- um í Evrópu ef Evrópubandalagið eykur frelsi í flugmálum, eins og stefnt er að. „Ef við sætum aðgerð- arlausir yrði SAS að smáfélagi sem „mataði" stóru félögfin,“ sagði Carzlon. Auk sameiningar SAS og Sabena kveðst Carlzon búast við frekari sameiningu flugfélaga í Evrópu. Þau eigi ekki annarra kosta völ ef samkeppni í fluginu verður gefín fijáls. Ellegar biðu þau ósigur í harðri samkeppni frá bandarískum og asískum flugfélögum. Að sögn Carlzon hefur ákvörðun SAS um hugsanleg kaup á hinni nýju langdrægu breiðþotu McDonn- ell Douglas, MD-11, verið frestað til haustsins. Fyrr á árinu lét SAS taka frá fyrir sig númer í fram- leiðsluröðinni fyrir 12 flugvélar. Félagið hefur ekki gert upp við sig hvort það kaupir MD-11 eða A-340 þotu Airbus-fyrirtækisins. Á myndinni gefur að lfta hóp flóttamanna, sem bjargað var um borð í kaupskip og komust til Bangkok. Stöðugur flóttamanna- straumur frá Víetnam ERLENT Reuter, Bangkok. ENN er stöðugur straumur flóttamanna frá Víetnam, tólf árum eftir að stríðinu þar lauk. Flóttafólkið notar báta sem yfir- leitt eru hvorki vandaðir né öruggir. Margir hafa drukknað eða dáið vegna vatnsskorts og alltaf má eiga von á árás sjóræningja. Flóttinn er þó ekki eins hættumikill núna og áður var enda hefur nokkurrar aukningar í fjölda flóttamanna orð- ið vart. Þeir sem ná landi í Asíulönd- unum í kring verða varir við að þeir eru ekki mjög velkomnir. Þeir fá aðeins tímabundið hæli í flótta- Sovétríkin: Útlendingar með al- næmi reknir úr landi mannabúðum. Vestræn lönd eru heidur ekki eins fús og áður að taka við þessum flóttamönnum sem þeir líta fremur á sem efnahagslega en pólitíska flóttamenn. Mörg Asíu- landanna ætla að loka sumum flóttamannabúðum sínum til að benda Víetnömum á að þangað geti þeir ekki leitað lengur. Einnig hóta þau að flytja flóttamennina aftur til föðurlands síns, ef vestur- lönd taka ekki við þeim. Flestir flóttamannanna segjast vera að flýja kommúnistastjómina í Víetnam sem þeir vantreysta og óttast. í landinu er mikil verðbólga og vöruskortur. Thailand er algengasti viðkomu- staður flóttamannanna, en yfirvöld þar hafa veitt meira en milljón flóttamönnum frá Indókína hæli og geta nú ekki tekið við fleiri nema þeir sem fyrir eru fari til vestur- landa. En yfírvöld ráða ekki við um- fangsmikið smygl með skipum sem sigla á milli landanna. Farið er með mótorhjól og matvörur til Víetnam og Kampútseu og komið til baka með flóttamenn sem borga 15-20 þúsund krónur fyrir ferðina. Nú þegar flóttamannastraumur- inn eykst til landanna í kring um Víetnam minnkar hann til landa eins og Hong Kong, Japan og Indó- nesíu. Flóttamenn eru famir að rata á þá staði sem þeir vita að veita þeim góðar móttökur. Moskvu, Reuter. Sovétmenn hafa rekið úr landi 30 útlendinga sem leituðu lækn- inga þar í landi vegna alnæmis, að sögn Valentins Pokrovsky, helzta sérfræðings Sovétmanna í ónæmisfræði. Pokrovsky ijáði 7ASS-fréttastof- unni að nú væru aðeins sjö alnæmissjúklingar á sovézkum sjúkrahúsum, þar af einn Sovét- maður. Hann er 36 ára gamall og er sagður hafa smitað 14 útlend- inga. Þeir hafa verið látnir yfirgefa Sovétríkin. „Þijátíu útlendingar sem leituðu sér iækninga hafa verið reknir heim. Hinir sex munu einnig verða látnir fara þegar meðferð er lokið,'* Óeirðir á tónleik- umhjá Bowie Reuter, MÍIanó. TBL ATAKA kom á milli lög- reglu og aðdáenda David Bowie en hann er nú í hljóm- leikaferð á Ítalíu. Aðrir tónleikar hans í þessari ferð voru haldnirá fótboltaleik- vangi í Mflanó á miðvikudags- kvöld. 65 þúsund manns sóttu hljómleikana og komust færri að en vildu. 5 þúsund manns fylgdust með sjónvarpsskjá sem komið var upp fyrir utan. ólæti hófust þegar hópur þeirra tók að skjóta flugeldum og henda David Bowie brotnum flöskum og gijóti yfir á leikvanginn. Lögreglan skarst fljótt í leikinn. 30 slösuðust en meiðsli voru ekki alvarleg. sagði Pokrovsky. Gefið hefur verið til kynna í sovézkum fjölmiðlum að alnæmis- sjúklingar í Sovétríkjunum væru útlendir námsmenn. Yfírvöld hafa ákveðið að sækja þá til saka sem uppvísir verða að því að smita aðra. Hingað til hafa þrír menn dáið úr alnæmi í Sovétríkjunum, að sögn yfirvalda. Um 50 þúsund manns hafa farið í svokallað alnæmispróf í Moskvu. Valda kanarífuglar lungnakrabbameini? Wassenar, Reuter. FÓLKI, sem heldur fugla í búri sér til yndisauka, virðist hætt- ara.við að fá lungnakrabba en öðru fólki að sögn hollensks læknis í gær. Peter Holst læknir sagði frétta- mönnum að rannsóknir hans sýndu að tíðni lungnakrabba væri átta sinnum meiri hjá fuglaeig- endum en öðrum. Fugiahald er mjög vinsælt í Hollandi, Belgíu og Bretlandi og krabbamein er útbreiddara í þessum iöndum en annars staðar í heiminum. Holst bætti við að í Hollandi væri mest um lungnakrabba á þeim svæðum þar sem fuglahald væri vinsælast. Deiiur Breta og írana: íranir vísa fjórum bresk- um sendimönnum úr landi London, Reuter. ÍRANSKA stjómin vísaði í gær fjórum breskum sendimönnum úr landi. Verða þá aðeins tíu breskir sendimenn eftir í landinu, þar af einn i frii utan írans. Enn eru 18 manns í írönsku sendisveitinni i Bretlandi en í fyrradag skipaði breska stjómin þó klerkastjórninni i Tekheran að fækka um tvo. Tveggja vikna langar deilur ríkjanna virðast fara harðnandi. Bretar lokuðu sendiráði sínu í íran árið 1979 eftir að byltingar- verðir hertóku bandaríska sendiráð- ið í Teheran. Hafa breskir sendimenn síðan haft aðsetur í sænska sendiráðinu í Teheran. Ríkin hafa undanfamar vikur skipst á að vísa burt sendimönnum en upphaf núverandi deilna var handtaka starfsmanns írönsku ræð- ismannsskrifstofunnar í Manchest- er þar sem hann var ásakaður um búðahnupl. Skömmu síðar rændu íranskir byltingarliðar breska sendi- manninum Edward Chaplin í Teheran og börðu hann. Klerka- stjómin baðst ekki afsökunar á athæfinu. Talsmaður breska utanríkisráðu- neytisins segir að markmið Breta sé ekki áframhaldandi deilur en þeir vilji að fjöldi sendimanna í hvoru ríki sé svipaður. í framhaldi af því verði síðan reynt að bæta samskipti ríkjanna til frambúðar. Talsmaðurinn harmaði síðustu aðgerðir íranskra yfirvalda. og sagði þær óafsakanlegar. Bretar hafa nú alls vísað sjö írön- um burt frá Bretlandi en íranar hins vegar 10 Bretum frá íran. Franska stjómin vísaði nýlega úr landi átta írönskum stúdentum að sögn írönsku fréttastofunnar IRNA. Var því borið við að menn- imir væm hættulegir öryggi Frakklands. Frönsk yfírvöld segja að stúdentamir hafí verið tveir og báðir í tengslum við hryðjuverkahóp frá Miðausturlöndum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.