Morgunblaðið - 12.06.1987, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 12.06.1987, Blaðsíða 25
25 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987 Vestur-Þjóð- verjar mót- mæla ítrekað Reuter. VESTUR-þýska stjórnin hefur ítrekað mótmæli sin út af máli þriggja vestur-þýskra blaða- manna sem voru barðir i Austur- Berlín á sunnudagskvöld. Tveir fréttamenn og kvikmynda- tökumaður frá vestur-þýskri sjón- varpsstöð sáu þúsundir ungmenna í átökum við lögreglu. Þetta var þriðja kvöldið í röð sem ungmennunum var bannað að koma nálægt Berlínarm- úmum. Hinum megin við hann voru breskar hljómsveitir með rokktón- leika og vildu austur-þýsku ungling- amir hlusta á þær. Þegar Vestur-Þjóðveijamir vildu kvikmynda atburðina vom þeir barð- ir af austur-þýskum öiyggisvörðum. Yfirvöld í Austur-Þýskalandi vilja ekki kannast við að atburðurinn hafi átt sér stað. RAÐHERRARNIR A TROPPUM HÓFÐA Á fundi sem þeim, sem nú er haldinn hér á landi, er venjan að taka svokallaða „fjölskyldumynd“. Að ósk ráðherranna fór hún nú fram á tröppum Höfða, vettvangs leiðtogafundar Ronalds Reagan og Mikhails Gorbachev í október á síðasta ári. í efstu röð frá vinstri eru: Karolus Papoulias, Grikklandi, Jacqu- es F. Poos, Lúxemborg, Hans _ van der Broek, Hollandi, og Thorvald Stoltenberg, Noregi. í næstu röð eru Jean-Bemard Raimond, Frakklandi, Hans-Dietrich Genscher, Þýskalandi, Pires de Miranda, Portúgal, og Francisco Fernández Ordónez, Spáni. í þriðju röð em Joe Clark, Kanada, Uffe Ulleman-Jensen, Dan- mörku, Vahit Halefoglu, Tyrklandi, og Sir Geoffrey Howe, Bretlandi. í neðstu röð era þeir Leo Tindemans, Belgíu, Matthías Á. Mathiesen, Carrington lávarður, framkvæmdastjóri Atlants- hafsbandalagsins, Giulio Andreotti utanríkisráðherra ítaliu og heiðursforseti Atlantshafsráðsins, og George Shultz, Bandarílq’un- um. Spánn: Sósíalistaflokkur Gonsalez tapar umtalsverðu fylgi Madríd, Rcuter. Sósíalistaflokkur Felipe Gonzales forsætisráðherra tapaði nokkra fylgi 1 kosningura til Evrópuþingsins og bæjar- og svæðastjórna, sem fram fóru á Spáni i gær. Tap flokksins nemur um fimm prósentum og er róttækum sparnaða- raðgerðum stjóraarinnar einkum kennt um. Japan: Jesúíta- presti hót- að brott- vísun Tokyo, Reuter. KAÞÓLSKUR prestur, sem neitar að láta fingraför sin yfirvöldum í té, verður rekinn úr landi i Jap- an ef hann skiptir ekki um skoðun i síðasta lagi á sunnudag að sögn embættismanns þjá innflytjenda- yfirvöldum. Presturinn og um eitt þúsund aðrir útlendingar i Japan telja að ný lög um skyldu útlend- inga tíl láta skrá fingraför sin mismuni fólki. Vincente Bonet hefur verið pró- fessor við Sophia-háskólann í Tokyo undanfarin 26 ár. Hann talar reip- rennandi japönsku og segist hafa verið svo lengi í landinu að hann geti ekki sest að annars staðar. Ef yfirvöld láta til skarar skríða hyggst hann fleygja vegabréfi sínu og fá þar með stöðu flóttamanns. Talið er að lögunum sé einkum beint að um 650 þúsund Kóreubúum búsettum í Japan en margir þeirra eru fæddir í Japan. Umsókn Bonets um þriggja ára framlengingu á dvalarleyfi var hafn- að í mars síðastliðnum. Hann fékk leyfi til aðeins þriggja mánaða. Tadamasa Kuroki, embættismað- ur innflytjendayfirvalda, sagði að ef Bonet léti ekki undan fengi hann sömu meðhöndlun og þær erlendu konur af Asíukyni, sem ólöglega haifa gerst vændiskonur í Japan, svo- kallaðar japayuki-san“, enda þótt starf hans væri óneitanlega annars eðlis. í Kabúl skutu afganskir skæru- liðar niður farþegaflugvél í Suður-Afganistan i gærmorgun. Með vélinni fórust 53 manns, en tveir komust sárir af. Var hermt að vélinni hefði veríð grandað með bandarísku Stinger-flug- skeyti. Flugvélin sem um ræðir var í Þetta er í fyrsta sinn síðan 1982, er sósíalistar komust til valda, sem fylgi þeirra fer undir 40%, úr 42,7% í 37,2%. Talsmaður stjórnarinnar, Javier Solana, sagði að þrátt fyrir fylgis- tapið myndi stjórn sósíalista halda áfram að stemma stigu við launa- hækkunum og fækka störfum í hnignandi iðngreinum. Fylgistap stjómarflokksins væri svo óverulegt, að hann hefði tvímælalaust fullt umboð til þess að standa áfram fast á stefnu sinni í efnahagsmálum, sem miðaði að því að gera Spán sam- innlendu farþegaflugi frá suður- héraðinu Zabul á leið til Kabúl, höfuðborgar landsins, þegar skæru- liðar skutu hana niður, ef marka má frásögn útvarpsins, sem vitnaði í Bakhtar, hina opinberu fréttastofu landsins, en aðrar heimildir eru ekki fyrir atburðinum. Yfírvöld í Kabúl hafa tvisvar á árinu skýrt frá því að farþegavélar keppnishæfan við önnur Evrópuríki á sviði efnahagsmála í kjölfar inn- göngu Spánveija í Evrópubandalag- ið á síðasta ári. Solana útilokaði einnig uppstokkun á ráðherraliði stjómarinnar í kjölfar atkvæðataps- ins. Heimildarmenn úr efnahagslífínu telja þó miklar deilur um efnahags- stefnuna í uppsiglingu innan sósíal- istaflokksins og að efnahagsráð- herra stjómarinnar, Carlos Solchaga, muni liggja undir þrýst- ingi að segja af sér. Stjómmálaskýr- endur telja kosningaúrslitin hafi verið skotnar niður. í febrúar tilkynntu þau að skæmliðar hefðu skotið niður vél með 36 borgurum innanborðs og síðla í mars sögðu þau pakistanskar herflugvélar hafa ráðist á vél með 40 farþegum í. Pakistanski flugherinn sagði hins vegar að hann hefði skotið niður afganska herflugvél, sem rofið hefði pakistanska lofthelgi. Árið 1985 létust 52 farþegar með flugvél, sem skæmliðar skutu niður í Farah. ábendingu til stjómarinnar að taka upp viðræður við stjómarandstöð- una. Sósíalistar hlutu aðeins 28 sæti af þeim 60, sem Spánveijum er út- hlutað á Evrópuþinginu, en þeir höfðu vonast til að fá að minnsta kosti 30 sæti. Enginn af stjómarand- stöðuflokkunum vann þó umtals- verðan sigur í kosningunum. Helsti keppinautur sósíalistaflokksins, hin hægrisinnaða Alþýðufylking, undir forystu Antonios Hemandez Manc- ha, vann aðeins 17 sæti á Evrópu- þinginu og innan við fjórðung atkvæða. Sósíalistaflokkurinn er því enn langstærstur spænskra stjóm- málaflokka þrátt fyrir fylgistapið. Flokkurinn tapaði meirihluta sínum í borgarstjómum fjögurra stærstu borga Spánar, þar á meðal f Sevilla, heimaborg Gonzalezar. Flokkurinn hlaut nauman meirihluta í Barcelona, þrátt fyrir að hafa valið borgina sem mótsstað næstu Ólympíuleika. Einnig féll meirihluti flokksins á sex svæðisþingum. Leiðtogum stjómarandstöðunnar hefur hlaupið kapp í kinn eftir kosn- ingamar. Adolfo Soarez, fyirum forsætisráðherra og formaður Mið- flokkabandalagsins, telur sig eiga góða möguleika á að komast aftur til valda í þingkosningunum árið 1990. Miðflokkabandalagið styrkti mjög stöðu sína gagnvart sósíalist- um í mörgum bæjar- og svæða- stjómum. Mancha, hinn 35 áragamli leiðtogi Alþýðufylkingarinnar, sagði að árangur flokksins í þessari fyrstu kosningabaráttu, sem hann leiðir, gæfi góðar vonir um velgengni í þingkosningunum eftir 3 ár. Flokkur aðskilnaðarsinnaðra Baska, Harri Batasuna, náði einu Evrópuþingsæti og hlaut umtalsvert fylgi í kosningum til borgarstjóraar í San Sebastian. Gengi gjaldmiðla London, Reuter. BANDARÍKJADALUR var stöð- ugur í gær þar eð menn biðu eftir nýjum tölum um verslunaijöfnuð Bandaríkjanna en þær era vænt- anlegar í dag. Fréttir í gær hermdu að vöruskiptahagnaður Japana færí minnkandi og vonuðu fjárfestingaraðilar að þetta end- urspeglaðist i minnkandi halla Randarfhjamannn. Verðbréfasalar í Bretlandi töldu góðar líkur á sigri íhaldsflokksins í þingkosningunum og var verð hluta- bréfa því himinhátt. Menn voru þó viðbúnir öllu og hugðust vaka fram í rauðan dauðann til að geta selt í flýti ef Thatcher missti meirihlutann. í Wall Street í New York var lítið um verðbreytingar á hlutabréfum þar sem menn biðu frétta af ákvörð- unum Feneyjafundar leiðtoga helstu iðnríkja heims. í gær kostaði sterlingspundið 1.6603 dali í London en að öðru leyti var gengi helstu gjaldmiðla sem hér segir: Bandaríkjadalur kostaði: 1.3415 kanadíska dali, 1.7960 vestur-þýsk mörk, 2.0235 hollensk gyllini, 1.4865 svissneska franka, 37.23 belgíska franka, 6.0030 franska franka, 1302 ítalskar lírur, 142.80 japönsk jen, 6.2675 sænskar krónur, 6.6700 norskar krónur, 6.7575 danskar krónur. Stjórnarútvarpið í Kabúl: Skæruliðar skj óta niður 55 manna farþegaflugvél Fimmtíu og þrír farþega sagðir látnir blamabad, Reuter. SAMKVÆMT stjórnarútvarpinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.