Morgunblaðið - 12.06.1987, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987
Dómnefnd um veitingn
lektorsstöðu óbreytt
Jónatan Þórmundsson prófessor skip-
aður fulltrúi rektors í nefndinni
REKTOR Háskóla íslands hefur skipað Jónatan Þórmunds-
son, prófessor í lagadeild, fulltrúa sinn í dómnefnd sem fjalla
á um veitingn lektorsstöðu í félagsvísindadeild. Ákveðið var
á fundi félagsvísindadeildar í gær að dómnefndin yrði að
öðru leyti óbreytt. Hana skipa Gunnar Gunnarsson, Ólafur
Ragnar Grímsson og Svanur Kristjánsson.
Hlekktist á í
lendingu á
Hvolsvelli
LÍTILLI einkaflugvél hlekktist á
við lendingu á flugvellinum á Hvol-
svelli síðdegis í gær. Farþegi í
vélinni slasaðist talsvert í andliti
að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli
og var fluttur i Borgarspítalann.
Það var um kl. 16.45 að TF-SIR,
einshreyfils flugvél af gerðinni Piper
Cherokee 140, hlekktist á í lendingu
á grasflugvellinum á Hvolsvelli.
Menn, sem voru við vinnu í um
1,5 km fjarlægð, urðu vitni að slysinu
og fóru strax á slysstað og tilkynntu
það síðan lögreglunni. Farþegi vélar-
innar fékk aðhlynningu hjá héraðs-
lækni, en var síðan fluttur í
Borgarspítalann í Reykjavík. Eigandi
og flugmaður vélarinnar hlaut aðeins
skrámur og glóðarauga. Vélin er
mikið skemmd og óvíst er hvort unnt
verður að gera við hana.
„Eftir að ég hafði lent vélinni,
steytti nefhjólið á ójöfnu og brotnaði
undan," sagði Guðfinnur Guðmanns-
son, eigandi og flugmaður TF-SIR, í
samtali við Morgunblaðið. „Ég hélt
vélinni áfram uppi, en eftir að hrað-
inn minnkaði skall vélin niður."
Guðfinnur taldi að völlurinn væri á
Morgunblaðið/Júlíus
Guðfinnur Guðmannsson
mörkum þess að vera boðlegur, vegna
þess hve ójafn hann væri.
Að sögn Guðfinns höfðu þeir verið
að taka myndir af þorpinu og var
þetta annað flug þeirra þann daginn.
„Það er auðvitað hörmulegt að
farþegi minn skyldi slasast, en það
er hins vegar ljóst, að ef við hefðum
haft þriggja punkta öryggisbelti hefð-
um við gengið heilir út og óskaddaðir.
Ég mun því ekki fljúga með öðru
vísi belti framar," sagði Guðfinnur
að lokum. Þriggja punkta öryggis-
belti nær bæði yfir axlir og mitti, en
ekki aðeins um mitti.
Jón Steinar Gunnlaugsson lög-
maður Hannesar Hólmsteins
Gissurarsonar, eins umsækjenda
um lektorsstöðuna, ritaði Þórólfi
Þórlindssyni, forseta félagsvísinda-
deildar, bréf í lok maí þar sem hann
segir dómnefndina ónauðsynlega
og leggur til að hún verði lögð nið-
ur. I bréfinu koma líka fram
efasemdir hans um hæfni dóm-
nefndarmanna til að dæma Hannes
Hólmstein réttilega.
„Við ræddum um þessa megin-
kröfu Jóns Steinars á fundinum og
það var ákveðið að láta dómnefnd-
ina standa óbreytta," sagði Þórólfur
Þórlindsson í samtali við Morgun-
blaðið. „Við viljum hafa dómnefnd
eins og við höfum alltaf gert og
gefum okkur að hún sé vel skipuð.
Félagsvísindadeild fór fram á að
rektor skipaði fulltrúa sinn í dóm-
nefndina og fögnum við því að það
hefur verið gert.
Félagsvísindadeild hefur fyrir
nokkru sett fram skráðar reglur um
störf dómnefndarmanna. Ég bind
vonir við að þær leiði til þess að
dómnefndarstörfín verði markviss-
ari, en þau verða alltaf matsatriði.
Það hlýtur að vera kostur fyrir
dómnefndarmenn og umsækjendur
að ákveðnar reglur séu fyrir hendi
um hvað eigi að meta og hvemig."
Dómnefndin var skipuð á fundi
félagsvísindadeildar í lok apríl. Þá
var dómnefndinni heimilað að leita
umsagnar hjá erlendum fræði-
mönnum um hæfni umsækjenda.
Þórólfur sagði að þetta væri þó
aðeins hægt að gera vissu marki
því verk umsækjenda eru mörg á
íslensku. „Helst hefðum við viljað
að erlendur maður sæti í dómnefnd-
inni, en við fundum engan sem var
læs á íslensku," sagði hann.
Gert er ráð fyrir að niðurstaða
dómnefndarinnar liggi fyrir í sept-
ember.
UTANRÍKISRÁÐHERRAFUNDUR ATLANTSHAFSBANDALAGSINSIREYKJAVIK
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Eins og venja er á fundum af þessu tagi sáu gestgjafamir um dag-
skrá fyrir maka fundargesta. Hópmynd eiginkvenna utanrikisráð-
herranna, sendiherra hjá NATO i Brussel og háttsettra embættis-
manna var tekin á tröppum Höfða, móttökuhúss borgarstjómar. í
fremstu röð má sjá meðal annarra Katrínu Fjeldsted; borgarfull-
trúa, og Sigríði Þ. Mathiesen, eiginkonu Matthiasar A. Mathiesen
utanríkisráðherra, sem sáu um móttökuna.
Eiginkonur utanríkisráðherranna:
Tískusýning og
skoðunarferð
EIGINKONUR utanríkisráðherra NATO og sendiherra
rikjanna sextán í Brussel þáðu hádegisverð i boði frú Sig-
rúnar Þ. Mathiesen á Hótel Borg í gær. Að þvi búnu fór
hópurinn í skoðunarferð um borgina. Um kaffileytið tók
Katrín Fjeldsted borgarfulltrúi á móti konunum í Höfða.
í hádegisverðarboðinu fór fram argestum gefíst þó lítill tfmi til
tískusýning á íslenskum ullarvörum innkaupa í höfuðborginni þar sem
frá Rammagerðinni og íslenskum dagskráin er fullskipuð og flestir
heimilisiðnaði, auk skartgripa frá gestanna fara frá landinu eftir há-
Jens gullsmið. Hætt er við að fund- degi í dag.
Matthías Á. Mathiesen á fundi með íslenskum fréttamönnum:
Ræddi lyktír hvalkjöts-
málsins við Genscher
Varðist frétta af ráðherrafundinum
MATTHÍAS Á. Mathiesen utanríkisráðherra átti síðdegis í
gær fund með íslenskum fréttamönnum í Hagaskóla þar
sem hann skýrði frá viðræðum ráðherra Atlantshafsbanda-
lagsins og einkafundum sínum með erlendum ráðamönnum.
Matthías sagði lokaðan fund ráð-
herranna hafa hafist klukkan hálf
þrjú og hefði hann staðið fram til
klukkan sex. Kvað hann ályktanir
hafa verið lagðar fram en vildi ekki
láta uppi hvort sameiginleg afstaða
rikja Átlantshafsbandalagsins varð-
andi viðræður stórveldanna um
upprætingu Evrópuflauganna hefði
verið mótuð. Kvaðst hann ekki geta
látið það uppi fyrr en í lok fundar-
ins á hádegi í dag. Ráðherramir
munu halda áfram viðræðum fyrir
hádegi en fundinum lýkur klukkan
tólf og hefst þá fréttamannafundur
Carringtons lávarðar, fram-
kvæmdastjóra NATO, í Há-
skólabíói. Matthías vildi ekki láta
uppi hvort ágreiningur væri um
orðalag lokaályktunar fundarins.
Aðspurður um hvort ráðherramir
myndu ná samkomulagi um orðalag
hennar kvaðst Matthías vera bjart-
sýnn.
Hann vildi á hinn bóginn ekki
segja hvort ráðherramir myndu
binda stuðning sinn við upprætingu
Evrópuflauganna þeim skilyrðum
að stórveldin semdu jafnframt um
bann við framleiðslu efnavopna,
helmingsfækkun langdrægra kjam-
orkuflauga og niðurskurð hefð-
bundins herafla.
Matthías sagðist hafa átt fund
með Hans-Dietrich Genscher, ut-
anríkisráðherra Vestur-Þýska-
lands, strax eftir að lokuðum fundi
ráðherranna lauk síðdegis í gær.
Kvaðst hann hafa látið I ljós
óánægju íslenskra stjómvalda varð-
andi lyktir „hvalkjötsmálsins".
Sagði hann Genscher hafa skýrt
afstöðu sína og hefði hann verið
bundinn af lögum sem tekið hefðu
gildi um síðustu áramót. Hefðu yfir-
völd í Hamborg farið eftir þessum
lögum þegar hvalkjötið var kyrrsett
þar. Matthías kvaðst hafa sent
Genscher bréf og lýst yfir óánægju
sinni með að hvalkjötið skyldi hafa
verið kyrrsett. Genscher hefði leyst
málið á þann hátt að senda kjötið
aftur til íslands. Kvaðst Matthías
hafa greint þýska utanríkisráð-
herranum frá því í gær að íslensk
stjómvöld væm ekki ánægð með
þær málalyktir. íslendingar ættu
heimtingu á því að mark yrði tekið
á skjalfestri yfírlýsingu stjómvalda
um að kjötið væri ekki af hvölum,
sem væru í útrýmingarhættu. Kvað
Matthías Genscher hafa svarað því
til að ekki hefðu verið aðrir mögu-
leikar til að leysa þetta mál.
Matthías sagðist ætla að ræða
við George Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, fyrir hádegi
í dag og yrðu hvalveiðar íslendinga
þar efst á baugi. Ekki fékkst ná-
kvæm tímasetning fundar þeirra.
Fréttamenn á
fjórða hundrað
RÚMLEGA 330 frétta- og tæknimenn höfðu skráð sig
í fréttamannamiðstöðinni í Hagaskóla í gær. Af þeim
voru um fimmtíu íslendingar. Þetta mun vera áþekk
tala og á öðrum fundum utanríkisráðherranna að sögn
starfsmanna fréttaþjónustu Atlantshafsbandalagsins.
Stærstu hópamir komu frá
Þýskalandi, Bandarflq'unum og
Ítalíu. Fjölmiðlar í öllum NATO
ríkjunum eiga fulltrúa en auk
þess eru hér staddir fréttamenn
frá Kína, Japan, Sovétríkjunum,
Ungveijalandi og Sviss.
Um 15 sjónvarpsstöðvar nýta
sér aðstöðu til beinna sjónvarps-
útsendinga frá Hagaskóla og
voru tæknimenn Ríkisútvarpsins
önnum kafnir við að miðla efni
um gervihnetti um allan heim í
gær. Kvikmyndatökumenn frá
fréttastofum Visnews, Video-
pool og Cable News Network
voru að störfum fyrir þær sjón-
varpsstöðvar sem ekki senda
menn hingað til þess að ijalla
um fundinn.