Morgunblaðið - 12.06.1987, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987
„Ekkert getur ógnað sameinmg-
arafli Israela á örlagastundu“
Spjallað við nýjan sendiherra ísraels Yehiel Yativ
Morgunblaðið/RAX
MÉR leikur mikill hugur á að
ýta undir og efla samvinnu ís-
lands og ísraels, ekki hvað sízt
á sviði menningarmála. Þar er
mikill akur óplægður. Stefnt
er nú að þvi að halda í
Reykjavík ísraelska viku í nóv-
embermánuði, sem gæti orðið
vænleg byrjun á samstarfi og
samskiptum. Eins og ég vona
að þeir íslendingar hafi fundið,
sem hafa farið til ísraels, er
þar mikill vinarhugur i garð
Islendinga og þótt þjóðimar
búi fjarri hvor annarri, er vel-
vildin á báða bóga. Áður fyrr
keyptum við töluvert af fiski
af ykkur. Nú, en svo lærðum
við að veiða sjálfir, svo að þau
kaup hafa dregizt saman. En
á viðskiptasviðinu em þó
möguleikar. Og vonandi skýr-
ist þetta allt með þessari
ísraelsku kynningarviku, sem
ég var að tala um.
Þetta sagði Yehiel Yativ, ný-
skipaður sendiherra ísraels á
íslandi með aðsetri í Osló. Hann
var hér nokkra sólskinsdaga í
síðustu viku og sagðist vera mjög
ánægður með þessa heimsókn.
Hann hitti ýmsa ráðamenn að
máli og skoðaði sig ögn um, utan
Reylqavíkur.„Kannski veðrið hafi
nú samt komið mér þægilegast á
óvart," sagði hann brosandi.„Ég
talaði við Osló, þegar ég hafði
verið hér nokkra daga og var
sagt, að J)ar væri næðingur og
rigning. Eg benti þeim á þá sem
langaði að komast í sóljna skyldu
þeir bara bregða sér til íslands."
Yativ sendiherra hefur einu
sinni áður komið til íslands. Hann
hefur unnið um alllanga hríð í
Yehiel Yativ, sendiherra ísraels.
utanríkisþjónustu lands síns og í
sendiherratíð Davids Rivlins, sem
eignaðist marga vini og kunn-
ingja hér á landi, var Yativ
sendiráðsritari í Osló. Hann er
fæddur í Jerúsalem og sama gild-
ir um foreldra hans, og foreldra
þeirra. Yativ var nánasti sam-
starfsmaður Davids Kimche,
þegar unnið var að gerð friðar-
samnings við Líbanon 1982-83.
Hann sagði að það starf hefði
verið mjög krefjandi, en hann
væri sannfærður um að margt
horfði öðruvísi við í Miðaustur-
löndum, ef samningurinn sem
náðizt að lokum hefði ekki farið
fyrir lítið og reynzt sorglega
skammvinnur.
Aðspurður um þann skoðana-
mun, sem væri innan ísraelsku
ríkisstjórnarinnar nú, varðandi
alþjóðlega friðarráðstefnu um
málefni Miðausturlanda, sagði
Yativ, að sér virtist ekki laust
við, að stundum væri farið fijáls-
lega með, þegar skrifað væri um
þetta. Augljóst væri að ísraelar
vildu frið og það væri spuming,
eins og alltaf hvemig ætti að
standa að málunum. Engin fyrir-
staða virtist nú af hálfu Jórdana
um að ganga til samningavið-
ræðna og því ætti að sínum dómi
að notfæra sér þann byr. Beinar
viðræður við Jórdani hlytu að
vera rökréttar, eins og málum
væri skipað nú. Hins vegar væri
út af fyrir sig ekkert sem mælti
gegn því að Bandaríkin hefðu
einhvers konar aðild að slíkri ráð-
stefnu; þannig hefði verið staðið
að varðandi samningana við
Egypta á sínum tíma og reynzt
vel.
Um aðild Palestínumanna
sagði Yativ, að það væri rangt,
að ísraelar vildu ekki tala við
fulltrúa þeirra. En sú afstaða
hefði ekki breytzt að þeir vildu
ekki tala við hryðjuverkamenn
PLO. Hafa mætti f huga nú, að
þjóðarráð PLO hefði haldið fund
sinn nýlega í Algeirsborg. Þar
hefði verið reynt að láta líta svo
út fyrir, að einhugur andans ríkti.
Á það bæri að líta að á þessum
fundi hefðu runnið aftur inn í PLO
tvenn samtök, mjög róttæk og
ekki beinlínis samstarfsfús. Fár-
ánlegt væri að ætlast til þess af
ísraelum að þeir gætu sætt sig
við að setjast til borðs með fulltrú-
um þessara aðila, eins og nú
væri í pottinn búið.Hann sagði
ísraela gera sér mætavel grein
fyrir þeim stuðningi sem PLO
nyti á svokölluðum herteknu
svæðunum á Vesturbakkanum,
en það væri Ifka opinbert leyndar-
mál að íbúar sættu hótunum og
ógnunum af hálfu PLO, ef þeir
létu ekki í veðri vaka að þeir
væru hlynntir þeim.
Hins vegar væri deginum ljós-
ara að það þyrfti að fínna lausn
á sambúðarmálunum og það yrði
ekki gert með ógnunum eða ill-
yrðum, heldur með fijálsum
samningum þar sem hver hefði
jafnan rétt.
Undanfarið hefur oft verið tal-
að um í greinum og fréttaskýring-
um um Israel og ísraelsk málefni,
að illvígar deilur hinna ýmissu
trúardeilda gyðinga væru ekki
minni ógnun við Ísraelsríki en
deilur við araba. Ég spurði Yativ
sendiherra um þetta. Hann sagði
það rétt vera, að á seinni árum
hefðu ítök strangtrúaðra eflzt og
það væru ekki allir sáttir við þá
þróun. Hún skerpti andstæðumar
milli gyðinga innbyrðis, en of
mikið væri að tala um þetta sem
ógnun. „Ekkert getur ógnað þjóð-
emiskennd og sameiningarafli
ísraela, ef á reynir," sagði sendi-
herrann og bætti við, að það hefði
sýnt sig að á örlagastundum
stæði þjóðin saman sem einn
maður og legði þá allan ágreining
á hilluna.
Varðandi samskipti araba og
gyðinga í Jerúsalem væri þar
auðvitað enn eitt vandamálið.
Sem yrði ekki leyst á einni nóttu.
Það væri eðlilegt, þar sem arabar
og gyðingar hefðu átzt við kyn-
slóð fram af kynslóð. Beizkja og
ósveigjanleiki væri á báða bóga
og það tæki tíma að uppræta
andúðina. Engu að síður hefði
hann þá bjargföstu trú að það
tækist að lokum.
„Við höfum unnið þrekvirki,
held ég að megi segja í að byggja
upp nútímaríki ísraels. í tækni-
legum skilningi að minnsta kosti.
En við feilum okkur stundum í
pólitíkinni og það vill auðvitað
bera á öfgum innan okkar raða
ekki síður en annars staðar. En
því er veitt athygli alveg sérstak-
lega ef ísraelar eiga í hlut. En
við verðum að axla okkar skyldur
sem Iýðræðisríki, takast á við þá
ábyrgð sem því er samfara. Og
trúum að okkur takizt það," sagði
Yativ sendiherra.
Samtab.Jóhanna Kristjónsdóttir
INyxx og ooruvibl UUUM yum:><x:ii. ru upiia
umbúðirnar, skellir frosnu innihaldinu á
pönnuna og á örfáum mínútum verður til
dýrindis máltíð!
■G@ÐI
Styrkjum úthlut-
að til rannsókna
í kvennafræðum
Á FJÁELÖGUM fyrir yfirstand-
andi ár var einnar milljónar
króna fjárveiting færð til Há-
skóla íslands tU rannsókna í
kvennafræðum. Áhugahópur um
íslenskar kvennarannsóknir, sem
hefur starfað undanfarin tvö ár,
tók að sér að úthluta þessu fé í
umboði Háskóla íslands. EUefu
umsóknir bárust og hlutu eftir-
farandi umsækjendur þriggja
mánaða launastyrk, miðað við
byijunarlaun rekstors:
Bríét Héðinsdóttir; Undirbúa bréf
Bríétar Bjamhéðinsdóttur til bama
SLÁTTUVÉLAR
MARKADURINN
&
MVRARGÖTU 2
sinna til prentunar.
Hrafnhildur Schram; Líf og list
Júlíönu Sveinsdóttur. Styrkur til að
vinna að heimildasöfnun S Dan-
mörku og á íslandi.
Inga Dóra Bjömsdóttir; Public
View and Private Voices. Rannsókn
á viðhorfum almennings til kvenna
sem giftust breskum og banda-
rískum hermönnum á styijaldarár-
unum síðari og viðhorfum þeirra
sjálfra. (í Bandaríkjunum.)
Sigrún Stefánsdóttir; Rannsókn
á fréttaefni íslenska sjónvarpsins
með tilliti til hlutar kvenna í því.
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir;
Politics and Personhood: Women’s
political movements in Iceland. (í
Bandaríkjunum.)
Sölvína Konráðs; Rannsókn á
starfsvali og starfsánægju íslenskra
kvenna sem valið hafa hefðbundin
og óhefðbundin störf. (í Banda-
ríkjunum.)
Þómnn Magnúsdóttir; Samtök
íslenskra verkakvenna.
Úthlutunamefndina skipuðu f.h.
áhugahóps um íslenskar kvenna-
rannsóknir: Auður Eir Vilhjálms-
dóttir, Guðrún Ólafsdóttir og
Sigríður Th. Erlendsdóttir.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
á sírhim lVfnoran*!! /