Morgunblaðið - 12.06.1987, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ1987
21
„Að höndla
sannleikann“
Ræða Guðmundar
Sveinssonar skóla-
meistara viðslit
Fjölbrautaskólans í
Breiðholti
I
í kvæði því sem séra Signrður
Einarsson frá Holti undir Eyjafjöll-
um tileinkaði fræðasetrinu breska,
Cambridge, komst hann svo að orði
meðal annars:
Fombretinn á hér fólgnar sínar dáðir.
Hér flugu emir Rómar veiðibráðir.
Hér áttu síðar Englar skapafund
við egghvöss, norræn sverð af franskri
grand.
Við Grantabrú er barist, sigrað, fallið
og blóðug striðin geysa villt og heit
uns hér fá athvarf krossinn, klukkan, bókin,
hin kristna trú og mannsins viskuleit.
Og æska sú, er elst í þessum reitum
er ekki sú, er bara kann og veit um
hvað græðgin fær sitt gróðahapp í dag
hvar gripa megi af borðum hæstan slag.
Hér vaka og eggja viðfangsefnin sömu
ervöktu í Marlowes, Byrons, Newtons sál.
Að ráða lífsins fógru feiknagátu
og færa næstu kynslóð sýn og mál.
Hér stendur enn, þótt auga leynist gesta
eitt altari með sína vígðu presta,
einn hörgur, sem ber hærra en tum og múr
og haggast ei, þótt máist djásn og flúr.
Drag skó af fótum ferðalangur móður
og fall á kné þín, - þetta helgirann
er musterið sem auðmýkt andans reisir
í æðstu þrá: Að höndla sannleikann.
í ljóði þessu er minnst á margt
sem orðið gæti að umhugsunarefni
á örskotsstund er vér eigum saman
áður en samfundi vorum lýkur að
þessu sinni, nemendur góðir. Það
sem fyrst kemur í hugann eru þau
einkenni er skáldið telur vera sér-
stæð fyrir kristna trú og lífsskoðun
og leiða til viskuleitar mannkyns-
ins. Um þijú höfuðeinkenni er þar
að ræða, þ.e. krossinn, klukkan
og bókin.
Oss furðar ei að einkennið fyrsta
sé talið vera krossinn. Krossinn er
tákn sem kristnir menn þekkja og
kunna a.m.k. flestir nokkur deili
á. En hvað táknar þá krossinn?
Fyrir sumum er krossinn lífláts-
tákn, tákn fómar og þjáningar.
Aðrir túlka krossinn sem tákn
eilífðar og sigurs. Hinn krossfesti
reis upp í dýrð og gaf kristnum
mönnum þá eilífðartrú, sem er sér-
stæð fyrir lífsskoðun þeirra. En
þriðja skýring krossins er til. Hún
er þessi: Krossinn er merki þver-
stæðnanna, þeirrar vissu að enginn
fær lengur lifað án þeirra. List og
ljóð samtíðarinnar bera þverstæð-
unni vitni. Stundum er það kallað
að hugsa í andstæðum eða and-
hverfum skautum. Ljóð samtíðar-
innar bera orðum hins ókunna
höfundar vitni. „Velgerðir á að
höggva í marmara, en yfírsjónir
skulu skrifaðar í sand.“
Annað sérkenni kristindómsins
telur skátdið vera klukkuna.
Klukka gegnir margvíslegum hlut-
verkum eins og allir vita. Klukka
mælir tíma og tíðir. Það var fyrst
í kristnum dómi að vér hlutum þá
viðmiðun tímans sem stuðst er við
á Vesturlöndum, þ.e.a.s. að miða
tíma (og tíðir) við fæðingu Jesú
Krists. Vér vitum að til eru aðrar
viðmiðanir en Anno Domini, ár
Drottins. Sumir miða við það sem
kallað er Anno lucis, ár ljóssins,
og skal þá miða við sköpun heims-
ins. Ár ljóssins er nú að því er talið
er 5747, en svo telja gyðingar
tímann. Árið 5748 rennur upp 24.
september á næsta hausti.
En klukkan mælir ekki aðeins
tímann svo merkilegt sem það er.
Hún kallar einnig eða boðar helga
daga kirkjuársins. Þeir dagar eru
margir svo sem öllum má ljóst vera.
Helgir hljómar kirkjuklukknanna
bera oss boðskap eða kalla oss til
að hlýða á boðskap. Boðskapur
síðasta sunnudags sem var 4.
sunnudagur eftir páska var þessi:
„Ef þér standið stöðugir í orði mínu,
segir Kristur, þá eruð þér sannar-
lega lærisveinar mínir og þér munuð
þekkja sannleikann og sannleikur-
inn mun gjöra yður ftjálsa." (Jóh.
8.31—32). Því það er satt sem Rab-
indranath Tagore sagði: „Lífið er
oss gefið. Vér vitum fyrir tækifær-
um þess með því að gefa öðrum líf
vort í fórn og fyrirbæn."
Síðast alls minntist presturinn í
Holti undir Eyjafjöllum á það fram-
lag kristninnar sem bókin hefur
orðið á liðnum árum.
Um framlag bókarinnar þarf vart
að ræða hjá þjóð vorri. Fáar þjóðir
hafa unnað bókmenntum sem Is-
lendingar allt frá því að ritöld hófst
í öndverðri kristni. Svo segir í Háva-
málum:
Veistu hve rista skal?
Veistu hve ráða skal?
Veistu hve fáa skal?
Veistu hve freista skal?
Veistu hve biðja skal?
Veistu hve blóta skal?
Veistu hve senda skal?
Veistu hve sóa skal?
Erindi þetta tjallar að vissu leyti
um sama efni og kvæðið Perlan
eftir Jón Thoroddsen er birtist í
ljóðabókinni Flugur er út kom öðru
sinni fyrir jólin 1986. Kvæðið grein-
ir frá ungum manni er leitar
Guðmundur Sveinsson
perlunnar dýrmætu. Hann álítur að
perluna hljóti hann ekki nema með
því að verða auðugur. Honum tekst
það og þar að auki hið undarlega
blóm sem hann geymir við bijóst
sitt. En ungi maðurinn uppgötvar
brátt að dýrmæta perian verður
ekki keypt fyrir auð og allsnægtir.
Það sagði vitringurinn honum, en
hann átti perluna dýrmætu. Hrygg-
ur hverfur ungi maðurinn frá fundi
þeirra. Hann gefur öll auðævi sín
nema blómið við bijóst sitt. Þegar
allt er horfíð fer ungi maðurinn
aftur til fundar við vitringinn.
Gafstu öll auðævi þín? spurði vitr-
ingurinn. Já, öll, segir ungi
maðurinn. Gafstu líka undarlega
blómið? spurði vitringurinn. Nei, en
þú mátt eiga það. Hann tekur fram
undarlega blómið, enda þótt það sé
vaxið inn í bijóst hans. Engu að
síður kippir hann út undarlega
blóminu. Og sjá milli róta þess ligg-
ur dýrmæta perlan.
íslendingar hafa lært að fóma
tíma og lífi fyrir bækur og bóklest-
ur. Þetta hvort tveggja hefur á
liðnum öldum verið þjóð vorri Perl-
an dýra. Engin fóm var of stór til
að nema fræði fom og ný. Um þetta
má vissulega viðhafa spakmælið:
„Hófsemin og lærdómsþorstinn er
silkiþráðurinn sem perlur dyggðar-
innar eru festar á.“
II
Til þín, ó æska horfa hugir nú
í heimi sem á mergð af gömlum syndum
því vorið, sem var heitast þráð, ert þú
og þú ert morgunninn á landsins tindum.
í þínum söng fær ættland okkar mál
og öll þessi blóm á vorsins degi löngum
í augum þínum fær þess sólskin sál
þess sumardagar ljóma af þínum vöngum.
(Séra Helgi Sveinsson)
Með vorið og sumarið fyrir stafni
hverfið þér framsækna fólk á vit
verka og drauma.
Heill og hamingja fylgi á ljóssins
og lífsins leiðum.
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
er slitið.
Tölvunámskeið á Blönduósi
Blönduósi.
TÖLVAN gegnir sífellt stærra
hlutverki í nútímaþjóðfélagi og
af þeim sökum sóttu 32 aðilar
frá Blönduósi og Skagaströnd
tveggja daga tölvunámskeið á
vegum Tölvufræðslunnar í sl.
viku.
Þegar fréttaritara Morgunblaðs-
ins bar að garði sátu þátttakendur
sveittir yfir æfíngum í notkun
tölflureiknis, Multiplan. Það var
greinilegt að áhugi var mikill og
margir leyndardómar tölvunnar
höfðu verið afhjúpaðir. Á þessu
námskeiði var farið yfir notkun
stýriforrita, DOS, æfingar voru í
notkun ritvinnslu og töflureiknis.
Kennarar á þessu námskeiði Tölvu-
fræðslunnar voru Logi Ragnarsson
og Bjöm Sveinbjömsson.
— Jón Sig.
Morgunblaðið/Jón Sig.
Hluti þátttakenda á tölvunámskeiðinu.
Einstaklingsíbúð
óskast strax!
Reglusamur og snyrtilegur ungur maður óskar
eftir íbúð til leigu í Reykjavík í 11-14 mánuði.
Allt minna en 4ra herb. kemur til greina. Fyrir-
framgreiðsla engin fyrirstaða. Skilvísar greiðslur.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl.
merkt: „Einstaklingsíbúd — 8434“
eða hringið i sima 691166 á daginn
og 42335 á kvöldin.
Kaupfelaganna
VEIÐISETT
kr. 1.390
FÓTBOLTI
kr.495
DOMUS
KAUPFELDGIN
I LANDINU
I
Metsölublað á hverjum degi!