Morgunblaðið - 12.06.1987, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987
Breyttar reglur verðjöfnunarsjóðs:
Jöfnun á afkomusveiflum
færist yfir á fyrirtækin
„ÞESSAR breyttu reglur um verð-
jöfnunarsjóð þýða i raun að jöfnun
afkomusveiflna hlýtur að færast
yfir á einstök fyrirtæki í fisk-
vinnslunni," sagði Þórður Frið-
jónsson, forstjóri Þjóðhagsstofn-
unar, er hann var spurður um
áhrif þess á stöðu og afkomu verð-
jöfnunarsjóðs að frystingin hættir
að greiða í sjóðinn og mjög dregur
úr greiðslum saltfiskvinnslunnar,
samkvæmt þeim breytingum á
reglum sjóðsins sem stjórn hans
ákvað síðastliðinn miðvikudag.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Rithöfundarnir þrír er hlutu verðlaun fyrir samningu lestrarbóka
fyrir yngstu nemendurna. Talið frá vinstri: Friðrik Erlingsson, Ragn-
heiður Gestsdóttir, Torfi Hjartarson og Ásgeir Guðmundsson,
námsgagnastjóri.
Námsgagnastofnun
verðlaunar lesefni
fyrir byrjendur
Þórður sagði að erfítt væri að
meta nákvæmleg þau áhrif sem hinar
breyttu reglur hefðu á stöðu sjóðsins.
„Þó er ljóst, að í framtíðinni verður
sjóðurinn vanhæfur að greiða upp-
hæðir sem skipta verulegu máli, ef
verðið lækkar. Á móti kemur hins
vegar að verðhækkun á eftir að koma
fram í betri eiginfj'árstöðu viðkom-
andi fyrirtækja, sem þar af leiðandi
verða í betri aðstöðu til að taka
skakkaföllum í framtíðinni. Þetta
þýðir því í raun að fískvinnslan getur
ekki treyst á verðjöfnunarsjóðinn
heldur færist ábyrgðin yfír á fyrir-
tækin sjálf. Þau verða þá sjálf að
nota góðu árin til að byggja sig upp
og koma sér upp varasjóði sem grípa
má til þegar illa árar,“ sagði Þórður.
Hann benti þó á að með þessu
væri ekki verið að leggja verðjöfnun-
arsjóð niður, þótt nokkuð hefði dregið
úr verðjöfnunarhlutverki hans. „Nú
er fískverðið fíjálst og hvort það fyr-
irkomulag verður varanlegt eða ekki
fer eftir framvindunni næstu mán-
uði. Ef það verður varanlegt fyrir-
komulag þýðir það auðvitað að
verðjöfnunarsjóðurinn hættir með
tímanum að gegna því hlutverki sem
honum var upphaflega ætlað. Það er
auðvitað hægt að jafna afkomusveifl-
ur á ýmsan hátt og þessar breytingar
þurfa alls ekki að hafa í för með sér
að það verði óviðráðanlegt verkefni
að jafna slíkar sveiflur í framtíðinni.
Væntanlega verða það þá fyrirtækin
sjálf sem axla þá ábyrgð," sagði
Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóð-
hagsstofnunar.
Bandamenn ræðast við
fyrir morgunverð
Það bar til tíðínda í gærmorgun að utanríkisráðherrar Banda-
ríkjanna og Vestur-Þýskalands, þeir George Shultz og Hans-
Dietrich Genscher, áttu saman hálftíma langan fund fyrir
morgunverð, en Vestur-Þjóðveijar hafa einmitt verið þjóða
smeykastir við tillögur tun stórfellda afvopnun stórveldanna í
Evrópu og óttast að öryggi sitt verði ekki jafntryggt og áður.
Er talið að Shultz hafi viljað sannfæra Þjóðveija um að Banda-
ríkjamenn muni ekki hvika frá vamarskuldbindingum sínum
við Sambandslýðveldið þrátt fyrir samninga í þessa vem. Eftir
fund þennan snæddu þeir óformlegan „Berlínarmorgunverð“
ásamt utanríkisráðherrum Frakklands og Bretlands, þeim Jean-
Bernand Raimond og Sir Geoffrey Howe, en ríki þeirra eiga
einmitt hagsmuna að gæta á hemámssvæðunum I Berlín.
NÁMSGAGNASTOFNUN af-
henti í gær þremur rithöfundum
verðlaun i samkeppni um samn-
ingu lestrarbóka handa byijend-
um. Samkeppnin á að standa í
2-3 ár og er skilafrestur þrisvar
á ári. Fyrsta tímabilið stóð frá
1. febrúar til 1. maí síðastliðinn
og bárast 19 handrít. Höfundam-
ir þrír sem hlutu verðlaun i
þessarí fyrstu umferð vom þau
Fríðrík Erlingsson fyrír „Lítill
strákur í sveit“, Ragnheiður
Gestsdóttir fyrír „Sköpun heims-
ins“ og Torfi Hjartarson fyrir
„Egill“.
„Lítill strákur í sveit“ er sam-
tímasaga um lítinn strák sem fer í
sveit til afa síns, „Sköpun heims-
ins“ er unnin upp úr sköpunarsögu
Biblíunnar og „Egill“ er unninn upp
úr frásögn úr Egilssögu sem fjallar
um æsku Egils. Myndir gegna mjög
veigamiklu hlutverki í öllum bókun-
um en þær verða gefnar út á
næstunni.
Forsaga þessa máls er að á
síðasta ári flallaði nefnd á vegum
Námsgagnastofnunar um lesefni
handa yngstu nemendum grunn-
skóla. Niðurstaða nefndarmanna
varð sú að mikill skortur væri á
lesefni handa bömum sem væru að
byija að lesa og væri því brýnt að
hefja útgáfu á efni sem væri bæði
áhugavekjandi og auk þess sett
fram á þann hátt að þessir nemend-
ur gætu lesið. í framhaldi af þessu
var ákveðið að ráðast í þessa sam-
keppni.
Hvert handritshöfundur sem
fékk verðlaun fékk 30.000 krónur
auk höfundaréttar og viðurkenning-
arskjals frá Námsgagnastofnun.
Dómnefndina skipuðu þau Þuríður
J. Kristjánsdóttir, formaður, Andrés
Guðmundsson og Þuríður Jóhanns-
dóttir. Næsti skilafrestur rennur út
15. september og verður nánar aug-
lýstur síðar.
Selja má silung fyrir 40-65
milljónir króna erlendis
„Landbúnaðarráðuneytið stendur í
veginum,“ segja silungsveiðibændur
MARKAÐSKÖNNUN, sem fram-
kvæmd var nýveríð á vegum
Byggðastofnunar, bendir til þess,
að markaður sé fyrir hendi er-
lendis fyrir villtan silung, sem
skilað gæti 40-65 milljónum i
gjaldeyrístekjur. Byggðastofnun
hefur undanfarín ár lánað tals-
vert fjármagn til bænda, sem
hyggjast hefja silungsveiðar, en
að sögn silungsveiðibænda hefur
landbúnaðarráðuneytið staðið
gegn þessum veiðum.
Byggðastofnun efndi í gær til
Samtök herstöðva-
andstæðinga:
Mótmæli
á Haga-
torginu
SAMTÖK herstöðvaandstæð-
inga héldu útifund á Hagatorgi
um kl. 18.00 í gærdag. Um þijú
hundrað manns sóttu fundinn,
sem haldinn var í blíðskapar-
veðri^ á iðjagrænu hringtorg-
inu. Á borðum og skiltum sem
fundarmenn bára máttí sjá
slagorð sem hvöttu til fríðar,
afnáms vigfoúnaðar, úrsagnar
íslands úr Atlantshafsbanda-
laginu og brottrekstrar vamar-
liðsins.
í fundarlok var samþykkt
ályktun þar sem skorað er á ut-
anríkisráðherra að ljá þeim tillög-
um lið sem stuðlað geti að
minnkun vígbúnaðar í Evrópu og
Morgunblaðið/JúlíuB
Hjördis Hjartardóttir fundarstjórí les upp áskorun til utanríkis-
ráðherra sem fundarmenn á Hagatorgi samþykktu.
gefa út yfirlýsingu um að íslend-
ingar muni ekki sætta sig við að
vígbúnaður verði aukinn á norður-
slóðum.
Ræðumenn á fundinum voru
Margrét Bjömsdóttir frá Neista-
stöðum og Eiríkur Hjálmarsson.
Lokaorð áskorunarinnar sem
fundarmenn samþykktu eru þau
„að sérhvert skref í afvopnunar-
átt færi okkur nær því markmiði
allra friðelskandi íslendinga sem
kristallast í orðunum ísland úr
NATO - herinn burt.“
málfundar, þar sem kynnt var
skýrsla, sem Sigmar B. Hauksson
vann að fyrir hönd stofnunarinnar
um markað fyrir villtan silung á
erlendri grund. í skýrslunni kemur
fram, að góður markaður sé fyrir
villtan silung í Evrópu. Bendir
skýrsluhöfundur á, að eftirspum
eftir villtum laxi hafi stóraukist og
verðsprenging orðið á honum og
ætla megi að sama verði upp á ten-
ingnum með silung.
Segir í skýrslunni að vandinn sé
greinilega ekki sá að markaðinn
vanti, heldur það að gera þurfí veið-
amar áhugaverðar, svo að hægt sé
að fá nægilegt magn. Ljóst sé einn-
ig að nægilegt hráefni sé fyrir hendi
og talið sé af sérfræðingum, að
veiða megi um 500 - 1.000 tonn
af silungi á ári úr íslenskum vötn-
um. Bent er á að flest íslensk vötn
séu vannýtt og að mörg þeirra
mætti rækta upp og nýta. „Útflutn-
ingur á villtum silungi gæti svo
rutt veginn fyrir markað á eldis-
fiski," segir síðan í skýrslunni.
í lok skýrslunnar er svo m.a. lagt
til að komið sé á móttökustöð fyrir
silung í Reykjavík og að komið verði
á fót lítilli verksmiðju til að fram-
leiða vörur úr silungi.
Af hálfu talsmanna Félags sil-
ungsveiðibænda kom fram sú
skoðun, að stærsta vandamálið
væri „félagslega hliðin". Bændur
hefðu fengið lánað fé til veiðafæra-
kaupa og fleira, sem bæri að þakka,
en hins vegar stæði úrelt veiðilög-
gjöf og viljaleysi landbúnaðarráðu-
neytis og veiðimálastofnunar í
veginum. Var á fundinum nefnt
dæmi þess að ráðuneytið hafí hindr-
að bónda við að nýta rétt sinn, sem
hann hafði þó innan ramma lag-
anna. Einnig kom það fram, að
veiðifélög hefðu oft komið í veg
fyrir veiðar í krafti meirihluta.
Hefðu margir gefíst upp á þessum
veiðum vegna stríðs við kerfíð.
„Það virðist ekki vera pólitískur
vilji fyrir þessum veiðum og virðast
hinir og þessir hagsmunaaðilar geta
komið í veg fyrir þær,“ sagði Skúli
Ólafsson formaður félags silung-
sveiðibænda.
Ferðaskrifstofan Útsýn:
Hátt í 300 manns með
tveimur leignvélum
Á VEGUM Ferðaskrifstofunnar
Útsýnar fóra í gær tvær flugvél-
ar með tæplega 300 farþega
suður á bóginn í sólina og með
aðeins korters millibili. Annars
vegar var um að ræða flug til
Costa del Sol og hins vegar flug
tíl Algarve I Portúgal.
„Þetta er í fyrsta sinn mér vitan-
lega sem ferðaskrifstofa er með tvö
leiguflug sama daginn. Það fóru
164 farþegar til Costa del Sol og
131 farþegi til Algarve. Upphaflega
ætluðum við að vera með eina vél
á báða staði, en strax í febrúar
sáum við að það myndi alls ekki
duga,“ sagði Kristín Aðalsteins-
dóttir, hjá Útsýn í samtali við
Morgunblaðið í gær. Hún sagði að
aðsókn væri með mesta móti í sum-
ar og hefði Útsýn á milli sex og
sjö þúsund sæti í leiguflugi til
ýmissa staða í Evrópu. Nú í dag
væru um 400 manns á Costa del
Sol á vegum fyrirtækisins.