Morgunblaðið - 12.06.1987, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987
31
Ibúasamtök Vestur-
bæjar gefa út afmæl-
isblað og halda há-
tíð á sjómatinadagiim
ÍBÚASAMTÖK Vesturbæjar
halda útihátið á Stýrimannastíg
á sjómannadaginn hinn 14. júní.
Hátíðin hefst kl. 10.00 um morg-
uninn og stendur til kl. 12.30.
Hér er um að ræða afmælishátíð
en einnig er ætlað að minnast
sérstaklega uppruna hverfisins
og að leggja áherslu á þá ósk að
gamli Stýrimannaskólinn verði
færður f betra lag og taki við
hlutverki menningar- og félags-
miðstöðvar í hverfinu.
Margt verður til skemmtunar,
bæði söngur og talað mál. Seldir
verða handunnir listmunir og lista-
verk einnig sýnd. Þá verður gamli
Stýrimannaskólinn við Öldugötu
skreyttur að utan með verkum nem-
enda. Dagskráin er ætluð bæði fyrir
unga og aldna og alla þar á milli.
Björgvin Schram og Pétur Gunnars-
son rifla upp sögu hverfisins og
æskuminningar. Bubbi tekur lagið,
harmonikkuleikur verður og al-
mennur söngur. Bömum gefst
kostur á að teikna og Bryndís
Schram stjómar leikjum þeirra.
Reiptog verður milli gatna undir
stjóm Kristínar Ólafsdóttur og eru
menn hvattir til að senda lið í
keppnina og einnig að styðja óspart
fulltrúa sína með viðeigandi köllum
og hvatningarorðum. I hverju reip-
togsliði þurfa að vera 3 konur, 3
karlar, 3 stelpur og 3 strákar.
Á útihátíðinni verða seld blóm í
tilefni dagsins en einnig kaffí og
ávaxtadrykkir, fiskréttir og ávextir.
Þátttakendur geta því væntanlega
farið beint að útihátíðinni lokinni
til aðalhátíðahalda sjómannadags-
ins. Sjálfsagt er að búa sig
skemmtilega á hátíðinni, gjaman í
sjómannastfl. Söngvum verður
dreift á blöðum svo að allir geti
tekið undir. Og stólar verða á staðn-
um fyrir eldra fólkið.
Vesturbær, blað íbúasamtaka
Vesturbæjar, er gefið út í tilefni
10 ára afmælis samtakanna. í blað-
inu er íjölbreytt efni, bæði í máli
og m}mdum. Sagt er frá byggð við
Stýrimannastíg, upphafi Landa-
kotsspítalans, þjónustu við aldraða
allt frá elliheimilinu Grund að ný-
byggingunni sem rísa mun á homi
Vesturgötu og Garðastrætis, af-
mælisgreinin Ibúasamtök Vestur-
bæjar 10 ára, viðtal er við
listamanninn Magnús Tómasson
m.a. vegna skreytingar nýja Vest-
urbæjarskólans og stutt viðtöl við
aðra Vesturbæinga. Sýndar eru
teikningar úr hverfísskipulagstil-
lögum Guðrúnar Jónsdóttur sem
kynntar voru í Hlaðvarpanum í vet-
ur, birt er ljóð eftir ungan Vest-
urbæing, sagt frá ráðstefnu um
íbúasamtök í Reykjavík og að lokum
er fjöldi mynda víðs vegar að úr
hverfínu. Umsjón blaðsins önnuðust
Guðjón Friðriksson og Sævar Guð-
bjömsson en ábyrgðarmaður er
Anna Kristjánsdóttir.
Blaðinu Vesturbær verður dreift
í öll hús í gamla Vesturbænum og
reynt að láta það liggja frammi í
verslunum í öllum Vesturbænum
og miðbænum fyrir þá sem áhuga
hafa á að eignast blaðið.
(Fréttatilkynning)
Morgunblaðið/Bjami
Það var hart saumað að flokksformönnunum að fimm stunda fundi þeirra loknum i Borgartúni 6 á
sjötta tímanum í gær. Frá vinstri: Steingrímur Hermannsson, Jón Baldvin Hannibalsson og Þorsteinn
____________ Pálsson.
Formennirnir á f imm tíma löngum „leynifundi“ í gær:
Famir aö ræða skip1>
ingn ráðuneytanna
ÞEIR Þorsteinn Pálsson, form-
aður Sjálfstæðisflokksins, Jón
Baldvin Hannibalsson, formað-
ur Alþýðuflokksins og
Steingrímur Hermannsson,
formaður Framsóknarflokks-
ins áttu með sér fimm klukku-
stunda langan „leynifund“ í
húsakynnum fjármálaráðu-
neytisins í gær, og sögðu eftir
þann fund við fréttamenn að
framhaldið stæði og félli með
því hvort samkomulag um
fyrstu aðgerðir til viðnáms
gegn verðbólgu næðist. Sam-
kvæmt heimildum Morgun-
blaðsins ræddu formennimir
ýtarlega um ágreining í skatta-
málum og var að skilja af
máli þeirra að tun þau stæði
helsti ágreiningurinn, en ekki
um landbúnaðar- og húsnæðis-
mál. Þá fóra þeir yfir skipt-
ingu ráðuneyta, en telja að
flokkarnir hver um sig þurfi
að taka afstöðu til breyttrar
skipunar ráðuneyta, áður en
gengið verður frá skipting-
unni. Mun þar einkum vera átt
við það að færa utanríkisvið-
skiptin undir utanrikisráðu-
neyti, frá viðskiptaráðuneyti.
„Við fórum mjög ýtarlega yfír
fjölmörg atriði, sem þarf að láta
meta þjóðhagslega," sagði
Steingrímur að fundinum lokn-
um.
„Við höfum lýst pólitískum
vilja til samstarfs um myndun
ríkisstjómar, með fyrirvara um
það að samkomulag takist um
fyrstu aðgerðir um viðnám gegn
verðbólgu," sagði Jón Baldvin.
Hann sagði að þar hefðu for-
mennimir rætt í þaula þá kosti
sem kæmu til álita, en þeir vildu
fá betur metna þjóðhagsleg áhrif
þeirra leiða.
„Það verður sett sérstök nefnd
i að fara yfír þau mál og meta
þjóðhagsleg áhrif þeirra hug-
mynda sem uppi eru og menn
reyna að ná saman þar um. í það
verk verður gengið núna,“ sagði
Þorsteinn Pálsson.
Formennimir sögðust hafa
rætt skiptingu ráðuneyta og for-
ystu stjómar á þessum fundi. Þar
hefðu þeir velt upp hugmyndum
um hugsanlega breytingu á
verkaskiptingu ráðuneyta, sem
ekki hefði verið rætt um áður. Á
meðan þær hugmyndir væru
óútkljáðar, yrðu spumingar um
skiptingu ráðuneytanna að bíða.
Þorsteinn sagðist telja að ráðu-
neytum yrði frekar fækkað en
fjölgað, en um þetta hefðu ekki
verið gerðar neinar tillögur.
„Ég legg áherslu á það að við
höfum hér almennan fyrirvara
um endanlegt samkomulag um
fyrstu aðgerðir gegn verðbólgu,"
sagði Jón Baldvin, „en ég held
að niðurstaðan sé sú um önnur
mál sem við ræddum hér í þaula,
að um þau sé samkomulag af því
tagi, að þau muni ekki koma í
veg fyrir samstarf, ef samstaða
tekst um fyrstu aðgerðir."
Formennimir sögðust mundu
hraða viðræðunum eins og frek-
ast væri kostur, og Steingrímur
sagðist endilega vilja ljúka þessu
fyrir 17. júní.
Þingflokkur Alþýðubandalagsins:
Kjamorkuvopn fari
ekki út í höfin
ÞINGFLOKKUR Alþýðubanda-
lagsins sendi Carrington lávarði,
framkvæmdastjóra Atlantshafs-
bandalagsins, opið bréf í gær,
þar sem fagnað er tillögum um
fækkun kjarnorkuvopna, en um
leið er harðlega mótmælt „hug-
myndum, sem komið hafa fram
m.a. ínjá Caspar Weinberger á
fundi vamarmálaráðherra Atl-
antshafsbandalagsríkja f Sta-
vangri á dögunum, um að færa
kjarnorkuvopnin af .andi út í
höfin,“ eins og orðrétt 9egir.
Haf narfj örður:
Fiskmarkaðurinn hefur
starfsemi á mánudag
Faxamarkaður í Reykjavík hefur starfsemi viku síðar
Fiskmarkaðurinn í Hafnar-
firði hefur starfsemi næstkom-
andi mánudag og mun togarinn
Otur frá Hafnarfirði landa þar
fyrst skipa, aðallega þorski.
Aætlað er að Faxamarkaður í
Reykjavík hefji starfsemi viku
síðar. Þar er nú verið að leggja
síðustu hönd á aðstöðuna og full-
kominn búnað við að flokka fisk
og verður útbúnaðurinn reyndur
á mánudaginn.
Einar Sveinsson framkvæmda-
stjóri Fiskmarkaðarins í Hafnarfírði
sagði í samtali við Morgunblaðið
að þótt mikill afli hafí borist á land
undanfarið og búist sé við að miklu
verði landað um helgina vegna sjó-
mannadagsins á sunnudag sem nú
er lögbundinn frídagur ætti það
ekki að koma að sök fyrir fiskmark-
aðinn. Það væru aðallega togaranir
sem hefðu veitt vel undanfarið og
þegar mikið aflaðist á einstök skip
væri oft ákveðin takmörkun á dreif-
ingu aflans. Með tilkomu markaðar-
ins myndi kaupendahópurinn víkka
og fískur á markaðnum ætti að
vera eftirsóttur hjá þeim sem verka
í saltfísk, sérstaklega ef uppistaðan
væri þorskur.
Bjami Thors framkvæmdastjóri
Faxamarkaðar sagði í samtali við
Morgunblaðið að vissulega fylgdi
því áhætta að byija þessa starfsemi
á þessum tíma árs en þar sem eng-
in reynsla væri af fískmörkuðum
hér á landi væri á hinn bóginn á-
gætt að fá tíma til að komast yfír
helstu bamasjúkdómana áður en
vertíð hefst í haust.
Einar Sveinsson sagði að öllum
útgerðarmönnum og fískverkend-
um hefði verið sent bréf og ágrip
af reglum fískmarkaðarins sem eru
aðallega þær að skip þurfa að til-
kynna sig með ákveðnum fyrirvara
eftir magni, og kaupendur verða
að leggja fram bankatryggingar ef
þeir staðgreiða ekki. Miðað er við
að ekki verði keypt minna en 10
kassa eða 5-600 kfló í einu.
í bréfí þingflokksins segir að
lífsafkoma íslendinga byggist á
auðlindum hafsins og nýtingu
þeirra og fáum þjóðum stafí jafn
mikil ógn af slysum eða átökum á
höfunum þar sem kjamorka komi
við sögu. „Það hlýtur því að vera
krafa okkar íslendinga að Atlants-
hafsbandalagið eða forustumenn
ríkja þess taki engar þær ákvarðan-
ir né geri neina þá samninga sem
fela í sér tilflutning vopna af landi
út í höfín. Aðeins alger og endanleg
lqamorkuafvopnun, eyðing kjam-
orkuvopna og ýtrustu öryggiskröfur
við aðra notkun kjamorku geta
tryggt mannkyni og öllu lífríki jarð-
arinnar viðunandi öryggi,“ segir
ennfremur.
Loks segir f bréfí alþýðubanda-
lagsmanna til Carringtons, að þeir
ítreki hörð mótmæli stn gegn þeirri
miklu hemaðaruppbyggingu sem
átt hafí sér stað á Islandi á undanf-
ömum ámm á vegum bandaríkja-
hers og Atlantshafsbandalagsins,
enda sé sú uppbygging augljóslega
í hrópandi mótsögn við þá almennu
viðleitni sem nú sé uppi til að draga
úr spennu og vígbúnaði.