Morgunblaðið - 12.06.1987, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987
45
Þátttakendur í fimleikamóti íslands 1937 með gjafir sem 50 ára nemendur færðu skólanum í Reyk-
holti. Frá vinstri: Birgir Þorgilsson, Höskuldur Skagfjörð, Bjarni Bakkmann, Helgi Júlíusson, og Óskar
Sigtryggsson.
Nemendamót í Reykholti
IReykholtsskóla í Borgarfirði var
haldið fjölmennt nemendamót í
lok maí. Það voru um hundrað
manns sem hittust til að halda upp
á fimmtíu ára útskriftarafmæli, en
þau útskrifuðust úr Reykholtsskóla
1937.
Hátíðin hófst með sameiginlegu
borðhaldi. Veislustjóri var Halldór
E.Sigurðsson en aðal ræðan var
flutt af Óskari Sigtryggssyni. Síðan
flutti Jósep Helgi Minni Snorra og
Bóndinn á Hallkelsstöðum í
Hvítársíðu, Erlingur Jóhannsson,
flutti drápu í léttum dúr. Stutt ávörp
fluttu frú Dagbjört Guðmundsdótt-
ir, Birgir Þorgilsson, Helgi Júlíus-
son og skólastjórinn í Reykholti,
Jónas Jónsson. Að lokum flutti svo
Höskuldur Skagfjörð gamanþátt
sem hann nefndi Satt og logið frá
fyrri tímum.
Nemendur færðu skólanum að
gjöf málverk af Kristni Stefánssyni
skólastjóra, málað af Ragnari Páli,
stækkaða ljósmynd af fímleika-
flokki þeim sem tók þátt í fímleika-
móti Islands 1937 og mynd af
skólanum frá Álfasteini í Borgar-
fírði eystri.
Ýmsir góðir gestir létu sjá sig í
tilefni afmælisins m.a. frú Anna
Bjamadóttir, eini eftirlifandi kenn-
ari árgangsins, frú Laufey Þór-
mundsdóttir, ekkja Þóris Steinþórs-
sonar, Dagbjört Jönsdópttir, ekkja
Kristins Stefánssonar fyrrum skóla-
stjóra svo og böm Þóris Steinþórs-
sonar og böm Þorgils Guðmunds-
sonar íþróttakennara.
Eftir morgunverð á sunnudegin-
um var síðan haldið til kirkju í
blíðskaparveðri sem hélst alla helg-
ina, þar sem séra Geir Waage
messaði. Undirbúningsnefnd nem-
endamótsins vill koma á framfæri
þakklæti til skólastjórahjónanna í
Reykholti fyrir þann áhuga og þá
aðstoð sem þau veittu, svo og öllu
starfsfólki sem lagði hönd á plóginn
við undirbúning.
Terylenebuxur, nýtísku efni, nýtísku stælsnið
kr. 1875,00.-
Mikið úrval af terylenebuxum fyrirliggjandi,
verð kr. 875,00, 1175,00, 1375,00, 1595,00
og 1895,00 teryl./ull/stretch.
Karlmannaföt nýkomin kr. 7500,00, nokkrar
stærðir eftir á kr. 5500,00.-
Regngallar nýkomnir kr. 1265,00.- Gallabux-
ur kr. 795,00 og kr. 850,00 o.fl. ódýrt.
Andrés,
Skólavörðurstíg 22A, sími 18250.
sÉ'p&lpgp
agmm
.
wmm
'WSdliM
MMMI
MNgM
iHpi
HM
■Ml
Mglll
: .
Afmælisgleði
í Afríku
Joan Collins, líka þekkt sem Alex-
is í bandarísku framhaldsflokk-
unum Dynasty, hélt nýlega upp á
54 ára afmælið og bauð af því til-
efni 30 manna hópi vina og ættingja
í fjögurra daga skemmtiferð til
Marokkó í Afríku.
Heilt hótel var tekið á leigu fyrir
gleðskapinn, með þjónum, kokkum
og öllu tilheyrandi. Samkvæmið
gekk þó ekki með öllu hnökralaust
fyrir sig því í hanastélsboði sem
haldið var frúnni til heiðurs tók
nýjasti „vinur" hennar, Biily Bung-
alow að nafni, upp á því að gera
sér helst til dælt við unga ljósku
sem þar var gestur. Afmælisbamið
trylltist af afbiýði og yfírgaf sam-
kvæmið án þess að kveðja. Það
fylgdi sögunni að Billy þessi Bung-
alow væri hinn mesti kvennaflagari.
Síðar, sama kvöld, dró enn til
tíðinda þegar afmælisgestimir ætl-
uðu út af veitingahúsi þar sem þeir
höfðu snætt kvöldverð. Fyrir utan
tók nefnilega á móti þeim flokkur
ungra Marokkómanna sem gimtust
ákaft töskur og skartgripi fína
fólksins. Joan Collins og fylgdarlið
fengu ekki frið fyrir þessum pöm-
piltum fyrr en sérskipaður marokk-
anskur lífvörður frúarinnar skarst
í leikinn og útskýrði fyrir þeim hver
þama væri á ferð. Þá var þeim leyft
að fara eftir að hafa reitt af hendi
500 dala „lausnargjald".
Joan Collins hélt nýlega upp á
54 ára afmælið.
COSPER
— Við höfum engan svefnfrið fyrir hávaða.
Tískusýnin<z
í Blómasal í das
á íslenskum fatnaði.
Módelsamtökin sýna nýjustu línuna í
íslenskum fatnaði í hádeginu alla föstudaga.
Fötin eru frá íslenskum
heimilisiðnaði og Rammagerðinni.
Víkingaskipið er hlaðið íslenskum
úrvalsréttum alla daga ársins.
HÓTEL
LOFTLEIÐIR
FLUCLEIDA HÓTEL