Morgunblaðið - 12.06.1987, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987
53
Björn Guðmundsson kennari afhendir uppstoppaða súlu sem
til skólans, og skal hún verða upphaf náttúrugripasafns við skólar
Stykkisliólmur:
Fornir bílar á ferð
FÉLAGAR í Fornbílaklúbbi íslands fóru í hópakstur til Keflavík-
urflugvallar á sunnudaginn og er það i annað sinn sem klúbbmenn
heimsækja varnarliðsmenn.
Félagar f bílaklúbbi vamarliðs-
manna tóku á móti íslendingunum
á nokkrum torfærubflum. Frá
hliðinu á Keflavíkurflugvelli var
ekið í einni lest um íbúðarhverfi
og vallarsvæðið og loks stað-
næmst á bifreiðastæði, þar sem
bflamir voru til sýnis. Þar buðu
vamarliðsmenn íslendingunum
veitingar.
Næsti hópakstur Fombfla-
klúbbsins verður í Reykjavík 17.
júní, en 8. júlí hefst hringferð um
landið. Sú ferð tekur 10 daga og
er farin í tilefni af 10 ára afmæli
klúbbsins. Núverandi formaður
Fombflaklúbbsins er Rudolf Krist-
insson.
(Úr fréttatilkynningu)
Fyrsta handbókin afhent Elinu
Pálsdóttur á sumartilboðinu.
Handbók
fyrir teppa-
kaupendur
Á VEGUM Teppalands—Dúka-
lands er komið út „Handbók fyrir
teppakaupendur, holl ráð og
hagnýtar upplýsingar“. Hand-
bókin sem er 28 síður er gefin út
í tilefni 20 ára afmælis Teppa-
lands—Dúkalands og hófst
dreifing hennar samhliða sum-
artilboði fyrirtækisins sem
stendur út júnimánuð.
Handbókin er ætluð að auðvelda
kaupendum val á teppum auk al-
mennra upplýsinga um teppi.
Myndir eru í handbókinni til frekari
útskýringa.
Auglýsingastofan ÓSA, Ólafur
Stephensen, Auglýsingar—Almenn-
ingstengsl, hafði umsjón með
útgáfu handbókarinnar. Korpus hf.
sá um umbrot og setningu texta,
en prentun fór fram í Danmörku.
Handbókin er ókeypis og er af-
hent öllum viðskiptavinum Teppa-
lands-Dúkalands.
Morgunblaðið/Einar Falur
Keflavíkurflugvöllur:
Besta gi’ásleppuver-
tíðin í langan tíma
CHrlrlriokAlmi
Stykkishólmi.
ÞÓTT grásleppuvertíðinni hér í
Stykkishólmi sé ekki lokið enn
fer ekki milli mála að þetta er
langbesta vertíðin sem menn
muna eftir. Það kom sér vel að
Björg hf. og framkvæmdastjóri
fyrirtækisins, Finnur Jónsson,
skyldi vera tilbúinn til að taka á
móti hrognunum i nýju verk-
smiðjuhúsi sem rís út á Hamra-
endum hér í bæ. Þangað fer nú
allur aflinn.
Morgunblaðið/KGA
Frá útskrift Tækniskóla íslands í hátíðarsal Sjómannaskólans.
Fréttaritari brá sér nýlega í verk-
smiðjuhúsið. Þar var margt um
manninn og allir í önnum. Þama
var mikið af tunnum sem bæði voru
fullar af grásleppuhrognum og svo
aðrar sem biðu þeess að fá fylli
sína.
„Við unnum fram til kl. 3 í nótt,“
sagði Finnur „og byijuðum snemma
í morgun. Það er gaman þegar vel
veiðist og allt gengur vel. Bráðum
koma svo vélar í húsið og þá hefst
niðursuða matvæla. Mér finnst bara
hörmulegt að henda öllu af grá-
sleppunni nema hrognunum. Þetta
eru verðmæti. Og svo aflaðist um
tíma svo vel af rauðmaganum að
honum varð ekki komið í lóg. Von-
andi koma þeir tímar fljótt að allt
verði notað og engu þurfí að
henda."
— Árni
Tækniskóli Islands fær
1400 fm viðbótarhúsnæði
Morgunblaðið/Ámi
Mikið af tunnum sem bæði voru fullar af grásleppuhrognum og svo
aðrar sem biðu þess að fá fylli sína.
FÓSTURSKÓLA íslands var slit-
ið 22. maí sl. í Bústaðakirkju að
viðstöddum mörgum gestum og
afmælisárgöngum. Skólastjóri,
Gyða Jóhannsdóttir, las yfirlit
yfir starfsemi skólans á sl. skóla-
ári og ræddi ýmis framtíðarverk-
efni.
í upphafí skólaárs voru 168 nem-
endur við nám í skólanum. Skiptust
nemendur í 8 bekkjardeildir. Þijár
Gylfi Þ. Gíslason fyrrverandi
menntamálaráðherra var viðstadd-
ur útskriftina, en þess var minnst,
að hann hleypti T.í. af stokkum í
þessum sama hátíðarsal haustið
1964. Viðstaddir voru einnig Knút-
ur Hallsson ráðuneytisstjóri og
Gunnar Bjamason fyrrverandi
skólastjóri, sem með ráðum og dáð
höfðu undirbúið stofnun skólans.
bekkjardeildir voru á fyrsta náms-
ári, tvær á öðru námsári og þijár
á þriðja námsári. Víðtæk endur-
menntun fór fram sl. vetur fyrir
starfandi fóstrur. Þessi endur-
menntun var fólgin í 15 stuttum
námskeiðum 20—30 stunda löng-
um. Boðið var upp á tvö námskeið
á Akureyri. Skólastjóri ræddi um
nauðsyn þess að slík endurmennt-
unamámskeið yrðu eðlilegur þáttur
í starfsemi skólans og lagði áherslu
á aukna þjónustu við landsbyggð-
ina.
Skólastjóri greindi jafnframt frá
því að á næsta skólaári verður starf-
rækt eins árs framhaldsdeild.
Námið er einkum ætlað fóstmm
með starfsreynslu er hyggja á
stjómunar-, ráðgjafar- og umsjón-
arstörf á dagvistarheimilum.
Nemendur geta jafnframt valið um
nokkra sérhæfingu svo sem starf-
semi skóladagheimila, skapandi
starf dagvistarheimila, böm á
sjúkrahúsi, böm með sérþarfir.
Mjög brýnt er að skólinn eignist
íþróttasal. Skortur á slíkri aðstöðu
er tilfínnanlegur, þar sem ekki er
unnt að veita nemendum nægilega
þjálfun í sambandi við hreyfiuppeldi
bama, sem er mikilvægur þáttur í
uppeldisstarfí.
I lok ræðu sinnar minnti skóla-
stjóri á nauðsyn þess að starfrækja
æfinga- og tilraunastofnun við
Fósturskóla íslands, en um það er
kveðið á í lögum skólans.
Fulltrúar afmælisárganga fluttu
ávörp og færðu skólanum gjafír i
tilefni 40 ára afmælis skólans, sem
haldið var hátíðlegt 1. okt. sl.
Burtfararprófi luku 67 nemend-
ur. Skólastjóri afhenti þeim skírteini
og ávarpaði þær sérstaklega.
(Fréttatilkynning)
Fósturskóla
Islands slitið
TÆKNISKÓLA íslands var slitið í hátíðasal Sjómannaskólans laugar-
daginn 30. maí. 165 nemendur voru útskrifaðir frá skólanum, en
samanlagður nemendafjöldi á árinu var um 400.
Raungreinadeildarprófí luku 57,
iðnfræðinámi í byggingardeild 5,
byggingartæknifræðinámi 22, iðn-
fræðinámi í rafdeild 2, fyrsta
námsári í rafmagnstæknifræði 9
(fara til Danmerkur), iðnfræðinámi
í véladeild 2, fyrsta námsári í véla-
tæknifræði 13 (faratil Danmerkur),
11 útvegstæknar útskrifuðust, 9
iðnfræðingar og 19 starfsreynsl-
ustúdentar í iðnrekstrarfræði.
Bjami Kistjánsson rektor gaf
yfirlit um starfsemi og hlutverk
Ferming
FERMING í Barðskirkju í Fljót-
um sunnudaginn 14. júní kl. 14.
Prestur sr. Gísli Gunnarsson.
Fermd verða:
Bjamveig Berglind Sigurðardóttir,
Saurbæ.
Jón Elvar Númason,
Þrasastöðum.
Snæbjöm Freyr Valbergsson,
Sólgörðum.
Þórarinn Öm Amarson,
Ökmm.
Þorlákur Magnús Sigfurbjömsson,
Langhúsum.
skólans og gat hann þess m.a., að
áætlað er að Tækniskólinn fái ná-
lægt 1.400 fermetra viðbót við
leiguhúsnæðið að Höfðabakka 9
vegna nýrra verkefna og vaxandi
aðsóknar.
Ýmsir fluttu skólanum kveðjur
og bárust honum einnig margar
gjafír. M.a. gáfu þeir, sem luku
raungreinadeildarprófí fyrir 20
áram fyrirheit um 20 ára gamalt
tré, sem þeir ætla sjálfír að gróður-
setja við nýtt tækniskólahús að
Keldnaholti.
Ávörp fluttu Daði Ágústsson
formaður Tæknifræðingafélagss-
ins, Haraldur Jónsson f.h. 10 ára
útvegstækna, Halldór Halldórsson
formaður Félags útvegstækna,
Kristján Kristjánsson f.h. 20 ára
raungreinaprófsmanna og Kristján
Ragnarsson formaður Nemendafé-
lags T.í. Einnig flutti ræðu Páll
Kr. Pálsson forstjóri Iðntæknistofn-
unar.
Deildarstjórar gáfu stutt yfírlit
yfir starfíð, hver í sinni deild og
afhent síðan prófskírteini. Signý
Sæmundsdóttir söng einsöng við
undirleik Þóra Fríðu Sæmunds-
dóttur.
honum þökkuð vel unnin störf og
flutti skólanefndarformaður, Ingi-
berg J. Hannesson, honum þakkir
fyrir hönd skólans og færði honum
gjöf að skilnaði og Guðjón þakkaði
og kvaddi skólann og Dalahérað.
Kristján Gíslason, settur skóla-
stjóri, mun starfa áfram við skól-
ann. Nokkrar breytingar verða nú
einnig á kennaraliðinu, þó ekki stór-
vægilegar frekar venju.
Við skólaslitin færði einn kennari
skólans, Bjöm St. Guðmundsson,
skólanum að gjöf uppstoppaða súlu
og óskaði eftir því að þetta yrði
upphafíð að stofnun náttúragripa-
safns við skólann. Við skólaslitin
var opin handavinnusýning nem-
enda og öllum vora boðnar veitingar
er viðstaddir vora. Mikill hugur er
í forráðamönnum skólans að halda
svo á málum, að íþróttahús, sem í
nokkur ár hefur verið í byggingu,
geti komist á það stig í sumar, að
hægt verði að taka það í notkun
næsta haust, þó ekki verði það þá
fullgert. Yrði það stór áfangi í
starfi skólans.
- IJH.
Fjölmenni var við skólasUt að venju. Morgunblaðið/IngibergJ. Hannesson