Morgunblaðið - 25.06.1987, Qupperneq 32
3a>
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1987
Suður Kórea
Kim Dae Jung sleppt úr stofufangelsi:
Þekktasti sljórnarand-
stæðingur Suður-Kóreu
Seoul, Reuter.
KIM DAE JUNG, sem látinn var laus í gær eftir að hafa verið
í stofufangelsi í tvo mánuði, er þekktasti talsmaður stjómar-
andstæðinga í Suður-Kóreu. Hann hefur lengi barist fyrir þvi
að lýðræði verði komið á í landinu og hefur af þeim sökum
eytt mörgum árum ævi sinnar bak við lás og slá.
Kim Dae Jung er 63 ára að
aldri. Hann var settur í stofufang-
elsi í aprílmánuði er hann og annar
þekktur stjómarandstæðingur Kim
Young Sam ákváðu að snúa bökum
saman og stofna Lýðræðislega
sameiningarflokkinn. Kim Dae
Jung er óheimilt að hafa afskipti
af stjómmálum þar eð hann hefur
hlotið dóm fyrir undirróðursstarf-
semi.
Rúmlega þrítugur að aldri var
hann orðinn þekktur vegna af-
skipta sinna af þjóðmálum. Á þingi
flokks stjómarandstæðinga, Lýð-
ræðisflokks Kóreu, árið 1970 var
hann óvænt valinn sem forsetaefni
flokksins. Háði hann harða kosn-
ingabaráttu við Park Chung Hee,
þáverandi forseta, og hlaut gagn-
rýni hans á spillingu innan stjóm-
kerfisins mikinn hljómgmnn meðal
alþýðu manna. Kim hlaut 45 pró-
sent atkvæða sem var mikill sigur.
Kim lenti í alvarlegu bflslysi í kosn-
ingabaráttunni og ber hann ætíð
merki þess. Sjálfur er hann í eng-
um vafa um að slysið hafi ekki
verið óviljaverk heldur tilræði við
hann. í ágústmánuði árið 1973 var
honum rænt er hann dvaldist á
hóteli í Tókýó. Segir hann ræningj-
ana hafa verið útsendara leyni-
þjónustu Suður-Kóreu. Að hans
sögn var hann bundinn og keflaður
og fluttur á hraðbáti á haf út.
Hugðust mennimir varpa honum
fyrir borð er flugvél flaug yfir og
skaut út aðvörunarblysum. Snem
mennimir þá bátnum aftur til
lands. Þremur dögum síðar var
honum varpað út úr bfl á ferð fyr-
ir framan heimili sitt í Seoul.
Park forseti var myrtur árið
1979 og bauð Kim sig fram í for-
setakosningum árið eftir. Til þeirra
kom þó ekki því herinn tók völdin
í sínar hendur og var Chung Doo
Hwan, núverandi forseti, helsti
leiðtoginn. Kim var fangelsaður
og bmtust út miklar óeirðir í
heimahéraði hans er þær fréttir
bámst. Stjóm Chuns forseta sak-
aði Kim um að hafa hvatt til
uppreisnarinnar og var hann
dæmdur til dauða. Dómnum var
breytt í lífstíðarfangelsi og síðan
aftur í tuttugu ára vist innan fang-
elsismúra. Kim var leyft að fara
til Bandaríkjanna árið 1982 að
leita sér læknishjálpar. Þar dvald-
ist hann í sjálfskipaðri útlegð fram
til árisins 1985. Flokkur hans Nýi
lýðræðisflokkurinn varð stærsti
flokkur stjómarandstæðinga í Suð-
ur-Kóreu þó svo að Kim eyddi
stærstum hluta ársins í stofufang-
elsi.
Á síðasta ári ákváðu þeir Kim
Young Sam og Kim Dae Young
síðan að stofna nýjan flokk stjóm-
arandstæðinga sem er mun af-
dráttarlausari í málflutningi
sínum. Óttast stjómvöld í Suður-
Kóreu að þetta nýja afl komi til
með að raska stöðugleika í landinu
og var sá orðrómur á kreiki í
síðustu viku að Chun forseti hygð-
ist stöðva starfsemi hans.
Chun forseti og Kim Young Sam heilsast áður en fundurinn hófst
í gær.
Vonbrigði með ár-
angurslítinn fund
Chun og Kim Young
Seoul, Reuter.
SÁR vonbrigði og reiði voru viðbrögð fólks í Suður Kóreu í gær,
er ljóst var, að fundur Chun forseta og Kim Young Sam, annars
leiðtoga stjóraarandstöðunnar hafði ekki borið neinn umtalsverðan
árangur. Kim Young Sam sagði við fréttamenn að honum loknum,
að hann hefði orðið nýög vonsvikinn. Hann sagði að sér fyndist
ekki stætt á því að hvetja menn til að hætta við fyrirhuguðan
mótmælafund á föstudag, þar eð forsetinn hygðist ekki koma til
móts við stjórnarandstöðuna, nema að mjög takmörkuðu leyti.
Pundurinn milli þeirra Chun og
Kim Young stóð í þrjá klukkutíma
og eftir því sem þeir töluðu lengur
saman, urðu menn vonbetri og
bjuggust við að áþreifanleg niður-
staða væri að finnast. Enn jókst
eftirvænting og vonargleði manna,
þegar þær fréttir spurðust út, að
forsetinn hefði boðið Kim Young
Sam að snæða með sér hádegis-
verð.
Þegar fundinum lauk hélt Kim
fréttamannafund, eins og áður seg-
ir. Hannóf mál sitt með því að segja
að viðræðumar hefðu verið „ófull-
nægjandi." Hann sagði að forsetinn
hefði boðið, að umræður um endur-
bætur á kosningareglum yrðu
leyfðar. Kim kvaðst hafa svarað
því tii, að slfld væri tímasóun.
Chun hefði leyft umræður af því
tagi - að nafninu til, en ákveðið í
vor að banna þær. Umræðumar
hefðu verið út í hött og ekki skilað
neinu. Því væri engin lausn í slíku
„leyfi" fólgin. Hins vegar hvatti
hann forsetann til þess að halda
þjóðaratkvæðagreiðslu um það,
hvemig fyrirkomulag þjóðin að-
hylltist um að kjósa sér forseta.
Sú hugmynd hefði ekki fengið
hljómgmnn hjá forsetanum, sagði
Kim.
Kim Young sagðist hafa krafizt
þess að pólitískir fangar yrðu látn-
ir lausir úr haldi og veitt sakampp-
gjöf. Hann krafðist þess að Kim
Dae Jung yrði sleppt úr stofufang-
elsi og fengi að njóta fullra rétt-
inda. Chun hét að sleppa Kim Dae
úr stofufangelsi, en að öðm leyti
veitti hann engin skýr svör, að
sögn Kim Young.
Kim Young sagðist hafa farið
sæmilega bjartsýnn að hitta forset-
ann, en að honum loknum væri
ekki ástæða til að fagna miklu.
Hann fór fram á það við Chun, að
þeir nafnamir Kim Dae og Kim
Young ræddu saman við hann, eft-
ir að sá fyrmefndi hefði verið látinn
laus, en forsetinn hefði vísað þeirri
hugmynd alfarið á bug.
í fréttaskeytum segir að menn
óttist mjög að óeirðir haldi áfram,
og þykir það ekki fyrirboði neins
góðs, að Kim Young skyldi gefa
eindregið til kynna, að borgarar
ættu ekki annarra kosta völ en
halda baráttunni á götum úti
áfram.
Síðdegis í gær kom til átaka í
Seoul eina ferðina enn, eftir að Kim
Young hafði gert mönnum grein
fyrir, að fundurinn með forsetanum
hefði farið fyrir lítið.
Reuter
Kim Young Sam (til vinstri) átti i gær fund með Kim Dae Young (til hægri) og var myndin tekin við
það tækifæri.
Bandarískir gíslar í Líbanon:
Fyrrum ráðgjafi vill
enga miskunn sýna
Waahington, Reuter.
NOEL Koch, fyrrum sérfræðing-
ur Bandaríkjastjórnar um
aðgerðir gegn hryðjuverkastarf-
semi, sagði í vitnaleiðslum
rannsóknarnefndar Bandarikja-
þings um vopnasölumálið i gær
að til dæmis mætti leysa gisla-
FORSETI Barnahjálpar Samein-
uðu þjóðanna (Unicef), Gilbert
Jáger, lagði i gær fram afsögn
sína. Hann vill láta af embætti
vegna hneykslismáls, sem upp
kom varðandi barnaklám og
stofnunin flæktist í.
Yfírmaður belgísku deildar Unic-
ef og sjálfboðaliði við stofnunina
hafa verið kærðir fyrir að vera við-
málið með þvi að ræna foringja
einhverra samtaka, sem hlynnt
eru írönum og grunuð um að
hafa bandaríska gisla í haldi, og
aflima hann smátt og smátt.
„Ég myndi fara með hann á hlýj-
an, viðkunnanlegan stað og skera
riðnir alþjóðlegan glæpahring, sem
talið er að hafi látið framkalla klám-
myndir af bömum í kjallara skrif-
stofubyggingar Unicef í Briissel.
Jáger var ekki viðriðinn hringinn,
að því er talsmaður Unicef sagði,
en vildi láta hneykslan sína og reiði
vegna þessa athæfís koma í ljós
með afsögn sinni.
af honum einhvem líkamshluta, án
þess þó að stofna lífí hans í hættu.
Fingur væri kjörinn. Ég myndi vefja
miða utan um Ifkamshlutann og
skrifa á hann: þaðan sem þetta
kemur er meira að finna," sagði
Koch fyrir nefnd beggja deilda
Bandaríkjaþings á þriðjudag.
Koch lét af störfum í bandaríska
vamarmálaráðuneytinu í maí 1986
til að mótmæla leynilegri sölu
Bandaríkjamanna á vopnum til ír-
ana. Hann lét þessi ummæli falla
er hann var spurður hvemig hann
myndi reyna að leysa gíslamálið.
Hann sagði að miðann ætti að
senda til samstarfsmanna hryðju-
verkaforingjans og segja að þeir
ættu tafarlaust að láta gísla sína
lausa, „annars verður meira af
þessu dóti sent til ykkar".
Reuter
Noel Koch hefði farið aðrar leið-
ir en stjóra Ronalds Reagans
forseta tU að fá bandaríska gísla
í Líbanon leysta úr haldi.
„í raunvemleikanum verður oft
að gera hluti sem ekki em kenndir
í sunnudagaskólanum," bætti Koch
við.
Vitað er að níu bandarískir gíslar
em í haldi í Líbanon. Vopnasalan
átti að tryggja þeim frelsi og koma
á samskiptum við „hófsöm" öfl í
íran.
Bandaríkjaþing:
Aukið öryggi
í sendiráðum
Washington, Reuter.
FULLTRÚADEILD Bandaríkja-
þings samþykkti i gær fjárlaga-
frumvarp fyrir utanríkisráðu-
neytið fyrir fjárlagaárið 1988 tíl
1989. Þar er ákvæði um að meina
sovéskum stjóraarerindrekum
að flytja inn í nýja sendiráð Sov-
étmanna í Washington þar tU
hljóðnemar og hlerunartæki
hafa með öUu verið fjarlægð úr
bandaríska sendiráðinu í
Moskvu.
í framvarpinu er einnig tillaga
um að hefta ferðafrelsi bandarískra
borgara til Nicaragua og annarra
ríkja í Mið-Ameríku, ef þeir ætla
þangað í þeim yfírlýsta tilgangi að
aðstoða hemaðaröfl kommúnista.
Frumvarpið fer næst gegn um
öldungadeild þingsins og er líklegt
að ýmis viðbótarákvæði þess verði
felld niður eða þeim verði verulega
breytt.
Forseti Unicef segir af sér
Brilssel, Reuter.