Morgunblaðið - 25.06.1987, Síða 66
V Cf / gf HljrMOTTTl/MFí OTQ/.lHVI' TOSÍONi
66 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1987
©1987 UnlVfl Pre» SyndtCJte
/(Spur&u hom hvar hanr\ geymir
Lyíd'iLirm aS öryggfishblfinu "
TM Reg. U.S. Pat. Oft.—all rights reserved
<D 1986 Los Angeles Times Syndicate
O o
POLLUX
Já, ég er hættur í liðinu.
Það er óspilandi í bún-
ingTmm frá styrktarfé-
laginu, svo þröngur er
’ann!
HÖGNI HREKKVÍSI
//■■■OÖ SVO/HVAP HALPIE>/ A€?
LITLI HUNOORJMN ÖKKAR HAF/
Svona á að opna femur
Til Velvakanda
Ekki skil ég allt það fjaðrafok,
sem nýlega hefur orðið út af mjólk-
urfemum. Það er eins og enginn
geri sér grein fyrir forréttindum
höfuðstaðarbúa, að fá að nota
öðruvísi femur en allir aðrir lands-
menn. En það ber nauðsyn til að
umgangast landbúnaðarafurðir og
umbúðir þeirra af tilhlýðilegri virð-
ingu, enda rétt að geta þess að
sumstaðar er kýrin heilagt dýr, og
skal enginn telja mér trú um, að
kýrpretar landbúnaðarins kunni
ekki að velja okkur mjólkummbúðir
við hæfi. Skulu hér gefín nokkur
góð ráð við notkun þessara góðu
fema: Stillið femunni á mitt borð
og fjarlægið allt sem ekki má
blotna. Setjið upp góða svuntu (t.d.
eins og þær, sem notaðar em í
frystihúsum), vaðstígvél em jrfir-
leitt ekki nauðsynleg. Og nú er
betra að hafa aðgát; þar sem stend-
ur „Rífið hér“ skuluð þið alls ekki
rífa, því að það er bara fyrir lyft-
ingamenn, notið skæri. Nú er komið
að örlagastundu: Óvaningar halda
að nú geti þeir bara tekið utan um
belginn á femunni og hellt, en ef
þið gerið það, verður annað hvort
Geysisgos eða Kötluhlaup. Rétta
leiðin er að fara með fingur á kaf
ofan í rifuna og glenna vel út, ef
illa er glennt öðm hvom megin,
getur komið hægri buna eða vinstri
buna, báðar hvimleiðar. Þurrkið
mjólk af fingmm og búið ykkur
undir fyrsta glasið, raunar er trygg-
ara að nota skál en glas. Nú skuluð
þið hugsa ykkur að feman sé bam
í reifum, leggið hendur mjúklega á
gaflana, snertið ekki hliðar, og hell-
ið varlega, og þar með er bjöminn
unninn. Héðan í frá ætti að vera
auður sjór, nema einhver sé svo
kæmlaus að gleyma að glenna.
Eins og sjá má af ofanskráðu er
það lítið mál að nota þessar femur,
en skal þó bent á að sé einhver svo
lánsamur að hafa smið eða skurð-
lækni á heimilinu, skaðar ekki að
fela honum verkið.
Femuunnandi
Þessir hringdu . . .
Gullarmband
Gullarmband tapaðist 15. júní
á leiðinni frá hótel Lind við Rauð-
arárstíg í Miklagarð með viðkomu
í versluninni Misty við Laugaveg.
Skilvís fínnandi hringi í síma
689161. Fundarlaun.
Minkakragi
Svartur minkakragi tapaðist í
grennd við miðbæinn í síðustu
viku. Finnandi er beðinn að hafa
samband í síma 12215. Fundar-
laun.
Ekki bara hús-
kaupendur sem
verða að neita
sér um kjöt
Margrét hringdi:
„Ég vil taka undir það sem
Unnur skrifar í Velvakanda
sunnudaginn 21. júní. En það em
ekki bara húsakaupendur sem
verða að neita sér um lq'öt heldur
einnig fólk almennt. Sjálf hef ég
búið í 27 ár en við höfum ekki
haft efni á að kaupa kjöt nema
endram og sinnum. Þessi stefna
í landbúnaðarmálum gengur ekki
lengur — það verður að gera eitt-
hvað í þessum málum. Væri ekki
meira vit í því að leyfa fólki að
kaupa kjötið á lágu verði heldur
en að fleygja því á haugana eða
í refinn? Það hlýtur einhver í ráðu-
neytinu að vera með heilbrigða
skynsemi."
Supería
kvenreiðhjól
Grátt Superia kvenreiðhjól var
tekið traustataki aðfaranótt
mánudags á Bergstaðastræti.
Þeir sem hafa orðið varir við hjól-
ið em beðnir að hringja í síma
10196 eða síma 16713 á kvöldin.
Víkverji skrifar
Anægjulegt er að sjá lagningu
bundins slitlags þokast áfram
á veginum fyrir Hvalfjörð. Um þess-
ar mundir er verið að leggja á kafla
við norðanverðan ijörðinn og verða
þá örfáir stuttir malarkaflar eftir,
rétt til að sýna okkur mismuninn á
vegum og óvegum.
Klæðingamar svokölluðu, sem
virðist vera algengasta tegund
bundins slitlags um þessar mundir,
komu víða illa undan vetri. Góður
vetur virðist fara verr með þær en
slæmur, þó ótrúlegt sé. Dæmi um
þetta er vegurinn á Hafnarmelum
í Melasveit. Vegavinnumenn hafa
eytt mörgum dögum í viðgerðir í
vor. Einn þeirra sagði Víkvetja að
líftími klæðingarinnar væri einfald-
lega svona stuttur þar sem um-
ferðin væri þetta mikil og
nauðsynlegt að leggja nýja klæð-
ingu á veginn.
XXX
Ekki er allt jafn gott við nýju
vegina. Þekktur sérleyfishafí
sem ekið hefur um HvalQörð næst-
um alla daga ársins í áratugi benti
Víkveija á það á dögunum að vit-
laus hliðarhalli er á nýja veginum
á nokkmm stöðum. Sérstaklega er
þetta áberandi á tveimur stöðum
við sunnanverðan fjörðinn, undir
Múlahlíð og skammt frá Fossá, á
köflum sem klæðing var lögð á í
fyrrasumar. Sérleyfíshafinn sagði
að þarna hefðu verið krappar beygj-
ur þar sem vegurinn hallaði vel frá
fírðinum inn í hlíðina. Eðlisfræðileg
lögmál unnu því með ökumanninum
og bílnum og hægt að aka nokkuð
greitt þó beygjurnar væm krappar.
Þegar vegurinn var „lagaður"
var beygjan minnkuð og lagt á
bundið slitlag. Þá var hliðarhalli
vegarins jafnaður, og sums staðar
meira en það, hann hallar frá
hlíðinni í átt að þverhnípinu niður
í Hvalfjörð. Sérleyfishafinn benti
Víkveija á að þessar tilteknu beygj-
ur væm sérlega hættulegar í hálku,
ekki síst þegar menn væm á suður-
leið. Á þessum slóðum em oft
vindstrengir og er hætta á að menn
missi bílana hreinlega út af vegin-
um, ef farið er of geyst við slíkar
aðstæður. Víkveija virðist sem
þama hafí verið búnar til aðstæður
sem geta orðið að slysagildm. Rétt
er að geta þess að á nýjum vegar-
köflum við norðanverðan Hvalfjörð
er réttur hliðarhalli í beygjum og
hældi sérleyfishafinn þeim vega-
gerðarmönnum sem um þá fram-
kvæmd sjá.
XXX
Meira um Hvalfjörðinn. Mörg-
um finnst leiðinlegt að aka
um Hvalfjörð. Víkveiji hefur líka
haft þá tiífínningu. En það er eins
og leiðin verði fallegri með ámnum,
eftir því sem hún verður greið-
færari. Víkveiji er á því að Hval-
flörður yrði enn skemmtilegri ef
leiðin yrði stytt vemlega með brú,
feiju eða jarðgöngum, eins og
stundum hefur verið rætt um.
XXX
Og í lokin, ein lítil saga úr
bændaferð: Starfsfólk bænda-
samtakanna þurfti að rýma skrif-
stofur sínar á meðan NATO-fund-
urinn var haldinn á dögunum.
Framleiðsluráð landbúnaðarins not-
aði tækifærið til að halda upp á 40
ára afmæli sitt með því að bjóða
starfsfólkinu og bændaforystunni í
utanlandsferð. í hópnum var einn
góðbóndi af Suðurlandi sem aldrei
hafði stigið upp í flugvél og ekki
fyrr farið út fyrir landsteinana.
Staidraði hann við á réttum stöðum
í Flugstöð Leifs Eiríkssonar til að
ná úr sér flughræðslunni. Fer ekki
neinum sögum af bóndanum fyrr
en hann vaknar næsta morgun í
Rínarlöndum. Sunnlenski bóndinn
vaknar snemma og áttar sig ekkert
á því hvar hann er staddur. Hélt
helst að hann væri kominn til
himnaríkis, en þegar hann leit út
um gluggann fannst honum full
búsældarlegt til að svo gæti verið,
og þá rann upp ljós fyrir honum.