Morgunblaðið - 27.10.1987, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987
Arnfirðingar slátra á Patreksfirði
BÆNDUR í Amarfirði ákváðu lun helgina að senda slát-
urfé sitt í Sláturhús Vestur-Barðstrendinga á Patreksfirði.
í gærmorgun var slátrað fé frá bónda í Tálknafirði sem
hugðist slátra hjá Sláturfélagi Arnfirðinga. í dag verður
byrjað að slátra fé frá Arnfirðingum. Forsvarsmenn Slátur-
félags Amfirðinga hafa ákveðið að sækja mál Sláturhússins
á Bfldudal fyrir dómstólum.
Ólafur Hannibalsson formaður
Sláturfélags Amfírðinga tjáði
Morgunblaðinu í gær að ástæðan
fyrir því að ákveðið var að slátra
á Patreksfírði væri sú að tíminn
væri útrunninn. Hrútakjöt verður
verðfellt verulega 1. nóvember
næstkomandi og sagði hann að
freista yrði þess að slátra sem
flestum hrútum fyrir þann tíma.
„Það var búið að tilkynna fyr-
ir helgi að við gætum slátrað á
Patreksfírði og menn notuðu
helgina til að íhuga málið," sagði
Ólafur. „Það var nauðsynlegt að
taka þessa ákvörðun því ef menn
hefðu beðið lengur með að slátra
hefðu þeir þurft að taka á sig
stórfellt tjón. Menn treysta sér
ekki til að standa undir því.
En baráttunni er ekki lokið.
Okkur fínnst við hafa verið rang-
læti beittir og teljum að Alþingi
og stjómvöld eigi að skoða þessi
mál,“ sagði hann.
„Við erum fallnir á tíma og
slátmm á Patreksfírði í trausti
þess að fá eitthvað greitt fyrir
afurðimar," sagði Sigurður Guð-
mundsson framkvæmdastjóri
Sláturfélags Amfírðinga. „En við
ætlum að sækja þetta mál fyrir
dómstólum. Það hefur verið
bmgðið fyrir okkur fæti og við
verið lokkaðir út í fjárfestingu
sem við hefðum annars ekki farið
út í núna. Okkur hefur verið vem-
lega mismunað. Við vitum fyrir
víst að allt í kringum okkur era
sláturhús sem em örgustu kofar
miðað við húsið okkar, sem er í
ágætu lagi,“ sagði Sigurður.
Álit meirihluta og minnihluta
landbúnaðamefndar á fmmvarpi
um sláturleyfí handa Sláturfélagi
Amfriðinga var lagt fram á Al-
þingi í gær. Matthías Bjamason
fyrsti flutningsmaður frumvarps-
ins sagðist í gær ekki sjá nokkra
ástæðu til að draga framvarpið
til baka þrátt fyrir að Amfirðing-
ar ætluðu að slátra fé sínu á
Patreksfirði. „Fmmvarpið fær
sína þinglegu meðferð," sagði
hann.
DEILISKIPULAG
Byggingar vegna fyrirhugaðrar
miðbæjarstarfsemi
MorgunblaOid/ Gúl
VEÐURHORFUR í DAG, 27.10.37
YFIRLIT á hádegl f gær: Lægð verður vestur af Bretlandseyjum á
leið austur og önnur lægð að fikra sig inn á Grænlandshaf úr vestri.
SPÁ: Austan- og norðaustanátt um mestallt land, víðast gola eða
kaldi. Él noröantil á Vestfjörðum, en skúrir eða slydduél í öðrum
landshlutum. Hiti 1 til 5 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
MIÐVIKUDAGUR: Norðaustanátt og hiti nálægt frostmarki á Vest-
fjörðum en fremur hæg breytileg átt og 2—5 stiga hiti annars
staðar. Skúrir eða slydduél um mestallt land.
FIMMTUDAGUR: Hægt vaxandi sunnan- og suðaustanátt. Rigning
eða súld um sunnan- og vestanvert landið en víðast þurrt á Norð-
ur- og Norðausturlandi. Hiti 2—6 stig.
TÁKN:
Heiðskírt
a
Gk
■A
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■y o Hrtastig:
10 gráður á Celsius
y Skúrir
*
V
Él
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
4
K
Skafrenningur
Þrumuveður *
*
C 4
% ^ w
T 1 W'
VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hftl veóur
Akureyri 4 léttakýjað
Reykjavfk 4 rlgnlng
Bergen 10 akýjað
Helsinkl 9 skýjað
Jan Mayen 3 skýjað
Kaupmannah. 9 skýjað
Naresarsiuaq 7 léttakýjað
Nuuk 6 léttskýjað
Osló 6 skýjað
Stokkhólmur S þokumóða
Þórshöfn vantar
Algarve 19
Amaterdam 10 mistur
Aþena vantar
Barcelona 22 þokumóða
Bertín 9 mlstur
Chlcago Feneyjar +2 skýjað vantar
Frankfurt 9 alskýjað
Glasgow 11
Hamborg 8 léttskýjað
Las Palmas 22 skýjað
London 11 þokumóða
Los Angeles 18 léttskýjað
Lúxemborg 8 þokumóða
Madrfd 21 mlstur
Malaga 21 þokumóða
Mallorca 31 léttskýjað
Montreal 2 skýjað
NewYork 4 helðskfrt
París 12 þokumóða
Róm 24 hélfskýjað
Vln 9 alskýjað
Waahlngton 3 léttskýjað
Wlnnlpeg 6 rignlng
Valencia 21mlatur
Borgarráð;
Deiliskipulag í
Sogamýri samþykkt
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
deiliskipulag í Sogamýri í reit
sem afmarkast af Miklubraut,
Skeiðarvogi og Suðurlandsbraut.
Verulegur hluti Sogamýrar-
svæðisins er ætlaður fyrir
skógrækt og er í umsjá Skóg-
ræktar rikisins, en á svæðið næst
Skeiðarvogi er fyrirhuguð mið-
bæjarstarfsemi.
I heildarskipulagi yfír svæðið er
gert ráð fyrir gönguleið sem tengja
útivistarsvæðin í Laugardal og El-
liðaárdal. Þvert á hana liggur önnur
gönguleið frá Langholtsvegi að
Borgargerði. Gert er ráð fyrir að
mörk milli skógræktar og mið-
bæjarsvæðis verði ekki bein heldur
myndi skógatjaðarinn hálfhring um
útivistarsvæðin sunnan við fyrir-
hugaða byggð.
Árekstrar
og ljósafæð
UM hálft hundrað árekstra
urðu S Reykjavík um helgina.
Langt er siðan lögreglan hefur
þurft að vera jafn mikið á þön-
um um helgar vegna umferð-
aróhappa.
Úr öllum þessum árekstmm
slapp fólk furðu vel. Sumir þeirra
vom óvenju harðir, en að sögn
lögreglu hefur dregið úr hörðum
árekstmm eftir að sérstakt um-
ferðarátak hófst í höfuðborginni.
Lögreglan telur sérstaka ástæðu
til að minna ökumenn á að kveikja
ljós bifreiðanna. Þá em margir
sem ekki hafa hirt um að láta
skoða ljósabúnað. Enn aðrir aka
um á bifreiðum sem em eineygðar
eða að minnsta kosti nokkuð
sjóndaprar, en það kann ekki
góðri lukku að stýra í skammdeg-
inu.
Forsetinn svarar
bréfi Ikenzis ekki
Málaferlum við hann frestað vegna
þrýstings frá utanríkisráðherra
FORSETI íslands hefur ekki
svarað bréfi Mike Ikenzis, ræðis-
manns íslands í Nígeríu og
milligöngu manns nm skreiðar-
sölu. ! bréfinu biður hann
forsetann að stöðva málssókn á
hendur sér, en íslenzkir skreiðar-
útflytjendur krefja hann um
endurgreiðslu um 18 milljóna
króna, sem honum voru fengnar
til að liðka fyrir sölusamningum.
Ikenzi segir í bréfínu að honum
hafí verið fengið féð til að múta
mönnum og það hafí verið notað
til þess. Komelíus Sigmundsson,
forsetaritari, segir að erindi Ikenzis
sé ekki þess eðlis að það falli undir
verksvið forseta íslands. Það falli
undir framkvæmdavaldið og með
því að sams konar bréf hefði verið
sent forsætisráðherra og utanríkis-
ráðherra, teldi hann ólíklegt að
forsetinn svaraði bréfinu.
Steingrímur Hermannsson, út-
anríkisráðherra, sagði í samtali við
Morgunblaðið í síðustu viku, að
þetta væri ekki mál sijómvalda og
skreiðarútflytjendur yrðu að leysa
það sjálfír. Morgunblaðið hefur
engu að síður heimildir þess efnis
að málinu hafi verið frestað „til að
fara yfír málsgögn Ikénzis" vegna
þrýstings frá utanríkisráðherra.