Morgunblaðið - 27.10.1987, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987
5
Morgunblaðið/Eyj&lfur M. Guðmundsson
Bragi Eyjólfsson vélfræðingur við búnaðinn þar sem tilraunir með
fellingu kísils fer fram i Svartsengi.
Felldur kísill úr Svartsengi:
Reynist vel sem
fylliefni í gúmmí
Vogum.
TILRAUNIR með felldan kísU
úr jarðsjó úr Svartsengi benda
til að gera megi arðbæra sölu-
hæfa vöru á almennum markaði,
með því að nota kísilinn sem fylli-
efni í gúmmí.
Albert Albertsson, framkvæmda-
stjóri tæknisviðs Hitaveitu Suður-
nesja, sagði í samtali við fréttarit-
ara Morgunblaðsins að sýni hefðu
verið send til óháðrar rannsóknar-
stofu í Svíþjóð þar sem kísill úr
Svartsengi hefði verið notaður sem
fylliefni í gúmmíprufur. Þar hefðu
einnig verið gerðar prufur úr sam-
keppnisefnum, og niðurstöður
sýndu að kísill úr Svartsengi væri
fullkomlega sambærilegur.
Sá búnaður sem hefur verið sett-
ur upp í Svartsengi til að fella
kísilinn verður rekinn eitthvað
áfram. Albert segir að það þurfí
að gera vinnsluna fullkomnari, og
að það sé ekki víst að þetta sé arð-
bært, heldur að fyrstu merki sýni
að svo sé. Á næsta ári er hugmynd-
in að taka endanlegar ákvarðanir
um fellingu kísils og jafnvel að til-
raunabúnaður, eða kísilskilia, verði
leigður erlendis frá.
Albert segir það nokkuð ljóst, að
síðan staldri Hitaveita Suðumesja
við og að hugað verði að undirbún-
ingi um kísilvinnslu í Svartsengi,
enda verði þá nægjanleg þekking
fyrir hendi, þekkingargrunnur næg-
ur til að gera söluhæfa vöru.
Talið er að um 2.500 tonn af
kísil falli til á ári.
- EG
Morgunbl&ðið/Jón Gunnlaugsson
Líflegt við Akran'shöfn. Vel hlaðnir bátar bíða löndunar.
Góður afli hjá smá-
bátum á Akranesi
Akranc li.
AFLI s nábáta á Akranesi hefur
verið mjög góður að undanförnu
og hafa þeir aflahæstu komist í
3-5 tonn eftir daginn. Þetta er
góð búbót fyrir sjómennina en
afli hafði verið uýög rýr.
Frá Akranesi er gerður út mikill
fjöldi smábáta undir 10 tonnum að
stærð og hafa milli 20 og 30 bátar
landað daglega nú undanfarið.
Margir þeirra hafa verið með tvö
til þrjú tonn og hæst hafa þeir kom-
ist í rösk 5 tonn.
Sjómennimir em að vonum
ánægðir með lífið þessa dagana en
það eina sem spillir er veðrið sem
er frekar rysjótt. Afli sinábátanna
fer til vinnslu í frystihúsunum á
Akranesi, hluti hans er sendur í
gámum á erlendan markað og einn-
ig er hann seldur beint í fiskbúðir.
- JG
Junckers
BUTSA prodokter
Blitsa lökk á parketið og korkinn
Níðsterk gólflökk í sérflokki.
Imckers
isoBLrm
Jnnckers
MBUTSA
Spurðu fagmanninn,
hann þekkir Blitsa lökk
Þú færð Blitsa lökk hjá:
Byko, Kópavogi,
Byko, Hafnarfiröi,
Byggt og búiö, Kringlunni,
Húsasmiðjunni,
Litnum,
Litveri,
Málaranum,
Dúkalandi,
Pétri Hjaltested,
Dropanum, Keflavík,
Skafta, Akureyri,
Penslinum, ísafirði,
S.G. búðin, Selfossi,
Máiningarvörum hf.,
Málningarþjónustunni
og öllum betri byggingavöruverslun
um um allt land.
EGILLARNASONHF
PARKETVAL
SKEIFUNNI 3, SÍMI 91-82111
P * i
u * <«
% 4
SETTA SEM TREYST ER Á
OTDK