Morgunblaðið - 27.10.1987, Side 12

Morgunblaðið - 27.10.1987, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987 í upphafinu enginn kann endi leiks að skoða Leiklist Bolli Gústavsson í Laufási Leikfélag Akureyrar LOKAÆFING eftir Svövu Jakobsdóttur Lýsing: Ingvar Björnsson Leikmynd og búningar: Gylfi Gíslason Leikstjórn: Pétur Einarsson Ég var minntur á þessar hending- ar á frumsýningu Leikfélags Akureyrar á Lokaæfmgu, leikriti eftir Svövu Jakobsdóttur. Sannar- lega eiga þær við um þetta margslungna verk, sem heldur at- hygli áhorfandans föngnum allt til óvæntra endaloka. Bendir upphafs- atriðið alls ekki til þeirra hrikalegu átaka, sem vaxa stig af stigi. Það hvarflar jafnvel að manni á fyrstu mínútunum, hvort leikendur ætli ekki að ná handfestu á þessum yfír- borðslega leik. En Svava Jakobs- dóttir er hugkvæmur höfundur og vitur. Hún nær þeirri fágætu hæð að vera gott skáld í mjög nútíma- legu leikhúsverki, sem sniðgengur hvergi þau vandamál, sem ýmsir höfundar velta sér upp úr af lítilli andagift. En Svava hefur til að bera reisn og öryggi í meðferð máls og jafnframt í leikrænni bygg- ingarlist. Hún gerir sér ljósa þá róttæku breytingu, sem mannlegt umhverfi hefur tekið og bregður upp magnaðri og litríkri mynd af þeirri áköfu leit mannsins að þeim lögmálum, sem ráða eðlisþróun hans. Þar skiptist á birta andlegrar lífsorku vaxandi listar og heil- brigðrar og öfgalausrar trúar og dimmir skuggar andlegrar og menningarlegar afturfarar og stöðnunar, þrátt fyrir hraða fram- þróun efnislegra mæta. Lokaæfing er allt í senn sálfræðileg, heimspeki- leg og guðfræðileg „stúdía", sem hlýtur að vekja gagnlegar umræð- ur. Þar er lögð til grundvallar sú kunna staðreynd, að maðurinn leggur allt kapp á að sveigja vilja annarra undir vilja sinn. Það gerir hann bæði af góðum og illum hvöt- um. Og við spyijum þá: — Stjómast sú viðleitni hans af umhyggju, af ást, af kærleika? Já, á hún rætur að rekja til félagslegrar forsjár? Eða er miskunnarlaus valdafíkn og blind sjálfsbjargarhvöt undirrót þessarar hóflausu kappgimi? Við hljótum að leita þekkingar á þeim öflum, sem ráða andlegri þróun mannsins. En þótt segja megi um Lokaæfingu, að hún sé vekjandi verk, þá skygg- ir sá góði kostur hvergi á listrænan svip þess og m.a. er Svövu Jakobs- dóttur gefið næmt skopskyn, er hún notar til bragðbætis af makalausri leikni. Það framkallar skemmtileg og undarleg hughrif. Pétur Einarsson leikstýrir af skilningi og vandvirkni. Já, satt að segja skilur maður ekki, hvemig Dönum hefur tekist að sviðsetja þetta verk verulega stytt eins og sagt er að gert hafi verið í Bád- teatret. Engu virðist ofaukið í þessari sýningu og þar má ekkert missa sig. Pétur hefur lagt sig allan fram og Gylfí Gíslason hefur gert trausta leikmynd af hugkvæmni og leynir sér ekki glöggt auga mynd- listarmannsins í formi og litum þessarar trúverðugu myndar, sem nýtur og góðrar kunnáttu ljósa- meistarans, Ingvars Bjömssonar. Sunna Borg og Theodór Júlíus- son sýna bæði í þessari sýningu að þau hafa náð fullum þroska sem leikarar og því hljóta að verða gerð- ar miklar kröfur til þeirra fram- vegis. Theodór kemur nú að leikhúsinu eftir ársdvöl við The Drama Studio í Lundúnum. Leynir sér ekki, að hann hefur bætt við sig í tækni og þroska. Hann leikur hinn tölvuhaldna Ara af miklum styrk og með sannfærandi blæbrigðum allt til enda. Sunna Borg leikur Betu, undirgefna eiginkonu Ara. Með stígandi leik neyðir hún okkur til þess að horfast í augu við undir- rót þeirra margslungnu sálarflækja og andlegra truflana, sem birtist í harðlæstum heimi þeirra bamlausu hjóna; í einangrun þar sem m.a. er reynt að þurrka út hugtök eins og morð. Samleikur þeirra Theodórs og Sunnu er allur á réttum strengj- um. Óvænt koma Lilju í lokaatriðinu leiðir það enn betur í ljós og ljóstr- ar upp hvemig skynsemin hefur verið gjörsamlega ofurliði borin af annarlegum röksemdaflækjum. Erla Ruth Harðardóttir leikur Lilju tónlistamema trúverðuglega. Þessi vandaða sýning er Leik- félagi Akureyrar til sóma. Kveðjutónleikar í Laugameskirlgu TónHst Jón Ásgeirsson Hjónin Ann Toril Lindstad og Þröstur Eiríksson hafa í rúm tvö ár skipt með sér verkum í Laugames- kirkju, en nú hefur Þröstur verið ráðinn sem orgelleikari í Garðabæ og skilaði af sér með tónleikum sl. sunnudag, þar sem flutt voru tvö verk eftir Buxtehude og eitt eftir Vivaldi. Fyrsta verkið var kanatata um sálmalagið Jesu, meine Freude, eftir Buxtehude. Kór Laugames- kirkju, kammersveit með Júlíönu E. Kjartansdóttur sem konsertmeistara og einsöngvaramir Sigrún V. Gests- dóttir og Halidór Vilhelmsson fluttu verkið undir stjóm Þrastar og þrátt fyrir ýmnsa hnökra var flutningurinn í heild ágætur, t.d. hjá kómum, sem söng oft mjög vel, og einsöngvurun- um, sem skiluðu sfnu ágætlega. Annað verkið eftir Buxtehude var Prelúdía f C-dúr, sem Ann Toril Lind- stad flutti. Lindstad er ágætur orgelleikari,. sem hún hefur þegar sýnt á tónleikum og þó nokkuð gætti óstyrks í fyrstu óx leikur hennar er á leið verkið. Lokaverkið var svo Gloria eftir Vivaldi. Líklega eru tónleikagestir vanir að heyra þetta verk með stórum kórum og fúllskipaðri hljómsveit. Hér var það strengjakvintett, orgel, óbó og trompett í stað stórrar hljómsveit- ar og kórinn samsvarandi að stærð og þá er næsta víst að nokkuð vant- ar á að kóramir fái þann þmmandi kraft er hæfir þessum dýrðarsöng Vivaldis. Einsöngvarar í verkinu vom Sigrún V. Gestsdóttir sópransöng- kona og Guðný Ámadóttir altsöng- kona. Guðný réð því miður ekki við þetta hlutverk en Sigrún stóð fyrir sfnu. Þrátt fyrir að margt megi að finna varðandi flutninginn er hér um að ræða lofsverða viðleitni til að auðga kirkjustarfið með flutningi góðrar tónlistar og á köflum tókst mjög vel til enda er Þröstur dugandi tónlistar- maður, sem aðeins þarf að skerpa tök sfn og þar með eflast í átökum við erfíð viðfangsefni. Tónleikar Sinfóníuhljóm- sveitar íslands á Suðurlandi Sinfóníuhljómsveit íslands hélt tónleika í Njarðvíkum sl. fimmtudag og á Selfossi föstudaginn þar á eft- ir. Á efnisskránni vora verk eftir Wagner, Busoni, Verdi og Dvorak. Sfjómandi var Páll P. Pálsson, ein- leikari Óskar Ingólfsson og kór Fjölbrautaskóla Suðurlands söng, en stjómandi kórsins er Jón Ingi Sigur- mundsson. Undirritaður var við- staddur tónleikana á Selfossi, sem fóm fram í íþróttahúsi gagnfræða- skólans. Tónleikamir hófust á forspili 3. þáttar úr óperanni Loh- engrin, glæsilegu verki, sem var hressilega flutt af hljómsveitinni. Annað verkið var Consertino fyrir klarinettu eftir Busoni. Ekki er þetta sérlega skemmtilegt verk, en reynir þó nokkuð á leiktækni einleikarans, sem Óskar Ingólfsson klarinettuleik- ari sýndi að fórst honum vel úr hendi. Tvö næstu verk vora kórar úr óperam eftir Verdi og þar söng kór Fjölbrautaskóla Suðurlands. Jón Ingi hefur fyrir löngu sýnt kunnáttu sína í kórstjóm og söngur unga fólksins að þessu sinni bar þess merki að hér hafði góður fagmaður unnið. Fangakórinn úr Nabucco og sfgaunakórinn úr II Trovatore era skemmtileg söngverk, ekki flókin í gerð, en þurfa að vera flutt af vel hljómandi röddum. Unga söngfólkið gerði þessum lögum ágæt skil, með töiuverðum raddtilþrifum og tals- verðu öryggi. Síðasta verkið á efnisskránni var sinfónian „Frá nýja heiminum" eftir Kammertónleikar Að vera framlegur er rakið til upphafs rómantísku stefnunnar. Jean Paul sagði að rómantfkin yrði til í sérkennileikanum og sérstæðri og upphafinni reynslu einstaklings- ins. Þar með þurfti höfundur að ávarpa hlustendur á þann veg sem enginn hafði gert áður og svipta af sér vanabundnum viðjum kunn- áttu og uppeldis. Hjá þeim tveimur tónskáldum er vora viðfangsefni Halldórs, Guðnýjar og Gunnars á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins sunnudaginn var og vora um margt boðberar rómantískra hugmynda, þ.e.a.s. Mendelssohn og Beethoven, mátti merlga þessi átök. Þrátt fyrir að tónlist Beethovens sé öguð bæði í formgerð og tónmáli birtist oft sérkennilegt skaplyndi hans og óhamin tilfinningasemi, sem Goethe líkti við dýrslegan ofsa. Hjá Mend- elssohn viku persónulegar tilfinn- ingar fyrir snilld og glæsileik og það var því helst í túlkun trúar- legra viðhorfa, sem hann gaf eitthvað af sjálfum sér. Snilld Mendelssohns var svo algjör að vin- Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari, Halldór Haraldsson pfanóleikari og Gunnar Kvaran sellóleikari. Dvorak. Því hefur oft verið haldið áfram að Sinfóníuhljómsveitin hafi á ferðum sfnum um landið ætlað hlustendur sína ekki færa um að njóta erfiðrar tónlistar, en að þessu sinni verður slíku ekki haldið fram því sinfónían „frá Nýja heiminum" er trúlega með þyngri sinfónfskum verkum, þó að hægi kaflinn hafi notið vinsælda er líkja má við það sem gerist um dægurlög. Verkið var í heild vel flutt undir röggsamri stjóm Páls P. Pálssonar og auðheyrt að hlustendur kunnu vel að meta þetta fallega og tilþrifamikla tón- verk. 4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.