Morgunblaðið - 27.10.1987, Page 17

Morgunblaðið - 27.10.1987, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987 17 Tónlistardagar Dómkírkjunnar í sjötta sinn: Dómkórinn flytur Vetrarmynd í kirkjunni eftir Atla Heimi TÓNLISTARDAGAR Dómkirlg- nnnar verða haldnir í sjötta sinn dagana 7. til 11. nóvember. Að þessu sinni verður flutt nýtt kór- verk, Vetrarmynd í kirkjunni, sem Atli Heimir Sveinsson hefur samið eftir kvæði Knuts 0degárds. Heiðursgestur verður franski organleikarinn Jacques Taddei og lögð verður áhersla á franska orgeltónlist, sérstaklega á verk eftir Cesar Franck. Nýja kórverkið sem Atli Heimir Sveinsson samdi fyrir Tónlistar- daga Dómkirlqunnar heitir Vetrar- mynd í kirkjunni og var samið við þýðingu Einars Braga á kvæði Knuts 0degárds, að tilhlutan Mar- teins H. Friðrikssonar. Atli Heimir lýsir verkinu þannig; „Þetta er leik- ræn svipmynd með ívafi trúarlegra tákna kvæðisins sem gerist í kiriq- unni sjálfri. Frásögn er hæg,„kór- trillur", hraðar og hægar, bylgjast upp og niður, og fleyta út úr sér orðunum, hveiju fyrir sig. Frásagn- armátinn og formið verður eitt.“ Verkið verður frumflutt miðviku- daginn 11. nóvember klukkan 20.30. Marteinn H. Friðriksson, stjóm- andi Dómkórsins, sagði í samtali við Morgunblaðið að á árlegum Tónlistardögum Dómkirkjunnar væri alltaf frumflutt eitt kórverk. Dómkórinn í Reykjavík. „Við viljum þannig tengja það sem er að gerast í nútímatónlist við tón- listarstarfíð í kirkjum. Það fylgir því viss eftirvænting að fást við ný verk og mér fínnst verkið hans Atla Heimis mjög svipmikið og áhrifamikið, en um leið erfitt í flutn- ingi. Það er áhugavert hvað íslend- ingar eiga mikið af góðum tónskáldum", sagði Marteinn enn- fremur. Heiðursgestur Tónlistardaganna í ár verður Jacques Taddei frá París. Að sögn Marteins hefur Tad- dei haldið tónleika í hér um bil öllum löndum þar sem pípuorgel er að fínna og fengið góða dóma. Einnig leikur Bjöm Steinar Sólbergsson organleikari frá Akureyri á Tónlist- ardögunum, en hann stundaði framhaldsnám í orgelleik í Frakkl- andi. Áhersla verður lögð á franska orgeltónlist að þessu sinni og sérs- taklega á verk rómantíska tón- skáldsins Cesars Francks. Auk orgelverka verður meðal annars flutt kórverkið 150. sálmur Davíðs eftir Franck, en þýðandi þess er séra Kristján Valur Ingólfsson. Aðaltónleikar Dómkórsins verða sunnudaginn 8. nóvember klukkan 17 og þá syngur kórinn verk úr ýmsum áttum. Nokkur verk úr tón- leikaferð kórsins til Belgíu í sumar verða endurflutt og ný verk hafa bæst við. Einsöngvarar á Tónlistar- dögum verða Elín Sigurvinsdóttir, Sigrúh Þorgeirsdóttir og Anna Sigríður Helgadóttir. Að sögn Mar- teins er Anna Sigríður fyrsti kórmeðlimurinn sem náð hefur verulega langt í söngnámi og sagði hann að mikils væri vænst af henni. Franski organleikarinn Jacques Taddei. Hátíðarmessa verður einnig sunnudaginn 8. nóvember klukkan 11, þar sem Þórir Stephensen þjón- ar fyrir altari og Dómkórinn syngur. Dómkórinn er skipaður um 50 söngvumm og hafa Tónlistardagar verið aðalverkefni hans á síðustu áram. Undirbúningur Tónlistardag- anna hefst venjulega um áramót, æft er tvisvar í viku og stundum oftar. Auk þess syngur kórinn jóla- sálma víðsvegar um borgina fyrir jól og tekur þátt í messusöngvum Dómkirkjunnar. Marteinn H. Friðriksson, stjómandi Dómkórsins, við pípur orgelsins í Dómkirkjunni. tv t 1 u £ U & o Ö\a*sS on«r “sw" •EÖ.VsS-'/S S • K • I • F • A • N PÓSTKROFUR S. 29544 ★ IAUGAVEGI 33 ★ BORGARTÚNI 24 ★ KRINGIUNNI ÖRUGG OG ARÐBÆR ÁVÖXTUNARLEIÐ Bankabréf Verzlunarbankans eru verðtryggð skuldabréf útgefin af veðdeild Verzlunarbanka íslands hf. Bréfin eru seld með afföllum er gefa kaupanda 9,5% ávöxtun umfram verðbólgu. Nafnverð bréfa er kr. 100.000,- og kr. 250.000,- Öruggur greiðandi; veðdeild Verzlunarbankans. Bréfin eru greidd út í einu laqi á qialddaqa eftir 1,2,3,4 eða 5 ár. Sölustaðir eru í Verzlunarbankanum Bankastræti 5 og Húsi verzlunarinnar. HAFÐU FJÁRMÁL ÞÍN Á HREINU OG SKIPTU VIÐ ÖRUGGAN AÐILA. V/CRZlUNflRBflNKINN -(MJttuci vtteð fim ! i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.