Morgunblaðið - 27.10.1987, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 27.10.1987, Qupperneq 19
Húsnæðismálafrumvarpið MORGUNBLAÐIÐ, ÞRBQJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987 Breytingarnar þýða mismunun ein- stakra lántakenda - segir Þorgeir Eyjólfsson, forsljóri Lífeyrissjóðs verzlunarmanna „Samkomulag aðila vinnu- markaðarins i febrúar 1986 um húsnæðismál gekk út á það að sjóðfélagar lífeyrissjóðanna sætu við sama borð gagnvart Húsnæðisstofnun hvað lánsrétt varðaði. Það var enda forsenda þess að lífeyrissjóðirnir fjár- mðgnuðu húsnæðiskerfið með 55% af ráðstöfunarfé sínu og drægju jafnframt stórlega úr beinum lánveitingum til sjóð- félaga," sagði Þorgeir Eyjólfs- son, forstjóri Lffeyrissjóðs verzlunarmanna, i samtali við Morgunblaðið aðspurður um álit á húsnæðismálafrumvarp- inu, sem lagt hefur verið fram á Alþingi. „Með þessu frumvarpi félags- málaráðherra til breytinga á lögum um húsnæðisstofnun er í stórum atriðum vegið að fyrri for- sendum húsnæðislaganna hvað lánsrétt varðar. Þar ber fyrst til að Húsnæðisstofnun á að vera heimilt að skerða eða synja um lán einstaklingum sem eiga skuld- lausar eða skuldlitlar eignir fyrir. í öðru lagi gerir frumvarpið ráð fyrir möguleika á mismunandi háum vöxtum af lánum innan sama lánaflokks. Þessar breyting- ar munu væntanlega þýða mikla mismunun milli einstakra lántak- enda,“ sagði Þorgeir. Hann benti á að huglægt mat starfsmanna og stjómenda Hús- næðisstofnunar hvað varðaði ýmis atriði einstakra lánveitinga gæti leitt til ákvarðana sem mismunuðu einstökum lántakendum. Fjöl- margir lausir endar væru í frumvarpinu, til dæmis þar sem vísað væri til reglugerða sem ætti eftir að setja. Húsnæðismálafrumvarpið: Mörg atriði jákvæð en önnur óljós - segir Páll Pétursson, formaður þingflokks Framsóknarflokksins „Ég vil í upphafi taka það fram til að fyrirbyggja allan misskilning að frumvarpið um húsnæðisstofnun er stjómar- frumvarp. Félagsmálaráðherra fékk heimild frá þingflokkun- um til þess að leggja það fram, þó það sé ekki nákvæmlega í þvi formi sem við hefðum helst' kosið,“ sagði Páll Pétursson, formaður þingflokks Fram- sóknarflokksins, er hann var spurður um afstððu flokksins til húsnæðismálafrumvarpsins. Páll sagði að hann hefði rætt það við félagsmálaráðherra að koma frumvarpinu í endanlegt form áður en það yrði lagt fram, en Jóhanna Sigurðardóttir hefði verið þeirrar skoðunar að það lægi á að leggja það fram. Framsóknar- flokkurinn hefði því gert þann fyrirvara við frumvarpið að hann myndi vinna að breytingum á því í meðförum þingsins. Páll sagði ákveðin atriði í frum- varpinu vera jákvæð, en önnur atriði væru óljós, orkuðu tvímælis og þörfnuðust betri skoðunar. Orðalag frumvarpsins væri óskýrt í sumum tilfellum og það væri ástæða til þess að fá útskýringar á því hvemig félagsmálaráðherra hugsaði sér að að setja reglugerð eftir þeim texta sem væri í frum- varpinu. „Meginatriðið er að við áskildum okkur rétt til þess að beita okkur fyrir breytingum á frumvarpinu í meðförum þings- ins,“ sagði Páll Pétursson. Breytingar á húsnæðislögunum: Frumvarpið samþykkt af öllum ráðherrum - segir Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra JÓHANNA Sigurðardóttir, fé- lagsmálaráðherra, segir það ekki rétt eftir sér haft i Al- þýðublaðinu síðastliðinn fimmtudag að hún lfti á það sem alvarlegan þverbrest í stjóraar- samstarfinu ef stjórnarþing- menn reyni að breyta efnisatr- iðum húsnæðisfrumvarpsins. „Ég sagði að rfkisstjórnin stæði ðll að baki þessu frumvarpi og ef annað kæmi í ljós væri kom- inn þverbrestur i þetta stjórnar- samstarf," sagði Jóhanna i samtali við Morgunblaðið „Það er ekkert einsdæmi að stómarfrumvörp taki einhveijum breytingum í meðförum nefnda og raunar fremur algengt. Komi fram einhveijar skynsamlegar tillögur sem nái því markmiði sem að er stefnt með þessu frumvarpi er auðvitað sjálfsagt að skoða þær,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir. Þrjúþiisund sjotiu og rjonr starfsmenn sem vinna við að byggja upp fólk... Ríkisspítalar eru stór og fjölbreyttur vinnustaður og þar starfa um 3-000 manns; við rannsóknir, lækningar, hjúkrun, endurhæfingu og aðstoð við sjúklinga og aðstandendur þeirra. Starfi hjá Ríkisspítölum fylgja ýmis hlunnindi, svo sem ókeypis vinnufatnaður (eða fatapeningar), ódýrt fæði í matsölum á vinnustað, mikið atvinnuöryggi, öflugur lífeyrissjóður og launahækk- andi námskeið. Hér að neöan eru nokkur dæmi um störf sem nú bjóð- ast hjá Ríkisspítölum. STARFSMAÐUR í ELD- HÚSI Starf í stóreldhúsi þar sem miklar kröfúr eru gerðar um hreinlæti. Vinna við undir- búning, matargerð og fram- reiðslu á mat til starfsmanna og á sjúkrafæði sem unnið er eftir ákveðnu skömmtunar- kerfi. Góð vinnuaðstaða á nýlegum vinnustað. Meðallaun ( án aukavinnu): Mánaðarlaun eru 40.41 lkr. með áálagi. Fyrir hvern yfirvinnutíma eru greiddar 337 kr. Nánari upplýsingar eru veitt- ar á Landspítala í síma 29000 - 491 (Jóhanna eða Olga) og á Vífilstaðaspítala í sínia 42800 (Þuríður). STARFSMAÐUR í ÞVOTTA- HÚSI í ÁRBÆJARHVERFI. Störf við flokkun á þvotti svo og frágangur og pökkun á þvotti til útsendingar. Góð vinnuaðstaða á nýlegum vinnustað. Ókeypis rútuferð- ir til og ffá Hlemmi. Meðallaun ( án aukavinnu): Mánaðarlaun eru 37.737 kr. með álagi. Fyrir hvern aukavinnutíma eru greiddar 337 kr. Nánari upplýsingar eru veitt- ar í síma 671677 (Þórhildur). STARFSMAÐUR VIÐ RÆST- INGAR OG í BÝTIBÚRI Störf við ræstingar og þrif á ákveðnum svæðum á göng- um og sjúkradeildum. Laun eru miðuð við tímamælingu (að hluta). Störf á sjúkradeildum við dreifingu til sjúklinga, á mat- vælum o.fl. sem sent er frá eldhúsi. Einnig þrif í býtibúri o.fl. Meðallaun ( án aukavinnu): Mánaðarlaun eru 42.195 kr. með álagi. Fyrir hvem aukavinnutíma eru greiddar 337 kr. Nánari upplýsingar eru veitt- ar hjá ræstingastjóra á Land- spítala í síma 29000 - 494 og á Geðdeildum í síma 38160. STARFSMAÐUR Á GEÐ- DEILD fæst við þjálfun, uppeldi og umönnun sjúklinga og vinn- ur í nánu samstarfi við hjúkr- unarfræðinga, sjúkra- og iðju- þjálfa, auk lækna og sálfræð- inga. Meðallaun: Mánaðarlaun eru 45.665 kr. með vaktaálagi. Fyrir hverja aukavakt eru greiddar 3.235 kr. Nánari upplýsingar eru veitt- ar á Geðdeild í síma 38160. ...óskaeftir samstarfi vió þig RÍKISSPÍTALAR 19 essemm/sfA 1904
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.