Morgunblaðið - 27.10.1987, Side 22

Morgunblaðið - 27.10.1987, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987 Landbúnaðarstefna og gi'óðurvernd eftirHákon Sigurgrímsson Þegar rætt er um ástand gróðurs á íslandi nú varðar forsagan miklu. Ljóst virðist að á fyrstu öldum bú- setu í landinu hefur verið meiri Qölbreytni í búflárrækt landsmanna en síðar varð. Enginn vafí er þó á því að frá upphafí voru nautgripa- rækt og sauðfjárrækt aðalbúgrein- amar og telja fræðimenn að á fyrstu öldum byggðar í landinu hafí nautgriparækt verið mun um- fangsmeiri en sauðfjárrækt. I ritgerð sem Amór Siguijónsson ritsljóri birti í Árbók landbúnaðar- ins 1970 kemst hann að þeirri niðurstöðu að á þjóðveldisöld og jafnvel allt fram undir 1600 hafí nautgripir verið um 90 þúsund, 40 þús. mjólkurkýr og um 50 þús. geldneyti. Þessum búsmala var að mestu leyti ætlað að bjargast af beit yfír veturinn, þ.e. öllu geldneyti, einnig sauðfé og hrossum öðrum en brúk- unarhrossum, og telur Amór „það oft hafa tekist furðanlega um sunn- anvert landið og í snjóléttari héruðum á norðanverðu landinu". Af þessu er ljóst að álag á gróður- lendi hefur verið gífurlegt á fyrstu öldum byggðar í Iandinu, ekki síst þegar það er haft í huga að naut- gripir fara mun verr en sauðfé með land, einkum skóglendi, við vetrar- beit. Landbúnaðurinn ogþjóðin Á fyrri öldum íslandsbyggðar var markmið landbúnaðar það eitt að fæða og klæða þjóðina eins og best gegndi og réð veðurfar mestu hvort það tókst eða ekki. Búfjárafurðir urðu að vera þjóðinni nægar til framfæris, þjóðinni fækkaði ef bú- fénu fækkaði og henni ijölgaði ef búfénu Qölgaði. Fræðimenn eru nokkuð sammála um að á þjóðveldisöld hafí lands- menn verið um 70—80 þúsund talsins. Fæða þjóðarinnar á þessum tíma var aðallega „hvítur matur", þ.e. ýmiss konar mjólkurmatur og svo kjöt og fiskur. í ritgerð þeirri sem áður er vitnað til kemst Amór Siguijónsson að þeirri niðurstöðu að mjólkumeysla hafí á þjóðveldis- öld verið um 450 lítrar á mann á ári og kjötneysla um 60—70 kg á ári eða meira. En þetta átti eftir að breytast. Upp úr 1600 fer verulega að kreppa að þjóðinni og sultur varð hér landlægur allt fram til loka síðustu aldar. Landbúnaðarstefna Á fyrri hluta 19. aldarinnar sáu ráðamenn að gera yrði ráðstafanir til þess að efía landbúnaðinn ef tryggja ætti þjóðinni næga lífs- björg. Ekki er þó hægt að tala um eigin- lega landbúnaðarstefnu á þessum tima. Hagsmunir landbúnaðarins vom um leið hagsmunir þjóðarinnar allrar og flestar stjómaraðgerðir tóku mið af því. Á fyrri hluta 19. aldarinnar var unnið að umbótum í búnaðarmálum á ýmsan hátt án beinna lagafyrir- mæla. Árið 1837 vom svo fyrstu búnað- arsamtökin stofnuð. Það segir sína sögu að aðalhvatamenn þess vom æðstu embættismenn þjóðarinnar, stiftamtmaður, biskup, háyfírdóm- ari, landlæknir og dómkirkjuprest- ur. Úr beitarbúskap í ræktunarbúskap Með vaxandi þéttbýli og nýjum atvinnugreinum breyttist aðstaða landbúnaðarins og hann fór að eiga I samkeppni við aðra atvinnuvegi um vinnuafl, flármagn og fyrir- greiðslu í þjóðfélaginu. Á 3.-5. áratug þessarar aldar var því hlutur landbúnaðarins í hinu nýja og breytta þjóðfélagi 20. aldar- innar tryggður með margvíslegri lagasetningu á Alþingi. Þessi laga- setning markar um leið hina opinbem landbúnaðarstefnu, sem fylgt hefur verið síðustu áratugina. Megintilgangur þessarar stefnu var að efla landbúnaðinn, svo að þjóðin væri sér nóg um landbúnað- arvömr, þ.e. mjólk og kjöt. Þessi stefna var óumdeild fram yfír stríð og raunar allt fram undir 1960. Hún hefur haft geysilega þýðingu fyrir gróðurvemd og bætta meðferð landsins. Eitt meginmarkmið henn- ar var aukin ræktun og bætt meðferð búflár. Vegna þessa starfs kemur allur heyfengur af ræktuðu landi og hefur svo verið frá því um miðjan sjöunda áratuginn. Naut- gripum er nú nær eingöngu beitt á ræktað land og vetrarbeit búfjár, annars en hrossa, heyrir nú sög- unni til nema á einstaka jörð. Af framansögðu er ljóst að fram yfír miðja þessa öld var landbúnað- urinn helsta tæki þjóðarinnar í baráttunni við hungur og skort. Þetta verður að hafa í huga þegar fjallað er um eyðingu gróðurlendis- ins. Að svo miklu leyti sem gróður- eyðingin er afleiðing búsetunnar er hún það gjald sem greiða varð til þess að þjóðin kæmist af. Tímamót 1960 Árið 1960 em landbúnaðinum með lögum tryggðar uppbætur á útfluttar landbúnaðarvömr að vissu marki. Þjóðin var þá orðin sjálfri sér nóg um mjólk og kjöt og út- flutningur hafínn að marki. Á næstu árum jókst framleiðslan vemlega og markvisst var stefnt að framleiðslu til útflutnings. Hér var um að ræða ákveðna pólitíska stefnumörkun sem átti sér rætur í þeirri skoðun ýmissa hagspekinga samtímans að milliríkjaversíun með matvæli ætti eftir að verða ábata- söm. Þetta hefur eins og flestir vita farið á annan veg og jafnvel flöl- mennustu þjóðir heims, Indvetjar og Kínveijar, em nú komnar f hóp þeirra þjóða sem flytja út kom. Það kom því fljótlega í ljós að útflutningsstefnan frá 1960 stóðst ekki. Framleiðslan hélt áfram að aukast og verð á heimsmarkaði fór lækkandi. Fomstumönnum bænda varð ljóst að grípa yrði í taumana og árið 1968 óskaði Stéttarsamband bænda eftir því að lögfestar yrðu heimildir til þess að hafa stjóm á framleiðslunni. Það tók bændur 11 ár að fá áheym Alþingis í þessu efni og loks árið 1979 vom slíkar heimildir lögfestar. Þessi lög skiluðu strax vemleg- um árangri og umtalsverður samdráttur varð í framleiðslu mjólkur og kindakjöts. Hins vegar skorti markvissa stefnumörkun og raunsætt mat á stöðunni. Fram- kvæmdin var ómarkviss bæði af hálfu bænda og stjómvalda, jafnvel svo að árið 1983 lýsti þáverandi landbúnaðarráðherra yfir því að samdráttarskeiðinu í sauðfjárrækt værí lokið. Ný stefna Árið 1985 markar Alþingi loks pólitíska heildarstefnu fyrir land- búnaðinn. Hana er að fínna í búvörulögunum svonefndu, nr. 46/1985. Helstu drættir þeirrar stefnu sem varða viðfangsefíii okkar hér em þeir, að framleiðsla búvara til neyslu og iðnaðar verði í sem nán- ustu samræmi við þarfir þjóðarinn- ar og tryggi ávallt nægilegt vöruframboð við breytilegar að- stæður. Lögin gera ráð fyrir að nýttir verði sölumöguleikar fyrir búvömr erlendis eftir því sem hagkvæmt þykir. Þar með er horfíð frá þeirri stefnu að beinlínis skuli stefnt að framleiðslu mjólkur og kindakjöts með útflutning í huga. Þess í stað er hluta af því flármagni sem áður fór til útflutningsbóta beint tíma- bundið til uppbyggingar fjölþættari atvinnutækifæra í sveitum. Lögin gera ráð fyrir að aðlögun landbúnaðarins að þessari breyttu Hákon Sigurgrímsson „Mest af þeirri gróður- eyðingu, sem við höfum nú fyrir sjónum og tengja má landbúnaði, er afleiðing fyrri bú- skaparhátta. Brýnasta verkefnið framundan er að stöðva þá gróðu- reyðingu sem nú á sér stað.“ stefnu verði í samningsbundnum áföngum á 7 ára tímabili þ.e. árin 1986—1992. Slíkir samningar hafa þegar verið gerðir fyrir allt þetta tímabil. Þessi lög hafa gífurlega þýðingu fyrir bændur. Með þeim hefur land- búnaðurinn í heild fengið skýr framleiðslumarkmið og hveijum einstökum bónda eru sett ákveðin mörk í framleiðslu sinni. Skipulag framleiðslunnar Fyrir skipulega gróðurvemd hafa lögin einnig mjög mikla þýðingu. Lögin heimila að búvöruframleiðsl- an sé skipulögð eftir svæðum, m.a. með tilliti til landkosta og einnig er heimilt að taka tillit • til þeirra þátta við ákvörðun á framleiðslu- rétti einstakra bænda. í þeim aðgerðum I framleiðslumálum land- búnaðarins, sem kynntar voru sl. föstudag, er stigið fyrsta skrefíð til slíkrar skiptingar. Framleiðslustjómunin hefur þeg- ar haft mikil áhrif á dreifíngu sauðfjár um landið. Þótt í fyrstu hafí það ekki beint verið haft í huga við þessar stjómunaraðgerðir að meira yrði dregið úr sauðfjár- rækt á þeim svæðum sem viðkvæm- ust em með tilliti til gróðurfars hefur þróunin í stómm dráttum orðið í þá átt. Þannig er nú 29% færra fé í Ámessýslu en var árið 1975 og 20% færra í Rangárvalla- sýslu svo að dæmi séu nefnd. Á hinn bóginn er á það að líta að hrossum hefur á þessum tíma fjölg- að mjög mikið. Það ber þó að hafa í huga að þau ganga svo til ein- göngu á láglendi. Á sama hátt hefur dregið vem- lega úr útflutnigni landbúnaðaraf- urða og mun sú þróun halda áfram næstu árin í samræmi við ákvæði búvömsamninganna milli ríkisins og bænda. Á myndum I og II sést hvemig framleiðsla og útflutningur kindakjöts hefur þróast frá 1972 og horfur em á að þróunin verði fram til 1992. Bændur og gróðurvemd Ég er þeirrar skoðunar hvað varðar hóflega nýtingu landsins að langflestir bændur séu sér meðvit- aðir um þá ábyrgð sem þeir bera í því efni og þótt einstaka öfgamenn fínnist meðal bænda er mjög ósann- gjamt að dæma bændastéttina alla eftir viðhorfum þeirra. Ég vil mega lfta á slfk tilvik sem aðlögunar- vandamál sem hverfa munu á allra næstu ámm. Þannig er um sum þau atvik sem mest urðu umrædd á sl. vori og sumri. Ég tel að viðhorf bændastéttar- innar komi mjög skýrt fram í ályktun, sem samþykkt var á aðal- fundi Stéttarsambands bænda sem haldinn var fyrstu daga september, en ályktun fundarins er svohljóð- andi: „Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1987 lýsir áhyggjum vegna þeirra andstæðu viðhorfa og hörðu deilna sem undanfarið hafa orðið um landnýtingu og gróðurvemd. Hætta er á að þessar deilur kunni að skaða hagsmuni landbúnaðarins og spilla ímynd hans í huga þjóðar- innar. Fundurinn bendir á að flestir bændur nýta land sitt hóflega enda eiga engir meira undir því í bráð og lengd að svo sé gert og gæðum lands ekki spillt. Fundurinn skorar á alla bændur að sýna þessum málum fullan skiln- ing og mæta með velvilja og skiln- ingi sjónarmiðum þeirra sem af einlægni vilja stuðla að hóflegri nýtingu gróðurs og vemdun nátt- úm. Fundurinn felur stjóm Stéttar- sambands bænda, í samvinnu við önnur samtök bænda, að beita sér fyrir raunhæfari og öfgalausri um- réeðu um gróðurvemdarmál sem leitt geti til þess að sátt takist um þessi mál meðal þjóðarinnar." Eins og að framan er rakið hefur íslenskur landbúnaður breyst á þessari öld úr beitarbúskap í það að vera að langmestu leyti ræktun- arbúskapur. Mest af þeirri gróðureyðingu sem við höfum nú fyrir sjónum og tengja má landbúnaði er afleiðing fyrri búskaparhátta. Biýnasta verkefnið framundan er að stöðva þá gróður- eyðingu sem nú á sér stað. Ég er þeirrar skoðunar að með markvissri skipulagningu sauðflár- ræktarinnar muni okkur á næstu áratugum takast að koma í veg fyrir frekari skemmdir á gróðri landsins af völdum landbúnaðar. Höfundur er framkvæmdastjóri Stéttarsambands bænda. ................................................j- 22000 Framleiðsla kindakjöts (og áætl. til 1992) 20000 -------------------1----------------------------Tonn 16000 14000 12000 10000 8000 6000 4000 2000 0 Útflutningur kindakjöts (og áætí. til 1992)'7000 ——----------------------------Tonn Mynd I Mynd II

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.