Morgunblaðið - 27.10.1987, Page 24

Morgunblaðið - 27.10.1987, Page 24
24 ____ ____________MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987 Forseti Landssambands iðnaðarmanna: Góðæri hefur ríkt - en þenslan veldur erfíðleikum Útgjöld vaxa umfram hagvöxt Hér fer á eftir meginefni setn- ingarræðu Haraldar Sumarliða- sonar, forseta Landssambands iðnaðarmanna, við upphaf 42. Iðnþings íslendinga: Þróun efnahags- og atvinnumála Frá því síðasta Iðnþing var hald- ið fyrir réttum tveimur árum, hefur ríkt hér á landi eitt mesta góðæri, sem sögur fara af. Eftir samdrátt- arskeið í þjóðarbúskapnum á árunum 1982—1983 tók efna- hagslífíð að rétta við á ný á árunum 1984 og 1985, og var þá 3—3,5% hagvöxtur hvort árið. Á fyrri hluta þessa hagvaxtarskeiðs tókst mjög vei til um stjóm efnahagsmála. Náðist m.a. sá markverði árangur á fáeinum mánuðum að minnka verðbólgu úr yfír 100% niður undir 10%. Hagvöxtur varð síðan ennþá meiri á árinu 1986 eða um 8,5% miðað við þjóðartekjur, og þá náð- ist í fyrsta sinn í áraraðir jöfnuður í viðskiptum við útlönd. Á þessu ári hefur þróunin einnig verið mjög hagstæð, þegar litið er á framleiðslu og tekjur þjóðarinnar. Öðm máli gegnir þegar litið er á stjóm efnahagsmála, en þar hefur sigið mjög á ógæfuhlið á þessu ári. Gætt hefur mjög vaxandi eftir- spumarþenslu, og hafa útgjöld, bæði til fjárfestingar og neyslu, vaxið langtum meir en sem nemur hagvextinum. Sömuleiðis verðbólga magnast og samkeppnisstaða fram- leiðslugreinanna versnar. Óeðlileg spenna hefur skapast á vinnumark- aðnum og að vemlegu leyti ógilt þá annars hófsömu og skynsamlegu kjarasamninga, sem gerðir vom í desember á sl. ári. Ástandið í hinum ýmsu iðngrein- um innan Landssambands iðnaðar- manna markast fyrst og fremst af þeirri eftirspumarþenslu, sem er í öllu þjóðfélaginu í dag, og gildir það jafnt um framleiðslu- og þjón- ustugreinar iðnaðar. Það er vitan- lega af hinu góða að næg verkefni skuli vera fyrir hendi, sérstaklega þegar þess er gætt, að gott atvinnu- ástand virðist vera um allt land. Það er ekki ýkja langt síðan því var alls ekki að heilsa sums staðar á landsbyggðinni, t.d. hér á Akur- eyri. Stór hluti félagsmanna Lands- sambands iðnaðarmanna stendur fyrir verkframkvæmdum af ýmsu tagi, bæði í byggingariðnaði, málm-, tré- og rafíðnaði. Á þessu sviði hefur þenslan einmitt verið mjög mikil. Margir kjmnu að ætla, að slíkt ástand sé óskastaða at- vinnurekenda í þessum greinum. Ekki er víst að svo sé þegar nánar er að gætt. Hin gífurlega þensla hefur valdið ýmsum óróa og erfíð- leikum á vinnumarkaðnum og einnig verður í slíku ástandi heldur ekki nægilega vel og skipulega staðið að rekstri fyrirtækja. Þá má heldur ekki gleyma því, að þótt framkvæmdir séu nú víða í há- marki, höfum við reynslu fyrir því, að slíkt ástand varir aldrei lengur en þróun efnahagsmála almennt leyfír, og skapast þá oft þeim mun dýpri lægð, sem uppsveiflan var meiri. Ráðstafanir ríkisstjórn- arinnar og fjárlaga- frumvarpið í stefnuyfírlýsingu núverandi ríkisstjómar er margt að finna, sem gefur til kynna góðan ásetning um uppbyggingu atvinnulífsins. Þannig segir t.d. í upphafí: „Helstu verk- efni ríkisstjómarinnar verða að stuðla að jafnvægi, stöðugleika og nýsköpun í efnahags- og atvinnu- lífí, bæta lífskjör og draga úr verðbólgu." Og síðar í þessu sama plaggi segin „Markmið efnahagsstefnu ríkisstjómarinnar er að örva hag- vöxt og framfarir í atvinnulífínu á gmndvelli aukinnar framleiðni og nýsköpunar, að bæta lífskjör, tryggja jafnvægi í viðskiptum við útlönd, sem stöðugast verðlag og fulla atvinnu." Um atvinnustefnu ríkisstjómar- innar segir m.a. orðrétt: „Markmið atvinnustefnunnar er að búa at- vinnulífínu sem best vaxtarskilyrði. Allar atvinnugreinar njóti sem jafn- astra starfsskilyrða. Hlutverk ríkisins er að tryggja að almenn skilyrði fyrir atvinnulífíð séu stöðug að því er varðar gengi, skatta og lánakjör." Öll getum við vafalaust verið sammála þessum heildarmarkmið- um og það síðasttalda um jöfn starfsskilyrði allra atvinnugreina er raunar eitt af undirstöðuatriðunum í baráttumálum Landssambands iðnaðarmanna. Núverandi ríkisstjóm verður að sjálfsögðu ekki sökuð um allan þann vanda, sem nú blasir við, þótt óneit- anlega sé nokkur skyldleiki milli hennar og fyrri stjómar. Síðasta ríkisstjóm náði vissulega mjög gðum árangri í baráttu við verð- bólguna og stóð lengst af vel að málum á mörgum sviðum. Hins vegar var sú stjóm ákaflega slöpp á endasprettinum. Ljóst var talsvert fyrir kosningar að mikið ójafnvægi væri á ríkisbúskapnum, sem kynti undir þenslu í hagkerfinu almennt. Lítið var samt aðhafst til að spoma gegn vaxandi þenslu og starfs- stjómin gerði einnig lítið, sem bætti úr. Það er því hlutverk núverandi ríkisstjómar að glíma við þennan vanda, þótt hún verði ekki mjög sökuð um hann. Fyrstu aðgerðir hinnar nýju ríkis- stjómar vora alls ekki til þess fallnar að styrlq'a trú manna á því, sem ég áður vitnaði til í stefnuyfír- lýsingunni. Þessar fyrstu aðgerðir, sem miðuðu að því að leysa gríðar- legan fjárhagsvanda ríkissjóðs, fólust nær eingöngu í auknum sköttum, aðallega söluskatti og nánast engu öðra. Vora m.a. lagðar nýjar álögur á tölvubúnað, tækni- þjónustu og þess háttar, sem flest- um kunnugum ber þó saman um að séu lykillinn að tækniframföram í atvinnulífínu. Fyrir skömmu ákvað ríkisstjómin að þrengja möguleika fyrirtækja til þess að fjármagna kaup á fram- leiðslutækjum með erlendu lánsfé. Þessi ákvörðun var byggð á hæpn- um forsendum. Aðalatriðið í þessu sambandi er þó það, að þessi ákvörðun um að afturkalla að hluta það frelsi, sem atvinnulífínu var veitt á þessu sviði fyrir aðeins fáein- um mánuðum, mun hafa mjög óveralega þýðingu við að draga úr erlendum lántökum, heldur fyrst og fremst hækka lántökukostnað og gera atvinnulífínu erfíðara um vik. Síðustu ráðstafanir, sem boðaðar hafa verið, þ.e. fyrir og með fjár- lagaframvarpinu era auðvitað að því leyti gallaðar, að enn snúast þær að talsverðu leyti um að hækka skatta. Hins vegar er einnig að fínna í þeim nokkur jákvæð atriði, sem ég vil gjaman geta um. Mikilvægt er, að stefnt skuli að þvf að fjárlög næsta árs verði halla- laus, í stað þess að eyða hallanum á u.þ.b. 3 áram, eins og áður hafði verið rætt um. Um leið yrði dregið úr lánsfjárþörf ríkissjóðs og erlend- um lántökum. í framvarpinu er boðað, að enn verði fækkað undanþágum frá sölu- skatti með því að leggja 10% söluskatt á þau matvæli, sem ennþá era undanþegin skattinum. Sölu- skattur á matvæli kann að sýnast óréttlátur við fyrstu sýn. Ljóst er þó, að ekki er mikið réttlæti í því að skattleggja suma matvöra en aðra ekki. A þessa ráðstöfun má því líta sem skref í þá átt að draga úr því mikla misrétti, sem felst í söluskattskerfínu, enda verði al- menn söluskattsprósenta lækkuð um leið og undanþágur verða afn- umdar. Áform um að auka á fíjálsræði í gjaldeyris- og bankamálum með því að heimila einkaaðilum kaup á erlendum verðbréfum og með því að leyfa almennt gengisbundin út- lán og innlán í bankakerfinu era einnig jákvæð. Breyting í þessa vera getur m.a. skapað vissa mögu- leika fyrir fyrirtæki til að draga úr gengisáhættu. Þá örlar nokkuð á því í fjárlaga- framvarpinu að reynt sé að ráðast að þeim vanda og misrétti gagn- vart öðram atvinnugreinum, sem mikill fjáraustur úr ríkissjóði til landbúnaðarmála er. Síðast en ekki síst er boðað, að ratt verði úr vegi skattalegum hindrunum þess að almenningur spari í formi hlutaflárkaupa. Þama er stórmál á ferðinni, ef mönnum er alvara með að standa við þetta loforð. Hins vegar er ekki stafkrók að fínna um það hvemig á að standa við þetta fagra fyrirheit. Raunar er almennt mjög erfítt að átta sig á, hvaða alvara fylgir ýmsum þeim aðgerðum ríkisstjóm- arinnar, sem boðaðar hafa verið. Þannig var fjármálaráðherra farinn að bjóðast til að hætta við að taka upp söluskatt á matvæli, aðeins tveimur dögum eftir að hann hafði kynnt þau áform, og landbúnaðar- ráðherra hefur látið þau orð falla að hann styðji aðeins tekjuhlið fjár- lagafrumvarpsins, þ.e.a.s. stór- aukna skattheimtu. Þegar á heildina er litið get ég því tekið undir með manninum, sem sagði, að það væra að vísu ýmsir ljósir punktar í þessum efnahags- ráðstöfunum, en þeir væra bara svo óljósir, að erfítt væri að henda reið- ur á þeim. Gengisstefnan Ekki verður horft fram hjá þeirri staðreynd, að samkeppnisstaða sumra greina atvinnulífsins, ekki síst ýmissa greina iðnaðar, er orðin afar erfíð. Þannig er hið svonefnda raungengi, sem er almennur og við- urkenndur mælikvarði á samkeppn- isstöðu innlendra atvinnugreina gagnvart erlendri framleiðslu, nú þegar orðið óhagstæðara, en það hefur verið í áraraðir, og jafnvel óhagstæðara en það var á áranum 1981—1982. Innflutningur hefur vaxið ört og viðskiptahalli eykst. Markaðshlutdeild ýmissa greina iðnaðar fer minnkandi. Jafnframt þeim ráðstöfunum, sem ríkisstjómin hefur gert eða boðað, hefur hún tekið mjög skýrt fram, að fast gengi sé homsteinninn í efnahagsstefnu hennar. En hvers vegna er stöðugt gengi æskilegt? Ekki vegna þess, að tiltekin gengis- skráning sé markmið í sjálfu sér, heldur til þess að skapa stöðugt verðlag. Ég vil því benda á, að í því felst mikil þversögn að segja annars vegar að fast gengi sé hom- Haraldur Sumarliðason steinn efnahagsstefnunnar og hins vegar að afgreiða skattahækkanir á færibandi, sem ýmist fara beint út í verðlagið eða lenda í fram- leiðslukostnaði fyrirtækja og gera þau ófær um að standast sam- keppni. Eg leyfí mér einnig að vekja sér- staka athygli á nokkram ráðstöfun- um ríkisstjómarinnar, sem grafa undan samkeppnishæfni innlendra framleiðslugreina og ganga því þvert á markmið hennar um að halda stöðugu gengi. Söluskattur á tölvubúnað, tækniþjónustu o.fl. er í reynd skattur á tækniframfarir og bitnar beint á samkeppnishæfni innlendra fyrirtækja. Þá áformar ríkisstjómin samkvæmt fjárlaga- frumvarpinu að leggja á ný launa- skatt á fyrirtæki í iðnaði. Því verður að vísu vart að óreyndu trúað, að ráðamenn geri alvöra úr þessu, en ef af verður mun það að sjálfsögðu skerða enn frekar samkeppnisstöðu fyrirtækja, og koma harðast niður á þeim fyrirtækjum, þar sem inn- lend verðmætasköpun í formi vinnuframlags vegur þungt. Sömu- leiðis hefur ríkisstjómin á ýmsan hátt hækkað veralega vaxtakostnað fyrirtækja, bæði með skatti á er- lendar lántökur og með því að spenna upp vexti á innlendum lána- markaði. Þá verður ekki annað séð, en afnám ríkisábyrgðar af fjárfest- ingarlánasjóðunum muni verka til hækkunar á lántökukostnaði þeirra. Afnám sjálfvirkrar ríkisábyrgðar er án efa verðugt langtímamarkmið og samræmist vel hugmyndum um aukið sjálfsákvörðunarvald sjóð- anna. Hins vegar er vafasamt að það eigi vel við að afnema ríkis- ábyrgð nú, þegar atvinnuvegimir era svo viðkvæmir fyrir kostnaðar- hækkunum, sem raun ber vitni. Ég ætla ekki að kveða upp dóma um það, hve lengi ríkisstjóminni tekst að halda óbreyttu gengi. Hitt sýnist mér deginum ljósara, að ef ekki verða afturkallaðar eða hætt við ráðstafanir af því tagi, sem ég hef nú nefnt, sem bitna harkalega á samkeppnisstöðu innlendra fyrir- tækja, mun fastgengisstefna ríkis- stjómarinnar óhjákvæmilega og fyrr en varir hljóta dóm sögunnar sem falsgengisstefna. Auk þeirra atriða, sem hér hafa verið nefnd um skatta- og kostnað- arhækkanir þær, sem ráðstafanir ríkisstjómarinnar hafa í för með sér, veldur vonbrigðum hve misjafíi- lega er tekið á málefnum atvinnu- veganna í fjárlagaframvarpinu. Sem dæmi má nefna, að ætlunin er að afnema með öllu það fram- lag, sem ríkissjóði er ætlað með lögum að greiða til vöruþróunar- og markaðsdeildar Iðnlánasjóðs á móti greiðslum inaðarins. Áftur á móti er ráðgert að gauka iitlum 429 milljónum króna að Framleiðnisjóði landbúnaðaríns. Þessi fjárveitingar- stefna getur naumast talist vel til þess fallin að styrkja stöðu þeirra atvinnugreina, sem eiga við mesta erlenda samkeppni að etja. Tollalög og tollskrá Nýiega tóku gildi ný tollalög og jafnframt var afnumin sú kvöð á innflytjendur að þurfa að framvísa bankastimpluðum reikningúm í tolli. Þegar frumvörp um þetta efni voru til umræðu á AJþingi í vor, lýsti Landssambandið sig efnislega sammála þessum breytingum, þar eð í þeim fælust nútímalegri vinnu- brögð við tollheimtu, sem stuðlað gætu að hagkvæmari rekstri í inn- flutningsverslun. Auk þessara framvarpa hafði verið vandlega undirbúið frumvarp að nýrri toll- skrá, þ.e. nýjum tol'.atöxtum. Landssambandið benti á, að sam- þykkt nýrra tollalaga og afnám bankastimplunar fæli í f ér verulega rýmkun fyrir innflutnmgsverslun- ina. Hagsmunir iðnaöarins fælust hins vegar fyrst og fremst í því, að ný tollskrá tæki gildi og hætt yrði að tolla óhóflega aðföng til til- tekinna iðngreina. 7.'il þess að raska ekki um of samkeppnisstöðu íslensks iðnaðar væri því nauðsyn- legt, að breytingar á tollskrá kæmu til framkvæmda um leið og ný tolla- lög og afnám bankastimplunar. Ekki var hlustað á þessa ábend- ingu Landssambandsins. Eftir 1. september sl. hefur því innflytjend- um, sem á annað borð hafa láns- traust hjá viðskiptaaðilum sínum erlendis, opnast greiðari leið til þess að flytja inn vörar með gjaldfresti. íslenskum iðnfyrirtælqum hefur hins vegar á engan hátt verið gert auðveldara að takast á við þessa auknu samkeppni. Þvert á móti hefur á flestan hátt verið þrengt að iðnfyrirtækjum, t.d. með því að takmarka heimildir þeirra til er- lendrar lántöku vegna véla- og tækjakaupa. Afnám bankastimpl- unar kemur auk þess til fram- kvæmda á einkar óheppilegum tíma, þ.e. þegar innflutningur fer ört vaxandi vegna taumlausrar eft- irspumarþenslu og fastgengis- stefnu ríkisstjómarinnar. Hinar tiltölulegu smáu íslensku iðngreinar þola ekki sviptingar af þessu tagi. Ýmsar þjónustugreinar iðnaðar- ins hafa löngum mátt sæta því að vera flokkaðar sem eins konar ann- ars flokks iðnaður og ekki búið við starfsskilyrði til jafns við viður- kenndar samkeppnisgreinar. Hafa þessar greinar m.a. þurft að greiða há aðflutningsgjöld af vélum, tækj- um og öðram aðföngum sínum, og hefur það hamlað framþróun í þess- um greinum. Löngu er orðið tfmabært, að látið verði af þeirri fomeskju, sem í þessu felst, og felld verði brott aðflutningsgjöld af öllum aðföngum fyrirtækja og fjárfesting- arvöru, án tillits til þess, hvaða atvinnugrein þau tilheyra. Það er þvf fagnaðarefni, að í fjárlagafram- varpinu er að fínna loforð um að lagt verði þegar í haust á Alþingi framvarp að nýrri tollskrá. Slíkt loforð hefur að vísu oft áður verið gefíð, án þess að við það hafí verið staðið. Ég leyfi mér samt að trúa, að að þessu sinni verði verkin látin tala á þessu sviði. Virðisaukaskattur Mér hefur orðið tíðrætt um efna- hagsráðstafanir ríkisstjómarinnar, sem því miður hafa einkum snúist um aukna skattlagningu, en minni djörfung sést við það mikilvæga verkefni að hefta ofvöxt ríkisbákns- ins. Þá get ég ekki skilist svo við skattamálin að víkja ekki að boðuð- um breytingum á mikilvægasta tekjustofni ríkissjðs, söluskattinum, en eins og fyrri ríkisstjóm hefur þessi ríkisstjóm á stefnuskrá sinni að koma á virðisaukaskatti í stað söluskatts. Það er í sjálfu sér ekki fráleitt, sem fjármálaráðherra hefur sagt, að fækkun á undanþágum frá sölu- skatti megi líta á sem skref í átt að virðisaukaskatti, þótt auðvitað verði þær ráðstafanir fyrst og

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.