Morgunblaðið - 27.10.1987, Side 28
28_______
Bretland:
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987
ERLENT
Verðfall hluta-
bréfa áfall fyrir
einkavæðinguna
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgimblaðsins.
Ríkissjóður skaðast ekki neitt á
útboðinu, vegna þess að þær fjár-
málastofnanir, sem tóku að sér að
sjá um söluna, skuldbundu sig um
leið til að kaupa þau bréf, sem seld-
ust ekki, á uppsettu verði. Bresku
fyrirtækin dreifðu áhættunni með
því að selja öðrum forkaupsrétt, en
bandarískir bankar, sem tóku að sér
sölu á hlutabréfum fyrir 220 milljón-
ir punda, verða að sitja uppi með
skaðann sjálfír.
Reuter
Deng Xiaoping, leiðtogi Kina, og Zhao Ziyang, settur formaður kínverska kommúnistaflokksins, við
setningu þrettánda flokksþings kommúnistaflokksins. Deng klæddist samkvæmt hefð kínverskra kom-
múnista en eins og sjá má var Zhao klæddur jakkafötum og bar bindi um háls.
Verðfallið á hlutabréfum á fjár-
málamörkuðum hefur haft
margvísleg áhrif. í lok síðustu
viku höfðu verðbréf fallið um 22%
í kauphöllinni i London frá þvi á
mánudag.
Á morgun, miðvikudag, lýkur
umsóknarfresti um hlutabréf ríkis-
stjómarinnar í olíufélaginu BP. Fyrir
rúmri viku auglýsti stjómin, að verð
hvers hlutabréfs yrði 330 pens, sem
var heldur undir markaðsverði þá.
Eftir að hlutabréf höfðu fallið um
22% í verði í síðastliðinni viku, var
verðið á hlutabréfum BP komið nið-
ur í 287 pens. Um sex milljónir
einstaklinga höfðu lýst áhuga sínum
á að kaupa þessi hlutabréf, áður en
verðfallið varð. Hlutabréf upp á 7,2
milljarða punda vom nú boðin út.
í síðustu viku sendu yfírvöld út
bækling til almennings og ýmsir
þeir, sem fengu hann, sóttu um
hlutabréf þá og gerðu sér ekki grein
fyrir, að þeir væm að tapa fé á
kaupunum. Ýmsir þeirra, sem búnir
em að senda inn ávísanir fyrir hluta-
bréfum eða búnir að biðja um
hlutabréf án þess að senda greiðslu,
>»Við getum ekki þrifist án einræðis," sagði Zhao Zhiyang í setningarræðu
Þrettánda þing kínverska kommúnistaflokksins:
Framhald endurbóta veltur
á arftaka Dengs Xiaoping
hart. Ef bréfín hækka á ný í verði
og ná um 315 pensum, verða þau
aftur eftirsóknarverð.
Peking, Reuter.
ÞRETTÁNDA þing kínverska
kommúnistaflokksins hófst i
Pólland:
Þjóðaratkvæði er
blekking ein
- segir í yfirlýsingn Samstöðu
Varsjá, Hamborg, Reuter.
SAMSTAÐA, hin óleyfUega
verkalýðshreyfing Pólveija, hef-
ur hvatt landsmenn til að virða
að vettugi fyrirhugaða þjóðarat-
kvæðagreiðslu um umbótaáætlun
stjómar kommúnistaflokksins. í
tilkynningu sem samtökin komu
á framfæri við Reuters-írétta,-
stofuna i gær segir að þjóðarat-
kvæðagreiðslan sé fyrst og
fremst áróðursbragð.
hugaðar efnahagsaðgerðir komm-
únistafíokksins. Búist er við að þær
hafí í för með sér tveggja til þriggja
ára niðurskurðartímabil. Þá verða
landsmenn einnig spurðir hvort þeir
styðji aðgerðir sem fyrirhugaðar eru
til að koma á auknu lýðræði í Póll-
andi, sem taki meira mið af sjónar-
miðum almennings en gert hafí verið
hingað til.
Pólski andófsmaðurinn Adam
Peking á sunnudag. Mikið var
fjallað um upphaf þingsins í
kinverskum fjölmiðlum og var
setningarræða Zhaos Ziyang,
forsætisráðherra og setts flokks-
formanns, sýnd í beinni sjón-
varpsútsendingu. í gær þinguðu
kinverskir kommúnistar aftur á
móti fyrir luktum dyrum og var
um tvö þúsund fulltrúum skipt
niður í 33 hópa til þess að fjalla
um skýrslu Zhaos. í skýrslunni
segir að Kínverjar eigi að hraða
umbótum í efnahagsmálum,
hefja róttækt endurskipulag
stjórnkerfisins og hvetja unga
leiðtoga til dáða.
Verið getur að líkur á að endur-
bótastefna Dengs Xiaoping haldi
fremur velli eftir hans dag aukist
eftir þetta þing kommúnistaflokks-
ins, en það mun að líkindum ráðast
af því hver verður valinn eftirmaður
Dengs. Erlendir fréttamenn fá ekki
að fylgjast með þinginu fyrr en
lokafundurinn verður haldinn 1.
nóvember. Þá verður tilkynnt um
nýja miðstjóm flokksins, en í henni
sitja 200 menn. Því næst mun mið-
stjómin koma saman til að útnefna
helstu ráðamenn landsins. Deng
hefur lýst yfír því að hann vilji
hætta afskiptum af stjómmálum
að mestu. Hann sagði aftur á móti
við málsmetandi gesti að félagar
sínir hefðu lagt hart að sér að sitja
áfram við stjómvölinn. Því er ekki
ljóst hvaða framtíð bíður Dengs.
Búist er við að Zhao verði kjörinn
formaður kínverska kommúnista-
flokksins.
stórt skref í átt að því að yngja upp
í svokallaðri fastanefnd stjóm-
málaráðsins, þar sem fímm valda-
mestu menn Kína sitja.
Vestrænn stjómarerindreki sagði
að ræða Zhaos hefði lofað góðu
fyrir endurbótasinna, en einnig
hefði hann reynt að sigla milli skers
og báru og forðast þrætur. Til
dæmis hefði Zhao talað um stífni
vinstri manna í sömu andrá og hann
sagði nauðsynlegt að beijast áfram
gegn „borgaralegu fijálslyndi" eins
og Kínveijar kalla vestrænar stjóm-
málahugmyndir opinberlega.
Zhao hvatti til þess að haldið
yrði áfram að fylgja endurbóta-
stefnunni, sem hann hefur hjálpað
Deng að hrinda í framkvæmd und-
anfarin níu ár. Aftur á móti sagði
hann að það myndi taka lengri tíma
en búist hefði verið við að koma á
markaðskerfí í landinu.
Hann sagði einnig að það myndi
taka tímann sinn að draga úr skrif-
ræði í stjómkerfínu og bætti við
að „ákveðni samhliða aðgát" væm
kjörorð sín í endurbótum á stjóm-
kerfínu, sem ráðgert er að hafí
minni afskipti af stjómun ríkisfyrir-
tækja og -stofnana frá degi til dags
en áður.
Zhao sagði að félagar flokksins
gætu aðeins fullkomnað list stjóm-
unar með því að hætta afskiptum
af framkvæmd smáatriða innan
stjómkerfísins. Sögðu stjómar-
erindrekar að röksemdir hans til
að sannfæra ráðamenn um að það
væri þeim í hag að afsala sér völd-
um í iðnaði og stjómkerfínu hefðu
verið veikburða og lítt sannfærandi.
Zhao reyndi ekki að gera lítið
úr vandamálum eins og alsiða var
á tímum Maós formanns. Sagði
hann að í Kína væri enn fólk, sem
hvorki hefði til hnífs né skeiðar,
fjórðungur þjóðarinnar væri ólæs
eða kynni varla að draga til stafs
og ýmsir félagar í kommúnista-
flokknum notuðu aðstöðu sína til
að svíkja út fé, smygla og svalla í
eigin siðblindu.
En ræða Zhaos bar í grófum
dráttum bjartsýni vitni og lagði
hann áherslu á að Kínveijar væru
á réttri leið og myndu að lokum
skipa sér sess meðal auðugustu
þjóða heims.
Marx-lenínisma og Maó Tsetung
bar lítið á góma í ræðunni, sem
Zhao var tvær og hálfa klukkustund
að flytja. Sagði Zhao að velja þyrfti
fulltrúa úr öllum stéttum þjóðlífsins
til þess að kjósa embættismenn
stjómarinnar. En hann fór ekki í
grafgötur um að einn flokkur myndi
áfram stjóma Kína og ekki kæmi
til greina að taka upp lýðræði að
vestrænni fyrirmynd. „Við munum
aldrei taka upp vestrænt kerfí þar
sem hinir ýmsu flokkar stjóma
landinu til skiptis," sagði Zhao.
„Við getum ekki þrifíst án einræð-
Reuter
Wojciech Jaruzelski (neðst til hægri), leiðtogi pólska kommúnista-
flokksins, greiðir atkvæði í pólska þinginu um síðustu helgi er
samþykktar voru breytingar á ríkisstjórn landsins.
„Hafa ber í huga að þeir sem
stjóma landinu brutu fyrir sex árum
á bak aftur viðleitni til að koma á
lýðræði og innleiddu herlög," sagði
í tilkynningu Samstöðu. Var enn-
fremur minnt á að ráðamenn hefðu
þá heitið að koma á endurbótum.
Þau loforð hefðu verið svikin og nú
væri svo komið að menn legðu eng-
an trúnað á yfíriýsingar stjómvalda.
Sagði ennfremur í yfírlýsingunni að
almenningur ætti ekki að taka þátt
í áróðursherferð stjómvalda.
í þjóðaratkvæðagreiðslunni, sem
fram fer 29. nóvember næstkom-
andi, verður almenningur beðinn um
að leggja blessun sína yfír fyrir-
Michnik sagði í viðtali sem birtist í
gær í vestur-þýska tímaritinu Der
Spiegel að fjölmargir Pólveijar hefðu
ekki trú á því að stjómvöld myndu
í raun hrinda þeim eftiahagsumótum
í framkvæmd sem þau hefðu boðað.
Sagði Michnik að það eitt væri ör-
uggt að verð á nauðsynjavörum yrði
hækkað og því yrði enn á ný ráðist
gegn lífslq'örum almennings sem
væru bág fyrir. Michnik er einn
helsti leiðtogi Samstöðu. Hann var
fangelsaður er starfsemi samtak-
anna var brotin á bak aftur. Á
síðasta ári var honum sleppt úr fang-
elsi er stjómvöld veittu pólitískum
föngum sakaruppgjöf.
Knattspyrna skemmti-
legri en flokksþingið
Peking, Reuter.
KÍNVERJAR fögnuðu ákaft
þegar ijóst var að kínverska
landsliðið i knattspyrnu hefði
unnið þátttökurétt á næstu
ólympíuleikum eftir að hafa
sigrað Japan með tveimur
mörkum gegn engu. Öll umferð
f miðborg Peking stöðvaðist og
skömmu áður en blásið var til
leiksloka í landsleiknum, sem
fór fram í Japan, söfnuðust
þúsundir manna saman á Tian-
anmen-torgi, þar sem Höll
alþýðunnar stendur.
Lögregla var kvödd út til að
veija Höll alþýðunnar fyrir ágangi
stuðningsmanna landsliðsins, en í
höllinni er nú haldið þrettánda
flokksþing kínverska kommúni-
staflokksins. Lögreglan sá þó ekki
ástæðu til þess að hafa afskipti
af fjöldanum, sem gekk um fagn-
andi og sprengdi púðurkerlingar.
Hjólreiðamenn fóru hrópandi um
og héldu á stórum rauðum fánum.
í úthverfum í norðvesturhluta
Peking þustu námsmenn á götur
út. „Knattspyma er skemmtilegri
en flokksþingið," sagði einn
námsmaður við Reuters-frétta-
stofuna. „Þeir geta ekki stöðvað
okkur núna vegna þess að gleði
okkar er til komin af föðurlands-
ást.“
Vestrænir stjómarerindrekar
kváðust sem minnst vilja segja um
ræðu og skýrslu Zhaos og síðasta
áfanga endurbótastefnu Dengs fyrr
en ljóst væri hver héldi um stjóm-
völinn í Kfna. „Ræða Zhaos fjallaði
um hinar opnu dyr að Kína. En
þessar dyr opnast í báðar áttir eft-
ir því hver er við völd,“ sagði
stjómarerindreki frá Asíu.
Zhao skoraði á þingið að taka