Morgunblaðið - 27.10.1987, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIBJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987
29
Bretland:
Hjónaband Karls
og Díönu í rústum?
Lundúnum, Reuter.
Á BRETLANDI velta menn
vöngum yfir því hvort hjónaband
þeirra Karls Bretaprins og
Díönu, konu hans, sé að fara í
hundana. Undanfarnar sex vikur
hafa hjónin ekki hist og þegar
fundum þeirra bar saman nú um
helgina var sá endurfundur mun
skemmri en búist hafði verið
við. Um 20 stundum eftir að þau
hittust ók Díana burt í fússi og
ýtti það enn undir vangaveltur
um að hið sex ára gamla hjóna-
band þeirra sé f hættu.
Að sögn blaðamanna var Díana
síst glaðljmd í fasi þar sem hún
brenndi af stað í Jaguar-bifreið
sinni frá sveitasetri hjónanna í
Highgrove á Vestur-Englandi. í för
með henni var einkalögreglumaður,
en ekkert sást til bama þeirra
Karls og Díönu, Vilhjálms og Hin-
riks. Hvert för hinnar 26 ára gömiu
prinsessu var heitið er enn ekki
ljóst. Venjulega heldur hún tii
Kensington-hallar á sunnudögum
til þess að fara með syni sína í
skóiann daginn eftir, en blaða-
fregnir herma að hennar hafi
hvorki verið vænst til Kensington-
hallar né Buckingham-hallar.
Skyndiieg brottför Díönu kom
hirðmönnum greinilega á óvart, því
á sunnudagskvöld var einn tals-
manna Buckingham-hallar augljós-
lega einskis vísari og sagðist halda
að hjónin væru bæði í Highgrove.
Hjónin hafa nú búið sitt í hvoru
lagi í sex vikur. Karl hefur verið í
Balmoral-kastala á Skotlandi, en
Díana, sem ekki fer í grafgötur
með óbeit sína á kastalanum, dvaídi
í Lundúnum. Þau hittust að vísu
við opinbert tækifæri í Wales í fyrri
viku, en sama kvöld flaug Karl
aftur til Skotlands.
Á laugardag kom Karl svo til
Highgrove og sendi gríðarmikinn
blómvönd á undan sér. Að sögn
blaðamanna leit hann út fyrir að
vera vansæll og fár í fasi þar sem
hann kom heim, hlaðinn gjöfum til
bamanna, sem hann hefur heldur
ekki séð í þessar sex vikur.
Karl kom heim skömmu áður en
móðir hans, Elísabet II. Englands-
drottning, er sat ráðstefnu sam-
veldislanda í Vancouver í Kanada.
Bresk dagblöð, sem hafa undan-
fama mánuði haft miklar áhyggjur
af sambúð þeirra hjóna, segja að
drottningin muni nú grípa í taum-
ana og reyna að sætta hjónakomin.
„Sagt er að hennar hátign muni
tilkynna þeim að sama á hveiju
gangi í hjónabandi þeirra, verði
Karl og Díana að forðast löng sam-
vistarslit," sagði í The Sunday
Times.
Jólahald í helli á Ítalíu
Ancona, Ítalíu, Reuter.
ÍTALSKUR þjóðfélagsfræðingur
hefur boðið tíu sjálfboðaliðum að
eyða jólunum með sér í helli und-
ir yfirborði jarðar nálægt borg-
inni Ancona á austurströnd ítaliu.
Maurizio Montalbini, sem dvaldi
210 daga f hellinum fyrr á þessu
ári, sagði í samtali við dagblaðið
Stampa Sera að hann hygðist með
boðinu kanna hvemig samfélag
manna væri, einangrað frá umheim-
inum. Montalbini kallar verkefnið
„neðanjarðarborg" og segist vilja fá
10 karla og konur til liðs við sig auk
tveggja lækna, sjónvarpsmanns og
hellafræðings.
Fólkinu er ætlað að dvelja í hellin-
um frá 14. desember til 27. janúar.
„Þetta verður eins og að sigla yfír
úthafíð í eilífu myrkri," segir Mon-
talbini. Hann segir dvölina verða allt
annað en auðvelda og þátttakendur
verði að vera í andlegu jafnvægi og
á aldrinum 15 til 45 ára.
Slepak kemur tíl Víuar-
borgar eftir 17 ára bið
Begun segist enn vilja fara frá Moskvu
Vinarborg og Moskvu, Reuter.
RÚSSNESKI gyðingurinn og
andófsmaðurinn Vladimir Slep-
ak kom ásamt Mariu konu sinni
til Vínarborgar á sunnudaginn
eftir að hafa beðið farleyfis frá
Sovétríkjunum í 17 ár. Sagði
hann við komuna að það hefði
verið þrýstingi frá Vesturlöndum
að þakka að honum var loksins
leyft að fara yfir i freisið. Sonur
Slepaks, Alexander, sagðist vona
að fararleyfi foreldra sinna gæfi
til kynna stefnubreytinga eystra
gagnvart gyðingum, en faðir
hans var á síður en svo á sama
máli.
„Ég held ég viti nokkru meira
en sonur minn [um ástandið í Sov-
étríkjunum],“ sagði Slepak á
blaðamannafundi. „Frá mínum
sjónarhóli er Sovétstjómin að reyna
að blíðka Vesturlönd vegna þess
að hún þarf á aðstoð og lánsfé
þeirra að halda," sagði Slepak og
hvað kommúnistaleiðtogana varð-
aði, gamla og nýja, sagði hann að
þeir væru og yrðu harðstjórar.
„Geri þeir eitthvað er það vegna
þrýstings að vestan. Væri enginn
þrýstingur eða væru Sovétríkin
nógu voldug, myndu þeir ekkert að
hafast:"
Slepak var fímm ár í útlegð
skammt frá landamærum Mongólíu
og hefur mátt þola pyntingar og
yfirheyrslur hvað eftir annað síðan
hann sótti fyrst um vegabréfsáritun
árið 1970. I gær fór hann til ísra-
el, þar sem hann hyggst setjast að.
Af andófsmanninum Yosif Beg-
un, sem enn er í Moskvu, er það
að frétta að hann sagðist enn vilja
flytja til ísrael, ef sonur hans og
fjölskylda fengju líka að fara. Þetta
tók hann fram vegna fréttar í blað-
inu Izvestia þess efnis að hann vildi
ekki lengur fara til ísraels eftir að
ísraeli nokkur, sem var á ferð í
Moskvu fyrir skömmu, bað hann
vera um kyrrt. í fréttinni var gefíð
til kynna að Begun ætlaði sér að
vera um kyrrt í annarlegum til-
gangi og sagðist blaðið hafa
segulband með samtali Beguns og
ísraelans undir höndum.
Begun vísaði þessu á bug sem
hveijum öðrum þvættingi. Sagði
hann að ljóst mætti vera að hann
færi ekki frá Sovétríkjunum fyrr
en sonur hans fengi eir.nig farar-
leyfi. Begun sagði að vandræðamál
þetta undirstrikaði þann vanda, sem
gyðingar í Sovétríkjunum búa við,
þrátt fyrir meintar umbótatilraunir.
„Perestroika og glasnost gilda ekki
um gyðinga í þessu landi," sagði
Begun. „Gyðingar eru beittir ofrétti
nú eins og þeir hafa verið á öllum
tímum."
Ný utanríkisstefna
stjórnvalda kynnt
Suva, Reuter.
HERSTJÓRNIN á Fyi-eyjum
hefur ákveðið að leita eftir viður-
kenningu stjórna Sovétrikjanna
og Kína í framhaldi af nýrri ut-
anríkisstefnu sem tekin hefur
verið upp.
Nýja utanríkisstefnan var mörk-
uð af Felipe Bole utanríkisráðherra
og er gerð grein fyrir henni í fímm
síðna plaggi sem Reuter-fréttastof-
unni hefur borist. Þar segir að
Fiji-eyjar muni reyna að komast
yfír það ef Ástralir og Nýsjálend-
ingar snúi við þeim baki með því
að leita nýrra bandamanna meðal
Asíu-þjóða. Þessar tvær þjóðir hafa
hótað að hætta viðskiptum við Fiji-
eyjar í kjölfar valdatöku Rabuka
hershöfðingja og sambandsslitum
við Breta.
í yfírlýsingu frá utanríkisráð-
herranum Felipe Bole segir að þess
sé ekki langt að bíða að þjóðir heims
muni viðurkenna hið nýja lýðveldi
Fiji. Bandaríkjamenn hafa gefíð í
skyn að þeir muni viðurkenna hið
nýja lýðveldi ef stjómvöld þar haldi
vinsamlegum samskiptum. Rabuka
hefur svarað tilmælum Bandaríkja-
Felipe Bole utanrikisráðherra
Fyi.
manna á þann veg að líklega muni
hagsmunum Bandaríkjamanna vera
gætt betur en áður.
Síamstvíburar
í E1 Salvador
Þessir síams-tviburar fæddust i San Salvador á fimmtudaginn
var. Læknar telja lífslikur tvíburanna, sem eru stúlkur, miklar
ef þsér verða skildar að. í San Salvador er engin aðstaða til að
gera slika aðgerð þannig að fara þarf með litlu stúlkurnar til
útlanda til að skilja þær að.
LISTAFÓLK FRÁ
HVÍTARÚSSLANDI
Fjölbreytt efnisskrá í söng, hljóðfaeraleik og þjóð-
dönsum á eftirtöldum samkomum og tónleikum:
Hótel Selfoss:
Miðvikudaginn 28. okt. kl. 20.30. Sovéskir dagar
settir. Ávörp, Guðmundur Daníelsson les upp,
söngur, hljóðfæraleikur, þjóðdansar. Aðgangur
ókeypis og öllum heimill.
Heimaland Vestur-Eyjafallahreppi:
Föstudaginn 30. okt. kl. 21.00.
Tónleikar og danssýning.
Hlégarður Mosfellsbæ:
Laugardaginn 31. okt. kl. 16.00.
Tónleikar og danssýning.
Menntaskólinn við Hamrahlíð
Reykjavík:
Sunnudaginn 1. nóv. kl. 15.00. Minnst70 ára af-
mælis októberbyltingarinnar og þjóðhátíðardags
Sovétríkjanna. Ávörp og skemmtiatriði. Aðgangur
öllum heimill.
Þjóðleikhúsið:
Mánudaginn 2. nóv. kl. 20.00. Tónleikar og dans-
sýning af fullri lengd og við bestu aðstæður.
Aðgöngumiðar seldir og afgreiðddir til MÍR félaga
í húsakynnum félagsins á Vatnsstíg 10.
Missið ekki af fjölbreyttri og góðri skemmtun.
Stjórn MÍR.