Morgunblaðið - 27.10.1987, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987
Friðar-
hárgreiðsla
Ung stúlka sem þátt tók í
friðargöngu í Helsinki um
helgina bjó tU „friðar-tré“
úr hári sínu. í hárinu eru
fánar margra þjóða og á
miðanum stendur friður á
ensku, finnsku og rússnesku.
Thailand:
Maríjúana
finnst á
flugvelli
Bangkok, Reuter.
TOLLVERÐIR á Bangkok-flug-
velli í Thailandi lögðu hald á 700
kg af maryúana um helgina. Að
sögn tollyfirvalda er þetta mesta
magn af maríjúana sem lagt hef-
ur verið hald á i einu.
Fengurinn var falinn í kössum
merktum „postulíns-vörur", og átti
að senda hann til Sierra Leone.
Enginn hefur verið handtekinn, en
nafn sendandans, sem er Vestur-
landabúi, hefur ekki verið gefið upp
vegna rannsóknar á málinu, að sögn
yfírvalda.
Thailensk yfírvöld hafa á undanf-
ömum árum lagt hald á töluvert
magn eiturlyfja og í ár hefur þeim
orðið vel ágengt því fyrr á árinu
lögðu þeir hald á 680 kg af heróíni
um borð í fískibáti.
Filippseyjar:
Þrír láta
lífið í
sprengingn
Zamboanga, Filippseyjum, Reuter.
SPRENGJA sprakk á heimavist í
háskóla á lítilli eyju úti fyrir Mind-
anao, næststærstu eyju Filipps-
eyja. Á heimavistinni voru
samankomnir þátttakendur á ráð-
stefnu. Þrír iétu lífið f sprenging-
unni og 26 særðust.
Sprengjan var falin (ruslafotu sem
drengur skildi eftir á heimavist há-
skólans skömmu áður en sprengingin
varð. Mennimir sem voru saman-
komnir á heimavistinni voru víða að
á eyjunum og ráðamenn í viðskiptum
og atvinnulffí (heimahéruðum sinum.
Enginn hefur lýst yfír ábyrgð á
sprengingunni, en Jolo-eyja þar sem
8prengingin varð, er á svæði þar sem
múhameðstrú er ráðandi og hafa
íbúar farið fram á að fá sjálfstæði.
Á sunnudag og mánudag voru
einnig sprengdar sex brýr á Filipseyj-
um. Talið er að þar hafi kommúnistar
andvígir stjóm Corazon Aquino for-
seta verið að verki.
Reagan Bandaríkjaforsetí:
Fómum ekki hagsmimum
okkar fyrir leiðtogafund
Einhugur meðal
utanríkisráðherra
NATO-ríkja
Waahington, Briissel, Moskvu, Reuter.
RONALD Reagan Bandaríkja-
forseti hyggst hvergi hvika frá
geimvarnaráætluninni og hefur
tæpitungulaust sagt ráðamönn-
um í Moskvu að hann ætli ekki
að fórna mikilvægum hagsmun-
um til þess eins að halda megi
leiðtogafund með Mikliail
Gorbachev, leiðtoga Sovétríkj-
anna.
„Ekki hefur verið ákveðið hven-
ær leiðtogafundur verður haldinn.
En okkur liggur ekkert á,“ sagði
Reagan í vikulegu útvarpsávarpi
sínu til bandarísku þjóðarinnar á
laugardag. „Og við látum öldungis
ekki neyða okkur til þess að fóma
hagsmunum okkar til þess eins að
halda fund.“
Sovétmenn neituðu að standa við
orð sín um að ákveða leiðtogafund
þegar George Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, kom til
Moskvu fyrir síðustu helgi til við-
ræðna við ráðamenn. Shultz og
Eduard Shevardnadze, utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, tókst ekki
heldur að reka smiðshöggið á samn-
ing um upprætingu meðaldrægra
og skammdrægra kjamorkuflauga,
sem búist hafði verið við að Reagan
og Gorbachev gætu undirritað (
Washington einhvem tíma í nóvem-
ber.
Gorbachev lét að því liggja við
Shultz að hann myndi ekki koma
Reuter
Eduard Shevardnadze, utanrík-
isráðherra Sovétríkjanna, grein-
ir frá viðræðum sínum við
George Shultz, á blaðamanna-
fundi í Moskvu.
til leiðtogafundar við Reagan nema
samkomulag væri um grundvallar-
atriði varðandi langdrægar flaugar
og vopn í geimnum.
Shultz fór frá Moskvu á föstudag
og á laugardag greindi hann frá
viðræðum sínum við ráðamenn í
Kreml á fundi með utanríkisráð-
herrum Atlantshafsbandalagsins.
Shultz furðaði sig á því að Gorbac-
hev skyldi ekki vilja standa við gefín
orð og ákveða hvenær leiðtogafund-
ur skyldi haldinn. Ráðherrann var
spurður hvort rekja mætti hik Sov-
étleiðtogans til vandamála heima
fyrir. „Eg veit ekki hvað réð mestu
um afstöðu hans og meira get ég
George Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, á blaða-
mannafundi sinum nMoskvu.
ekki sagt,“ sagði Shultz.
Þegar Shevardnadze fór til Was-
hington í síðasta mánuði krafðist
hann þess að tekið yrði fram í sam-
eiginlegri yfírlýsingu sinni og
Shultz að leiðtogafundur yrði
ákveðinn í Moskvu.
Utanríkisráðherramir sem sátu
skyndifundinn í Brússel um helgina
kváðust flestir ánægðir með að risa-
veldin hefðu gengið frá ýmsum
smáatriðum í væntanlegu sam-
komulagi um upprætingu skamm-
drægra og meðaldrægra flauga.
Þeir sögðust skilja vonbrigði
Bandaríkjamanna vegna leiðtoga-
fundarins, en litu aftur á móti svo
á að það væri ekki ýkja mikilvægt
atriði. Hans-Dietrich Genscher
sagði að samkomulag um skamm-
drægar og meðaldrægar flaugar
ylti ekki á því hvort leiðtogafundur
yrði haldinn: „Leiðtogafundur er
ekki nauðsynlegur til að undirrita
samkomulagið." Sir Geoffrey
Howe, utanríkisráðherra Breta,
sagði við blaðamenn að nú þyrfti
Gorbachev að fjarlægja hindmn,
sem hann hefði sjálfur komið fyrir,
ef árangur ætti að nást í afvopnun-
armálum: „Boltinn er augljóslega
innan Kremlarmúra."
Shultz sagði að þrátt fyrir von-
brigði hefði för sín til Moskvu ekki
verið árangurslaus. Kvað hann
árangur hafa náðst í viðræðum um
mikilvæg atriði. Hann kvaðst aftur
á móti hafna alfarið tveimur nýjum
tillögum Sovétmanna, sem Gorbac-
hev hefði skýrt út. Annars vegar
lögðu Sovétmenn til að bann yrði
lagt við framleiðslu og staðsetningu
skammdrægra og meðaldrægra
flauga og hins vegar að hætt yrði
að smíða ratsjárstöð í Krasnoyarsk
í Síberíu ef Bandaríkjamenn létu
af smíði samskonar ratsjárstöðvar
á Bretlandi.
Shultz kvaðst vongóður um að
samkomulag um meðaldrægar og
skammdrægar flaugar tækist þrátt
fyrir bakslag í Moskvu.
Svo virðist sem geimvamaáætlun
Bandaríkjastjómar sé á nýjan leik
orðin fleygur í samskiptum Sovét-
manna og Bandaríkjamanna. „Þeir
segja að eingöngu sé um vamar-
skjöld að ræða og við emm sann-
færðir um að þeir séu að smíða
árásarvopn. Það er því ekki mikið
rúm til samninga," sagði sovéskur'
embættismaður.
Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra:
Sovétstjórnin hefur glatað
nokkru af frumkvæði sínu
NATO-ríkin þrýsta ekki á um leiðtogafund
STEINGRÍMUR Hermannsson
utanríkisráðherra sat á föstudag
fund utanrikisráðherra aðild-
arríkja Atlantshafsbandalagsins,
sem fram fór í höfuðstöðvum
bandalagsins i Brtissel í Belgíu.
Á fundinum skýrði George
Shultz, utanríkisráðherra
Bandarikjanna, frá viðræðum
sinum og sovéskra ráðamanna i
Moskvu í siðustu viku. í gær boð-
aði utanrikisráðherra til blaða-
mannafundar í Rúgbrauðsgerð-
inni við Borgartún af þessu
tilefni og skýrði frá fundi ráð-
herranna i Beigiu og stöðu
afvopnunarviðræðna risaveid-
anna. Lýsti Steingrimur þeirri
skoðun sinni að Sovétstjómin
hefði glatað nokkru af þvi frum-
kvæði sem hún hefði haft að
undanförnu í afvopnunarviðræð-
um þar sem sett hefðu verið ný
skilyrði fyrir fundi leiðtoga risa-
veldanna. Einnig sagði hann
sjónarmið ísiendinga og Norð-
manna fara saman varðandi
geimvarnaráætlun Bandaríkja-
stjóraar auk þess sem rikin tvö
væru janframt sammála um
nauðsyn þess að fyrirbyggja
aukna vígvæðingu á norðurslóð-
um.
Steingrímur vék í upphafi máls
síns að gildi sKkra ráðherrafunda
og sagði það vera ótvírætt. Gat
hann þess að Bandaríkjamönnum
væri mjög í mun að hafa aukið
samráð við aðildarríki NATO í Evr-
ópu til að vinna bug á tortryggni
ákveðinna aðildarríkja sem gætt
hefði eftir leiðtogafundinn í
Reykjavík er risaveldin urðu ásátt
um að stefna að útrýmingu meðal-
og skammdrægra lq'amorkuflauga
á landi. Steingrímur sagði George
Shultz hafa skýrt utanríkisráðherr-
unum ítarlega frá gangi viðræðn-
anna í Moskvu og hefði ríkt afar
rík samstaða á ráðherrafundinum í
Brussel. Sagði utanríkisráðherra
það sérlega fróðlegt að sitja slíka
fundi og væri honum nú ljósar en
áður um hversu flókin mál væri að
ræða. Kvaðst ráðherra ávallt hafa
alið með sér draum um að unnt
yrði að útrýma öllum kjamorku-
vopnum en hinir færostu sérfræð-
ingar teldu það í raun útilokað þar
sem auðvelt væri að smíða kjam-
orkusprengjur en jafnframt gífur-
lega erfítt að halda uppi eftirliti.
„Mann rekur í vörðumar þegar
slíkar upplýsingar em bomar
fram,“ sagði utanríkisráðherra.
Shultz sagði afstöðu Sovétstjóm-
arinnar hafa gjörbreyst frá því
Mikhail S. Gorbachev komst til
valda í Soyétrílqunum. Gilti þetta
um flest þau mál sem rædd væm
á fundum sem þeim sem nýlokið er
í Moskvu. Sagði Steingrímur að
fram hefði komið að mun fleiri and-
ófsmönnum einkum gyðingum hefði
verið heimilað að flytjast frá Sov-
étríkjunum á þessu ári og væri
rætt um að 13.000 manns fengju
fararleyfí á þessu og gat utanríkis-
ráðherra þess að árið 1985 hefðu
um 1.000 manns fengið slíkt leyfí.
Sagði Steringrímur ljóst að á þessu
sviði hefði orðið algjör viðhorfs-
breyting í Sovétríkjunum.
Steingrímur sagði Shultz hafa
skýrt frá viðræðum um meðal- og
skammdrægar flaugar en búist
hafði verið við því að utanríkisráð-
herrar risaveldanna þeir Shultz og
Eduard Shevardnandze myndu
ganga frá lokadrögum sáttmála um
algera útrýmingu þess háttar
flauga á landi svo og að dagsetning
næsta leiðtogafundar yrði ákveðin.
Þetta hefði ekki tekist þar sem
Mikhail Gorbachev hefði óvænt sett
það sem skilyrði fyrir leiðtogafundi
að fyrir lægju drög að samkomu-
lagi um geimvamir og túlkun á
ABM-sáttmálanum frá árinu 1972
um takmarkánir gagneldflauga-
kerfa. Sagði Steingrímur að þessi
afstaða hefði komið eins og „skratt-
inn úr sauðarleggnum" og ekki
væri unnt að segja til um hvað
hefði valdið henni. Kvaðst utanrík-
isráðherra telja að með þessu hefði
Sovétstjómin glatað nokkro af því
frumkvæði sem hún hefði átt í af-
vopnunarviðræðum að undanfömu.
George Shultz hefði á hinn bóginn
fullvissað utanríkisráðherrana um
að verolega hefði miðað í viðræðum
um meðal- og skammdrægar kjam-
orkuflaugar og væm menn þess
fullvissir að unnt yrði að undirrita
samkomulag um útrýmingu þeirra
öðm hvom megin við áramótin.
Sagði Steingrímur að þau ágreings-
mál sem enn væro óleyst vörðuðu
einkum hvemig að eyðingu flaug-
anna yrði staðið þar sem gerð þeirra
og smfði væri hemaðarleyndammál
og því hefðu komið upp ákveðin
vandamál varðandi eftirlit með
upprætingu þeirra. Steingrímur gat
þess einnig að Bandaríkjamenn og
Vestur-Þjóðveijar hefðu náð sam-
komulagi um hvemig standa bæri
að upprætingu skammdrægra
kjamorkuflauga í Vestur-Þýska-
landi af gerðinni Pershing 1-A, sem
lengi virtust ætla að koma í veg
samkomulag.
Eduard Shevardnadze lýsti yfír
því á föstudag að ekki væri ástæða
til að efna til leiðtogafundar til að
undirrita samkomulag um meðal-
drægar flaugar. Aðspurður um
þetta sagðist Steingrímur telja að
báðir leiðtogar risaveldanna vildu
gjaman koma á leiðtogafundi en
svo virtist sem Shevardnadze teldi
að unnt að yrði að undirrita sam-
komulagið á öðmm vettvangi
líklega í Genf þar sem afvopnunar-
viðræðumar hafa farið fram. Frank
Carlucci, öryggisráðgjafí Reagans
Bandaríkjaforseta, sagði um helg-
ina að hann teldi Kklegt að boðað
yrði til leiðtogafundar á þessu ári
en George Shultz hefur tekið þung-